Tíminn - 13.09.1962, Page 3
GAGARIN
TEYGAR
DANSKA
BJÚRINN
Á myndinni sézt sovézki geim-
farinn Juri Gagarin innan 'um
hóp glaSIegra verkamanna við
skipasmíðastöð Burmeister og
Wain í Danmörku, en eins og
kunnugt er af fyrri fréttum,
kom Gagarin í opinbera heim-
sókn til Danmerkur þann 4.
september. Gagarín hefur all-
sta'ðar verið forkunnar vei tek-
ið og verkamennirnir hjá B og
W. létu ekki sitt eftir liggja
að gera Gagarin til hæfis. —
Buðu þeir honum að sjálfsögS'u
upp á danskan bjór, elns og
sönnum Dönum sæmir. — Gaga
rin líkaði bjórinn vel, og á
myndinni sést hann súpa drjúgt
af hinu Ijúffenga öli, en við-
staddir horfa með velþóknun
á. Ef til vill hefur Gagarin þótt
bjórinn heldur daufur, enda
myndl ekki anna'ð sæma hetju
Sovétríkjanna, sem vanizt hef-
ur Vodkanum frá barnæsku.
Landamæraskærur
NTB—TEZPUR, 12. september. — Þær fréttir bárust frá Tezpur í
Assam-héraðinu á landamærum Kína og Indlands í dag, að kínverskir
hermenn hefðu umkringt lítinn indverskan herflokk í Kameng-héraði
skammt frá landamærunum. Var siðast óttazt, a'ð til tíðinda kynni
að draga á þessum slóðum, ef indversku hermennirnir reyndu að
losna úr umsátrinu.
U-2 FLUGVÉUN
Á VEGUM USA ?
NTB—Hong-Kong, 12. ágúst.
FlugmaSur, sem var í flug-
vél, er skotin var niður yfir
kínverskri grund 2. ágúst í
fyrra, hefur nú skýrt frá því,
að bandarískir hernaðaraðilar
standi á bak við könnunarflug
U-2 flugvéla yfir kínversku
landi.
Flugmaður þessi, sem nefndur
er í fréttum Wu Pao Chih,
sagði í viðtali við kínversku frétta
stofuna Nýja Kína í dag, að banda-
rískir að'ilar stjórni æfingum U-2
flugmanna og sjái um viðhald vél-
anna og skipuleggi flug þeirra, en
á pappírunum heyri stjórn könn-
unarflugsins undir þjóðernissinna-
stjórnina á Formósu.
Fyrir skömmu skýrði fr'éttastof-
an Nýja Kína frá því, að könnun-
arflugvél af gerðinni U-2 hefði
verið skotin niður yfir kínversku
landi og þjóðernissinnar á For-
mósru hafa gengizt við því, að önn-
ur tveggja flugvéla af þessari gerð,
sem keypt var frá USA árið 1960,
væri horfin.
Kínversk yfirvöld hafa áður sak-
að Bandaríkjamenn um ag bera
ábyrgð á flugi U-2 véla í kínverskri
lofthelgi.
14 af 16 samveldisráðh.
gegn aðild Breta að EBE
Fvrstu sjon-
varpsmyndir
i litum með
hjálp Telstar
NTB—Washington, 12. sept.
f dag var í fyrsta sinn send sjón
varpsmynd í litum yfir Atlants-
haf með aðstoð gervihnattarins
Telstar.
Hér var um að ræða sjónvarps-
sfcndingu frá Bretlandi til Was-
hington, og,var sjónvarpað frá
ráðstefnu lækna frá 51 landi, sem
eru saman komnir til þess að ræða
húðsjúkdóma. Tilraun þessi gafst
ekki sérlega vel.
Læknar í Washington fengu að
sjá í sjónvarpinu hóp brezkra
starfsbræðra sinna, sem ræddu um
hina ýmsu húðsjúkdóma og gátu
einnig hlýtt á ræður þcirra.
Þá voru og nokkrir sjúklingar
sýndir í sjónvarpinu.
Myndirnar komu greinilega
fram og sömuleiðis heyrðust öll
hljóð greinilega, en liturinn var
daufur og hvarf stundum gjör-
samlega.
14 af 16 forsætisráð-
herrum brezku samveldis-
landanna, sem taka þátt í
samveldisráðstefnunni í
Lundúnum, hafa lýst yfir
andstöðu sinni viö aöíld
Breta að EBE með þeim
skilyrðum, sem Bretar
hafa hingað til sett fyrir
aðild sinni,
NTB-Lundúnum, 12. september.
í dag kom í fyrsta sinn fram
stuðningur við fyrirætlanir Breta
í sambandi við væntanlega aðild
að EBE, en þá lýsti sir Roy Wel-
ensky, forsætisráðherra landstjórn
arinnar í Rhódesíu yfir fullum
stuðnjngi við fyrirætlanir Breta,
bæði varðandi efnahagslega aðild
að EBE og hina pólitísku ein-
ingu Evrópu.
Makarios, erkibiskup á Kýpur,
tók ekki ákveðna afstöðu til máls-
ins í ræðu sinni, en sagði þó, að
hagsmuriir brezku samveldisland-
anna myndu skerðast við aðild
Breta að Efnahagsbandalaginu.
Auk þes.sara tveggja forsætisráð
herra tóku þeir sir Alexander
Bustamante, forsætisráðherra
Jamaica og sir Abubakar Tafawa
Balewa, forsætisráðherra Nigeríu,
til máls á fundinum í dag og lýstu
þeir báðir yfir andstöðu sinni við
aðild Breta að EBE, eins og málin
horfa við í dag.
Bustamante sagði m. a., að skil-
yrði þau, sem Bretar hefðu hing-
aft til fengið viðurkennd hjá ríkj
um Efnahagsbandalagsins væru
bæði óljós og ónóg. Sagði hann,
að aðild Breta myndi gera það j
að verkum, að samveldislöndin
fjarlægðust hvert annað í sam-
skiptum.
Forsætisráðhexra Nígeríu, Bal-
ewa, tók í sama streng, en vildi
ekki taka hreina afstöðu að svo
komnu máli, frekar en Makaríos.
Sir Roy Welensky lýsti hins vegar
Frsunhalri á 15 siðu
KOMMUNISTAR RÁÐGERA
LOKUN 5 BORGARHLIÐA
NTB-Berlín, 12. september.
Upplýsingaskr07sfofan,!
West, sem aösetur hefur
í V-Berlín, en hefur góö
sambönd við áreiðanlega;
aðila handan Berlínar-
múrsins, fuliyrfi í dag, að|
austur-þýzk yfirvöld hafi;
í huga að loka fimm af|
þeim sjö borgarhliðum,
sem enn er haldið opnum
á borgarmörkunum í
Berlín.
Meðal borgarhliðanna, sem ráð-
gert er apf lokað verði fyrir alla
umferð, er hliðið við Charlie, en
þar hafa bandarískir setuljðsher-
menn eina af bækistöðvum sínum.
Hlið þetta hefur hingað til ver-
ig eina opna samgönguæðin fyrir
útlendinga milli borgarhlutanna,
en ef af þessum aðgerðum verður
segir upplýsingaskrifstofan, að út-
lendingar verði látnir fara á milli
borgarhlutanna við Sandkrug-brú,
sem liggur að brezka yfirráða-
svæðinu.
Ekki hefur fengizt nein stað-
festing á þessari frétt og vestræn
yfirvöld kannast ekki við að hafa
heyrt neitt um fyrirætlanir í
þessa átt af hálfu a-þýzkra yfir-
valda.
10 þúsund lík
fundin í Iran
NTB-Teheran, 12. sept. —
Yfirmaður íranska herráðs-
ins hefur skýrt frá því, að
íranskir hermenn hafi nú
fundið lík 10 þúsund manna
sem látizt hafa af völdum
jarðskjálftanna ægilegu,
sem urðu í Vestur-íran á
dögunum. Sagði yfirmaður-
inn, að enn væru ekki öll
kurl til grafar komin og
sennilega lægju þúsundir
látinna manna enn í rústun-
Segjast steypa
Gastró af stóli
NTB-Havana, 12. sept. —
Foringi landflótta Kúbu-
manna, sem gengizt hafa við
skotárásinni á flutningaskip
in tvö í gærdag, er þau voru
að leggja af stað með farm
frá Kúbu, sagði í sjónvarps
viðtali í San Juan í dag, að
samtök landflótta Kúbu-
manna myndu í framtiðinni
reyna að rjúfa allar aðflutn
ingsferðir skipa til Kúbu
og á þahn hátt vinna að
markmiði sínu um að steypa
Castró af stóli.
6 líflátnir
NTB-Djakarta, 12. sept.
Herdómstóll í Djakarta kvað
í dag upp dauðadóm yfir
indónesíska uppreisnarfor-
ingjanum Kartosuwirjo og
fimm félögum hans, sem
sakaðir voru um banatil-
ræði við Sukarno Indónesíu
forseta í maí í vor og voni
hinir dæmdu teknir af lífi
strax eftir dómsuppkvaðn-
ingu.
Vill fækka i her Alsír
NTB-París, 12. sept. —
Ahmed Ben Bella, varafor-
sætisráðherra i Alsír og
sigurvegari í valdabarátt-
unni þar, sagði í viðtali f
franska útvarpinu í dag, að
hann og stjórnarnefnd hans
hefðu í huga, að fækka al-
sírska hernum úr 130 þús.
í 35 þúsund.
Þá skýrði Ben Bella og frá
þvi, að framboðslisti til
kosninganna f Alsír þann
20. september yrði senni-
lega lagður fram í kvöld.
Eg er þeirrar skoðunar,
að nú sé komin á varanleg
ró í landi okkar og deilur
seinni tíma i sambandi við
brot á vopnahléi séu nú
um garð gengnar, sagði
Ben Bella.
TÍMINN, fimmtudagurinn 13. sept. 1962.
3