Tíminn - 01.08.1962, Blaðsíða 13
Borgin við sundið
Framhald al 9. síðu.
eins áxs. Það er augljóst, sagði
ráðherrann, að það verða að vera
kosningar eða þjóðaratkvæði um
þetta mál til þess að andstæðingar
EBE geti ekki sagt, að málsmeð-
ferð hafi verið ábótavant í svo
mikilvægu máli.
Kampmann var spurður um álit
hans á nýjum samningum um
verð landbúnaðarafurða í Dan-
mörku, er koma eiga til fram-
kvæmda 1 ágúst n. k. Ráðherr-
ann upplýsti, að það hefði verið
hann, er hvatti Krag, utanríkis-
ráðherra, til þ-ess að taka upp
samninga að nýju við forsvars-
menn landbúnaðarins, en samning
ar þessir voru komnir í strand
og alvarleg deila upprisin vegna
nýs skattafrumvarps, er samþykkt
var eftir miklar umræður í þing-
inu. Frumvarp þclta var samþykkt
sem lög og koma þau til fram-
kvæmda 1. ágúst n. k. Annars
sagði ráðherrann, að menn gætu
ekki búirt við að geta selt jafn-
mikið við hækkandi verði, en gerða
samninga yrði að halda og deilur
væru allténd úr sögunni.
VIGGO KAMPMANN
Ráðherrami var að því spurður,
hvort hann hlakkaði til að taka
þá.tt í stjórnmálunum að nýju. —
Hann sagði svo ekki vera, en hins
vegar hefði hann ekkert á móti
því. Ég hef það svo gott hér á
Fanö, sagði ráðherrann, að ég
held að það verði ekkert erfitt að
slíta sig algerlega frá stjómmál-
unum, þegar ekki verður um ann-
að að ræða. Ég hef alltaf beygt
mig fyrir staðreyndum.
Kampmann bankastjóri,
Krag forsætisráðherra?
Veikindi Kampmans hafa kom-
ið af stað vmsum tilgátum un’
ráðherraskipan i Danmörku í ná-
Vini framtíð. Einkum hafa blöð
íiti á landi látið sér tíðrætt um
það, að Kampmann muni hafa í
hyggju að gerast bankastjóri Þjóð-
bankans á ræsta ári, en þá mun
Svend Nielsen, núverandi banka-
stjóri láta af störfúm. Þetta myndi
hafa í för með sér miklar tilfærsl-
ur á ráðherraembættum og er tal-
ið að meirihluti þingmanna
d^nskra sósíaldemókrata hafi ekk-
ert á móti slíkri hreyfingu.
Jens Otto Kra.g, núverandi ut-
anríkisráðherra, er fyrstur til-
nefndur i embætti forsætisráðh.
Talið er, að hann muni fá mikið
fylgi innan flokks síns. Hins veg-
ar halda menn, að Krag hafi ekki
verulegan áhuga á embættinu. —
Krag er eindreginn fylgjandi sam
einingar Evrópu og nvtur mikils
álits meðal manna sömu skoðun-
ar. Er talið sennilegt, að honum
standi til boða hár sess innan
stofnana sameinaðrar Evrópu, ef
Danmörk gerist aðili að EBE. —
Dómsmálaráðherrann Hans Hækk-
erup og samgöngumálaráðherrann
Kai Lindberg eru og nefndir sem
væntanlegir forsætisráðherrar auk
Erik Ib Schmidt, skrifstofustjóra.
Per Hækkerup er talinn likleg-
ur utanríkisráðherra og verkalýðs-
leiðtoginn Hans Rasmussen, sem
er einn áhrifamesti maður sósíal-
demókrata, er talinn viss með eitt-
hvert ráðuneyti, ef hann óskaði
þess. Honum hafa áður boðizt ráð
herraembætti, en hann hefur jafn-
an hafnað slíkum tilboðum og ger-
ir sennilega enn, þar sem hann
vill örugglega heldur halda á-
hrifastöðu sinni sem forseti verka-
lýðssambands smiða.
Þetta eru auðvitað allt tilgátur,
en þær gefa nokkuð ljósa mynd af
pólitískum styrkleika vissra manna
í Danmörku, stöðu þeirra út á við
og styrk innan flokks sósíaldemó
krata.
Geir Aðils.
Markvörgyr slegiRi!
Framhald aí 12 sí'íu
þessi úrslitaleikur hefði getað orð-
ið rnjög tvísýnn hefði Víkings-
markvörðurinn ekki fengið hið ör-
lagaríka högg í leiknum en Ragnar
Jónsson hefði vissulega átt að
víkja af leikvelli það sem eftir var
fyrir fólskubragð sitt.
Hjá FH voru það ungu mennirn
ir, sem mestan þátt áttu í sigrin-
um. Kristján Stefánsson var í sér-
flokki, en Guðlaugur og Sverrir
sýndu einnig ágætan leik, auk
Loga í markinu, sem lék síðari
hálfleikinn af prýði. Hjá Víking
bar Rósmundur af, en Pétur og
Sigurður Hauksson léku einnig
mjög vel fyrri hálfleikinn og fram
an af þeim síðari. ’
Eftir leikinn afhenti • formaðjur
Handknattleikssambandsins, Ás-
björn Sigurjónsson, sigurvegur-
unum verðlaunapeninga og hinn
fagra verðlaunagrip, sem keppt
er um, og FH vann nú í þriðja
sinn. Einn annar leiknr var háður
í meistaraflokki þetta_ síðasta leik-
kvöld, og vann ÍR Ármann með
20:18. í úrslitaleik 3. flokks mætti
Ármann,. ekki til leiks, og varð
Valur því sigurvegari án keppni.
Valbjörn nærri meti
Framhald af 12. síðu.
að mestu úr sögunni, því til þess
að setja nýtt met varð Valbjörn
að hlaupa 1500 metra á 4:41.0
mín. — en til þess voru vægast
sagt engar líkur. Hann hljóp líka
á 4:57.0 min. — og varð þvi 110
stigum frá metinu.
Hins vegar sýnir þessj árangur
vel, að Valbjörn getur meg smá-
æfingu í nokkrum greinum t.d.
kúluvarpi, grindahlaupi — og með
betri árangri í stangarstökki, bætt
met Arnar talsvert og ætti að geta
komizt talsvert yfir 7000 stigin,
sem getur gefið, möguleika á
stigi í tugþrautarkeppni Evrópu-
meistaramótsins, ef Valbjörn vel-
ur að keppa í þeirri grein á mót-
inu í haust. Meg þessum árangri
náði hann lágmarksskilyrði FRÍ
til þátttöku í EM í tugþraut. Þrír
aðrir keppendur voru í tugþraut-
inni. Annar varð Kjartan Guð
iónsson, KR, og setti nýtt drengja-
met 4961 stig. Eldra drengjamet
ig átti Gylfi S. Gunnarsson, ÍR.
Þriðji varð Páll Eiríksson, FH.
með 4693 stig og tjórði Sigurður
Sveinsson. HSK, meg 3725 stig.
Yfirburöir Fram
Framhald af 12. síilu.
sín/.r hendur og skora með stuttu
millibilj 3 mörk, Baldin 2 og Þor-
eeir Lúðvíksson 1- Endaði leikur-
inn þannig. 4—1, sem teljast mega
sanngjörn úrslit eftir gang leiks-
ins. ,
Beztir Framarar í þessum leik
voru Baldvin, sem skoraði 3 mörk,
og framverðirnir Þorgeir og
Hrannar, sem öll tök höfðu á
miðju vallarins. .
Beztur Dananna i þessum leik
var miðframherjinn Nielsen, sem
sýndi oft frábæra leikni .
Næsti leikur Fram verður einn-
ig gegn Vordingborg, og mætast
þá B-Iig félaganna. A.Þ.
2. síðan
svo að einhverjar séu nefndar.
Árið 1920 kom svo enn ný
tækni fram. Þá kom D. W.
Griffith með myndir sinar.
Mynd hans „Fæðing þjóðar",
sem olli gjörbyltingu í kvik-
myndatækninni, var sýnd hér
í ársbyrjun 1920, og síðan
komu fleiri myndir Griffiths
hingað. Þessa mynd Griffiths
er nú verið að sýna í nýrri
kópíu í Kaupmannahöfn, og
trúlegt ag hún komi hingað
aftur.
Stór, opinn gluggi
— Á þögla tímabilinu voru
framleiddar geysimargar stór-
myndir, og hægt að velja úr
að vild þær beztu. Þá voru
sýndar hér margar afar góðar
myndir. Það var eins og Guð-1
mundur skáld Kamban sagði
einu sinnj í fyrirlestri, sem
hann hélt og kallaði „Reykja-
víkurstúlkan“: — Kvikmynda-
úrvalið er svo gótt, að það er
eins og stór opinn gluggi að
heimsmenningunni.“
— Þess verður líka að geta
í sambandi við þöglu mynd-
irnar, að þá héldu kvikmynda-
húsin uppi hljóðfæraslætti á
sýningum. Áður hafði verið
látinn nægja einn píanóleik-
ari, en við byrjuðum með
þriggja manna hljómsveit. í
henni léku þeir bræðurnir
Þórarinn Guðmundsson og
Eggert Gilfer og Þorvaldur
Árnason. En svo komu tal-
myndirnar, og hátalararnir
tóku vig af hljómsveitinni.
— 1930 byrjuðu bæði bíóin
hér að sýna myndir með tali
og tónum, en fyrsta talmynd-
in „Sonny Boy“ hafði verið
gerð 1927. Þá voru auðvitað
til margs konar sýningartæki,
en bæði bíóin hér keyptu það
íullkomnasta, sem til var. Þetta
vakti dálitla athygli erlendis,
að við, þótt litlir værum, létum
okkur ekki nægja annað.
Ekki eins internationalar
og áSur
v- Tæknilegu framfarirnar
á kvikmyndunum hafa verið
stórkostlegar, eai myndirnar
hafa við þær, talið sérstaklega,
hætt að vera eins internation-
alar og áður. Þær verða svið-
rænni heldur en þær voru
með gömlu tækninni. Þá
skýrðu myndirnar sig sjálfar.
Sumar höfðu jafnvel engan
texta nema byrjunartexta, en
samt skildi hver einasti maður
myndirnar.
— Árið 1917 settum við
fyrst íslenzkan texta með
mynd. Það var umhverfis
jörðina á 80 dögum, sem þá
var geysivinsæl. Síðan höfum
við nokkrum sinnum reynt það
aftur, sett texta á samtals átta
myndir, en þetta er of kostn-
aðarsamt, til þess að það sé í
rauninni hægt, og við urðum
að hætta því. Við verðum að
kaupa eintökin, sem við setj-
um texta á, og það er ekki
hægt hér í fámenninu.
Það líður á daginn, og Ól-
afur þarf að fara niður í Bíó.
„Sóknarbörnin mín bíða“, seg-
ir hann, og vig þökkum hon-
um kærlega fyrir gireinagóð-
ar upplýsingar. Litlu síðar
kveðjum við Bjarna og þökk-
um móttökur hans og víkjum
aftur að því, sem nefnt er í
upphafi frásagnarinnar, gjöf
fyrirtækisins til Reykjavíkur-
borgar.
— Jú, þessu á ag verja til að
fegra bæinn með listaverkum.
Ég er sannfærður um, að þeg-
ar sjóður er einu sinni kom
inn á f þessum tilgangi, þá
verði mariyir til ag byggja þar
ofan á. Að minnsta kosti von
am við að svo verði.
Kb.
Nauðungaruppboð
Annað og síðasta uppboð á 4/5 hlutum í jörðinni
Geldingaholti í Seyluhreppi í Skagafjarðarsýslu
fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn 10. ágúst
n. k. kl. 14.
Sýslumaðurinn í Skagafjarðarsýsln, 28. júlí 1962.
Jóh. Salberg Guðmundsson.
fbúð til solu
Húsnæðismálastjórn óskar hér með eftir kauptil-
boðum í íbúðarhæð og rishæð hússins nr. 30 við
Nökkvavog í Reykjavík, í því ástandi, sem eignin
nú er.
í tilboðum vprði nákvæmlega tilgreint:
1) Verðtilboð.
2) Útborgun (greiðslumöguleikar við móttöku).
íbúðin verður til sýnis 1., 2. og 3. ágúst n. k. kl.
2 e. h. til kl. 5 e. h. hvern dag.
Skriflegum tilboðum sé skilað í skrifstofu Hús-
næðismálastofnunar ríkisins fyrir klukkan 5 e. h.
föstudaginn 10. ágúst n. k.
Húsnæðismálastjórn.
Ódýrar skemmtibækur
Höfum fengið gríðarmikið if ódýrum og skemmti-
legum reyfurum handa fólki í sumarleyfið.
Fornbókaverzlun Kr. Kristjánssonar
Hverfisgötu 26 — Sími 14179.
VIÐAVANGUR
niðurstöðu í forystugrein I
gær, að menn verði um fram
allt að vara sig á því að treysta
Fi^msóknarflokknum i utanrík
ismálum, því að „það sé næsta
ótraustur grundvöllur“. Hins
vegar sé það eina leiSin „til
þess að tryggja hagsmuni ís-
lenzku þjóðarinnar að efla Al-
þýðubandalagið".
Það er gott, að blessuS þjóð-
in á þó einn alveg öruggan og
traustan verjanda. Og svo bak-
tryggingin. Það er vafalaust
mest um vert, hvað endur-
tryggingin austur í Moskvu er
frábær. Það skal hreinlega ját-
að, að Framsóknarflokkurinn
hefur alls ekki eins viðamikla
'endurtryggingu erlendis og
íhaldið og kommar.
TÍMINN, miðvikudaginn 1. ágúst 1962
13