Tíminn - 04.11.1962, Qupperneq 6

Tíminn - 04.11.1962, Qupperneq 6
Kennedy og Krústjoff Um langt skeið hefur ekki öðrum tíðindum verið fagnað meira en þeim, að Krustjoff, forsætisráðherra Sovétríkj - anna, hefði boðizt til að flytja burtu frá Kúbu árásarvopn þau, sem Rússar voru búnir að flytja þangað, gegn því, að tryggt væri, að ekki yrði gerð innrás á Kúbu. Það gerði þessi tíðindi enn ánægjulegri, að Krustjoff bauðst til að láta þennan brottflutnings fara fram undir eftirliti Samein- uðu þjóðanna. Það breytir ekki ánægju manna yfir þessu tilboði Krustjoffs, þótt það kunni að hafa verið gert vegna þess, að hann sæi ella fram á, að Bandaríkjamenn teldu sig nauðbeygða til að gera inn- rá!s á Kúbu og Rússar myndu þá ekki getað veitt þá hjálp, sem þeir hefðu lofað, án alls- herjarstyrjaldar. Kappsamur og ógætinn leiðtogi hefði vel getað látið metnaðinn hlaupa með sig í gönur. Það gerði Krustjoff ekki, og það ber að meta að verðleikum. En þótt Krustjoff hafi hér sýnt hyggindi og gætni, minnkar ekki hlutur Kenn- edys við það. Kennedy hefur sýnt mikla forustuhæfileika í þessum átökum. Hann hvorki rasaði um ráð fram né hélt að sér höndum, þegar hann þurfti að mæta þeim mikla vanda fyrir Bandarikin, sem fólst í byggingu rússneskra eldflaugastöðva á • Kúba. Hann gekk djarflega til verks, en lokaði ekki samkomulags- leiðum. Þeir Kennedy og Krustjoff hafa báðir teflt þannig í þessum hættulegu átökum, að trú á frið hefur aukizt meðan þeirra nýtur við. Sérstök ástæða er svo til þess að fagna því, að Samein- uðu þjóðirnar hafa hér fengið það hlutverk að vinna ao sætt um og batnandi sambúð stór- veldanna. Bæði Bandaríkin og Sovétríkin treysta á miUi- göngu og eftirlit þeirra við lausn þessarar deilu. Enn hef ur ekki að vísu tekizt að ná samkomulagi á þeim grund- velli, vegna mótspyrnu'Kúbu- stjómar. Vonir standa eigi að síður til þess, a?s það muni takast, og gæti það orðið upp- haf að miklu víðtækara starfi S.Þ. í þágu friðarins. Árásin á Indland Á sama tíma og heimurinn fagnaði hinum friðvæniegu horfum í Kúbumálinu, bárust fréttir frá Himalajafjöllum, er vörpuðu dimmum skugga á þennan fögnuð. Kínverska stjórnin herti þar hina vopn- uöu sókn gegn Indlandi og verður því ekki lengur á móti mælt, að hér-er um hreina innrás að ræða. Það hefur til skamms tima verið von manna, að Kínverjar og Ind-, verjar myndu jafna landa-j ^ mæraþrætur sínar friðsam- ; lega, en nú hefur kínverska stjórnin alveg kollvarpað þeirri von. Hún ætlar sér ber- sýnilega að leysa þessa deilu með vopnavaldi og lítillækka Indverja svo, að þeir verði ekki lengur taldir forustuþjóð í Asíu. — Þessi innrás í Indlandi vek- ur alveg sérstaka athygli vegna þess, að Indverjar hafa öðrum þjóðum dyggilegar ( fylgt svonefndri hlutleysis-; stefnu og átalið aðrar Asíu-; þjóðir fyrir þátttöku í varnar. samstarfi vestrænna þjóða. j Nú hefur reynsla indverja1 sjálfra sannað, að hlutleysið veitir ekki neina vernd, þegar yfirgangsmenn eru annars vegar. Indverjar verða nú að biðja vestrænar þjóðir um vopn, en það höfðu þeir áður fordæmt. Kínverska hættan Það er haft eftir Napoleon, að Evrópumenn ættu að var- ast það að vekja kinverska risann. Orð hans þykja benda til, að hann áliti hvítum mönnum stafa hætta af Kína, ef það risi upp sem stórveldi i að nýju. Þessi ótti Napoleons er nú orðinn að veruleika. Margt bendir til, að það verði Kínverjar miklu fremur en Rússar, sem verða oddvitar hinnar, kommúnjstisku. heims veldisstefnu í framtíðinni. Þau átök. sem þar geta verið framundan, geta jafnframt orðið átök milli hvítu og gulu kvnþáttanna. Víst er það, að ekki aðeins ,Bandaríkjunum, heldur einn- jig Sovétrikjunum stendur nú stuggur af vígbúnaði Kínverja en margir telja að þeir muni reyna eigin kjarnorkuvopn á næsta ári. Meðan Kína víg- býst á þennan hátt, munu hvorki Bandaríkj amenn né Rússar þora að afvopnast að að ráði, þótt þeir gætu náð samkomulagi um það sín á milli. T ■ N E H R U Kína o? S Þ. Talsvert eru skiptar skoð- anir um, hvernig mæta skuli hinni kinversku hættu. eins og nýlega sást glöggt á þingi S.Þ. Sumir virðast telja það bezt gert með því að einangra Kínverja og halda þeim utan alþjóðlegra samtaka. Aðrir telja rétt að hafa þá með og leita samkomulags við þá, þótt vafasamt sé um árangur. Indverjar eru þeirrar skoðun- ar, og því greiddu þeir at- kvæði með því á dögunum, að Kina fengi sæti sitt hjá SÞ, en það skipar nú útlagastjórn Chiang Kai Sheks. Indverjar sögðust t.d. gjarnan vilja ræða við þá um landamæra- deiluna á alþjóðlegum vett- vangi. Hallvard Lange, utan- ríkisráðherra Noregs, lét líka svo ummælt í Stórþinginu nú í vikunni, að senniiega væri meiri von um að leysa mætti deilur Ipdlands og Kínverja, ef Kípa væri með í S.Þ., en jNoregur er því fylgjandi, að Pekingstjórnin taki sæti Kína í SÞ. Þetta er að sjálfsögðu umdeilanleg staðhæfing, en hitt er víst, að S.Þ. geta ekki að gagni rætt um meirihátt- ar afvopnun án þátttöku Kína. Mörgum mun að sjálfsögðu þykja, að ekki eigi að verð- launa árás Kína á Indland með því að veita því þátttöku í SÞ. En þá væri líka hægt að ákæra Kína fyrir yfirgang þess í áheym alls heimsins, Það gæti haft sitt að segja. Óstarfhæf stjófh ♦ Hvarvetna blasa nú við vandamál, sem hlotizt hafa af „viðreisninni“ og ríkis- stjórnin ræður ekki við. Stjórnin virðist jafnt vilja- laus og getulaus til að fást við lausn þeirra. Læknadeilan á sjúkrahús- um er eitt dæmi um þetta. Með hinum miklu gengisfeil- ingum, hefur ríkisstjórnin aukið stórkostiega mun á kjörum lækna hér og í ná- grannalöndunum, eins og reyndar gildir um allar aðr- ar stéttir. Fleiri og fleiri lækn ar setjast því að erlendis. Læknar hér hafa reynt að fá kjör sín bætt, m.a. með hlið- sjón af þessari öfugþróun, en stjórnin beitti vífilengjum og lagakrókum. Málið hefur því komizt í það öngþveiti, að margir sjúkrahúslæknar hafa sagt upp störfum og tek in hefur verið upp á sjúkra- húsum neyðarþjónusta, sem verður borguð eftir taxta, og mun það fyrirkomulag senni- lega sízt hagstæðara fyrir ríkið en þótt samið hefði ver- i Í5 við læknana. Þannig ríkir | nú í þessum málum glund- : roðaástand, sem er jafnt ó- jhagstætt fyrir alla aðila. Síldveiðideilan, sem er önn j ur í röðinni á þessu ári, er ;annað glöggt dæmi. Stjórnin 'stórhækkaði útflutningsgjöld i in í fyrra með þeim afleið- ! ingum, að útgerðarmenn j töldu sig þurfa að krefjast kauplækkunar hjá sjómönn- | um. Af þessum ástæðum stöðv j aðist síldveiðin í þrjár vikur ií sumar. Stjórnin greip þá ■ til gerðardómslaganna, sem Imjög hafa spillt sambúð sjó- i manna og útvegsmanna. Deilan hófst þvi strax aftur, þegar þau féllu úr gildi, og hefur nú staðið á annan mán- uð. Stjórnin hefur staðið uppi eins og þvara, sem ekkert veit og ekkert getur. Á að framlengja ipplausnina? Þannig má halda áfram að rekja dæmin. Þau eru ekki heldur neitt ný. Svona hefur gengið alla valdatið núv. rik- isstjórnar. Menn minnast þess áreiðanlega enn. hvernig stjórnin með stífni sinni og skilningsleysi hratt af stað hinni miklu verkfallsöldu í fyrravor og stóð svo uppi ráða laus, þegar hún var skollin á. UM MENN OG ÁLEFNE Eftir að sú deila varð leyst, urðu svo viðbrögð stjórnar- innar hin heimskulegustu. Þannig hefur stjómin og stefna hennar skapað hvern vandann öðrum meiri, en bæði hefur skort vilja og getu til að leysa þá. Þess vegna hrúgast upp hin óleystu vandamál, verðbólga og dýr- tíð hafa aldrei aukizt hraðar og glundroði í efnahagsmál- um aldrei verið meiri. Núverandi ríkisstjórn hefur þannig verið og er algerlega óstarfhæf stjórn. Það hlýtur sú stjórn líka jafnan að vera, sem þjónar þröngum sjónar- miðum stórgróðavaldsins. Og nú fara stjómarflokkarnir fram á það, að þetta upplausn arástand verði enn framlengt.v í fjögur ár. Hver er sá, sem eitthvað hugsar málin, er vill veita þeim umboð til þess? Nýjar blekkingar Það ástand, sem nú blasir við í þjóðfélaginu, er sannar- lega býsna ólíkt því„ sem stjómarflokkarnir lofuðu kjós endum fyrir seinustu kosn- ingar. Þá var því lofað, að verðbólgan skyldi stöðvuð, dýr tíðin skyldi stöðvuð, framfar- irnar skyldu auknar og allt skyldi þetta gert án nýrra skattaálaga. Nú blasa efndirn ar við í verki eða hitt þá held- ur: Verðbólgan aldrei meiri, glundroðinn í launamálum aldrei meiri og skatta- og tollaálögurnar aldrei gifur- legri. Stjómarflokkarnir ætia líka bersýnilega að reyna að kom- ast hiá því, að láta rifja það upp, hvernig þeir hafa efnt kosningaloforð sin. í stað þess á nú að hampa nýjum loforðum svo ákaflega, að hin gömlu gleymist, og hvernig þau hafa verið efnd. Nú er ver ið að boða ný vegalög og ný hafnarlög að ógleymdri sjálfri Bláu Skjónu, en svo kalla menn hina margboðuðu fram kvæmdaáætlun. en nafnið draga menn af hinni alræmdu Bláu bók. sem Sjálfstæðis- flokkurinn birtir Reykvíking- um fyrir hverjar bæjarstjórn- arkosningar. Ef stjórnarflokk amir ynnu næstu kosningar vegna þessara fögru fyrir- heita. myndu efndir beirra fara á sama veg og loforð- anna fyrir seinustu kosning- ar. Engeyjarhafnirnar. sem verða í Bláu Skiónu, munu þá ekki sjá dagsins ljós fremur en sú. sem Reykvikingum var sýnd í bláu bókinni fyrir bæj- arstjómarkosningarnar 1959. Eða fremur en stöðvun verð- bólgunnar og dýrtíðarinnar, sem mönnum var lofuð fyrir alþingiskosningamar 1959? m> EBF Það verður rætt um afstöð- una til EBE í mörgum þjóð- þingum í þessari viku. í enska þinginu mun fara fram tveggja daga umræða í síðari- hluta vikunnar. í norska þing inu er einnig búizt við mikl- um umræðum, er stjórnin gef Framhald á 13. síðu. 6 T f MIN N, sunnudaginn 4. nóvember 1963

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.