Tíminn - 20.12.1962, Blaðsíða 2
Margt er gert
Breytti iíkvagni
i íbúð á hjólum
Frá því að Richard Stilgoe var
sex ára hefur hann langað í Rolls
Royce. Nú, þegar hann er nítján
ára, hefur hann fengið sér einn
— þrjátíu ára gamlan líkkistu-
vagn.
En þegar hann var búinn að
horga þau 65 pund, sem hann
postaði, haxði hann ekki efni á
að borga húsaleiguna. Svo hann
breytti líkvagninum í íbúð á hjól
um.
Rúmið stendur, þar sem lík-
kisturnar eiga að vera, og nóta
þarf sérstaka tækni við að af-
klæða sig. Það verður að gera
það liggjandi á rúminu.
En heppnin var með Richard.
Hann fékk vinnu við að syngja
gamansöngva eftir sjálfan sig
í næturklúbb einum í London.
Og nú loksins hefur hann efni á
að borga húsaleiguna.
Svo líkkistuvagninn stendur á
götunni fyrir utan íbúð Richards
í Chelsea og er notaður sem
gestaherbergi. Vinum mínum
líkar ágætlega að sofa í honum,
segir Richard.
Þessi þriggja tonna líkkistu-
vagn fer ekki nema átta mílur á
einu galloni af henzíni, þannig
að Richard hefur ekki efni á að
keyra hann. Hann er kannski að
hugsa um að breyta vagninum í
baðherbergi, þar sem honum
finnst ófært að eyða húsnæðinu
í ekki neitt. Einnig kemur til
greina að hann fái sér eitthvað
stærra. Richard er nefnilega að
læra að verða óperusöngvari, og
til að geta æfa sig, veitir hon-
um ekki af píanói. Þess vegna
væri upplagt að fá sér bíl til að
flytja húsgögn í.
Jayne Mansfield með Hoiiandi
kjölturakka í tðsku
til fjáröflunar
Kona og sonur hennar
borginni Liege í Beigíu
standa nú fyrir einu óþrifa-
legasta fyrirtæki í heimin-
um. Þau nota sér óhamingju
ungrar móður í sömu borg
til að græða 5 franka á klst.
Hópar af fólki standa fyrir ut-
an upplýstar inngöngudyr nóv-
ember-skemmtiviku, sem haldin
er í Liege. Þegar inn kemur, er
þeim m.a. boðið að skoða „ó-
venjulegt og lifandi fyrirbrigði".
Fyrirbrigði þetta á að vera
thalidomide-barn, sem er níu
mánaða að aldri. Nafn barnsins
er Marie Jeanne og hún er handa
laus og fótalaus.
Þegar viðskiptavinirnir ganga
fram hjá vöggunni fyrir sína
fimm franka, standa móðir og
sonnr hennar við hlið barnsins
í læknisslopp og hjúkrunarkonu
búning.
En þessi ógeðfellda sýning sýn
ir alls ekki bam, heldur hold-
litla dúkku, handa- og fóta-
lausa.
Vanskapaður Alsírbúi, sem
sjálfur er handa- og fótalaus,
kom fyrst upp um svikin. „Hún
lítur bara út fyrir að vera lif-
andi“, varð honum að orði.
Nálægt stað þessum er heim-
ili hinnar tuttugu og fimm ára
gömlu Suzanne Vandeputte, lag-
legrar belgískrar húsmóður, sem
varð fyrir því óláni, að eiga van
skapað stúlkubarn, vegna áhrifa
thalidomide.
Frú Vandeputte var sem kunn
ugt er ákærð fyrir morð, þar sem
hún deyddi barn sitt í mannúð-
arskyni. Einnig voru ákærð mað
ur hennar, móðir og systir, og
læknir sá er útvegaði henni
thalidomide-meðalið. Öll voru
þau sýknuð.
Mæðgin þau, sem halda sýn-
ingu á vansköpuðu brúðunni,
hafa séð sér leik á borði, til að
hagnast á þjáningum Vande-
putte-fj ölskyldunni.
Fjöldi manns, sem hefur of-
boðið sýning þessi hefur kvartað.
En þetta er dæmigerð auglýs-
ingabrella skemmtivikna í Belg-
íu. Vanskapað barn hefur verið
eitt skemmtiatriði á svona sam-
komum í mörg ár.
En öllum mun bera saman um,
að þetta sé viðurstyggileg aðferð
til að ná sér í peninga, þó marg-
ar þeirra séu miður þokkalegar.
Eplakon-
ungur I
Jayne Mansfield og ítalski
kvikmyndaframleiðandinn Enri-
co Bomba, en það er einkavinur
Jayne, eftir að hún skildi við
vöðvafjallið' Mike Hagerty, eru
hér á Lundúnaflugvelli og bíða
eftir flugvci til Beirut. Yfirmönn
um flugvaiiarins brá illa í brún
þegar kjölturakki gægðist upp:
úr tösku Jayne og litaðist um, en j
þeir höfðu ekki komið auga á;
hann í tollskoðuninni. í Bretlandi j
er stranglega bannað að flytja |
nokkur dýr til landsins, nema'
þau hafi verið í sex mánaða sótt- j
kví og oft kemur fyrir að hund-
ar eða önnúr dýr deyi í sóttkví
þessari úr sorg og leiðindum. En
ekkert þvíiíkt kom fyrir Soubie j
Wee, það er kjölturakkinn, þój
honum fyndist hann lenda á
nokkuð óvirðulegan hátt á Lund
únarflugvelli. |
Þessi tíu ára snáði á myndinni
var kjörinn eplakonungur í þorpi
einu í Hollandi af öllum leik-
systkinum sínum. Hann fór með
25 kíló af eplum heim til sín úr
prestsgarðirlum, þegar prestur-
inn kom tíl að hindra eplaþjófn-
aði, hafði boðið öllum börum
þorpsins að koma og borða eins!
mikið og þau gætu og fara svo j
með heim til sín eins og þau'
gætu borið. Stúlkurnar bundu
vandlega á sig svuntur og strák-
arnir fylltu buxna- og jakkavasa.
Með því hafðj presturinn líka
reiknað, en þessi litli kom hon-
um á óvart. Hann hafði bundið
fyrir buxnaskálmarnar og farið
i peysu af stóra bróður sínum,
enda var íiann rækilega klyfjað-
ur.
ÍIAFH) þið athugað hvaða vinningar eru í happdrætti
okkar, hvenær dregið verður og hvað miðinn kostar?
Þeir, sem þetta vita, eru ábyggilega búnir að ná sér
í mið'a, en það viljum við ráðleggja öllum að gera. Sá,
sem gr heppinn og lilýtur vinning hinn 23. désember
n. k„ fær splunkunýjan og fallegan OPEL CARAVAN,
sem kostar 180.000 krónur. Þetta þýðir, að liver króna
margfaldast 7200 slnnum, því miðinn kostar aðeins 25
krónur. Vinningar eru reyndar TVEIR Opelbílar, annar
blár, hinn hvítur. Kosta samtals 360.000 kr. Kaupið
miða meðan eitthvað er til.
2