Tíminn - 04.12.1962, Qupperneq 15
Frá Alþingi
ákvæði um þjóðvegi. Þetta frum-
varp fjallar aðeins um afmarkað
fjárhagsatriði og snertir ekki
ákvæði vegalaga. Af röksemdum
stjórnarliða mætti hins vegar
ætla ag stefnt væri að stórfelldri
skipulagsbreytingu á vegalögum
og væri því gott að fá eitthvað
um slík áform að vita í sambandi
við þetta mál.
Magnús Jónsson sagði það í
hæsta máta óeðlilegt og óviðeig-
andi, að einstak
ir nefndarmenn
í stjórnskipuð-
um nefndum
færu að skýra
frá störfum
nefnda, sem
undirbúa mál
fyxir ríkisstjcrn
ina.
J6n Þorsteinsson sagði, að flutn
ingsimenn frumvarpsins gerðu of
mikið úr því, að Vestfirðir og
Austfirðir hefðu orðið út undan
um fjárframlög til vegamála.
Sagði Jón engan veginn fullnægj-
andi að Ieggja fram skýrslu
vegamálastjóra um ástand veg-
anna. Það er fólksfjöldinn, sem á
að xáða, sagði Jón, þegar fé til
vegamála er úthlutað og það ber
að leggja áherzlu á þær fram-
kvæmdir fyrst og fremst, sem
fcoma fLestum að notum. Þegar
það sjónarmið, sjónarmið fóiks-
fjöldans er haft í huga, er ekki
eins mikið leggjandi upp úr lý?-
ingum flutningsmanna á vand-
ræðaástandinu í umræddum lands
hlutum, því að þeir væru fámenn
ir. Ef þessir landshlutar hafa
dregizt aftur úr, er engum um að
kenna nema þingmönnum þeirra
á undanförnum áratugum.
Hermann Jónasson sagði, að því
hefði ekki verið mótmælt í um-
ræðum um mál
ið, að jöfnun
vegafjár milli
kjördæma hefði
verið sú megin-
regla, ' ef gilt
hefði á Alþingi,
hvaða flokkar,
sem með stjórn
hefðu farið.
Við, sem höf-
um átt sæti á Alþingi lengi, vit-
um ernnig, að það hefði verið erf
itt að breyta þessari reglu. Það er
ekki hægt að kenna einstökum
þingmönnum um það, að Austfirð
ir og Vestfirðir hafa dregizt aftur
úr í samgöngumálum, heldur ræð
ur þar landslag og vegalengdir.
Mér hefur t. d. mjög oft verið
legið á hálsi fyrir það af andstæð
ingum, að ég notfærði mér að-
stöðu mína og veitti of miklu
fjármagni til míns gamla kjördæm
is og kjörfylgi mitt í kjördæminu
stafaði af þessu. Þá held ég að Sig-
urði Bjamasyni myndi líka illa
ásakanit flokksbræðra hans um
það, að hann hafi verið deigur í
baráttunni fyrir meira vegafé til
Norður-ísafjarðarsýslu. — Þá
sagði Hermann Jónasson, að lán-
taka væri eina leiðin til að rétta
hlut þessara landshluta í vegakerf
inu og þá leið bæri að fara til að
leiðrétta það misrétti, sem skap-
azt hefur. — En stjórnarandstæð-
ingar legðust gegn þessu frum-
varpi og sannleikurinn um hina
raunverulegu andstöðu, þótt ann-
að væri yfirleitt á orði, hefði kom
ið fram hjá Jóni Þorsteinssyni í
þessum umræðum, er hann sagði,
að fólksfjöldinn ætti að ráða um
skiptingu vegafjárins. Kjami máls
ins væri, hvort menn hefðu trú
á því, að byggð ætti að haldast á
Vestfjörðum og því bæri að leggja
þar vegi. Flutningsmenn þessa
frumvarps hefðu trú á að þjóðar-
heill væri að því ag byggð héldist
á Vestfjörðum og Austurlandi —
hinir, sem þá trú hafa ekki, vilja
ekki leggja fjármagn í vegi í fá-
mennum byggðarlögum. Þar skil-
ur á milli.
Páll Þorsteinsson sagði það mis
skilning hjá Magnúsi Jónssyni, að
hann hefði sagt, að kjördæma-
breytingin hafi ráðið úrslitum um
það, að þetta frumvarp er fram
borið. Það væri mi'Sskilningur al-
ger. Sagðist Páll hins vegar hafa
viljað leggja áherzlu á, að engum
einstökum þingmönnum væri um
að kenna þróun þessara mála. Þar
hefði ráðið venja eða hefð í þing
störfum og ennfremur landslag
og vegalengdir á Vestfjörðum og
á Austurlandi.
Bændaför
Framhald af 6. síðu.
undan einhver viðstaða í Eyjafirði
á vegum Búnaðarsambandsins þar.
Þeir félagar okkar, sem áður voru
með Austfjarðabílnum, tóku sér nú
far til Eyjafjarðar með tveimur
bílum úr Mývatnssveit, en þar
bættust þeir svo í skagfirzku bíl-
ana.
Til Eyjafjarðar
Framundan var Laxárdalurinn,
með fegurstu á á íslandi, síðan
Laxárdalsheiði og Másvatn, þá
Reykjadalurinn og er við komum
að Breiðamýri var hringnum lok-
að og við komin á sömu slóðir og
við vorum stödd á fyrir viku.
Um klukkan tíu vorum við á
mörkum Suður-Þingeyjar- og Eyja
fjarðarsýslna, milli Veigastaða og
Varðgjár. Þar höfðu Eyfirðingar
gert okkur fyrirsát. Og úr því að
þeim hafði nú á annað borð tekizt
að góma okkur þarna vestan Vaðla
heiðar, fannst þeim vissast að
sleppa ekki hendi af þessum ná-
grönnum sínum fyrr en frammi á
Laugarborg, en þar bauð Búnaðar
samband Eyfirðinga upp á kvöld-
kaffi. Var það 11. stórveizlan á
8 dögum, fyrir utan öll hóf í heima
'húsum, og má af því marka, að
ekki er nema stálhraustu fólki
leggjandi í svona ferðalög.
Eyfirðingar voru fjölmennir í
Laugarborg og var allur hinn
mikli samkomusalur þéttsetinn á-
Móðir mín og tengdamóðir
PÁLÍNA BJÖRGÓLFSDÓTTIR
ÁsbreiSartröS 9, HafnarfirSi.
lést í Landsspítalanum 2. desember.
Ester Kláusdóttir
Árni Gíslason
samt leiksviði. Ármann Dalmanns
son bauð Skagfirðinga velkomna.
Því næst tók til máls Ketill á
Finnastöðum og lýsti Hrafnagils-
hreppi og búnaðarháttum þar. Þá
töluðu þeir Jón á Hofi og Gísli
í Eyhildarholti og að lokum Bryn
jólfur Sveinsson, menntaskóla-
Tóku menn lífinu með ró í Laugar
borg, nótt dottin á 'hvort sem var
og ekki ástæða til að láta sér vaxa
í augum þann smáspöl, sem eftir
var til Skagafjarðar.
Leiðarlok
Klukkan eitt var farið frá Laug
arborg. Lýsti nú fararstjóri yfir
íþví, skýirt og skilmerkilega, að
hann léti þar með af embætti og
þakkaði þegnum sínum góða fylgd
og framgöngu. Hann myndi að vísu
halda áfram með hópnum til Skaga
fjarðar en aðeins sem Ragnar Ás-
geirsson en ekki Ragnar Ásgeirs-
son fararstjóri. Hafi Ragnar alúð-
arþökk fyrir ágæta fararstjórn og
samfylgd alla. Veit ég ekki betur
en allir hafi náð heilir heim um
nóttina. Hinni 8 daga bændaför
Skagfirðinga var lokið.
Þetta er nú orðin löng saga og
raunar miklu lengri en ég gerði
ráð fyrir í upphafi. Það var aldrei
hugmynd mín að birta neitt frá
þessu ferðalagi. Ætlaði ég að iáta
nægja að festa frásögn af því á
dagbókarblöð mín, sjálfum mér til
ánægju og upprifjunar. En fyrir
þrábeiðni annarra féllst ég. á að
láta þetta á „þrykk út ganga“. —
Þakka ég svo þeim, sem nennt
ihafa að lesa, því ég játa, að til
þess þarf mikið úthald. Og ég veit,
að ég mæli þar fyrir munn allra
minna ferðafélaga þegar ég nú að
lokum færi sérstakar þakkir öll-
um þeim, sem við Skagfirðingarn
ir hittum á ferðalaginu. Þeir áttu
sannarlega sinn ómælda þátt í því
pð.g££a, það,að einum samfelldum
^^iP^ejjngnlegum sólskinsdegi.
i as >4 Iií ii. •. —mhg.
Byggö dregst saman
Framhald af 1. síðu.
ár hafa verið óvenju mikil
brögð að því. Þá er þá sögu að
segja víða annars Staðar af
landinu, ag byggðin dregst ó-
hugnanlega saman nú upp á
síðkastið, þótt mest sé um að'
jarðir fari í eyði á Vestfjörð-
um, og heil byggð sé nú orðin
mannlaus með öllu.
Umferðarkönnun
Framhald af 16. síðu
inum afhendir hann miðann eftir-
litsmanni, sem er við útgöngudyrn
ar.
Ef farþeginn er að fara ferð,
sem hann fer daglega, þ. e. a. s.
sömu leið og á sama tíma, þá á
hann í það skiptig að rífa eitt
horn af miðanum. Þetta er gert,
svo að sjá megi hve margt fólk
notar strætisvagnana að staðaldri
t. d. til þess að fara á sama tíma
til eða frá vinnu eða skóla. Hins
vegar á ekki að rífa hornið af mið-
anum, ef farþeginn er að fara
íerð, sem ekki er farin daglega
á sama tíma, enda þótt hann noti
annars strætisvggnana daglega".
MóSir okkar, tengdamóSir og amma,
GUÐLAUG SIGURÐARDÓTTIR
frá Snælandi, Selfossi,
verSur jarSsungln frá Fossvogsklrkju, föstudaginn 7. desembcr kl.
1,30 síðdegis. BílferS verSur frá Selfossi kl. II f.h. á vegum
Ásgcirs Þórarinssonar.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auSsýnda samúS og vinarhug vlS andlát og
jarSarför
BJÖRNS HALLDÓRSSONAR
Rangá
ASstandendur.
Saga leigS
Framhald af 1. siðu.
svaraði til þess að hver rúmmetri
kostaði 2120 krónur miðag við
fyrri áætlanir og 42 þús. rúmm.
kostuðu samkv. því rúmar 89 millj.
króna. Byggingarköstnaður hefði
þó í raun hækkað enn meira en
svaraði hækkun vísitölu bygging-
arköstnaðar, því að eftirvinna
hefði stóraukizt hin síðari ár, en
ekki væri tekið tillit til hennar
vig útreikninga á vísitölu bygging
arkostnaðar.
Enginn skyldi furða sig á því,
þótt áætlanir I krónutölu stæðust
! ekki þegar byggingarframkvæmd-
ir stæðu í mörg ár og á skiptust
í sífellu gengislækkanir og kaup
hækkanir. Þegar væri búið að
verja um 76 milljónum króna til
byggingarinnar. 15 milljónum frá
stéttarsamtökum bænda, 10 millj.
úr Búnaðarmálasjóði, rúmum
tveimur milljónum af leigu og
vaxtatekjum, 35 milljónupi króna
erlendu láni og 13 milljónum í
lausaskuldum, er á byggingunni
hvíldu. Eftir er að ganga frá norð
urhluta kjallara, 1. og 2. hæð og
3. hæð, en húsbúnað til hótelhalds
ins væri búið að kaupa og ganga
að fullu frá hinum 5 lyftum húss-
ins. Þegar hótelið er fullbúið, er
ráðgert að leigja það, segir Sæ-
mundur Friðriksson, framkvæmda
stjóri byggingarnefndar, í skýrslu
sinni.
Strand Esju
Framhald af 1. síðu.
í skipinu um nóttina, en voru
fluttir í land í gær og til Akur-
eyrar. Á hádegisflóðinu í gær var
reynt að ná skipinu á flot með eig
in vélarafli, en það haggaðist
ekki. Um fimm leytið í gær kom
Stapafellið svo á strandstaðinn og
voru settir vírar frá því í Esjuna.
Var öllum undirbúningi lokið um
ellefu-leytið í gærkvöldi en siðan
var beðið átekta, þar til um ein
klukkustund var eftir í háflæði.
Þá togaði Stapafelllð í með öllu
vélarafli og hafði þar að auki bæði
akkerin úti og togaði í þau með
spilinu. Einnig voru vélar Esju í
gangi. Eftir tæpan hálftíma losn-
aði skipig svo en aftan við það
var hryggur og tafði það fyrir.
Skipin héldu síðan til Akureyr-
ar. í dag fór fram rannsókn á
skemmdum á Esju. Blaðið átti tal
við skipstjórann, Tryggva Blöndal,
um fjögur-leytið í dag. Hann sagð-
ist ekki hafa fengið ýtarlega
skýrslu um niðurstöður rannsókn-
arinnar, en taldi að skemmdir
væru ekki mjög miklar, a. m. k.
myndu ekki vera göt á botni skips
ins. Annars vildi skipstjóri ekk-
ert um málið segja, kvaðst ekki
vilja úttala sig um það, fyrr en
í sjóprófunum.
Eins og fyrr segir er mönnum
óskiljanlegt, hveniig strand þetta
bar að höndum. Á þessari stuttu
leið, sem skipið hafði farið úr Ak-
ureyrarhöfn var það komig hálfa
aðra sjómílu af siglingaleið og
virtist sem skipið hafi ætlað land
megin við Hjalteyrarvitann. —
Væntanlega verða orsakir þessa
einkennilega strands 'upplýstar í
sjóprófunum, því ætla má að á
það verði nokkur áherzla lögð.
Með Esju voru 10 farþegar.
* SÍÐUSTU FRÉTTIR:
ESJA lagð'i af stað frá Abur-
eyri klukkan hálf níu í kvöld, sam
kvæmt upplýsingum Guðjóns
Teitssonar forstjóra. Skipið mun
sigla beint liingað til Reykjavík-
ur, þar sem það fer í slipp. Rann-
sóknin í dag leiddi í ljós að skipið
er talsvert mikig skemmt, botn-
inn er mikið dældaðúr og leki hef
ur komizt að tönkum.
I fáum orðiim
(Framhaid ai 3. síðu)
ið mikill snjór, oftast hefur verið
bílfært hingað. Fyrir stuttu komu
bílar hingað austan yfir öræfin,
munu þeir hafa ekið á hjarni
sums staðar. — KS.
Egilsstöðum. — Hinn 30. nóv-
ember fór fram jarðarför Björns
Hallssonar fyrrv. bónda og hrepp-
stjóra að Rangá. Jarðsett var í
heimagrafreit. Sóknarpresturinn
sr. Einar Þór. Þorsteinsson flutti
húskveðju og jarðsöng. Flutti
hánn einnig kveðju frá sveitung-
um Björns þar sem þeir þökkuðu
honum mörg og margvísleg störf
og forystu 1 sveitarmálum í Tungu
hreppi um hálfrar aldar skeið.
Sr. Marinó Kristinsson flutti
kveðju og bæn. Nokkrir félagar úr
Karlakór Fljótsdalshéraðs sungu,
20-30 þúsund
tunnur á land
KH—Reykjavík, 3. nóv.
Síldveiðin var misjöfn um helg-
ina. í fyrrinótt fengu allmargir
bátar afla, en enginn mikinn, en
s. 1. nótt var enginn bátur á mið
unum. Heildaraflinn á síldveiðun-
um í haust er nú orðinn rúmlega
121 þúsund.
Alls bárust á land í gær 20—30
þús. tunnur, þar af 6 þús. til Rvík-
ur og tæpar 1700 til Akraness. —
Síldin var misjö^n eftir því, hvar
‘hún hafði veiðzt. Sú, sem veiddist
í Jökuldjúpi og Kolluál, var 6tór
og feit, en í Skerjadjúpinu út af
Eldey veiddist blönduð síld.
Enginn bátur var á sjó s. 1. nótt,
en undir hádegi í dag voru þeir
að halda á miðin. Þeir eru nú á
allstóru svæði, en aðallega 15—16
mílur frá Öndverðamesi. Um sjö-
leytið voru þeir farnir að kasta,
en síldin er afar óróleg og erfið
viðureignar. Veður er sæmilegt á
miðunum, en dálítill sjór.
Slökkviliðið
'gabbað
MB—Reykjavík, 3. des.
Slökkviliðið í Reykjavík var kall
að út fjórum sinnum í dag í gegn-
um brunaboða og í öll fjögur
skiptin var um gabb að ræða. í
gærdag klukkan 16,10 var brot-
inn brunaboði á Hafnarhúsinu.
Þegar slökkviliðið kom á staðinn
kom í ljós, ag um gabb var að
ræða. Sökudólgurinn náðist ekki.
í dag klukkan 14,28 var brotinn
brunaboði á Laugavegi 42. Þar
leyndist vera um gabb að ræða,
en kona haföi séð tvo stráka brjóta
brunaboðann. Aðeins fjórum mín-
útum síðar, eða klukkan 14,32 var
svo brotinn brunaboði á Grettis-
götu 46. Slökkviliðið var fljótt í
förum, enda stutt að fara af Lauga
veginum og náðust strákarnir þar.
Þeir voru báðir á tólfta ári.
Kl. 19,27 kom svo þriðja gabb-
ig í dag. Þá var brotinn brunaboði
á Smiðjustíg 7 og hefur hinn seki
ekki enn fundizt. Klukkan 20,58
var svo brolinn branaboði á horn-
inu á Eræðraborgarstíg og Tún-
götu. Ekki reyndist þar vera um
eld að ræða, en krakkar, sem þar
voru, sögðu brunaliðsmönnunum
að ungur maður hefði komið út úr
sjoppunni þar, með flösku í hendi
og brotið með henni branaboðann,
stigig upp i leigubifreið og ekið
brott. Þau gátu lýst bílnum og
höfðu náð númerinu og tókst lög-
reglunni að hafa upp á kauða í
kvöld. Hann var drukkinn og í
fylgd með félaga sínum.
Hér er um mjög ljótan og hættu
legan leik að ræða. Enginn veit
hvenær jafnvel líf margra manna
geta verið undir því komin, að
slökkviliðið sé til staðar, auk þess
sem af ferðum þess stafar óneit-
anlega alltaf nokkur slysahætta.
Ætti því að refsa harðlega fyrir
slík afbrot.
cnnfremur söng sr. Marinó ein-
söng, Kvöldbæn eftir Björgvin
Guðmundsson. Mikið barst af
hlómum og krönsum, meðal ann-
ars frá Búnaðarsambandi Austur-
lands og Kaupfélagi Héraðsbúa, en
Björn var Heiðursfélagi beggja
litssara stofnana.'
Veður var hið ákjósanlegasta og
færi gott, enda fjölmenni mikið
við jarðarförina, eða á þriðja
hundrað manns. — Var það
úr öllum hreppum Héraðsins og
nsðan af fjörðum. Allir þágu rausn
arlegar veitingar áður en burt var
haldið svo sem venja er í sveitum.
Öll athöfnin að Rangá bar það meg
sér, að verið var að kveðja vin-
sælan sveitar og héraðshöfðingja
eftír langan starfsdag.
f I H I N N, þrið’judagur 4. deseinber 1962. —
15