Tíminn - 05.10.1962, Blaðsíða 6

Tíminn - 05.10.1962, Blaðsíða 6
NOTIÐ FRÍSTUNDIRNAR { : v TIL HAGKVÆMS NÁMS STUNDIÐ NÁM f 0; 1. Skipulag og starfshæHlr samvinnufélaga: 5 bréf. Kennslugjald Jcr. 100.00. Kennari er Eiríkur Pálsson, lög- fræöingur. 2. Fundarstjórn og fundarreglur: 3 bréf. Kennslugjald kr. 200.00. Kennari er Eiríkur Pálsson. 3. Bókfærsla I, byrfendaflokkur: 7 bréf. Kennslugjald kr. 350.00. Kennari Þorl'eifur ÞórÖarson, forstjóri. 4. Bókfærsla II: 6 bréf, framhald fyrra flokks, sami kennari. Kennslugjald kr. 300.00. 5. Búrelkningar: 7 bréf og bókin: „Leiðbeiningar um færslu búreikninga". Kennari er Eyvindur Jónsson, bú- fræðingur. Kennslugjald kr. 150.00. 6. íslenzk réttritun: 6 bréf eftir kennarann Sveinbjörn Sigurjónsson, magister. Kennslugjald kr. 350.00. 7. fslenzk bragfræði: 3 bréf eftir kennarann Svein- björn Sigurjónsson, magister. Kennslugjald kr. 150.00. 8. fslenzk málfræði: 6 bréf eftir kennarann Jónas Kristjánsson, cand. mag. Kennslugjald kr. 350.00. 9. Enska I, byrjendaflokkur: 7 bréf og ensk lesbók. — Kennari er Jón Magnússon, fíl. cand. Kennslugjald kr. 350.00. 10. Enska II: 7 bréf, auk leskafla, orðasafns og mál- fræði. Framhald fyrra flokks, sami kennari. Kennslu- gjald kr. 300.00. 11. Danska I, byrjendafiokkur: 5 bréf og Litla dönsku- bóikin eftir kennarann Ágúst Sigurðsson, cand. mag. — Kennslugjald kr. 250.00. 12. Danska II: 8 bréf og kennslubók í dönsku eftir kennarann. Kennslugjald kr. 300.00. 13. Danska III: 8 bréf, svo og kennslubók, lesbók, orða- safn og stílhefti eftir kennarann. Kennslugjald kr. 450,00. 14. Þýzka: 5 bréf, þýdd og samin af kennaranum Ingvaxi Brynjólfssyni, menntaskólakennara. Kennslugjald kr. 350.00. 15. Franska: 10 bréf, þýdd og samin af kennaranum Magnúsi G. Jónssyni, menntaskóiakennara. 16. Spænska: 10 bréf, þýdd og samin af kennaranum Magnúsi G. Jónssyni, menntaskólakennara. KennslU- gjald kr. 450.00. 17. Esperanto: 8 bréf. Kennslugjald kr. 200.00. 18. Reikningur: 10 bréf. Þorleifur Þórðarson kennir. Kennslugjald kr. 400.00. 19. Algebra: 5 bréf eftir kennarann, Þórodd Oddsson menntaskólakennara. Kennslugjald kr. 300.00. 20. Eðlisfræði: 6 bréf eftir kennarann Sigurð Ingi- mundarson, efnafræðing. Kennslugjald kr. 250.00. 21. Mótorfræði I: 6 bréf eftir kennarann Þorstein Loftsson, vélfræðing. Kennslugjald kr. 350.00. 23. Siglingafræði: 4 bréf. Kennari Jónas Sigurðsson, Stýrimannaskólakennari. Kennslugjald kr. 350.00. 24. Landbúnaðarvélar og verkfærí: 6 bréf. Kennari ar Haraldur Árnason, landbúnaðarvélaverkfræðingur. Kennslugjald kr. 150.00. 25. Sálarfræði: 4 bréf, þýdd og tekin saman af kenn- aranum dr. Brodda Jóhannessyni og frú Valborgu Sig- urðardóttur. Kennslugjald kr. 200.00. 26. Skák I, byrjendaflokukr: 5 bréf á sænsku. KennslU gjald kr. 200.00. 27. Skák II: 4 bréf. Kennslugjald kr. 200,00. 28. Starfsfræðsla: Bókin „Hvað viltu verða“. Ólafur Gunnarsson, sálfræðingur svarar bréfum nemenda og gefur upplýsingar og leiðbeiningar varðandi starfs- og stöðuvai. Kennslugjald kr. 200.00 Bréfin eau samin og svörin leiðrétt af ágætum kenn- urum í hverri grein. Skólinn leggur ekki til svara. og verkefnahefti, en mælist 111, að nemendur noti litlar stílabækur eða laus blöð. Áherzlu ber að leggja á það, að ganga sem bezt frá svörunum, skrifa greinilega og hafa spássíu fyrir leiðréttingar. Það er góð regla að skrifa aðeins í aðra hvora línu. Nemandi getur tekið eina námsgrein eða fleiri, eftir þvi sem ástæður hans leyfa, Um leið og hann sækir um kennslu í einhverri grein, sendk hann kennslugjaldið fyrir þá námsgrein, eða vottorð frá Sambandsfélagi um, að hann hafi greitt því kennslugjaldið, eða biður um fyrstu námsbréfasendingu í póstkröfu. Nemandi verður að gæta þess, að gefa upp greinilegt heimilis- fang. Nemanda eru svo send tvö fyrstu bréf náms- greinarinnar. Hann svarar fyrst bréfi nr. 1, og sendir það til baka. Svarar bréfi nr. 2, meðan hann bíður eftir svari Bréfaskólans. Þegar skólinn fær svar nr. 1, sendir diann nemenda bréf nr. 3 og 1. bréf leiðrétt. Þegar skólinn fær svar nr. 2, sendir hann nemanda bréf nr. 4 og leiðrétt bréf nr. 2, og svo koll af kolli, þangað til flokkurinn er búinn. Svar við hverju bréfi verður að vera komið til skólans eigi síðar en 3 mánuðum eftir að bréfið var sent út. Annars verður íitið svo á, að nemandi hafi hætt námi, og hefur hann þá fyrirgert kennslugjaldi sínu. Undanþágu frá þessu getur skólinn veitt, ef ætla má, að póstsamgöngur hafi hamlað, eða nemandi hafi vorið veikur innan þessa tímamarka ræður nemandi sjálfur hve mikill námshraði hans er en heppilegast er fyrir hann að svara bréfunum eins fljótt og hann getur. Nýir nemendur fá inngöngu, hve nær sem er á starfstíma skólans. Þegar nemandi hefur lokið námi, fær hann vottorð um það, frá skólanum. Nemendur verða að skuldbinda sig til að sýna ekki óviðkomandi mönnum bréf skól'ans, né svör. Bréfaskólar eru mikið notaðir erlendis. Samvinnu- sambönd nágrannalanda okkar reka flest bréfaskóla. Þeir eru hentugir fyrir fólk á öllum aldri og hvaða at- vinnu, sem það stundar, Nemandinn getur notað frí- stundir sínar hvenær sem þær eru, til að lesa bréfin og svara þeim. Hann ræður sjálfur að miklu leyti náms- hraða sínum. Á þann hátt notast frístundirnar miklu betur en i venjulegum skólum. Bréfaskólarnir hafa og þann kost, að fólk, sem búsett er á stöðum, þar sem lítið er um kennslukrafta, getur á þann hátt notið kennslu færustu manna í hverri grein. Margir ágætir menn hafa sótt menntun sína til bréfaskóia í ýmsum Iöndum eru skólarnir orðnir svo fullkomnir, að þeir kenna allt, sem þarf til stúdentsprófs og í sumum greinum til háskólaprófs. Þetta kennslufo.rm hefur alls staðar reynzt mjög vel. TAKIÐ EFTIR. — Bréfaskóli S.Í.S. veitir ungum og gömlum, konum og körlum, tækifæri til að nota frí- stundirnar til að afla sér fróðleiks, sem allir hafa gagn af. Með bréfaskólanámi getið þér bætt yður missi fyrri námsára, aukið þekingu yðar og möguleika á að kom- ast áfram 1 lífinu. Þér getið gerzt nemandi hvenær ársins sem er og eruð ekki bundinn við námshraða annarra nemenda. Bréfaskóli S.Í.S. býður yður velkominn. Utanáskrift Bréfaskólans er: Bréfaskóli S.Í.S. Reykjavík. Undirritaður óskar að gerast nemand.i í eftirtöldum námsgreinum: □ Vinsamlega sendið gegn póstkröfu. Q Greiðsla hjálögð kr. -------------- nafn heimilisfang ui > * S m £ -C £ <— o > Ul /s C/í Z c BRÉFASKÚLA SÍS 6 T í MI N N , föstudaginn 5. október 1962

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.