Tíminn - 01.08.1962, Blaðsíða 6
MINNING:
Steinn Þ. Öfjörð,
óðalsbóndi í Fossnesi, Gnúpverjahreppi
ALLIR ÞURFA AÐ LESA
sönnu sögurnar og skopsögurnar í
heimilisblaðinu SAMTÍÐIN
Munið hið einstæða kostaboð okkar:
Fæddur 17. júnj J885.
Dáinn 23. júní 1962.
Með Steini er farinn einn með
beztu bústólpum þessa atvinnuveg
ar, sem fáir ungir menn nútímans
sækjast eftir að leggja tevistarf
sitt í. En þó er svo fyrir að þakka
að forsjónjn hefur séð fyrir því í
Fossnesi, að þar kemur maður
manns í stað, þar sem Gunnar son-
ur Steins er nú tekinn við föður-
leifð sinni, með myndarbrag, eins
og fylgt hefur þeirri jörð.
Um Stein Þ. Öfjörð má heim-
færa í stuttu 'máli orð skáldsins
úr grafminningu Þórarins Öfjörð
(f. 1793 d. 1823) langafa Steins:
„Röggsamur, gáfaðuV, ráðvandur
snillingur." Telja má víst að flest-
ir, sem þekktu Stein í Fossnesi,
mundu verða á einu máli um þá
erfðahæfileika, sem féllu í hans
hlut í fjórða lið.
Stundin var komin. Um lang-
degi íslenzka vorsins, þegar sól
sést allan sólarhringinn á nyrztu
töngum lands vors. Það mun ekki
hafa verið í fyrsta skipti í ævisögu
Steins í Fossnesi, að leggja meira
eða minna af vornótt vig daginn
til að hjálpa öðrum, sem honum
var svo létt um, af góðvilja sínum.
Að kvöldi hins 23. júní, söðlaði
Steinn hest sinn eftir vinnutíma
heima, og ætlaði að heimsækja
fósturson sinn að Minna-Hofi í
sömu sveit, til að hjálpa honum að
smala og rýja eins og undanfarin
ár. Milli þessara bæja eru þrjár
bæjarleiðir eða 12 til 15 km.
Minna-Hofs-fólkið vissi ekki að
Steins væri von þennan dag, en er
hann fór að heiman, gerði hann
ráð fyrir, að verða eins og þrjá
daga á Minna-Hofi. Hjá Minna-
Núpi hitti Steinn bóndann þar við
túnið, þar sem gamli vegurinn lá,
virtist Steinn alheill er þeir töluð-
ust við. En þegar hann er að stíga
á hest sinn, hnígur hann niður og
Frá Barðsfrendingafélaginu
Sumarsamkoma
í Bjarkarlundi
Hin árlega sumarsamkoma félagsins verður haldin
í Bjarkarlundi um verzlunarmannahelgina.
Dansað verður á útipalli bæði á laugardags- og
sunnudagskvöld.
Önnur skemmtiatriði hefjast kl. 15,00 á sunnudag.
Ferðir frá Reykjavík með Vestfjarðaleið (BSÍ) á
laugardag kl. 14,00.
BarÖstrendingafélagið
Fjósmeistari
Starf fjósmeistara við Vífilsstaðabúið er laus til
umsóknar frá 1. október n. k Skriflegar umsóknir
um starfið, ásamt upplýsingum um fyrri störf,
þurfa að berast til ráðsmannsins á Vífilsstöðum
fyrir 25. ágúst n. k.
Skrifstofa rikisspítalanna,
Klapparstíg 29. Reykjavík.
er þegar örendur. „Skjótt hafði
sól brugðig sumri“, má segja um
þetta dauðsfall. Því er frá þessum
atburði sagt, til aðgæzlu fyrir alda
og óborna.
Röggsamur var Steinn i áform-
um sínum, að láta ekki dragast
úr hömlu áætlanir sínar. Það var
kominn tími til að hjálpa til við
féð, bæði heima og hjá fóstursyn-
inum. En þá kom kallið, með
kyrrð og hraða, ævidagsverkinu
lokið. Steinn var ágætum gáfum
gæddur, sérstaklega á fornan fróð-
leik, og frásagnarhæfileiki hans
hans með ágætum, hvert orð flutt
af festu og list íslenzkrar tungu,
eins og fastmótag í stein harðan,
sem hvorki vatn né vindur afmáir.
Steinn var á ýmsum sviðum snill-
ingur i hugkvæmni og höndum.
Smiður ágætur og alhliða verklag-
inn. Steinn fluttist að Fossnesi frá
Austurhlíð með foreldrum sínum.
Þar vann hann sitt ævistarf, fyrst
hjá foreldrum sínum, þar til hann
tók við föðurleifð sinni 1918. Þá
var erfitt árferðj og óhagstætt að
hefja búskap í sveit á ýmsan hátt.
En Steinn var þrekmaður, hraust-
ur, þéttur á velli, víkingur til
vinnu, enda vann hann mikið
heima og utan heimilis vig smíð-
ar, en smíðahæfni var honum eðl-
isborin, sóttust því margir eftir
að njóta verka hans.
Árið 1920 kvæntist Steinn Ing-
unni Ingimundardóttur frá Andrés
fjósum á Skeiðutp.^pignuðust
þau einn son, sem áður er frá
skýrt, farnaði^t .,þeim ^far^ællega
búreksturinn og voru samhent. Á
síðari árum varð konan heilsulítil
og mátti lítið á sig reyna, en var
þó oftast heima og vann meðan
kraftarnir leyfðu. Það mun hafa
sannazt á þeim, eins og fleirum,
að „Guð hjálpar þeim, sem hjálpa
sér sjálfir.
Blessuð sé minning Steins.
Brynjú'lfur Melsted.
960 bls. fyrir aðeins 100 kr.
er þér gerizt áskrifandi að þessu fiölbreytta og skemmti-
lega blaði sem flvtur auk þess:
Ágætar greinar, fjölbreytfa kvennaþætti, skákþætti,
bridgeþætti, margvíslegar skemmtigetraunir, stjörnu-
spár fyrir alla daga ársins o. m. fl.
10 BLÖÐ A ARI FYRIR AOEINS 75 KR.
og nýir áskrifendur fá árgang 1960 fyrir aðeins 25 kr.
og árg 1961 j kaupbæti. ef 100 kr fylgja pöntun. Póst-
sendið eftirfarandi pöntunarseðil:
Ég undirrit óska að gerast áskrifandi að SAMTlÐ-
fNNl og sendi bér með árgjaldið 1962 75 kr. + 25 kr.
fvrir árg 1960 (Vinsaml. sendið þetta í ábyrgðarbréfi
eða póstávísun.)
Nafn
Heimili
Utanáskrift okkar er SAMTÍÐFN Pósthólf 472. Rvík.
Ferðamenn athugið
Gengizt verður fyrir ferð á jeppabifreiðum norður
og suður Sprengisand. í sambandi við ferð þessa-
verða bifreiðar ferjaðar yfir Tungnaá og Blautu-
kvísl, neðan Halds, á stórum vatnabíl, dagana
11. og 12. ágúst. Ferðamönnum verður seð fyrir
benzíni og olíum á bifreiðar sínar við Tungnaá.
Væntanlegir þátttakendur norðan og austan lands,
leiti upplýsinga í síma 2459, Akureyri, og í Reykja-
vík hjá Steingrími Pálssyni, sími 17400.
Halldór á Rauðalæk.
Utsvör á Akranesi
hækka um 33%
Langur bæjarstjórnarfund-
ur var haldinn á Akranesi sl.
þriðjudag. Bæjarstjórnar-
meirihlutinn — Sjálfstæðis-
menn og kratar — samþykktu \
— gegn atkv. minnihlutans —
að hækka útsvörin enn um kr.
1 millj. til viðbótar kr. 2,7
millj. þegar fjárhagsáætlunin
var afgreidd í vetur, auk 10%
álags, sem ákveðið er að nota.
Er hér um kr. 4,1 millj. hækk-
un að ræða eða 33% frá 1961.
Á sama tíma fær bærinn um
kr. 2 millj af söluskatti og
landsútsvari. Ráðgert er að
útsvör og aðstöðugjald í ár
verði kr. 16,6 millj. en var
kr. 12,5 millj. sl. ár.
Það skal tekið fram að báðir
þessir flokkar lofuðu útsvarslækk-
Bælarstjórnarfundur fellir tillögu um aukafrá-
drátt fyrir barnafjölskyidur, en samþykkir að
lækka veltuútsvör verzlana um 50 %
un fyrir kosningar. Kratarnir a. m. ismanna og krata felldu tiHögu
k 5% og Sjálfstæðismenn öllu
meiru, ef frumv um landsútsvör
yrði samþykkt í þínginu, hvað gert
var. Efndirnar eru landsmet í út-
svarshækkun Á öllum miðlungs-
tekjum og hærri verður um veru-
lega útsvarshækkun að ræða á
sömu tekjur og i fyrra eftir að
þessi breyting hefur verið gerð á
heildarupphæð útsvaranna.
Þessi gífurlega útsvarshækkun
á tæplega 1200 gjaldendur er ör-
væntingarfull tilraun meirihlutans
til að hressa upp á fjárhag bæjar-
ins, sem'kominn á heljarþröm
eftir tveggja ára stjórn hans á
bæjarmálum á Akranesi.
Það vakti mikla athygli á fund-
inum að bæjarfulltrúar Sjálfstæð-
frá bæjarfulltrúum Framsóknar-
flokksins og Alþbl. um kr. 1000,00
aukafrádrátt á útsvari á hvert barn
umfram 3. sem gjaldendur hefðu
á framfæri sínu til 'að koma til
móts við þá sem aukin dýrtíð
og söluskattar leika verst. Jafn-
framt samþykktu sömu bæjarfull-
trúar að lækka veltuútsvax af
verzlunum. — sem nú heitir að-
stöðugjald — um helming eða 50%
Hér er íhaldsstefnan í algleymingi.
Samþykkt var tillaga frá Daníel
Agústssym um endurskoðun á
gjaldskra hatnarinnar vegna verð-
hækkana, serri orðið hafa af geng-
isbreytingum 1960 og 1961. Hins
vegar voru felldar tvær tillögur
| frá D.Á. um aðkallandi endurbætur
!í höfninni.
TÍMINN, miðvikudaginn 1 ágúst 1962
6