Tíminn - 13.02.1963, Qupperneq 5
RITSTJÓRI HALLUR SIMONARSON
UPP FIMM MARKA FORSKOT
í LOK LEIKS ÍR og VÍKINGS í fyrrakvöld komst Gunnlaugur Hjálmarsson
einn inn fyrir vörn VÍKINGS, en öllum á óvænt varði markvörður VÍK-
INGS, unglingalandsliðsmarkvörðurinn, Brynjar Haildórsson, skot hans,
og bjargaði þannig stigi fyrir félag sitt. • -----——
!
Drengjamet í hástökkí
Víkingur eygir varla nokkra
möguleika til sigurs í íslands-
mótinu eftir að hafa tapað fyr-
ir Fram á föstudaginn og ná
aðeins jafntefli við ÍR í fyrra-
kvöld. — í rauninni máttu
Víkingar þakka fyrir að geta
krækt í stig í leiknum við ÍR,
en ÍR náði fimm marka for-
slcoti í seinni hálfleiknum og
Þjálfara-
námskeið
N. k. sunnudag efnir Tækni-
nefnd Knaítspyrnusambands ís-
lands til námskeiðs fyrir knatt-
spyrnuþjálfara félaganna í 1. og
2. deild — svo og fyrir þjálfara,
sem ekki eru starfandi um þes'S-
ar mundir. Námskeiðið verður
haldið í Gagnfræðaskóla Austur-
bæjar og verða flutt á því erindi
um þjálfun og sýndar úthaldsæf-
ingar, sem mjög svo eru tfmabær-
ar.
: Tækninefnd KSÍ fyrir þetta ár
Drengjameistaramót íslands,
innanhúss, í frjálsum íþrótt-
um fór fram s.l. sunnudag í
íþróttahúsi Háskólans og var
þátttaka mjög góð. Bezta af-
rek mótsins vann Sigurður
Ingólfsson, Ármanni, en hann
setti nýtt drengjamet í há-
stökki með atrennu. Hið nýja
met Sigurðar er 1,84 m eða
tveimur sentimetrum hærra
en gamla metið, sem hann átti
sjálfur.
SIGURDUR iNGÓLFSSON
Annars vakti óskipta athygli á
mótinu Þorvaldur Benediktsson,
HSS, en hann sigraði óvænt í
tveimur greinum á mótinu, lang-
stökki án atrennu og þrístökki
án atrennu — auk þess varð hann
í öðru sæti í hástökkinu
Annars urðu úrslit í einstökum
greinum eins og hér segir:
Hástökk með atrennu:
Sigurður Ingólfsson, Á, 1,84
Drengjamet (1,82)
Þorvaldur Benedikísson, HSS 1,75
Ólafur Guðmundsson, KR 1.70
Jón Kjartansson, Á, 1,70
Hástökk án atrennu:
Ragnar Guðmundsson, Á. 1,30
Jón Kjartansson, Á, 1,30
Langstökk án atrennu:
Þorvaldur Benediktsson HSS 2,98
* Jón Þorgeirsson, fR, 2,94
Erlendur Valdimarsson, ÍR, 2,88
Einar Gíslason, KR, 2,84
Þrístökk án atren.nu:
Þorvaldur Benediktsson, HSS 9,04
Erlendur Valdimarsson, ÍR 8,89
(Jöfnun á sveinameti).
Einar Gíslason, KR, 8,81
Ólafur Guðmundsson, KR, 8,48
Keppni f kúluvarpi og stangar-
stökki var frestað fil 10 marz og
erður þá haldið í sambandi við
Meistaramót íslands Laugardag
inn 16. febrúar n k fer fram
Sveinameistaramót íslands (innan
húss) á Akranesi.
KARL GUÐMUNDSSON
var nýlega skipuð og er formaður
hennar Karl Guðmundsson,
íþróttakennari, en hann hefur
jafnframt verið ráðinn til starfa
hjá sambandinu og mun starfa að
skipulags- og þjálfunarmálum.
Aðrir í nefndinni með Karli eru
þeir Reynir Karlsson og Árni
Njálsson, sem báðir eru mjög
kunnir fyrir þjálfarastörf. Allir
nefndarmennirnir munu starfa að
námskeiðinu, sem haldið verður
í Gagnfræðaskóla Austurbæjar og
hefst kl. 2.
Unglimganefnd KSÍ.
Stjórn KSÍ hefur nýlega skipað
unglinganefnd fyrir árið 1963 og
eiga sæti í henni þeir Gunnar
Felixson. Alfreð Þorsteinsson.
Guðjón Einarsson os Jón B Pét
ursson f ráði er að nefndin kalli
bráðlega saman þjálfara unglinga
liða í samvinnu við tækninefnd
ina.
og gerSu aftur jafntefli við ÍR í íslandsmótinu,
í 1. deild, 24 mörk gegn 24
hefði átt sigurinn vísan með
réttu tempoi — en Víkingar
sýndu samt sem áður gott
keppnisskap, þegar mest á
reyndi og það bjargaði þeim
Á síðustu mínútum leiksins var
háð geysibörð barátta, sem náði
hámarki þegar Rósmundur jafn-
aði fyrir Víking, 24:24, en þá var
enn rúm mínúta eftir. Litlu mun-
aði, að Víking tækist að bæta 25.
markinu við á síðustu sekúndun-
um, en þá var dæmt aukakast á
Gunnlaug Hjálmarsson — en fyrir
bráðlæti var kastið tekið á röng-
um stað, og dauðafæri, sem Rós-
mundur skapaði sér til einskis
nýtt.
Scott til
Everton
Alex Scott, hægri útherji Skot-
lands og Rangers, hefur verið seld
ur til Everton fyrir 40 þúsund
sterlingspund. Tottentoam og Ev-
erton háðu harða keppni um leik-
manninn, og varð Everton ofan á,
þar sem styttra er frá Liverpool
til Glasgow, en frá London. Scott
hefur um nokkurn tíma verið á
sölulistanum hjá Rangers, þar sem
hann missti stöðu sína vegna hins
snjalla útherja, Hendersons, en
hann hefur þó af og til leikið með
aðalliði Rangers.
Þess má geta, að fyrir fimm ár-
Framhald á 13 síðu
ÍR hélt lengstum forustu í fyrri
hálfleiknum, en fyrir hlé tókst
Víking að komast einu marki yf-
ir og var staðan í hálfleik 13:12
fyrir Víking.
ÍR komst fimm mörk yfir um
tíma í seinni hálfleiknum, en þá
var staðan 21:16. Með þetta for-
skot hefðu ÍR-ingar átt að vera
öruggir með sigur — en í stað-
inn fyrir að leggja átoerzlu á vörn-
ina var kappkostað að skjóta og
fyrir bragðið náði Víkingur að
minnka bilið niður í tvö mörk. - •
Gunnlaugi tókst að breikka bilið
aftur — en Víldngur fylgdi eins
og skugginn — um tíma var stað-
an 24:23 fyrir ÍR og misnotaði
Gunnlaugur, aldrei þessu vant,
gott tækifæri til að skora 25.
markið, en hann var kominn einn
inn fyrir vörnina hjá Víklng — en
markvörðurinn varði.
Rósmundur jafnaði laglega fyrir
Víking þegar rúm mínúta var eft- ’
ir og var geysileg spenna síðustu i
mínútuna, en hvorugu liðinu tókst
að skora.
ÍR-ingar voru klaufar að vinna
ekki leikinn, þeir léku nú betur
en oftast áður og náðu skemmti-
legum sóknarleik. Gunnlaugur og
Gylfi voru beztu menn liðsins, og
Finnur í markinu. — Mörk ÍR
skoruðu Gunnlaugur 13, Gylfi og
Matthías 4 hvor, Hermann 2 og
Þórður 1.
Ólafur Friðriksson og Pétur
voru skástu menn Víkings, en
góð tiliþrif sýndu báðir markverð-
irnir. — Mörk Víkings skoruðu
Pétur 6, Rósmundur 5, Þórarinn
4, Ólafur og Jóhann 3 hvor og
Sigurður Hauksson, Bjöm B., og
Björn Kr. 1 hver.
Dómari i leiknum var Valgeir
Ársælsson.
Fram skoraöi 37
mörk gegn Þrótti
— sem er mestí markafjöldi í 1. deildar-leik
Fram átti ekki í miklum
erfiðleikum með Þrótt í síð-
ari umferð íslandsmótsins í
handknattleik í fyrrakvöld, en
, Fram sigraði með 37—20 og
hefðu mörk Fram reyndar get-
að orðið fleiri. Það var Ingólf-
ur Óskarsson sem skoraði
flest mörkin fyrir Fram, en
alls skoraði hann 16 mörk í
leiknum.
Þrðttarar stóðu lengi vel í
Fram í fyrri hálfleiknum, en
Fram var þó alltaf fjórum til
fimm mörkum yfir — í. hálfleik
hafði Fram yfir 15-8. Bilið jókst
Fijótlega í seinni hálfleiknum og
áttu Framarar alls kostar við
Ihina lítt vönvi Þróttara. Lokatöl-
ur urðu 37-20 og er það hæsta
markatala í 1. deild.
Ingólfur og Guðjón voru beztu
menn Fram, en ágætan leik sýndi
einnig Sigurður Einarsson, en
hann skoraði eitt sögulegasta
markið í leiknum — 24 markið,
— sem jafnframt var 200. mark
Fram í mótinu, en þetta er í ,
fyrsta skipti, sem eitt félag skor-
ar 200 mörk eða fleiri í 1. deild.
Annars skoruðu mörk Fram Ing-
ólfur 16, Guðjón 7; Sigurður 5,
Tómas 3, Jón og Ágúst 2 hvor,
og Hilmar og Erlingur 1 hvor.
Hjá Þrótti var Guðmundur
Gústafsson beztur — Mörk Þrótt
ar skoruðu Axe) og Haukur 5
hvor Helgi 4 og Þórður Grétar
-e Gunnar 2 hver
Dómari var Frímann Gunnlaugs-
son.
T í M I N N, íiiiðvikudagur 13. febniar 1963.
VÍKINGUM TÖKST AD VINNA