Tíminn - 04.11.1962, Síða 7

Tíminn - 04.11.1962, Síða 7
I Utgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Framkvæmdastjóri: Tómas Arnason Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði G. Þorsteinsson Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson Auglýs- ingastjóri: Sigurjón Davíðsson Ritstjórnarskrifstofur i Eddu húsinu Afgreiðsla, auglýsingar og aðrar skrifstofur í Banka stræti 7. Símar: 18300—18305 — Auglýsingasími: 19523 Af- greiðslusími 12323. — Askriftargjald kr 65.00 á mánuði innan- lands í lausasölu kr 4.00 eint. — Prentsmiðjan Edda h.f — Hvað nú, ungi maður? Kunnur bóndi af aldamótakynslóðinni lét svo um rnælt í viðtali hér í blaðinu fyrir nokkrum dögum, að hann væri þess fullviss, að nú væri erfiðara fyrir' r.nga bændur, syni og dætur aldamótakynslóðarinnar, að taka við búi eða reisa bú og afla sér þess, sem til þarf, heldur en aldamótamennina, þegar þeir voru ungir, þótt flest væri þá ógert og flestir með tvær hendur tómar. Svo illar væru ráðstafanir „viðreisnar“-stjórnarinnar. En þetta á auðvitað ekki við um unga bændur eina, heldur allt ungt fólk í landinu, það fólk, sem er að byggja sér heimili að kröfum tímans, eða koma sér upp atvinnurekstri. Þegar þetta er athugað kemur gleggst í ljós, hvers konar ,,kerfi“ það er, sem komið hefur ver- ið á, og hvaða afleiðingar það hefur fyrir hraðfjölgandi þjóð í lítt numdu landi með fábreytta atvinnuvegi — þjóð, sem hafði lagt sig alla fram til að ná miklum áfanga á skömmum tíma, en var skammt á veg komin. Efnahagskerfi þessarar ríkisstjórnar og það „efna- hagsjafnvægi11, sem hún ætlaði að koma á, og hefur tekizt að koma á, er fyrst og fremst grundvallað á því að hefta sókn unga fólksins í landinu til nýrra átaka — leggja steina í götu nýbyggingar og framtaks hinna ungu, jafnt einkaframtaks sém félagsframtaks, gera unga fólk- ■inu erfiðara fyrir að taka við að byggja og endurnýja. Þetta sér hver ungur maður og ung kona, sem eitt- hvað ætla sér í þessum efhum, með því að iíta í eigin barm og bera saman aðstöðu sína við að koma upp hús- næði eða framleiðslutækjum við aðstöðu hinna, sem búnir voru að koma sér fyrir, áður en stefna núverandi stjórnar náði tökum á þjóðlífinu. Þessi munur er svo mikill, að engum dylst, að hið „nýja kerfi“ fær ekki staðizt, nema þjóðin bíði óbætan- legt tjón af því. Unga fólkið og hin vaxandi þjóð getur ekki lifað á því, sem búið var að gera. Það voru ekki all- ir búnir að koma undir sig fótum 1960. og nýtt ungt fólk bætist sífellt við. A8 binda hendur hinnar ungu kyn- slóðar, hins unga athafna- og dugnaðarfólks í uppbygg- ingunni eru mestu afglöp, sem ríkisstjórn aetur framið, og ekkert hefnir sín jafngrimmilega En öil hjálp og hvatning til þessa fólks af opinberri hálfu launast þúsund- falt í framtíðinni. Unga fólkinu í þessu landi ríður nú mest á því, að þessu hindrunarkerfi íhaldsstjórnarinnar, sem nú situr að völdum, sé rutt úr vegi, og að aftur verði tekin upp öflug uppbyggingar- og framleiðslustefna af hálfu úíkis- valdsins. í stað þess að binda hendur unga fólksins, verði því rétt hjálparhönd. í stað þess að leggja steina í götu þeirra, sem við taka, verði þeini gert það auðveldara en áður. Dýrtíðin og kjaraskerðingin, samdrátturinn og lána- okrið, hafa auðvitað unnið illbætanlegt ,tjón, og slík kyrkitök hljóta að hefna sín langt fram í tímann. En eina ráðið er að mæta hækkunaröldunni og dýrtíðarflóðinu með aukinni framleiðslu og jákvæðum aðgerðum til upp- byggingar. Þýðingarmest er að leysa einstaklings- og fé- lagsframtak hinna mörgu almennu borgara úr læðingi og skera á höftin, sem binda hendur unga fólksins, sem á dug og myndarskap til þess að byggja upp ný heimili og atvinnu, sem skilar þjóðinni nýtrj framleiðslu. Sú stjórnarstefna sem fjötrar unaa fólkið í landinu svo, að iafnvel aldamótamennirnir aeta ekki orða bund- izt oa telia hlut bess oq skilvrði til taka vdð oa halcÞ ^erðinni áfram, verri en á sínum æskuárum er að lík indum versta tilræði við framfarasókn bjóðarinnar síðan hún hlaut bolmagr- frelsis og sjálfstæðis. Wa'ter Lippmann ritar um alþ|óðamál: i z Kennedy hefur ekki aöeins sýnt festu, heldur mikla vitsmuni UGG liðinna daga lauk með því, að forsetinn beitti hervaldi af áræðni og með árangri, til þess að ná ákveðnu en takmörkuðu marki. Kúba verður svipt ár- ásarvopnum og gerð óvirk sem herstöð á vesturhveli. Engin ’ friðkaup hafa farið fram og hvorki verið hörfað né gefizt upp. Þó hefur forsetinn náð settu marki án þess að beita fullkomnu hafnbanni, varpa nokkurri sprengju eða gera inn rás. Þetta var mögulegt vegna þess, að hann leitaði eftir sam komulagi, sem ekki krafði um og ekki þýðir skilyrðislausa upp gjöf. Aðalatriði samkomulags- ins er fjarlæging meiri háttar vopna á Kúbu undir eftirliti Sameinuðu Þjóðanna, gegn lof- orði forsetans um, að ekki verði ráðizt inn í Kúbu, og hún ekki sett í hafnbann aftur. ÞESSI árangur hefði ekki náðst án þess að vera reiðubúinn að beita hervaldi Bandaríkjanna, en þau mega heita allsráðandi í því efni á hafinu umhverfis Kúbu. En þessi árangur hefði ekki náðst á jafn auðveldan hátt né með friðsamlegu móti, ef forsetinn hefði ekki haft af- vopnun herstöðvanna að mark- miði, heldur skilyrðislausa upp gjöf, þ.e. hvarf kommúnista- stjórnar Castros frá völdum. Vissulega eru Bandaríkin fær um að ráðast inn í Kúbu og ráða niðurlögum stjórnar Castr os. En þau gætu það ekki án verulegs manntjóns. (Nýjasta áætlunin er um 40 þús. manns). Og þau .gætu það ekki án um fangsmikilla árekstra við Sovét ríkin og bandamenn okkar og vini hvarvetna um heim. Forsetinn vissi, hvers hann átti að krefjast og hvar hann átti að láta staðar numið, eins og góðum herforingja ber. ÉG MUNDI hvernig stríðsæsing, urinn knúði Wilson til þeirrar lokastefnu í fyrri heimsstyrjöld inni, sem leiddi til fullrar upp lausnar í Evrópu. Ég mundi það frá síðari heimsstyrjöld- inni, þegar Roosevelt hneigðist lil skilyrðislausrar uppgjafar. sem varð ekki aðeins til þess að lengja stríðið, heldur batt ó- leysanlegan hnút með því að hleypa Rússum vestur í Ev- rópu. Ég minnist þess frá Kóreustríðinu, hvernig Truman lét undan öfgamönnunum, — þegar MacArthur var búinn að vinna stríðið með sinni frábæru baráttu eftir Inchon-landgöng- una, — og lét halda áfram til árinnar Yalu, en það leiddi til hernaðarlegrar og stjórnmála- legrar ógæfu. Ég minntist alls þessa, þegar ég hlustaði á for- setann mánudaginn 22 október og óttaðist, að við værum enn einu sinni búnuir að taka upp merki hinnar skilyrðislausu upp gjafar og myndum enn einu sinni sóa auðunnum sigri með því að hefja krossferð til að losna við Castro. ÞAÐ GLEÐUR mig, að þessi ótti minn skyldi reynast ástæðu laus. Eg hef komizt að því, síð an að forsetinn gerði það, sem Wilson. Roosevelt og Truman gerðu ekki Hann hélt opinn: stjórnmálaleiðinni til andstæ* ingsins og hann snerist ekkí ' sveif með þeim, sem vildu — í þetta sinn, eins og raunar í KENNEDY á skrifstofu sinni. öllum öðrum hernaðarátökum á þessari öld — ekki samkomu- lag, heldur fyrst og fremst krossferð. Heimurinn mun hrífast af, hvað Kennedy var ákveðinn. Hann mun einnig njóta aðdá- unar fyrir vitsmuni. HVORUGUR aðilinn hefur tap- að, heldur hafa báðir hlotið á- bata, eins og gerist í öllum góð um sættum. Kennedy hefur frelsað Bandaríkin og vestur- hvel jarðar frá alvarlegri hættu, — hættunni á því, að mitt á meðal okkar og þar, sem hinn öfgafulli og hálfsturlaði Castro næði til, yrði komið á fót kjarnorkustöðvum, með nægu afli til að veita alvarlega áverka án allra viðvarana. — Krustjoff hefur aftur á móti losnað við að vera flæktur í hættuleg viðfangsefni á svæði, þar sem meginhagsmunir Sovét ríkjanna eru ekki í húfi. Að mínu viti er ,þa?s mesti leyndardómurinn við allt þetta mál, hvernig Krustjoff flæktist í hernaðartengsl við Castro og Kúbu. Hver sem skýringin kann að vera á því þá hefur hann nú 'osnað við þessa flækj’i með bv< ’ð stíga til baka út úr henni 'UÐ ERUM auðvitað ekki laus við Kúbu-vandamálið. En Cast- ro og Kúbumenn hans hafa nú komizt að því, að þeir hafa ekki herveldi Sovétríkjanna að bak- hjarlj, og þeir vita einnig, að þeim verður veitt náin athygli og engin ævintýramennska leyfð í Suður-Ameríku, þó að Bandaríkin muni ekki gera inn rás í Kúbu eða setja hana í hafnbann. Castro verður að at- huga það mál, hvort hann geti til lengdar komizt af með efnahagsaðstoð kommúnistaríkj anna einna. Geti hann það ekki, þá verður hann að athuga, með hverjum hætti hann geti aftur komizt í þjóðasamfélag Ame- ríkuríkjanna. SAMKOMULAG Kennedys og Krustjoffs um Kúbu vísar veg- inn til samkomulagsumleitana um önnur efni Þar má nefna einhver skref í átt til afvopn- unar, ef til vill samkomulag um einhvern minnkaðan liðsam- drátt milli Atlantshafsbanda- lagsins og Varsjárbandalagsins. Á þessari braut væri það ef til vill sigurstrangleg leið, að gera fyrst samkomulag um þau atriði. sem ekki skinta megin máli Ef til vill værí auðveld ast að ná oinUvn»--i,i ?aTv>Vnrnn lagj um bær hindinear sem ern ertandi án þess að hafa úrslitaáhrif á mátt arjafnvægið. > í MIN N, sunnudaginn 4. nóvember 1962

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.