Tíminn - 29.07.1962, Blaðsíða 9

Tíminn - 29.07.1962, Blaðsíða 9
Hávaðinn sviptir félógin völdum Hávaðinn af þessum hraðvélum erxekki minna vandamál. Sannast að segja, skrifar Lundberg, mundi hann brátt leiða til þess, að flug- félögin fengju ekki að ákveða, hvar og hvenær þau vildu fljúga. í>að yrðu semsé íbúar þeirra svæða ' «r vélarnar flygju yfir, er myndu Sieimta að fá að ákvarða slíkt. íil þess að skýra þetta er nauð- synlegt að leiðrétta misskilning, sem er mjög útbreiddur. Margir halda sem sé, að aðeins komi augna blikshávaði, er hraðvélin fer í gegnum hljóðmúrinn og svo ekki meir. En hið rétta er, að hávaðinn fylgir vélinni á öllu fluginu eins og alda eftir að vélin hefur náð öryggi, ekki aðeins flugfarþeganna sjálfra heldur og þeirra, sem flog- ið er yfir og á jörðinni dvelja. Um þetta atriði segir Lundberg m.a. Ef til kæma vélar, er flygju hrað- ar en hljóðið, þá hefði frá tækni- legu sjónarmiði aldrei verið tekið alvarlegra skref hvað viðkemur öllu ötyggi. Með tilkomu þrýsti- loftsvélanna voru vandamálin í þessu sambandi tiltölulega létt leys anleg, enda þótt hraðinn ykist um 60 af hundraði, en með flughraða meiri en hljóðsins kæmu til öllu stærri og erfiðari vandamál og fá þeirra hefur tekizt að leysa enn í dag, enda þótt mönnum séu þau að nokkru ljós og hafi reynt að glíma við þau í sambandi við otr- ustuþotur, er fara hraðar en hljóð- ið. Lundberg nefnir mörg þessara grein sinni fjárhagslegum atrið-' um. Hann spyr, hvort menn muni almennt hafa gert sér ljóst hvað myndi kosta að taka upp vélar, er færu hraðar en hljóðið. Rann- sóknir og smíði á tilraunavélum gætu kostað allt upp undir 45 milljarða íslenzkra króna og verð þessara véla til flugfélaganna yrði væntanlega frá 400 milljónum ísl. króna allt upp i 1 milljarð ísl. króna fyrir hverja vél eftir stærð. Það getur auðvitað hver heilvita maður sagt sér það sjálfur, að þetta hlyti að hafa í för með sér gífurlega hækkun á flugfargjöld- um. En jafnframt er það augljóst, segir Lundberg, að það yrði tak- markaður fjöldi farþega, sem vildi, greiða hærra verð fyrir það eitt að spara sér örfáa flugtíma. Sem hraða hljóðsins og því lægra sem vélin fer því meiri verður þessi hávaði. Þessá ógnþrungni hávaði myndi miskunnarlaust og stöðugt glymja í eyrum íbúa þeirra svæða, er flog- ið væri yflr og víðátta hans væri slik að flygi vél yfir Danmörku eða England myndi hávaðinn öskra i eyrum hvers einasta íbúa lands- ins. í regíum alþjóða flugmála- stofnunarinnar er ákvæði þar sem segir: Hávaði frá flugvélum, er fara hraðar en hljóðið má aldrei orsaka alvarleg óþægindi hjá því fólki, er býr í nágrenni flugleiða. Hér myndu sem sagt stangast á raunverulelkinn og góður vilji, því að hávaðinn frá hraðvélunum myndi algerlega æra þúsundir jarð arbúa. Vísindin þekkja engin ráð gegn þessum hávaða og við verðum að gera okkur grein fyrir því, að þessi hávaði er slíkur, að hávaði flrá járnbrautum, bílamergð og verksmiðjum samanlagður kemst aðeins í hálfkvisti þar við. Ekki nóg öryggi Þriðja vandamálið er varðandi vandkvæða og telur hvert um sig nægilega stórt til þess að menn skyldu ekki hugsa ákaft um hrað- vélarnar, en hann nefnir síðast þann erfiðleikann, sem e. t. v. er allra verstur: Er nokkur mögu- leiki að byggja svo flugvélar að fullkomið öryggi sé fyrir hendi gagnvart hinni auknu núnings- mótstöðu, sem er samfara hinum aukna hraða? Lundberg fer um þetta nokkrum orðum og er meg- ininntak þeirra á þá leið, að með þeim útbúnaði, er menn ráða yfir í dag geti menn hvorki sannreynt efni né smíðislag, er þurfi í hrað- vélarnar með jafn miklu öryggi og hægt er við flugvélar þær, sem notaðar eru nú í dag. í samþykktum alþjóða flugmála- stofnunarinnar segir m. a.: Flug- vélar sem fara hraðar en hljóðið og ætlaðar eru til farþegaflutnings verða að vera sannreyndar að jafn- miklu öryggi í öllum búnaði og bezt verður náð i öðrum flugvél- um á sama tima. Þetta er ekki hægt eins og nú standa sakir, segir Lundberg, af þeim orsökum, er hann hefur þegar greint. Flárhagsleg tvísýna Lundberg veltir og fyrir sér í sagt, flugfélög, er tækju í notkun hraðvélarnar gætu búizt við fjár- hagslegu hruni. Flýtum okkur hægt Lundberg dregur að lokum fram nokkrar niðurstöður: Hann telur sjálfsagt að flýta sér hægt í þessu máli og að engar ákvarðanir um farþegaflug með vélum, er fari hraðar en hljóð'ið verði teknar á næstu 10 árum. Hann leggur ein- dregið til að geraur verði samn- ingur milli flugfélaga, flugvélaverk smiðja og iafnvel ríkisstjórna þess efnis, að engar slíkar flugvélar verði smíðaðar né settar á mark- að á næstu 10 árum a. m. k. í stað þessa telur Lundberg að mönnum beri að snúa sér að því að sameinast um að leysa mikil- vægustu vandamál farþegaflugs- ins í dag en þau telur Lundberg vera þessi: k Aukið flugöryggi ★ Smíði flugvéla. er geta lent og | hafið sig lóðrétt á loft, en 'líksr ''é’ar mvndu valda bvlt- ! ingu í innanlandsflugi eða flugi vfirleitt á styttri flug- leiðum. Framh. á 15. síðu. OG HELVITIFY heimtar dómsúrskurð um landfræöilega stööu þeirra. að nafni Jón Smith og hann varð allt annað en hýr yfir því að vera sviptur arflnum. Smith lýsti því þess vegna yfir skýrt og skorin- ort, að kaþólskir prestar hefðu heimsótt Supple gamla, er hann var að dauða kominn og lýst fyrir honum staðháttum og aðstöðu allri á stöðum þeim, er við nefn- um Himnariki og Helvíti. Smith telur, að prestarnir muni ekkert hafa dregið úr fögrum lýsingum á Himnaríki né heldur pín og kvöl neðri staðarins. Við þessu er svo sem ekkert að segja svona út af fyrir sig, en Smith er þess full- viss, að prestarnir hafi haft áhrif á gamla manninn um ráðstöfun eigna hans eftir dauðann. Þeir hafi sem sé sagt við hann rétt sem svona: Supple góður. Við höfum lýst fyrir þér fegurð Himnaríkis, þar sem kærleikurinn ríkir og frið ur og við höfum dregið upp fyrir þér mynd af ógnum Helvítis. Gef ir þú eigur þínar til kirkjunnar, ferð þú til Himnaríkis, en arfleið- ir þú herra Smith, tja, hvað skal segja. Þá ferðu a. m. k. ekki til Himnaríkis. Sem sagt ekki um margt a^ velja. Og þessu vill herra Smith ekki una og hefur af því tilefnj snúið sér til Hallinan lögfræðings, enda vissi Smith, að Hallinan var í senn andsnúinn kaþólikkum og vildi gera ýmsar kreddur kirkjunn ar spaugilegar. Hallinan ákvað að taka að sér málið og láta þessa heims fUlltrúa kaþólsku kirkjunn ar sanna, að til væru Himnariki og Helvíti. Landfræðileg staða þessara hugtaka skyldj skýrð og ákveðin og hananú Það voru víst fæstir, er bjugg- ust við því, að dómstólarnir myndu taka að sér mál sem þetta, en það var nú öðru nær. Þeir hafa það nú til meðferðar og við skulum grípa niður í eitthvað af því, er Hallinan hefur að segja: .....Supple gerir erfðaskrá sína fullur af ótta. Hann hræðist það að sál hans muni hafna í Hel- víti a. m. k muni hún ekki fá vistarveru í Himnaríki, fyrr en hún hefur verið einhvern óratíma í hreinsunareldinum. M. ö. o. Supple hefur verið sannfæirður um það, að Himnaríkj og Helvíti séu áþreifanlegir staðir í alheim- inum og með þeim hætti hafa ver ið höfð áhrif á erfðaskrá hans “ Auðvitað afneita fulltrúar ka- þólsku kirkjunnar í San Francisco þessum áburði. Þeir neita einnig að hægt sé að staðsetja Himnaríki og Helvíti landfræðilega, en hins vegar halda þeir fast við það, að „trúin ein er ekki næg til sálu hjálpar Þar verða og að koma til góðar gjörðir“. En .vel að merkja: Þeir segja einnig, að „arfleiðing peninga og jarðneskra eigna til- heyrir ekki þeim góðu gjörðum, er stuðla að frelsun sálarinnar" Kaþólska kirkjan leggur einnig áherzlu á það, að dómstólar geti ekki fjallað um mál, sem þetta Samkvæmt stjórnarskrá Banda- ríkjanua skal ríkja trúfrelsi: hver og einn má játa þá trú, er hann : helzt kýs. Kirkjan neitar og alveg áburði hins grarna og hjásetta erf ingja Prestarnir voru aðeins hugg arar Supple heitins. Þótt þeir segðu honum upp og ofan um eðli honum e. t. v. til kynna með hverj Himnaríkis og Helvítis og gæfu um ráðum hann gæti betur tryggt j sér húsaskjól á betri staðnum, þá. var það aðeins til þess að draga úr kvíða hans gagnvart óvissunni. En hversu sem þétta nú allt er, þá er þó einn hlutur vís: Vincent Hallinan hefur aftur komizt f feitt Nafn. hans verður aftur á hvers j manns vörum. hversu svo sem mál j inu kann að reiða af. Og þegar allt kemur til alls, þá er það ein- mitt þetta, sem Hallinan er að sækjast eftir miklu fremur en að vinna málið, enda mun hann ekki gera sér mikla von um það. En þetta veTða sennilega allra skemmtilegustu réttarhöld og nið urstaða æruverðugra dómara vafa lítið sögulegt plagg. Einar Guðmundsson að starfi. Halló! darleit aufarhöfn „Halló, Síldarleitin, Raufar- höfn — Síldarleitin, Raufar- höfn“. Hversu oft skyldu þessi orð eiginlega hafa hljómað út yfir öldur ljósvakans á þessu sumri? Það eitt er víst, að þau skipti má orðið teija í þúsund- um. Um daginn, þegar tíðinda- maður blaðsins vaiy staddur á Raufarhöfn. datt honum til huga-r að gaman gæti verið að líta inn hjá þessari mjög svo margnefndu stofnun. Þetta var um hábjartan dag- inn j glaða sólskini. Að gömlum og góðum sið öankaði komumaður á dyr. — Kom mn, sagði rödd innan dyra, og þegar upp var hrundið hurðinni, sat maður fyrir fram an borð fullt af hinum óskilj- anlegustu tækjum og talaðj í síma. Þetta reyndist vera Ein- ar Guðmundsson, fyrrum skip- stjóri, annar forsvarsmaður Síldarleitarinnar á Raufarhöfn Hann sagði m. a.: — Starf okkar hérna miðast við að vera eins konar frétta- miðlunarskrifstofa. Við höfum samband við leitarskipin tvisv ar á sólarhring. Og við hlust- um eftir öllu, sem talað er í stöðvar skipanna á veiðisvæð- inu. Tali til dæmis Guðrún Þor kelsdóttir eða Víðir II., þá hlustum við eftir, hvort þau hafi eitthvað merkilegt að segja Við þurfum í rauninni að vera þess umkomnir að segja um, hvort það, sem vi8 heyrum, er fréttnæmt eða ekki fyrir flotann. Ef við heyrum eitthvað, sem fréttnæmt er, þá látum við flotann vita hvað er að gerast. — Gengur ekki misjafnlega að fá skipstjórana til að tala? — Jú, það vill nú stundum ganga misjafnlega. Sumir eru anzi innhverfir og erfitt að toga upp úr þeim orð, En þetta færist nú alltaf í betra og betra horf. Menn eru farnir að skilja það, að til þess að við getum sagt flotanum fréttir, þá verð- um við að fá þær einhvers stað ar frá. — Hafið þið með að gera út- réttingar fyrir flotann? — Nei, ekki nú orðið, höfð- um það áður. Það var geysimik ið starf. Ef til dæmis bátur fékk síld og vildi koma henni í salt, þá kallaði hann okkur upp og bað okkur að tala við sölt- unarstöðina. Þetta var sífelldur milliburður og oft erfitt verk. Nú hefur tilkoma Raufarhafnar radíós blessunarlega losað okk- ur við þetta allt, Nú hringir síminn. Einar tal ar lengi við þann, sem er á hin u.m endanum. Það er auðheyrt, að það er útgerðarmaður að spyrja um báta sína. Þegar Ein ar sleppir tólinu, segir hann: —- Þeir þurfa margs að spyrja, Framh. á 15: síðu. T í M I N N, sunnudagurinn 29. júlí 1962. — 9

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.