Tíminn - 29.08.1962, Page 15

Tíminn - 29.08.1962, Page 15
Þetta eru gömlu Gránufélagshúsin, þar sem Oddl er nú. AKUREYR1100 ÁRA KAUPSTAÐUR Rætt víð Arnþór Nrsteinsson Framhald af 7. síð'U. andi mæli að auka iðnmenntun þessa fólks, og bæjarfélagið þarf að mæta þörfum iðnaðarins á þessu sviði með fjölþættari og betri iðnfræðslu og auknum og bættum húsakosti til slíkrar fræðslustarfsemi. Á 100 ára af- mæli Akureyrarbæjar mun verða komið upp iðnsýningu, sem gefur nokkru gleggri mynd af þeirri iðn þróun, sem hér hefur orðið, en hægt er að gefa i stuttri blaða- grein, og munu bæjarbúar og að- komugestir geta séð þar með eig- in augum margt, sem eigi hefur tekizt að skilgreina hér sem skyldi. — Hver er bezta afmælisgjöfin, sem iðnaðurinn á Akureyri getur gefið kaupstaðnum á aldarafmæl- inu? — Á þessu merkisafmæli bæjar ins held ég, að iðnaðurinn geti ekki gefið bæjarfélaginu aðra af- mælisgjöf betri en þá, að hver ein- stakur iðnrekandi og fólkið, sem við iðnaðinn starfar, setji sér það ákveðna mark að hefja iðnaðinn til enn meiri vegs og virðingarJa komandi tímum en tekizt hefur til þessa, og skal þó játað, að margt hefur þar vel tekizt á um- liðnum árum. —hjp. Framhald af 5. síðu. bezt, að gott sé veður. í þessu efni hefir Akureyri nokkra sérstöðu að minu áliti. Það var haustið eftir að ég flutt ist búferlum frá Akureyri til Reykjavíkur, að ég var í heim- sókn norður á Akureyri og bjó uppi við Skólastíg. Morgun einri' var ég á leið ofan í bæ. Oti var kaldur norðansveljandi, srijóað hafði langt ofan í fjöll og þoka hið efra. Þegar ég kom ofan á tröðina framan við kirkjuna, leit ég niður yfir Oddeyrina, út á blá- an f jörðinn, og við blasli Svalbarðs- ströndin að austan með samhang- andi grænum túnum á löngu svæði, fyrir ofan þau lá snjólín- an og efst þokubakkinn. Litbrigð- in voru dásamleg, og í norðri stóð Kaldbakur, hinn trausti útvörður Eyjafjarðar. Við þessa sýn sann- færðist ég um það, sem ég hafði | raunar oft áður séð og vitað, að j Akureyri og umhverfi hennar er i jafnan fagurt, hvort sem veður \ er blítt eða strítt, en fegurð er j margbreytileg. Matthías Jochumsson hafði i ekki verið á Akureyri nema! þrjú ár, þegar hann orti kvæð-i ið „Heil og blessuð, Akureyri", sem í eru Ijóðlínurnar: „Frjálsir menn, er fremdum unna, færi þig í gull og skart". Af kvæðinu má sjá, að hann hefir þá þegar tekið ástfóstri við bæinn. Ósk hans um fegr- un Akureyrar hefir rætzt, og skaparinn og borgararnir munu í félagi, eftir því sem ár- in líða, færa bæinn í enn meira „gull og skart". Myndirnar frá Akureyri sem birtist í þessu blaði eru teknar af Ijósmyndara Tímans, Runólfí Elentínussyni. •si f'-, ' > ' ■■ Samkomuhúsið á Akureyrl, BÍLASALA HÖSKULDAR ÚRVAL AF BÍLUM TIL SÖLU Alls konar greiðsluskilmálar. BÍLASALA HÖSKULDAR Túngötu 2 — Akureyri m BÓKABÚÐ RIKKU Bækur — Minjagripir — Ferðaþ|ónusta Sími 444 TÍMINN, miðvikudaginn 29. ágúst 1962 15

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.