Tíminn - 13.09.1962, Side 12
■■1 ~
j ÞRC DTTiR II1 |i||ii!||!|||!|||!|||i IÞRDTTIR
■v." i ■
RITSTJORI: hallur simonarson
Vilhjálmur í úrslit
Náði 4. bezta afrekinu í undankeppninni í þrí-
stökkinu, stökk 15,76 metra. — Kreer féil úr
Vilhjálmur Einarsson tryggði sér rétt í úrslitakeppnina í
þrístökki á Evrópumeistaramótinu, sem hófst í Belgrad í
gær. Hann stökk 15,76 metra, sem var fjórði bezti árangur í
undankeppninni, en Ólympíumeistarinn Schmidt, Póllandi,
stökk lengst í undankeppninni, 15,98 metra. Úrslitakeppnin
í þrístökkinu fer fram í dag og það er athyglisvert, að aðeins
10 keppendur í dag stukku yfir lágmarksafrekið til að kom-
ast í úrslit 15,50 m. — en þeim var síðan fjölgað 1 12. Meðal
þeirra, sem fallið hafa úr í undankeppninni, eru einn Pól-
verji og einn Rússi, Victor Kreer, sem stökk rétt innan við
15,40 metra.
í úrelit komust þessir menn: 1) |
Schmidt, Póll. 15,98, 2) Jaskolski, j
Póll. 15,86, 3) Hinze, Þýzkal. 15,79, i
4) Vilhjálmur Einarsson 15,76, 5) j
Fedosev, Sovét, 15,68 6) Jocic, j
Júgósl. 15,58, 7) Gorajevn, Sovét, j
15,54, 8) Rakkamo, Finnl. 15,53, j
9) Gurguevhinov, Búl. 15,50, 10) j
Cavalli, ítalíu, 15,48, 11) Ruck-1
born, Þýzkal. 15,40 og Odd Berg,
Noregi, 15,40. — Þess má geta,
að þegar keppendur höfðu stokkið
yfir lágmarksafrekið 15,50 þurftu
þeir ekki að reyna meir í keppn-
inni. Hér á eftir fara nokkur frétta
skeyti frá NTB um keppnina í
gær.
Belgrad 12/9 NTB — Forseti
Júgóslavíu, Josip Broz Tito, mar-
skálkur setti í dag kl. 2,30 Evrópu-
meistaramótið í frjálsum íþrótt-
um. Um 50.000 áliorfendur voru á
Iler-leikvanginum í Belgrad. Glaða
sólskin var, 35 stig í skugganum,
alveg logn. I heiðursstúkunni við
hægri hlið marskálksins sat for-
maður alþjóðafrjálsíþróttasam-
bandsins, markgreifinn af Exeter,
en á vinstri hlið forsætisráðlierra-
frú Werna Gerhardsen og við hlið
liennar Einar Gerhardsen, for-
sætisráðherra Noregs. Einnig
mátti sjá Titov, sem var annar í
röð rússnesku geimfaranna.
EM - tölur
Undanrásir í 100 m. hl'aupi. Þrír
fyrstu komust í undanúrslit: 1.
Schumann, Þýzkalandi, 10,4. 2. Poli
tiko, Sovét, 10,5; 3. Mandlik, Tékkó
slóvaikiu 10,5. — 2. riðiil: 1. Marian
Foik, Póllandi, 10,3; 2. Petor Rad-
ford, Englandi, 10,4. — 3. riðill: 1.
Peter Gamper, Þýzkalandi, 10,3; 2.
Kuskowiak, Póllandi, 10,4. — Önn-
ur nöfn og tími i þessum riðlum
voru ólæsileg. —,4. riðill: :1. He-
bauf, Þýzkalandi, 10,3; 2. Ozolin,
Sovét, 10,5; 3. Zielenzki, Póllandi,
10,6; 4. Sven Löfgren, Svfþjóð, 10,7.
— 5. riðill: 1. Delecour, Frakklandi
10,5; 2. Bachwaroz, Búlgaríu, 10,6;
3. Meakin, Englandi, 10,6; 4. Bunæs,
Noregi, 10,7. — 6. riðill: 1. Pique-
mal, Frakkl., 10,5; 2. Berutti, ftalíu,
10,5; 3. Jones, Engl., 10,5; 4. Jons-
son, Svíþjóð, 10,5 o.g 5. Osutoras,
Ungverjalandi, 10,6 sek.
Undanrásir í 400 m. grindahlaupi:
1. riðiU: 1. Janz, Þýzkalandi 51,0;
2. Kriounov, Sovét 51,7; 3. Jurca,
Rúmeníu 52,0. — 2. riðill 1. Morales
Ítalíu 51,4; 2. Rintamaki, Finnlandi
52,4; 3. Surety, Engl., 52,8; 4. Dimi
trow, Búlgariu, 53,8: 5. Cauwen-
berg, Belgíu, 53,5. — 3. riðUl: 1.
Praagh, Frakkl., 51,1, franskt met;
2. Tsjevysjalov, Sovét, 52,0; 3. Sing-
er, Þýzkal., 52,0; 4. Cooper, Engl.,
52,4. — 4. riðUl: Anissinov, Sovét,
51,8; 2. Galliker, Sviss, 52,2 3.
Neumann, Þýzkal'andi 52,8; 4. Wood
land, England 53,0 og 5. Gulbrand-
sen, Noregi.
Undanúrslit í 100 m. hlaupi Tveir
fyrstu komust í úrslit: 1. riðill: 1.
Ilebauf Þýzkalandi, 10,4: 2 Pique-
mal, Frakkl 10,4; 3 Berutti. Ítalíu
10,5; 4. Radford, Engl. 10,5; 5. Bac-
hwarov, Búlgaríu, 10,5; 6. Politiko,
Framhald á bls. 13.
Vilhjálmur Etnarsson.
Flögg hinna 28 þátttökuþjóða
voru við hún kringum völlinn og
við opnunina gengu þátttökuþjóð-
irnar undir fána og nafnspjaldi
inn á völlinn með Austurríki í
broddi fylkingar. Flestir flokk-
anna fámennir — cnda hlífast far-
arstjórarnir við, að láta íþrótta-
fólkið standa lengi í sólskininu.
Vlado Ivkovic, formaður júgóslav-
neska frjálsíþróttasambandsins
hélt opnunarræðuna. en mark
greifinn af Exoter (áður Lord
Burgley) sem er gamall ólympíu
meistari í 400 m. grindahlaupi
þakkaði af hálfu þátttakenda fyr-
it- móttökurnar í Belgrad. Hann
gaf siðan Tito orðið, sem í setn-
iiigarræðu sinni undirstrikaði, að
mótið væri ekki einstök íþrótta-
hátíð, en einnig þýðingarmikill at-
burður til þess að skapa betri
skilning milli þjóðanna með heims
friðinn sem takmark. Síðan var
hundruðum hvítra dúfna sleppt,
rétt áður en þjóðsöngur Júgóslafíu
var leikinn. Hinn kunni maraþon-
hlaupari Júgóslafíu Franjo Miha-
lic sór áhugamannaeiðinn af hálfu
keppenda.
Fyrsta greinin, sem úrslit feng-
ust í, var kúluvarp kvenna og gef-
ur árangur þar strax til kynna hve
stórkostleg afrek verða unnin á
mótinu. Tamara Press, Sovét, sigr
aði með miklum yfirburðum og
jafnaði jafnframt heimsmet sitt,
varpaði 18,55 metra. í öðru sæti
var Renata Garisch, Þýzkal., með
17,17 m. Þriðja varð Zybinava,
Sovét, með 16,95 m. 4) Johanna
Framhald á bls. 13.
Þessi skemmtilega mynd er frá
leik Fram við tékknesku meist
arana Gottwaldo og stóð Fram
sig vel í þelm leik. Guðjón Jóns
son, liinn skemmtilegi leikma'ð
ur liðsins er með knöttinn —
en Guðjón hefur verið einn af
máttarstólpum Framliðsins und
anfarin ár — jafnframt þvi,
sem hann hefur leikið lands-
leiki í knattspyrnu.
ISLflHDSME ISTARflR GEGN
DANMERKURMEISniRUNUM
Það hefur nú verið ákveð-
ið, að Fram verði með í
Evrópubikarakeppninni í
Handknaftleik, sem hefst
seinni hlutann í nóvember.
Þátttökuliðin í keppninni að
Bikar-
keppnin
Um síðustu helgi fór fram leik
ur í Vestmannaeyjum milli B-
liðs KR og TÝS. Var það liður í
bikarkeppninni. Fóru leikar svo,
að Týr sigraði með 3—0.
Þá áttu Hafnfirðingar að leika
gegn Breiðabliki í Hafnarfirði, en
leikurinn fórst fyrir þar sem eng
inn dómari mætti. Verður reynt
að koma þessum leik á á laugar-
dag 15. sept. í Hafnarfirði og
hefst hann klukkan 4.
N. k. laugardag ieika Keflvík-
ingar gegn B-liði Vals í bikar-
keppninni og fer léikurinn fram
' Keflavík og hefst kl. .4.
Þá fer fram úrslitaleikur í A-
riðli Landsmóts 2. flokks. Á laug
ardag leika Í.B V og Valur í Vest
mannaeyjum um það, hvort liðið
leiki til úrslita í 2. flokki gegn
Fram.
í Evrópubikarkeppninni í handknattleik.
Fjór’ða skipti, sem keppnin er há’ð
þessu sinni verða 22, eða fleiri
en nokkurn tímann fyrr. Dreg
ið hefur verið um hvaða lið
mætast í fyrstu umferð, og
leika Framarar á móti Dan-
merkurmeisturunum Skov-
bakken.
Evrópubikarkeppnin í hand-
knattleik hefur farið fram þrisv-
ar sinnum áður, sú fyrsta 1956—57
en þá tóku alls 12 lið þátt í henni.
Fyrirkomulag hennar var þá með
öðrum hætti en nú er, en þá sendu
viðkomandi lönd úrvalslið frá
borgum, t. d. sendu D'anir þá úr-
valslið frá Kaupmannahöfn. Lið
Prag frá Tékkóslóvakíu sigraði í
þeirri keppni. Þessu fyrirkomulagi
var breytt fyrir næstu keppni,
sem fór fram 1958—59, en þá vorj
send meistaralið frá hverju landi
Sigurvegari í þeirri keppni varð
sænska iiðið Redbergslied. Léku
þeir úrslitaleik gegn þýzka liðinu
Gröppingen og unnu það 18-13.
í næstu keppni, sem fram fór
1959—60 sigraði hrns vegar Gröpp
ingen, og léku þá úrslitaleikinn
gegn danska liðinu A.G.F., sem
þeir sigruðu með 18-13 Árin 1957
—58 og 1960—61 féli keppnjn nið
ur vegna heimsmeistarakeppnimi
ar. Nokkra a'hygli vekur að Sovéi
ríkin senda nú lifi til keppninnar
í fyrsta sinn. T keppninni í ár eru
því mörg sterk ljð, m. a. sænsku
meistararnir frá Heim, sem taldir
eru hafa mikla sigurmöguleika,
en þeir léku hér fyrir einu og
hálfu ári, og þá gegn Fram, sem
sigraði þá með 23-17.
Þetta er í fyrsta skipti, sem ís-
Frarnhaln a 13 <iðii
Bezt í
sieggju
Á innanfélagsmóti Ar-
manns og KR s.I. laugardag
náði Friðrik Gu'ðmundsson,
KR, bezta árangri ársins hér
á landi í sleggjukasti, kast-
aði 50,72 metra. Sama dag
kastaði Hallgrímur Jónsson
Á, kringlu 50,38 metra, en
hann hefur kastað bezt í ár
50,69 metra. Annar var5
Friðrik Guðmundsson 1110*0
47 metra. Hallgrímur virð-
ist nú alveg öruggur með
50 metra köst, því deginum
áður kastaðj hann rúma 50
metra í logni. Næstkomandi
-unnudag gengst Ármaiín
fyrir frjálsíþróttamóti og
hefst það á Melavellinum
klukkan tvö.
12
T í M I N N, finimtudagurinn 13. sept. 1962.