Tíminn - 04.11.1962, Page 16
Sunnudagur 4. nóvember 1962
248. tbl. 46. árg.
Verkfræðingafélagið um gjaldskrá sína:
ERLENDIR SAMT
ÞREFALT DÝRARI
Tímanum barst í gær þessi
greinargerð frá Verkfræðinga
félagi Islands út af ummælum
Ingólfs Jónssonar ráðherra:
„Af tilefni þeirra ummæla, sem
höfð hafa verið eftir Ingólfi Jóns-
syni, ráðherra, bæði í dagblöðum
og útvarpi, þegar hann á Alþingi
gerði grein fyrir bráðabirgðalögum
ríkisstjórnarinnar um hámarksþókn
un fyrir verkfræðistörf, viljum vór
faka fram eftirfaradi:
1. Gjaldskráin frá 1955, sem lögfest
var með bráðbirgðalögum 2. maí
s. 1., var orðin úrelt, en nýja
gjaldskráin, sem tók gildi 1.
maí, hafði verið í undirbúningi
í hálft annað ár og var sniðin
eftir nýjustu gjaldskrám verk-
fræðinga á Norðurlöndum og
víðar.
Frainh. á 15. síðu
vtítíí.nani'i
niinilDm'llU nnuim FÖSTUDAGINN 26. okt. hófst umferð um hina nýju Blöndubrú. Árni Pálsson yfirverkfræðingur Vegamála-
BLONDUdRUIN ÖPNUSÍ skrifstofunnar veftti blaðinu eftirfarandi upplýsingar um hina nýju brú: Hún er 69 metra bitabrú i þremur
höfum, miðhafið er 37 metrar og hliðarhöfin eru 16 metrar hvort. Tvískipt akbraut verður á brúnni, og verður akbrautin alls 7 metrar á breidd
Þar fyrir utan verður svo meters breið gangstétt hvoru megin. Brúin er byggð í tveim áföngum og er það önnur akbraút brúarinnar, sem tekin
hefur verið í notkun, hin verður væntanlega tilbúin næsta sumar. Áður en hún verður gerð, verður að rífa gömlu brúna og þá verður að loka
nýju brúnni stuttan tíma, einn eða tvo daga, og verður umferðinni á meðan beint um efri brúna á Blöndu. Ekki lokast þó umferð gangandi
manna um nýju brúna.
15 JARÐIR I EYDI A
HÉRADI Á 4 ÁRUM
ES—Egilsstöðum, 3. nóv.
Hér hafa allmargar jarðir
fariS í eyði á síðustu árum og
Þing
SUF
hafið
Níunda þing SUF hófst
kl. 8 á föstudagskvöldið.
Þingið er mjög fjölmennt
og sitja það fulltrúar víðs
vegar að af landinu. Þrjú
ný félög gengu i samband-
ÍS, «n það eru félögin á
j&fcranesi, Fljótsdalshéraði
“Keflavík.
Örlygur Hálfdánarson
setti þingið og minntist um
leið Jóhannesar Jörundsson-
ar, sem lézt á síðastliðnu
sumri, en Jóhannes var er-
indreki flokksins um langt
skeið. Þá flutt; Eysteinn
Jónsson ræðú, þar sem
hann fjallaði um baráttu-
mál flokksins, þá stefnu-
breytingu, sem orðið hefur
í tíð núverandi stjórnar og
nauðsyn þess að hefja }á-
kvætt uppbyggingarstarf á
Framhald á 15 síðu
allt bendir til þess, að sama
þróun muni halda áfram.
Margar þessar jarðir voru áð-
ur í tölu stórbýla, eins og til
dæmis Ás og Hreiðarsstaðir í
Fellum, Arnórsstaðir og
Grund á Jökuldal og Hjalta-
staðir í Hjaltastaðahreppi.
Alls hafa 15 jarðir farið í eyði
hér á Héraði síðan árið 1958. í
Fellnahreppi hafa fjórar jarðir
farið í eyði. Á Ási, sem var tví-
býli, hafa báðar jarðirnar farið í
eyði, einnig Hreiðarsstaðir og
Laugaból. I Tunguhreppi hafa
þrjár jarðir farið í eyði, Hræreks-
lækur, Geirastaðir (þar var tví-
býli og hefur annað farið í eyði) i
og Galtastaðir. Á Jökuldal hafa i
Arnórsstaðír og Grund farið í eyði,
í Vallahreppi Grund, í Eiðahreppi
Fossgerði og Hamragerði og í
Hjaltastaðahreppi Hjaltastaður I,
Svínafeil og Eyland.
1 Seyðisfirði hafa þrjár jarðir
farið í eyði á sama tíma, Brimnes,
Skálanes og Þórarinsstaðir. allt
stórbýli, og i Reyóarfirði hafa einn
ig þrjú býli farið í eyði, Þverá í
Vaðlavík, Litla Breiðuvík og Karls-
skáli.
Næstu árin á undan höfðu fimm
eða sex jarðir farið í eyði á Hér-
aði, og er þróuiiin því harla
ískyggileg. Eftir hljóðinu í mönn-
um að dæma virðist þessi þróun
ætla að halda áfram næstu árin,
ef ekki breytist til batnaðar í
málefnum landbúnaðarins.
HORDUR HELGASON
GA TNA GERDARGJALDIÐ
INNHEIM T Á 5 ÁRUM
KLÚBBFUNDUP
verður haldinn. mánudaginn 5.
nóv. n.k. kl. 8,30 í Féiagsheimili!
Framsóknanmanna, Tjar.nargötu
26. Prestur og rithöfundur flytja j
stutt framsöguerindi um merkt ^
þjóðmál. Framsóknarmenn, fjöl
mennið! ;
Hörður Helgason flutti svo-
hljóðandi tillögu á síðasta
fundi borgarstjórnar, 1. nóv-
ember:
„Til þess aS létfa undir meS
nýjum iSnfyrirtækjum í borg-
inni og jafnframt aS gera
þeim eldri auSveldara aS færa
út kvíarnar, ákveSur borgar-
stjórn, aS gatnagerSargjald af
iSnaSarlóSum verSi innheimt
á fimm árum meS jöfnum af-
borgunum."
Borgarstjóri kom með tillögu
um að vísa tillögu Harðar til borg
arráðs, þv; til athugunar í sam-
bandi við meðferð fjárhagsáætl-
unar og ákvörðunar gatnagerðar-
gjalds Þessi tillaga borgarstjóra
var samþykkt.
í framsöguræðu bent; Hörður
á, að iðnaðurinn er nú orðinn
stærsti atvinnuvegur landsins,
þrátt fyrir skamma þróun, og hér
í Reykjavík munu yfir 40% íbú-
anna hafa lífsframfæri sitt af
honum. íslenzkir iðnaðarmenn
hafa sýnt stórhug sinn í verki á
undanförnum árum og sannað
hæfni sína til þess að leysa mörg
verkefni, sem áður fengust ekki
gerð hérlendis. Þessi þróun mun
halda áfram ef vel er að iðnaðin-
um búið, og er vonandi að við end-
urskoðun tollskrárinnar, sem nú
stendur yfir, verði gengið svo frá
málunum, að ekki verði unnt að
flytja inn fullunna vöru án tolla
og innflutningssöluskatts, svo að
innlendum iðnaði verði ekki mis-
munað á þann hátt í samkeppni
við innflutta vöru. Þá verði borg-
aryfirvöldin að tryggja það, að
jafnan séu til lóðir undir iðnfyrir-
tæki, en á þeim hefur verið hörg-
ull síðustu ár. Nú virðist eitthvað
ætla að rætast úr þessu, þar sem
nú virðist loks hilla undir, að lóð-
um við Grensásveg verði úthlut-
að á þessu ári. Þeirri ákvörðun.
að láta menn greiða gatnagerðar-
gjöld af iðnaðarlóðum. var tekið
af skilningi, en henni fylgdi þó
einn óviðsættanlegur annmarki,
sá að menn skyldu greiða gjöldin
áður en afhending lóðanna færi
Framh á 15. siðu
Kerlingarhláka
MB — Reykjavík, 3. nóv.
Um hádegisbil í dag var ágætt
veður um sunnan og vestanvert
landið og einnig í innsveitum vest-
an til á Norðurlandi. Víðast var
vægt frost, mest 6 stig í Síðu-
múla. Á Norður- og Austurlandi
var annars víða kalsaveður og snjó
mugga á Norðausturlandi og an-
nesjum Norðanlands. Á EgUsstöð
um var slydda og hiti við frost-
niark. Á Dalatanga og víðar við
sjó á Austurlandi var 3 stiga hiti.
Eftir þvj sem Jónas Jakobsson
veðurfræðingur sagði blaðinu,
voru horfur á áframhaldandi aust
anátt og frostleysu eða vægu
frostj um allt land. Búast má við
einhverju frosti um Norðaustur-
land cins og undanfarið.
^ I