Tíminn - 01.08.1962, Blaðsíða 7

Tíminn - 01.08.1962, Blaðsíða 7
Útgefandl: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Framkvæmdastjóri: Tómas Ámason Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði G. Þorsteinsson Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson. Auglýs- ingastjóri: Sigurjón DavíSsson Ritstjórnarskrifstofur i Eddu- húsinu; afgreiðsla, auglýsingar og aðrar skrifstofur 1 Banka. stræti 7. Símar: 18300—18305. Auglýsingasími: 19523. Af. greiðslusími 12323 — Áskriftargjald kr 55 á mánuði innan. lands. í lausasölu kr. 3 eintakið. — Prentsmiðjan Edda h.f. — Einstæð styrjöld íslenzka þjóðin hefur löngum háð harða baráttu við óblíða náttúru og náttúruhamfarir. Skáldin hafa lýst með margvíslegum .hætti baráttu hennar við elda og ísa. Um þessar mundir er háð styrjöld á íslandi, sem er að öllu leyti ólík hinum mörgu fyrri styrjöldum, er ís- lendingar hafa háð við náttúruöflin. Á annað ár hefur verið óvenjulegt góðæri til sjávarins, og nú beinist mikið af starfsorku stjórnarvaldanna að því að koma í veg fyrir, að þjóðin græði of mikið á góðærinu! Forsaga þessarar styrjaldar er sú, að fyrir V-h ári tóku stjórnarherrarnir upp nýja stjórnarstefnu, er þeir kölluöu viðreisnarstefnu. Stefna þessi var þó ekki neitt ný, heldur uppvakningur frá liðinni tíð. Kjarni henn- ar var sá, að atvinna mætti ekki vera mikil og almenn kaupgeta ekki mikil. Annars dreifðust þjóðartekjurnar og þjóðarauðurinn á of margar hendur, en ef vel væri. ætti þetta tvennt að dragast sem mest á fáar hendur og ' þannig skapast grundvöllur fyrir stórfyrirtæki og stór- kapitalista. Þegar svo væri komið, væri öld fyrirmyndar- þjóðfélagsins runnin upp. Menn þurfa hins vegar ekki að horfa lengra en 3—4 áratugi aftur í tímann til þess að átta sig á, hvernig slíkt fyrirmyndarþjóðfélag er. í samræmi við þessa stefnu, voru gerðar margháttað- ar ráðstafanir til að skerða hina almennu kaupgetu og draga úr atvinnunni. Tvennt hefur hins vegar gert slæm strik í reikninginn hjá reiknimeisturum „viðreisnarinnar“. í fyrsta lagi, að verkalýðssamtökin og samvinnufélögin hafa knúið fram nokkrar kjarabætur. í öðru lagi það, að skaparinn hefur látið vera hér óvenjulegt góðæri til sjávarins seinustu misserin. Mikil síldveiði var í fyrrasumar, einnig síðastl. vetur og ajftur nú í sumar, auk mikils afla bátanna á öðr- um veiðum. Vegna aðgerða fyrri ríkisstjórna hafa lands- menn átt tækin til að notfæra sér þessi auðæfi. Og nú eru áhrif góðærisins orðin svo mikil, að „við- reisnar“-hetjurnar sjá ekki fram á annað en að áform þeirra um takmörkun atvinnu og kaupgetu sé að fara úr böndunum. Þess vegna heyja þeir hið einstæða stríð við góðæri til þess að reyna að koma í veg fyrir að tekjur þjóð- arinnar af því verði miklar! Gegn góðærinu Það verður ekki annað sagt en að stjórnarherrarnir hafi reynzt hiriir duglegustu í stríði sínu við góðæri. Þeir hafa stöðvað togarana í fimm mánuði, síldveiðiflotann i þrjár vikur, vanrælct að undirbúa móttökuskilyrði fyrir síld á Austfjörðum, valdið miklu framleiðslutjóni með járnsmiðaverkfalli o. s. frv. og nú um skeið hafa þeir stöðvað síldarsöltun. Allt er þetta gert til þess að koma í veg fyrir, að þjóðartekjurnar af völdum góðærisins verði of miklar! Með þessum aðgerðum öllum hafa tvímælalaust tapazt framleiðsluverðmæti, er skipta mörgum hundruðum milljóna króna. í tilefni af þessu er vissulega ekki úr vegi, að menn hugleiði tvennt: Hverjar myndu nú vera orðnar afleiðingarnar af „við- reisninni", ef góðærið hefði ekki komið til sögunnar og eyðilagt alla útreikninga reiknimeistara hennar? Er rétt af þjóðinni að framlengja þá stjórnarstefnu, er beinist að því að koma í veg fyrir að tekjur hennar af góðærinu verði miklar og auki hina almennu kaupgetu og velmegun í landinu? Tekst námahringnum að eyði- leggja Sameinuðu þjóðirnar? Mikið hæiiuástand er að skapast á ný í Kongó Á NÝ hafa horfur í Kongó orðið mjög alvarlegar. Um seinustu áramót horfði þann- ig, að vænlegt þótti, að afskipti Sameinuðu þjóðanna myndu bera tilætlaðan árangur. Þá var hvergi barizt í landinu. Komið hafði verið upp sæmi- lega traustri sambandsstjórn fyrir allt ríkið í Leopoldville, undir forustu Adoula, studdri af meirihluta sambandsiþings- ins, og foringjar uppreisnar- stjórnarinnar í Katanga, undir forustu Tshombe höfðu heitið því að hefja samninga við sam bandsstjórnina í Leopoldville um innlimun Katanga í sam- bandsríkið, gegn skilyrðum, er þeir sættu sig við. ÞESSAR viðræður, sem hafa farið fram milli þeirra Adoula og Tshombe, hafa staðið yfir undanfarna mánuði, unz alveg slitnaði upp úr þeim fyrir fá- um vikum. Tshómbe dró þær á langinn með því að lofa öllu fögru og ganga inn á ýmis atr- iði, sem hann féll svo frá aft- ur. Það hefur farið eins og jafnan áður, að ekki er að treysta neitt á það, sem Tshom- be segir. Um það er hins veg- ar deilt, hvort þetta stafi af i‘því, að-Tshombe hagi sér þann •jg*-af-ésettu ráði eða hvort • hann - sé -.ó'sjálfstætt verkfæri valdameiri samstarfsmanna HOME lávaröur sinna. Sumir þeirra er vel þekkja til, halda hinu síðara fram, og telji Munongo, innan- ríkisráðherra Katangastjórnar- innar, ráðamesta mann henn- ar og raunverulega húsbónda Tshombe. Munongo er sagður mjög ráðríkur og grimmur og þykir víst, að það sé hann, er hafi látið fyrirskipa aftöku Lumumba. Sumar sagnir herma, að hann hafi drepið Lumumba með eigin hendi. MEÐAN á samningaþófi þeirra Adoula og Tshombe hef ur staðið, hafa málin þróazt hinum fyrrnefnda mjög í óhag. Samstarfsmenn Adoula hafa gerzt óþreyjufullir og fjárhag- ur sambandsríkisins hefur sí- versnað. Iiætt er við, að stjórn hans falli þá og þegar og nýtt upplausnarástand skapist við Aðalstöövar námahringsins í Brussel. það. Uppreisnarstjórn Tshombe í Katanga hefur hins vegar styrkt aðstöðu sína á ýmsan hátt, en þó einkum herafla sinn. Það, sem hefur ráðið mestu um, að framvindan hefur orðið þannig, er afstaða belgíska námahringsins í Katanga. Hann hefur borgað alla skatta sína til uppreisnarstjórnar Tshombe, en ekki til sambandsstjórnar- innar í Leopoldville. Hér er um að ræða mjög miklar fjárhæðir. Á þennan hátt hefur náma- hringurinn enn á ný ráðið mestu um framvindu stjórn- mála í Katanga, en hann hef- ur frá fyrstu tíð Iagt allt kapp á að efla skilnaöar- o.g upp- reisnarhreyfingu Tshombe. FULLTRÚUM SÞ í Kongó er vel Ijóst, að þar er mikið hættuástand á næstu grösum. ef ekki tekst fljótt að sam- eina landið og afstýra falli Adoula-stjórnarinnar. Þeim er einnig ljóst, að þetta er tiltölu- lega auðvelt. Til þess þarf raunar ekki annað en það að belgíski námahringurinn hætti að greiða skattana til uppreisn arstjórnarinnar í Katanga, en greiði þá í staðinn til sam- bandsstjórnarinnar í Leopold- ville. Það, sem U Thant, fram- kvæmdastjóri SÞ, mun því leggja megináherzlu á að fá framgengt mest í þessum mál- um, er að knýja námahring- inn til þess að greiða skattana til stjórnarinnar í Leopoldville. Bandaríkjastjórn er sögð þess eindregið fylgjandi, því að hún gerir sér vel ljóst, hve við- sjárvert ástandið í Kongó er orðið. UM SKEIÐ leit og út fyrir, að þetta yrði einnig stutt af stjórn Belgíu. En þá barst námahringnum óvæntur liðs- auki. Það var brezka stjórnin, undir forustu Home lávarðar. Brezkir auðhringar eiga stór- an hluta í beigíska ná.mafélag- inu og er hér um að ræða sömu auðhringana og eiga mikl ar eignir í ýmsum ríkjum og nýlendum Afríku. Þeir óttast mjög öll opinber afskipti af MUNONGO víst, að þær hafi fjárráð til að yrðu þannig að gefast upp í Kon halda herliði þar áfram. Ef SÞ gó, myndi það verða þeim slík- ur álitshnekkir, að þær myndu seint bíða þess bætur. Hér stendur því valið raunverulega milli Sameinuðu þjóðanna ann ars vegar og belgíska náma- hringsins hins vegar. Þetta gera Bandaríkjamenn sér ljóst og reyna því eftir megni að hafa holl áhrif á af- stöðu Breta. Sennilega fæst brátt úr því skorið, hvað á- gengt þeim verður, því að U Thant mun bráðlega skjóta þessu máli til Öryggisráðsins, að því talið er. Þ. Þ. störfum hringanna, og þó ekki sízt afskipti SÞ. Þess vegna hafa þeir lagzt eindregið gegn því, að SÞ skipti sér nokkuð af störfum belgíska náma- hringsins, þar sem með því væri skapað varhugavert for- dæmi. Home lávarður, utanrík- isráðherra Breta, sem er lítill vinur SÞ, en mikill vinur auð- hringanna, hefur tekið svipaða afstöðu. Ef brezka stjórnin heldur fast við þessa afstöðu sína, get- ur hún oröið þess valdandi, að Kongómálið verði að nýrri ó- leysanlegri flækju og SÞ verði ef til vill að gefast þar alveg upp, þar sem þá er alveg ó- T í M I N N, miðvikudaginn 1. ágúst 1962 7

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.