Tíminn - 04.11.1962, Side 5
Höfum opnað nýja húsgagnaverzlun
Hallarmúla, Reykjavík
\
í einhverju glæsilegasta húsnæði
landsins bjóðum vér yður fjölbreytt
úrval hverskyns húsgagna 03 heim-
ilistækja frá helztu framleiðendum
landsins.
Utið inn hjá okkur áður en þér festið kaup annárs staðar
Húsgögn eru híbýiaprýði
SEXTUGUR:
Þorsteinn Stefánsson
trésmíðameistari
Sex áratugir er ekki langur
tími í lífi þjóða, en var meðallífs-
skeið fslendinga og vel það hér
áður fyrr, t.d. á síðustu öldinni.
En í dag er sextugur maður enn
þá á miðjum aldri — og kemur
margt til — s.s. vaxandi verk-
menning, breyttir möguleikar til
bærilegra lífs en áður hefur þekkzt
hér í þessu norðlæga landi. Vin-
ur minn Þorsteinn Stefánsson er
fæddur 4. nóv. 1902, sonur hjón-
anna Stefáns Þorsteinssonar söðla
smiðs frá Daðastöðum í Núpasveit
(albróðir Þorsteins Þorsteinsson-
ar hreppstjóra um langt skeið í
Presthólahreppi og stórbónda á
ættaróðali ,sínu, Daðastöðum), og
Ingibjargar Jónasdóttur, ættaðrar
úr Húnaþingi, bóndadóttur frá
Skyttudal í Laxárdal. Foreldrar
Þorsteins bjuggu í Kílakoti, Keldu
hverfi og þar fæddist Þorsteinn.
Önnur börn þeirra eru Eggert,
vélsmiður á Akureyri og Þórunn,
búsett í Kaupmannahöfn, var gift
kaupsýslumanni, sem nú er dá-
inn.
Ingibjörg missti mann sinn í
maí 1904 frá kornungum börnum
sínum. Þorsteinn var þá tekinn
til fósturs af Siggeiri Péturssyni
og Borghildi Pálsdóttur á Odds-
stöðum á Sléttu. Þar ólst Þor-
steinn upp á góðu heimili, lærði
trésmíði hjá Sigurði Guðmunds-
syni á Ásmundarstöðum og síðar
á Akureyri þar sem hann fékk sín
meis'araréttindi. En til Akureyr
ar flutti Þorsteinn 1929 og var
þá fjölskyldumaður orðinn Kvænt
ist 30 ágúst 1927 Er kona hans
Óla Sveinsdóttir, frá Norðfirð'i.
hin bezta kona og hafa þau eign-
azt 8 börn, sem flest eru uppkom-
In. Synirnir flestir hafa fetað i
fótspor föður síns og lært húsa-
eða húsgagnasmíði, og dæturnar
giftar, nema sú yngsta, sem er í
heimahúsum.
Atvinnuháttum iðnaðarmanna
hér á landi hefur löngum verið
þannig farið, að þeir þurfa að
flytja sig tií, eftir þvi sem at-
vinnan krefst. — Þau Þorsteinn
og Óla hafa búið, fyrst á Akur-
eyri, siðan á Raufarhöfn og Norð-
firði og nú síðast hér í Reykja-
vík.
Þorsteinn er fagmaður góðúr og
var fyrrum hinn mesti þrekmaður
og frábærlega vel íþróttum búinn
— enda þéttur á velli og raun-
góður vinum sínum og viðskipt-
endum
Þorsteinn hefur orðip fyrir
þungum áföllum i tífinu og er
alvarlegast þeirra slysa. et hann
féll niður af vinnupöllum á stór-
hýsi á Keflavíkurvelli, sem hefur
svipt hann vinnuþreki og heilsu
Framh. á 15. síðu
— ------------------------------------ \
TIMINN, sunnudaginn 4. nóvember 1962
5