Tíminn - 13.09.1962, Side 15
Jólabækurnar
Framhald aí 16. síðu.
úr indverska helgiritinu í þýðingu
Sörens Sörenssonar.
Bókmenntasaga Einars Ói.
Almenna bókafélagið heldur á-
fram útgáfu bóka í flokknum
Lönd og þjóðir, og kemur nú bók
um Bretland í þýðingu Jóns Ey-
þórssonar. Broddi Jóhannesson
hefur þýtt bók, er á frummálinu
nefnist: Saga Framtíðarinnar, og
er eftir franska höfundinn Pierre
Rousseau. Segir hún frá þróun
heimsins og mannkynsins. Þá er
væntanleg bókmenntasaga eftir
prófessor Einar Ólaf Sveinsson.
Nefnist hún: fslenzkar bókmennt-
ir í fornöld, og er fyrsta bindi
af þremur, sem síðar eru væntan-
leg, og fjallar það um fornbók-
menntimar almennt og um Eddu
kvæðin. Helztu trúarbrögð heims,
heitir bók, sem komið hefur út
á vegum Life. Séra Sigurbjöm
Einarsson hefur íslenzkað bókina,
en í henni segir frá kristindómi,
Gyðingatrú, Brahmatrú, Buddha-
trú, Múhameðstrú, og að lokum
í bókinni er fjöldi mynda.
Jón Kristófer, kadett
í hernum
Ægisútgáfan gefur að þessu
sinni út stríðsendurminningar
Jóns Kristófers Sigurðssonar. Nefn
ast þær: Syndin er lævís og lipur,
og eru ritaðar af Jónasi Árnasyni.
Stefán Jónsson fréttamaður hef-
ur skrifað bókina: Mínir menn,
en auk þess koma út tvær sjó-
mannabækur eftir erlenda höf-
unda á vegum útgáfunnar.
Bók eftir Bandaríkjaforseta
Fjórar bækur eru væntanlegar
hjá Ásrúnu. Það má fyrs'ta telja
Pulitzerbók Kennedys Bandaríkja
forseta: Profiles in Courage, auk
ferðabókarinnar: Á helgidögum,
sem fjallar um Gyðingaland, geim
ferffabókarinnar Jarffljós og að
lokum ástarsögu, sem skrifuð er
af kvenlækni.
Gunnar helmingur
Prentverk Odds Björnssonar á
Akureyri gefur út 10 bækur í ár.
Meðal þeirra er stór myndabók:
Hnattferð í mynd og máli. Bókin
er eftir tvo Þjóðverja, en séra
Björn 0. Björnsson hefur þýtt
textann. í bókinni eru 50 litmynd
ir, auk 250 annarra mynda. Tvær
skáldsögur em væntanlegar: Gunn
ar helmingur, eftir séra Stanley
Melax og Heimasætan á Stóra-
felli, eftir Ingibjörgu Sigurðar-
dóttur. Þá má nefna 6. bindi bóka
flokksins: Svipir og Sagnir, þættir
úr Húnavatnssýslu, en þetta bindi
heitir: Fortíð og fyrirburðir, og
3. bindi Aldamótamanna eftir
Jónas Jónsson frá Hriflu. Einnig
gefur POB út endurminningar
Péturs Sigfússonar, sem nefnast:
Enginn ræður sínum næturstaff.
Auk þess em væntanlegar nokkr-
ar barnabækur, t.d.: Strákur og
heljarmenni, sem er í Strákabóka
flokknum.
Tvær ferðabækur eftir Arne
Falk Rönne eru væntanlegar hjá
Snæfelli. Önnur þeirra er frá
Suður-Ameríku, en hin er barna
bókin: Sjónvarps-Siggi. Sjónvarps
Siggi er ungur maður, sem ferð-
ast um og tekur myndir fyrir sjón
varp, og er þetta ferðabók fyrir
unglinga. Þá kemur út ný bók um
Tom Swift og heitir hún Kjarn-
orkuhellarnir, en einnig verður
endurprentuð fyrsta ævintýrabók
in um Tom Swift: Rannsóknar-
stofan fljótandi. Tvær bækur
verða sérstaklega fyrir lítil börn:
Tíu litlir hvuttar og Valur fer á
veiðar.
Fróði mun gefa út 10 bækur í
ár. Vandinn að vera pabbi heitir
bók eftir Willy Brinholt, og kem
ur hún út nú eftir helgina. Sara
Lidmann hefur skrifað bókina:
Sonur minn og ég, og er hún frá
Suður-Afríku. Annað bindi Breið-
firzkra sagna eftir Bergsvein
Skúlason er væntanleg á markað-
inn innan skamms.
Þá eru það barnabækur Fróða:
Alltaf er gaman í Ólátagarði, Pip
fer í skóla, Maggi Mari og Matthí-
as og Palli og Pési. Fyrstu tvær
bækurnar era í barnabókaflokkn
um, sem áffur hafa komið út hér.
Hjá Leiftri komu út 30 bækur
í fyrra, og álíka margar eru vænt
anlegar í ár. Þar má fyrsta nefna:
Stýfðar fjaðrir II. hefti, eftir Guð-
rúnu frá Lundi. Einnig er væntan
leg þrið'ja bókin eftir Sholem Ash
Gyðingurinn, en áður eru komnar
Rómverjinn og Lærisveinninn.
Steinunn Briem hefur þýtt eina
jólabók Leifturs' Fullnuminn,- sem
fjallar um yoga og dulspeki. Marg
ar barnabækur eru væntanlegar
en komnar eru nú þegar Matta
Mæja, Kalli og Klaxa og tvær bæk
ur um Bob Moran, Eldklóin og
Ógnir í lofti.
Segn aðild Brefa
CFramhald. af 3. síðu).
yfir fullum stuðningi við fyrirætl-
anir Breta um aðild aff bandalag-
inu.
Fundurinn £ morgun stóð aðeins
í 90 mínútur, og var ekki búizt
við, að Macmillan, forsætisrá®-
herra Breta, myndi halda svar-
ræðu sína í dag og ef til vill ekki
fyrr en á laugardag eða strax
eftir helgina.
Á síðdegisfundinum talaði for-
sætisráðherra Tanganyaka og
varaforsætisráðherra Malaya tók
einnig til máls og létu þeir báðir
í Ijós andstöðu við inngöngu
Breta £ EBE.
Er fundunum tveim var lokið í
dag var tilkynnt, að fulltrúar á
ráðstefnunni myndu nú skipta
sér niður í nefndir, sem ræddu
ýmis mál £ einstökum atriðum.
Næsti almenni fundur verður
sennilega á laugardaginn.
Tvær á fer»
Framhald af 4. síðu.
Við höfðum mikinn hug á
aff vita, hvað foreldrar þessara
tveggja Parísar-stúlkna hefðu
sagt, þegar þær ákváðu að
bregða sér til íslands eitt sum-
ar. „Pabbi og mamma urðu að
skrifa á umsóknina um styrk-
inn, að þau væru þessu sam-
þykk,“ sagði Monique. Þau
gerðu það, enda trúðu þau því
alls ekki, að ég fengi hann. Svo
þegar hann kom urðu þau ekk-
ert sérlega ánægð,“ bætti hún
viff og hló.
— Það væri varla hægt að
ferðast í Frakklandi eins og við
höfum gert hér í sumar, sögðu
þær síðan. Þar er fólki ekkert
vel við að taka fólk upp í bíl,
ef þag er einhvers staðar á
gangi, enda hafa ýmsir glæpir
verið framdir í sambandi við
slíkt. Hérna hafa bændur einn-
ig oft boðið okkur að koma og
sofa í hlöðum eða inni í bæj-
um, og okkur hefur verið gefið
að borða. í Frakklandi myndu
þeir varla skipta sér af fólki,
sem kæmi gángandi eftir þjóð-
veginum aff kvöldlagi méð bak-
poka á bakinu. Fólk hefur ver-
ið mjög gott við okkur, og við
erum búnar að fara um 4200
km leið í sumar með hinum
og þessum, sem tekið hafa okk-
ur upp á leiðinni.
Þær Isabelle og Monique
fara áleiffis heim til Parísar á
föstudaginn meg einni af flug-
vélum Flugfélagsins, en það
hefur veitt þeim afslátt á far-
gjaldinu. Þær vilja endilega
koma hingað aftur eftir eitt
eða tvö ár, því þær segjast eiga
enn eftir að sjá mikið af land-
inu. Heima fyrir ganga þær í
menntaskóla, en Isabelle hefur
áhuga á að leggja stund á jarð-
fræffi í framtíðinni, og Moni-
que sagðist ætla að verða
íþróttakennari.
Slé metié
Framhald at 16. siðu.
Björnsson, en um síðustu helgi
var hann aflahæstur. Hann kvaðst
lítið hafa fengig í gær, væri með
um 250 tunnur. Sagði hann síld-
ina leiðinlega við að eiga og mjög
stygga. E-kki sagðist hann enn
vera farinn að hugsa neitt um að
hætta síldveiðum á þessu sumri.
Ólafur Magnússon var með 29.565
mál og tunnur um helgina, svo að
nú ætti hann að vera kominn með
29.815 og er því orðinn nokkuð á'
eftir Víði II.
í gær var lítið þróarrými hjá
Síldarbræðslunni á Raufarhöfn,
en skip var þar að lesta síldarlýsi
til útflutnings.. Alls hefur síldar-
bræðslan tekið á móti 343 þúsund
málum í sumar.
Frá Edinborgarhátföinni
Framhald af 4. síðu.
fengi náff til eyrna þeirra, sem á
hlýddu. Shostakovieh er enn hér
í bænum, og hann er alltaf hyllt-
ur og margkallaður fram, þegar
eitthvað er leikið eftir hann. Hann
virðist vera heldur hlédrægur og
feiminn, og ólíkur íslenzkum tón-
skáldum aff því leyti, að hann hef
ur ekki gaman að því, að vera
kallaður fram aftur og aftur kvöld
eftir kvöld, enda verður bölvaff ráp
úr þessu. Blaðamenn fengu aff
tala við hann hér um daginn. Þeg
ar þeir komu, sat hann og var aff
lesa bók um Krustjoff til þess að
halda sér á línunni. Blaðamenn-
irnir spurðu hann spjörunum úr
og komust að því, að hann var
þríkvæntur, sem ekki þykir mik-
ið á íslandi, þegar sannir lista-
menn eru annars vegar, og ein-
hvern veginn upplýstist það, að
ypgsta konan var 28 ára, hins
vegar var aldursmunarins ekki'
getiff. Hann var spurður að því,
hvort hann hefffi verið gagnrýnd-
ur fyrir að vera ekki nógu „revolu
tioner“ og hann svaraði því til, að
hann sæi það nú, að sú gagnrýni,
JþmTíJpjZIiefði fengiff, hefði leitt
sig á rétta braut, og bætti því svo
við, að rússnesk ntúímatónlist
væri engu síður „revolutioner“ en
hin vestræna, og minnir mig að
hann segði, að þaff væri ekkert
nema Sovétníð, að tónlistin væri
ekki frjáls í Ráðstjórnarríkjunum.
Annars lét hann blaffasnápana
ekkert vaða ofan í sig, enda er
maðurinn þéttur á velli og ekki
líklegur til að láta hræra í sér.
Svipurinn er festulegur og alvar-
legur og hann brosir ekki, þegar
Usher Hall nötrar af bravóhróp-
um, fótasparki og lófataki, óg
hann er óspar á að gagnrýna
flutninginn á verkum sínum hér
á tónlistarhátíðinni, en segir þó,
að hátíðin muni gefa sér kveikju
í ný verk. Núna er hann að semja
12. sinfóníuna, en á milli les hann
í bókinni um Krústjoff.
Aðalgeir Kristjánsson.
Ben Gurion
Framhald 1. síðu.
sagðist að lokum vona, að ferð
sín hingað yrði sér lærdómsrík.
Að þessu búnu stigu heimsækj-
endur og gestgjafar upp í bíla,
sem fluttu þá til ráðherrabústaðar
ins. Talsverður mannfjöldi hafði
safnast saman fyrir utan bygging-
ar fllugfélagsins á vellinum til
þess að sjá gestina og heill her
ljósmyndara myndaði þá £ bak og
fyrir.
í dag hefja forsætisráðherra
ísrael og íslands viðræður strax
fyrir hádegi, en síðan verður Þjóð
minjasafnið heimsótt. Um hádeg-
ið verffur hádegisverðarboð Ólafs
Thors á Hótel Borg, en í kvöld
snæðir Ben Gurion að Bessastöð-
um í boði forseta.
Ben Gurion kom hingað beint
frá Kaupmannahöfn, þar sem
hann hefur verið £ opinberri heim
sókn. Krag, forsætisráðherra Dana
var meffal þeirra, sem kvöddu
hann á Kastrup-flugvelli.
Léynivínsalar
leknir í Rvk.
Lögreglan í Reykjavík hefur
haft hendur í hári tveggja leyni-
vínsala í borginni eftir helgina.
Hinn fyrri var tekinn á mánudags
kvöldið og hinn síðari í fyrra-
kvöld. Báffir voru staðnir að sölu
og hjá hinum síðari fundust einn-
ig einhverjar birgðir af víni í
bílnum. Báðir voru leigubílstjór-
ar.
Sá sem tekinn var í fyrrakvöld,
hefur áður verið tekinn fyrir
samskonar brot, og munu fimm
eða sex skýrslur liggja fyrir hjá
Sakadómaraembættinu um hann,
og má ætla að nú verði farið að
glugga í þær, þegar þetta mál
verður tekið fyrir.
Rafmagn í vændum
Ólafsvík, 11. sept.
Rafveitur ríkisins eru aff leggja
háspennulínu suður yfir Fróðár-
heiffi yfir Kambsskarð ,niður í
Ereiðuvík. Verður linan lögð eftir
víkinni og í hluta af Staðarsveit í
haust og fá við það mörg býli raf-
magn.
Hér í Ólafsvík eru nú sex íbúð-
arhús í smíðum. —f A.St.
Ný verzlun
Ólafsvík, 11. sept.
í síffasta mánuði var opnuff ný
verzlun hér í Ólafsvrk í húsnæði
því, sem Kaupfélag Ólafsvíkur
var áður til húsa. Hin nýja verzl-
un heitir Skemman og er nýtízku-
leg verzlun með kjörbúðarsniði.
— A.St.
Verélagsgrundvöllur
Framhald ui 1 síðu.
um sjálfan verðlagsgrundvöllmn
og kemur því ekki til kasta yfir-
dóms að fjalla um málið. Nefndin
var á fundum fram til klukkan
þrjú í fyrrinótt og í gærkveldi
voru ekki horfur á öðru en samn
ingafundur stæði fram eftir nóttu.
Nefndin kom til fundar klukkan
níu í gærkveldi til að ræða um
síðustu samningsatriðin.
1 tekinn
Framhald af 1. síðu.
skipið kom aff, forffuffu toganarn-
ir sér, hver sem betur gat. North-
ern Jewel hjó sundur trollvírana
og sigldi á brott og stanzaffi ekki
fyrr en Óffinn hafffi skotiff þremur
púðurskotum aff honum,
Réttarhöld liófust í máii skip-
stjórans kiukkan 14 í dag, og er
ekki búizt viff aff þeim ljúki fyrr
en seint í kvöíd. Verjiandi skip-
stjórans er Gísli ísleifsson og kom
hann meff Bimi Pálssyni til Egils
staffa í dag. — I.H.
HalYdór Jénsson hæsfur
Ólafsvík, 11. sept.
Héðan fóru 8 stærstu bátamir
norður á sild í sumar. Samanlagð-
ur afli þeirra um síffustu helgi var
110.000 mál og tunnur. Hæstur
var Halldór Jónsson, með tæplega
21 þúsund mál, sá lægsti var með
um 9 þúsund mál. Héðan hafa í
sumar róið 5 dragnótabátar og 5
handfæra- og línubátar, og hefur
atvinna verið næg í frystihúsun-
um hér í sumar. —A.St.
Útsvör í Ólafsvík
Ólafsvík, 11. sept.
Hinn 28. ágúst var lögð fram
fjárhagsáætlun og útsvarsskrá
fyrir Ólafsvíkurhrepp. Lagt var á
eftir hinum nýju lögum um tekju-
stofna sveitarfélaga og síðan lækk-
að um 25% á einstaklingum. Nið-
urstöðutölur á fjár'hagsáætlun
vom 3.858,500.
Helztu útgjaldaliffir eru: Mennta
mál 570,000, Tryggingar 400.000,
Vatnsveita 830.000 og Ólafsvíkur-
höfn 300.000.
Helztu tekjuliðir eru: Útsvör á
262 gjaldendur 2.729.700 og að-
stöffugjald á 35 gjaldendur 1.068
100.
Hæstu útsvör einstaklinga bera:
Kristmundur Halldórsson, skip-
stjóri 54.300, Guðmundur Krist-
jónsson, skipstjóri 51.885, Halldór
Jónsson, útgorðarmaður 51.000 -f
aðstöðugjald 90.000, Randver Al-
fonsson, vélstjóri 47.550 og Guff-
mundur Sveinsson, vélstjóri 45.
045. Hæstu aðstöðugjöld voru
lögð á Kirkjusand h.f. 250.200,
Kaupfélagið Dagsbrún 245.700 og
Hraðfrystihús Ólafsvíkur h.f.
216.020. — A.St.
Ný sildarverksmiðja
Ólafsvík, 11. sept.
Kirkjusandur h.f. og Hraðfrysti-
hús Ólafsvíkur h.f. era að reisa í
sameiningu nýja síldarverksmiffju,
og standa vonir til aðdiún verffi til
búin í næsta mánuði. Hún á að
geta brætt 1000—1500 mál á sól-
arhring. Vélsmiðjan Héðinn er að
setja niður vélar og tæki og veriff
er að steypa þrærnar, sem taka
munu ca. 5000 mál. — Á.St.
Slátrun hafin
Hvolsvelli, 12. sept.
Slátrun hófst hér í sýslunni
í dag. Hér eru þrjú sláturhús,
Sláturfélag Suðurlands starfrækir
hús á Hellu og í Djúpadal og
Friðrik Friðriksson kaupmaður í
Miðkoti í Þykkvabæ. P.E.
ÞAKKARÁVÖRP
Þakka börnum mínum og viiaum öllum fjær og
nær gjafir, ljóð, kærkomnar kveðjur og hlýhug
allan á 60 ára afmæli mínu 25. ágúst s.l.
Lifið heil.
Sigurjón Kristjánsson, Akranesi.
Hjartans þakkir til allra þeirra sem heiðruðu
mig á fimmtugsafmæli mínu. Sérstaklega þakka
ég Hestamannafélagi Hveragerðis, sem gerði mér
daginn ógleymanlegan.
Magnús Hannesson, Hveragerði.
Eiginkóna mín og móðir okkar
Eyrún Guðmundsdóttir
Þinghól, Akranesi,
lézt í sjúkrahúsi Akraness að kvöldi 9. sept. — Jarðarförin ákveðsn
mánudaginn 17. sept. kl. 2 e.h. frá Akurgerði 2. — Þeir sem viidu
minnast hennar láti sjúkrahús Akraness njóta þess.
Vilhjálmur Jónsson, börn og tengdabörn.
T f M I N N, fimmtudagurinn 13. sept. 1962.
15