Tíminn - 29.08.1962, Side 13
-------—;
j
iÞROTTIR
T í MIN N, miðvikudaginn 29 ágúst 1962
SÉÐ YFIR ÍÞRÓTTAVÖLLINN Á AKUREYRl
Ljósmynd: TÍMINN—RE.
Sú íþróttagreinin, sem á Á fimm árum hafa sex Akureyringar verií valdir í íslenzka landsli'ðiS í knatt-
mestum vinsældum að fagna
á Akureyri nú er knattspyrn-
an, enda á Akureyri einu
skemmtilegasta knattspyrnu-
liði landsins á að skipa. Knatt-
spyrnan hefur gripið um sig
á Akureyri, ekki síður meðal
hins almenna áhorfenda, sem
sækir íþróttavöllinn, en ungra
drengja og pilta, sem leggja
stund á hina skemmtilegu
iþrótt. Að tiltölu sækja miklu
fleiri knattspyrnuleik á Ak-
wreyri, en annars staðar á
landinu, sem bezt sést á því,
að samsvarandi þyrftu 15—20
þúsund áhorfendur að sækja
1. deildar leikina í Reykjavík
til að jafnast á við Akureyri.
Og það hitnar oft heldur betur
í glæðunum í leikjunum þar, svo
akureyrskir áhorfendur hafa feng
ið það orð á sig að vera hinir
spyrnu. Ragnar Sigtryggsson var hinn fyrsti ári*S 1957, gegn Belgíu.
„viltustu11 hér á landi, en það er
önnur saga, þótt alltaf sé gaman
aí því, að áhorfendur taki þátt í
leiknum af lífi og sál. Knattspyrna
hefur um langan tíma verið iðkuð
a Akureyri og lið þaðan hafa oft
tekið þátt í landsmótum með góð-
um árangri, þó enn þá hafi Akur-
eyri ekki eignast íslendsmeistara
í meistaraflokki. En þess verður
ekki langt að bíða með sama áfram
haldi og verið' hefur undanfarin
ár, jafnvel er svo komið, að margir
spá því, að þegar næsta sumar
verði Akureyri í efsta sæti á
Knattspyrnumóti íslands. Mögu-
leikar til þess eru ekki lengur fyr
ir hendi í sumar og má segja, að
óheppni ráði þar nokkru um, því
margir leikmenn liðsins hafa átt
við meiðsli að stríða, sem hindrað
hefur þátttöku þeirra í mörgum
leikjum.
Og í sambandi við knattspyrn-
una á Akureyri hafa margir leik-
menn komið fram í sviðsljósið og
orðið þjóðkunnir menn og nú þeg-
ar hafa sex leikmenn Akureyrar
klæðzt íslenzka Iandsliðsbúningn-
um, það er að segja leikmenn, sem
valdir hafa verið úr bði íþrótta-
bandalags Akureyrar — en auð-
vitað hafa fleiri Akureyringar
verið í landsliðinu, en þá keppt
með Reykjavíkurliðunum.
Fyrsti leikmaður Akureyrar,
sem var valinn i landsliðið var
Ragnar Sigtryggsson, sem vaf val-
inn í leikinn gegn Belgíu, sem
háður var á Laugardalsvellinum
hinn 4. september 1957. Þessi leik
ur var hinn síðari milli íslands
og Belgiu í undankeppni heims-
meistarakeppninnar, en loka-
keppni hennar var í Svíþjóð 1958.
Ragnar var vinstri innherji liðs-
ins og satt bezt að segja, að þá
vakti val hans nokkrar deilur —
en Ragnar komst hins vegar ágæt-
lega frá leiknum. Ragnar var eini
nýliðinn, sem lék gegn Belgum, og
það sem kannski einkenniiegra
var að jafnframt því, sem hanr.
var eini nýliðinn var hann slzti
maður liðsins. Tvívegis áður hafði
Ragnar leikið með pressuliði, en
hann var sá leikmaður Akureyrar,
sem vakti mesta athygli, þegar !ið-
ið var í 1. deild 1957 og 1958, en
Jakob Jakobsson, til vinstri og Jón Stefánsson.
þelm var tilkynnt að þeir hefðu verið valdir
- Myndin var tekin á skrifsto-fu TIMANS rétt á eftir að
landsliðið gegn Engiendingum. — (Ljósm.: TÍMINN-GE).
síðara árið féll liðið niður í 2.
deild. Landsleikir Ragnars urðu
ekki fleiri, enda lagði hann nokk-
uð fljótt á. eftir knattspyrnuskóna
á hilluna. Þess má geta, að í sam-
bandi við leiki heimsmeistara-
keppninnar í Frakklandi og Belgíu
um vorið 1957 var Jakob Jakobs-
son valinn til þeirrar ferðar, en
sökum þess, að hann tók stúdents-
próf um vorið gat hann ekki tekið
þátt í förinni — ög missti því þann
heiður að verðá fyrsti landsiiðs-
maður Akureyrar.
Akureyrarliðið var ekki lengi i
2. deild og þegar það vann aftur
sæti sitt í 1. deild voru margir
ungir piltar komnir fram á sjónar-
sviðið, sem miklar vonir voru
bundnar við. Fyrstur þeirra til að
verða valinn í landsliðið var
Steingrímur Björnsson, sem 1960
var valinn í landsliðið, sem lék
gegn Vestur-Þýzkalandi á Laugar-
dalsvellinum 3. ágúst. Steingrím-
ur Björnsson var vinstri útherji
og var einn af þremur nýliðum I
liðinu. Og öfugt við Ragnar var
Steingrímur nú yngsti maður
landsliðsins, aðeins 19 ára. Stein-
grírtiur lék einnig annan landsleik
þetta sumar, gegn írum í Dublin,
i en þá var varamaður Jakob Jakobs
! son. Þriðja landsleik sinn lék
: Steingrímur sumarið 1961 gegn
| Hollandi og skoraði eitt mark í
! þeim leik og var þar með fyrsti
: Akureyringurinn, sem skoraði
: mark í landsleik. í sambandi við
; landsleiki kom þá nafnið Kári
Ámason fyrst fram, en hann var
: varamaður í leiknum. En það leið
1 ekki á löngu að Kári var valinn
i landsliðið. Um haustið lék lands-
liðið gegn enska áhugamannalið-
inu í London og Kári var valir'í
sem varamaður og vegna þess, að
einn aðalmaðurinn gat ekki farið
til Englands, komst Kári í liðið
En það voru einnig tveir aðrir
j Akureyringar, sem léku sinn fyrsta
landsleik gegn Englendingum,
Jakob Jakobsson og Jón Stefáns-
: son. Jakob var innherji í liðin.j,
’l Jón bakvörður og Kári útherji og
1 er þetta í eina skiptið hingað til,
sem Akureyri hefur átt þrjá lands-
liðsmenn í sama leiknum. Nú voru
lcndsliðsmennirnir akureyrsku
orðnir fimm og svo kom sumarið
1962.
í landsleikinn gegn Norðmönn-
um í sumar voru tveir Akureyr-
ingar valdir, Steingrímur og Kári,
og lék Steingrímur þar sinn fjórða
leik, en Kári annan. Jakob og Jón
komu þá ekki til greina í lands-
liðjð, Jón var meiddur, en Jakob
við nám í Þýzkalandi. Og ennþá
er okkur öllum í fersku minni
landsleikurinn við írland á dögun
um, en þá bættist sjötti leikmað-
urinn frá Akureyri í landsliðs-
mannahópinn, Skúli Ágústsson,
sem valinn var sem hægri útherji,
STEINGRIMUR BJORNSSON
— hefur leikið flesta landsleiki
akureyrsku landslSSsmannanna, —
fjóra talsins, og er hinn elni af
þeim, sem skorað hefur mark i
landsleik. — (Ljósm.: TÍMINN-GE).
en þeir Steingrímur og Kári
misstu þá stöður sínar.
En þessir fimm síðasttöldu leik-
menn Akureyrar leika nú í Akur-
eyrarliðinu, þar af fjórir í fram-
l.ínunni, svo það kemur því fáum
á óvart, þótt Akureyrl sé með
Iiæsta markatölu i yfirstandandi
íslandsmóti, og eigi markhæsta
Icikmann mótsins, Steingrím, sem
skoraS hefur átta mörk. Og allir
eru þessir piltar ungir að árurn
og hafa því möguleika til að leika
enn marga landsleiki fyrir ísland
— auk þess, sem nýir lelkmenn
munu bætast í abureyrska lands-
liðsmannahópinn á næstu árúm.
—hsím.