Tíminn - 21.12.1962, Page 5
FYRRI BÆKUR ÚTGÁFUNNAR, skáldsagan Lífsneisti
eftir Remalque og unglingabókin Borizt á banaspjót-
um eftir Allan Boucher fást enn hjá bóksölum um land
allt.
LÍFSNEISTI er stórbrotið skáldverk eftir heims-
frægan höfund. Bók sem á ermdi til allra hugs-
andi manna.
'■& BORIZT Á BANASPJÓTUM er fyrsti hluti ung-
lingasögu er gerist á íslandi í fornöld og segir frá
Halla á Meðalfelli í Kjós og ævintýrum hans.
Höfundur bókarinnar er ungur brezkur mennta-
maður Sem nú dvelst á íslandi og er þaukunnug-
ur íslandi og íslenzkum bókjnenntum. Þetta er
spennandi bók sem er tilvalin jólagjöf fyrir ung-
linga.
BÓKAÚTGÁFAN DVERGHAMAR
Skáldsaga GUNNARS M.
MAGNÚSS er saga um
ungt fólk — fyrir ungt fólk.
Þetta er ástarsaga sem látin er
gerast í Reykjavík fyrir fáum ár-
um og aðalpersónurnar eru
dægurlagasöngkonan og stjarn-
an upprennandi, Bára Lóa, og
unnusti hennar, Börkur Jónsson,
sérstæður piitur, sem er efni í
uppfinningamann, en kemst í
kast við íögregluna og dómsvald-
ið fyrir annarra skuld, alsaklaus,
og ratar af þeim sökum í miklar
þrengingar og raunir. — Þett"
er spennandi og skemmtileg
saga.
Tilvalin jólagjöf fyrir unga fólk-
ið. — Verð kr. 164,80 .
fcr. *
j—ARITUÐ EINTÖK
Aðeins nokkur eintök af bókinni, árit-
uð af höfundinum WILLY BREIN-
HOLST fást nú hjá útgefanda.
BÓKAÚTGÁFAN FRÓÐI
VALVER
LAUGAVEGI 48
Við aSstoðura
vður við að
glfiðja biirnin
4vallt úrval
af leikföngum.
VALVER
SÍMl 156 92
Sendum heim
oq i póstkröfu
um land allt
Bótagreiðslur almanna-
trygginga í Reykjavík
Bótagreiðslum almannatrygginganna í Reykjavík
lýkur á þessu ári kl. 12 á hádeg) á aðfangadag og
hefjast ekki aftur fyrr en á venjulegum gre:ðslu-
tíma ! lannar feftir 9. januar).
Tryggingastofnun ríkisins
Jólapottar
Hjálpræðis
hersins
BORGIN ber nú svip þess, að
jólin nálgast. Ljós og lyng og
greni vekja dag hvern athygli veg-
farenda á því, að hátíð er í nánd.
Skreytingar verzlana í gluggum
með margs konar glysi og gnægð
góðra muna minnir hvern mann á
jólagjafir.
En hjá því verður varla komizt,
að allur sá íburður veki nokkra
umhugsun og spurningar hjá hverj
um þeim, sem þekkir söguna góðu
um fátækt barn, sem vafið var
reifum og lagt l jötu, ef sú saga
er orðín honum harla kær.
Þetta stingur allt svo mjög í
stúf við helgi fyrstu jóla, fátækt-
ina í fjárhúsi í Betlehem. Er fæð-
ingarhátíð hans, sem gerðist fá-
tækur vor vegna til þess að vér
auðguðumst af fátækt hans, nú orð
in verzlunarhátíft hjá mór?
Eitt hefur jufnan að undan-
förnu þessa daga í desember glatt
mig öðru fremur, auk jólatrjánna
stóru af því sem setur jólasvip á
Reykjavík. Og þetta er jólapottur
Hjálpræðishersihs, samskotabauk-
ur hans. Hann lætur lítið.yfir sér
og er ekki fyrirferðarmikill í að-
alverzlunarhverfinu, enda ekki
settur þar í gróðaskyni. En hann
mætti samt vekja til umhugsunar.
Margir eru þeir, sem litlar eða
engar jólagjafir fá, einmitt þeir,
sem helzt þyrftu þeirra við. Þeir
eru margir, sem daprir eru og ein
mana og gleymast, einmitt þeir,
sem helzt þyrfti að gloðja. Og
þarna stendur í strætinu lítil,
hógvær áminning um það. Það er
hið sanna jólahald, að líkna þeim,
sem líknar þurfa, gleðja hrygga,
styrkja veikburða, rétta þeim hönd
sem hafa hrasað. — Öll vitum við
að það er í anda hans, sem gaf
mönnunum heilög jól, að halda
hátíg með kærleika í huga til með
bræðra í þrengingu.
Þegar við sjáum jólapottinn frá
Hjálpræðishernum, mættum við
renna þakklátum huga til þeirra
manna, sem gefa okkur tækifæri
til að veita nokkurn glaðning, og
án þess að láta okkar að neinu
getið, óþekktum bróður eða systur,
sem við ekkert vitum annað um
en það, að hann þarfnast hjálpar,
að hann megi gleðjast yfir því, að
einhver hefur auðsýnt honum hlýj-
an hug í nafni Drottins.
Hjálpræðisherinn á skilið þakk
læti meðborgaranna fyrir þetta og
fyrir að bjóða fram starfsflokk til
þessarar meðalgöngu, fólk, sem-
fúslega ver tíma sínum þá daga,
sem allir eru önnum kafnir af um-
hyggju fyrir sér og sínum — og
sjálfum helgidögunum, þegar flest
ir vilja eiga náðuga daga eða
skemmta sér, til þess að leggja
hart að sér í erfiði, svo að einnig
þeir mættu hljóta hátíðargleði,
sem allir aðrir gleyma.
Að þessu sinni er meiri þörf en
áður hefur verið fyrir að taka
höndum saman um þetta hátíðar-
hald Hjálpræðishersins, því að nú
hefur hann tekið að sér ný og
aukin verkefni. Að þessu sinni
mun hann hafa með höndum nokk
urn hluta þess jólaglaðnings, sem
félagig Vernd hefur haft að und-
anförnu. Vernd mun að vísu enn
sem fyrr leggja sig fram við að
annast fangahjálpina um iólin En
auk fanganna eru margir einmana
menn í þessum bæ. fólk sem lítið
athvarf og litla samúð á í um-
hverfi sínu. Hjálpræðisherinn
ætlar að leita þá uppi. Ilann mun
Framhald á 13. síðu
T I M I N N, föstudagurinn 21. des. 1962.