Tíminn - 25.11.1962, Síða 13

Tíminn - 25.11.1962, Síða 13
JÓLAÆVINTÝRIÐ UM ÞYRNIRÓS WALT DISNEY 'ÍHEKE IS AM Alf? OF EXCITEMEMT1N1HE FARAWAY LANP WHERE ^LEEPlMð SÉAUTY LIYES HAPpiLY EVER AFTER HER /WARRIAGE TO PKINCE PHILLIP.. í ævintýralandi langt í burtu búa Þyrnirós og prinsinn. Þar eru allir farn ir að hlakka til jólanna. — Hugsaðu þér! Nú eru bara fjórar vikur þangað til! — Þá verður gleðskapur og hljóð- færasláttur í höllinni. Inni í höllinni. — Þetta verða fjórðu jólin,' sem við eigum saman, Þyrnirós. — Mér finnst alltaf vera jól, síðan ég hitti þig! Fjörutíu dagar tFramhaxd ai 9 siðu ) hafnarmynninu er sérkennileg eyja, sem er þverhníptur klett ur. Þegar við sigldum inn, kom fjöldi eintrjáninga á móti okk- ur. Aðallega voru þar strákar, sem voru að sporta sig. Og ekki höfðum við fyrr lagzt að, en sölumenn hópuðust um okkur og fóru að bjóða varning sinn, trommur, negrahöfuð skorin í tré, og alls konar drasl. Þeir voru æði ágengir og spenntu verðið hátt í byrjun, en svo var hægt að prútta endalaust við þá. Þarna, eins og í öllum hafnarborgum þar syðra, lét kvenfólkið ekki á sér standa, Gísli þégar gesti bar að landi. Ekki voru þær kröfuharðar, þessar ungu Afríkudætur, bláfátækar og buðu sig fyrir sama og ekk- ert. Fyrir kom, að þær ráku augu í skítuga skyrturæfla og vildu selja sig fyrir það. Þarna fóru nokkrir í land og hittu náunga, sem bauð þeim poka með maurihuana-tóbaki. Þeir keyptu þetta, heil feikn fyrir 1500 Afríkufranka, sem er um 240 krónur. En þeim þýddi ekki að koma með þetta um borð og þorðu það ekki. Við höfðum ekki langa vidvöl í Dak ar, héldum síðan til Casa- blanca, til að sækja búslóðar- draslið. Hvergi hef ég séð eins mörg stórskip saman komin og þar. Það var tilkomumikii sjðn. Höfnin þar var grútskítug, — drullubrák á stærðarsvæði. Og því var ég hissa á, að fjölda- margir sjómenn, einkum hol- lenzkir, voru að baða sig í þessum grútdrulluga sjó. Það var svo sem hreinsunarbaðið! Ekki áræddum við að fara í land í Casablanca færri en 6 eða 7 í einu. Það mátti ganga að því vísu, að Arabar sætu um gesti, sem væru einir á ferð og nörruðu þá afsíðis. Og það var ekki alltaf, að hinir ókunnugu kæmu til baka úr slíkri landgöngu. Þeir arabisku þykja svona heldur misindis- menn margir hverjir. Annars kom einn niður að skipi til okkar, og hann gekk með með- mælabréí upp á vasann. Það var útgefið af einhverjum sænskum skipstjóra, og í því stóð, að þessi Arabi væri heiðar legur maður! — Þeir höfðu nú ekki margir bevís upp á það. — Fóruð þið víðar? — Frá Casablanca var hald- ið til Marseille og komið þang að um sóiarupprás eftir 40 daga og 40 nætur í þessari Afr- íkusiglingu. Ég féll ekki fyrir þeirri freistingu að leggja upp í annan túr með Flamingo, og um leið og ég gengu 6 aðrir af skipinu. Ég hélt síðan til Genf- ar í Svis.s, þá til Strassburg og var þar nokkra daga með göml um skólabróður, þá til Luxem burg og flaug heim þaðan með Loftleiðavél. Þetta var ágæt- asta sumarfrí. Og ekki laust við, að mann sé þegar farið að langa í annað eins. Vesturbæingar athugiö hefi opnað skóvinnustofa Nesvegi 39 Fljót og góð afgreiðsla Ferdlnandsson skósmiður Lækjargötu 6 — Sími 20937 Álfheimum 6 — Sími 37541 Nesvegi 39 — Sími 20650 TREUEBORG GÓLFFLÍSAR ''“V1 endingargoðar falleg mynztur stuttur afgreiðslufrestur GUNNAR ÁSGEIRSSON í . Suðurla-ndsbr'aut 16 Sfmi 35200 I í M I N N, sunnudagurinn 25. nóv. 1962. 13

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.