Tíminn - 29.08.1962, Síða 7

Tíminn - 29.08.1962, Síða 7
 Arnþór Þorsteinsson þvegið árlega um 85% af allri ull landsmanna. Við þessa stöð starfa milli 30—35 ma'nns, og munu launa greiðslur síðastliðið ár hafa num- ið um 2% milljón króna. Auk þessa, sem hér hefur verið nefnt, rekur SÍS að hálfu á móti KEA efnaverksmiðjuna Sjöfn og Kaffi- brennslu Akureyrar. Sjöfn fram- leiðir hvers konar snyrti- og hrein lætisvörur, en er nú nýlega byrj- uð að framleiða húsamálningu, sem þykir svo vinsæl, að verksmiðj an hefur vart undan eftirspurn- inni. Kaffibrennsla Akureyrar framleiðir hið landsiþekkta Braga- kaffi, sem þekkt er á flestum heim ilum landsi-ns. Um allan þennan iðnað SÍS má segja, að framleiðslu vörur fyrirtækja þess eru nú orð- ið vel þekktar, hvar sem er á land inu. Þessi iðnaður hefur fyrst og fremst þróazt í það, sem hann er í dag, fyrir það, að hann hefur fyrir löngu náð út fyrir bæjartak- mörkin og er nú í vaxandi mæli að leita út fyrir landsteinana á erlenda markaði. Samtals munu starfa um 550 karlar og konur við iðnfyrirtæki Sambandsins hér á Akureyri og lætur nærri, að launa greiðslur í ár nemi um 30 milljón- um króna. Allar þessar verksmiðj- ur, sem áður hafa verið nefndar, eiga það sameiginlegt, að þær eru árlega að auka vélakost sinn, bæta framleiðsluna og auka. Þegar sam- vinnuhreyfin.gin réðst í þann iðn- að, sem hér er rekinn. var það eitt meginsjónarmið hennar að nýta sem bezt innlend hrá.efni, í þessu tilfelli ull og skinn. Nokkuð hefur áunnizt í þessu efni, en lokatakmarkið er að vinna góðar iðnaðarvörur úr allri ull og skinn- um landsmanna. Fyrr er takmark- inu ekki náð. — En einstaklingsframtakið? — Auk samvinnuiðnaðarins er rekinn hér í bænum margþættur annar iðnaður, ýmist af einstakl- ingum eða hlutafélögum, og bær- inn sjálfur stendur fyrir nokkrum iðnrekstri, þar sem er Krossanes- Verksmiðjan og hraðfrystihúsið. Nefna má súkkulaðiverksmiðjuna Lindu, kexverksmiðjuna Lorelei, nærfatagerðina Amaro, Dúkaverk- smiðjuna h.f., Smjörlíkisgerð KEA, Smjörlíkisgerð Akureyrar, Mjólkursamlag KEA, Skipasmíða- stöð KEA. Slippstöðina h.f., Nóa Kristjánsson, vélaverkstæðin Odda og Atla, húsgagnaverksmiðjuna Valbjörk og mörg önnur húsgagna verkstæði, sælgætisgerðina Flóru, Efnagerð Akureyrar, Saumastofu JMJ og margar fleiri slíkar, Hrað- frystihús Ú.A. h.f., Niðursuðuverk- smiðju K. Jónsson og Co. o. íl. — Hver af þessum fyrirtækjum framleiða fyrir erlendan markað? — Að Krossanesverksmiðjunni og hraðfrystihúsinu undanskildum ■ er Niðursuðuverksmiðja K. Jóns- | son og Co. tvímælalaust það þess- i ara fyrirtækja, sem fram að þessu ; hefur framleitt mest fyrir erlenda i markaði. Auk þess hefur súkkulaði i verksmiðjan Linda selt vörur sín- ar á erlendum markaði og hús- ] gagnaverkmiiðjan Valbjork verið að vinna að sölu á. framleiðsluvör- um sínum til útlanda. Öll þessi fyrirtæki eiga sína sögu. Margir stofnendur þeirra og þeir, sem reka þau nú, eru þróttmiklir at- hafnamenn, sem hafa rutt nýjar brautir og unnið sjálfum sér og bæjarfélaginu öllu ómetanlegt gagn með störfum sínum. Almenn- ingur, hvar sem er á landinu, þekk- ir auk samvinnuiðnaðarvaranna, sem áður er getið, Amaro-nærföt- in, Lindu-súkkulaðið, Lorelei-kex- ið, Akra-smjörlíkið, KEA-ostana, sardínur frá K. Jónsson og Co. og Valbjarkarhúsgögnin, og svona mætti lengi telja. Allt eru þetta landsþekktar iðnaðarvörur, sem hafa hlotið viðurkenningu neyt- enda í hverri grein fyrir sig. — Hefurðu gert þér nokkra grein fyrir því, hvað samanlagður iðnrekstur á Akureyri gerir í fram leiðsluverðmætum, launagreiðsl- um og starfsmannafjölda? — Já, ég hef tekið saman yfir- lit um þetta og dregið saman iðn- greinarnar, sem hér segir: bygg- ingariðnaður, járniðnaður, skipa- smíðar, húsgagnagerð, matvæla- og fiskiðnaður, sælgætis- og efna- iðnaður, veiðarfæraiðnaður, vefn- aður og fataiðnaður, skógerð og leðuriðnaður, prentun og bókband og margs konar annar iðnaður. Sá iðnrekstur, sem hér er nefndur, veitti s. 1. ár 1304 konum og körl- um atvinnu og nam vinnuviku- fjöldi þeirra samtals 67.791 viku. Samanlagðar launagreiðslur til starfsliðs þessa iðnaðar námu s. I. ár 80.741.000 krónum. Þá nam framleiðsluverðmæti alls þessa iðn aðar 394.702.000 krónum. Þær töl- ur, sem hér hafa verið nefndar, staðfesta betur en allt annað, að iðnaðurinn í þessum bæ er sú at- vinnugrein, sem hæst gnæfir. Þær staðfesta ennfremur, að það er fullkomið réttnefni að kalla Akur- eyri iðnaðarbæ. — Áttu ekki von á, að nýjar iðn greinar ryðji sér til rúms hér í bænum á ókomnum árum? — Á komandi árum verður að gera ráð fyrir, að hér rísi upp vax andi iðnaður, svo sem stálskipa- smíði, aukin tréskipasmíði, stærri ni ðursuðuverksmiðj a sj ávarafurða, efnaiðnaður, raftækjaiðnaður og sennilega margt fleira. — Hvað viltu segja mér um iðn- verkafólkið á Akureyri? — Þótt það verði ávallt að telj- ast mjög ánægjulegt, þegar fjár- sterkir 'einstaklingar eða félög hrinda í framkvæmd merkum iðn- rekstri hér í bæ, þá má aldrei gleyma því, að merkasti þátturinn í öllum iðnrekstri er fólkið, sem við iðnaðinn vinnur. Iðnaðarbæ sem Akureyri er ekkert nauðsyn- legra, en að hér staðfestist æsku- menn og konur, sem vilja gera iðnaðarstörf að lífsstarfi sínu. Nú þegar á Akureyri marga góða iðn aðarmenn, konur og karla, sem hafa sýnt það nveð störfum sinum, að þau eru þess megnug að mæta samkeppni iðnaðarvarnings frá | nærliggjandi þjóðum, sem þó hafa j að baki sér margra áratuga lengri ! íðnþróun. Iðnaðurinn þarf í vax- Framhald á 15 síðu Kexverksmiðjan Lórelei, Þorsteinsson framkvæmda- stjóra Gefjunnar, um iðnrekstur jr T í MI N N , miðvikudaginn 29. ágúst 1962 7

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.