Tíminn - 13.02.1963, Side 13
ÁSTARHRI'NGURINN verður sýndur I kvöld kl. 8,30 í Iðnó. — Örfáar sýn-
Ingar eru nú eftir á þessu leikriti, en L.R. frumsýnir væntanlega nýtt
lelkrit um næstu mánaðarmót. Á meðfylgjandi mynd eru þau Guðrún
Ásmundsdóttir og Helgi Skúlason í hlutverkum „Ijúfu stúlkunnar" og
„skáldsins".
Sinfóníuhljómsveit íslands hélt
r.íundu tónleika sína í samkomu- !
sal Háskólans þann 7. febrúar s.l.
Stjóniandi var að þessu sinni j
ungur íslendingur, Ragnar Björns-
son organleikari, og karlakórinn
Fóstbræður aðstoðaði. Inngangur
tónleikanna var Rómanza með' til-
birgðum op. 51 eftir E. Grieg. —
Ekki skortir á stemmingu og ljóð-
lænar línur í þessu verki, en þótt
sjalfur Grieg standi þar á bak við,
er það sem hljómsveitarverk, held-
ur grannt og viðalítið og nálgast
að vera langlokukennt og var ekki
örgrannt um, að áhugi hlustandans
væri hálf daufgerður þrátt fyrir
hnökralítinn og víða áferðarfall-
egan flutnin.g.
Danska tónskáldið J. P. Hart- j
mann (1805—1900) er kunnur hér
á landi, fyrir sínar minni tón-
smíð'ar. Stóð hann föstum fótum
í músiklífi I 'anmerkur á fyrri öld,
sem menntaður o.g ve! kunnandi
músikant. Hann hefir orðið fyrjr
áhrifum frá Eddu-kvæðunum og
eit.t stærsta verk sitt Völuspá, sem
ur hann við hluta úr þeim og var j
það fyrst fært upp í Kaupmanna- j
höfn 1872 af söngfélagi stúdenta
þar í borg og frá háskólabænum
I,undi. Efni textans í þessu verki
er bæðj kjarngott og mergjað og \
á þeim tíma sem verkið er sam-
ið eða á síðrómantíska tímabilinu
hefur það vafalaust þótt þungt og
mikilfengle.gt, en sem kórverk
heldur það velli þann dag í dag,
þótt ekki risti þar allt jafn djúpt.
Er t.d. bassatemað, sem verkið
hefst á verulega fallega unnið,
og eins sú stígandi sem á eftir
fylgir. Karlakórinn Fóstbræður
undir stjórn Ragnars Björnssonar,
með aðstoð Sinfóníuhljómsveitar-
ínnar, flutti verKið og hefjr stjórn-
andanum tekizt þarna vel að sam-
ræma söng og músikaðstoð, var
þarna öllu í hóf stillt, og söngur
þeirra kórfélaga jafn og áheyri-
'.egur. Á undan flutningi Völuspár
las Lárus Pálsson leikari þann
hluta Eddu-kvæðanna, sem efnj
verksins byggist á. Gerði hann
innihaldi þeirra kvæða, sem hann
las svo góð skil að hið þróttmikla
innihald þejrra varð áheyranda,
enn, ljósara að lestri loknum.
Að síðustu lék svo hljómsveit-
in áttundu sinfóníu Beethovens og
var leikur bennar þar, yfirleitt j
lýtalaus og víðast hvar góður. — i
Ragnar Björnsson stjórnaðj þarna
bæði kór og hljómsveit, og hefjr
honum vel tekizt, þar eð hljóm-
-veitarstj. er ekki það sem menn
Koma fullkomnir að í fyrsta sinni.
Góð stjórn byggist á kunnáttu og
reynslu. Það síðarnefnda ásamt
rútínu, kemur með æfingu, nægu
verkefni og vinnu.
Ragnar hefjr viljann til að móta
eftir sinni sannfæringu og tókst
það vel að þessu sinni. Er ástæða
íil að óska honum alls góðs með
frammistöðuna og framtíðina.
Unnur Arnórsdóttir
íjjróttir
Framhald af 5. síðu.
um léku England og Skotland
landsleik leikmanna yngri en 23
ára og var hann háður á leikvelli
Everton, Goodison Park í Liver-
pool. Síðan hefur Everton keypt
fimm af þeim leikmönnum, sem
þá léku fyrir Skotland, það er
bakverðina Parker og Thomson,
miðherjann Young, vinstri útherj-
ann O’Hara og nú hægri útherj-
ann Scott.
Kristur einn
Framhaid af 9 síðu )
er rakin U1 virðast satt að segja
ekki ýkja trúverðugar, ef dæma
má eftir þeim heimildum, sem ég
hefi um þær og alkunna er þá
raunar, að hafi störf miðla verið
T f M I N N, miðvikudagur 13. febrúar 1963.
rannsökuð að staðaldri hleypi-1
dómalaust, þá hafi æðimargir
þeirra orðið uppvisir að svikum
einhvern tíma á starfsferli sínum |
og burt séð frá því, er vitað að 1
fyrirbæri þau, er gerast á miðils-
fundurh má skýra á ýmsan annan
veg en þann, að þar sé um að
ræða samband við framliðna menn
og það mun þeim full-ljóst, er bezt
hafa kynnt sér þessa hluti, — ti!
munu jafnvel miðlar, er sjálfir
hafna skýringum spíritista á fyrir
bærunum.
Nú veit ég ekki, hvort Halldór
Kristjánsson er nokkru nær fyrir
það sem hér hefur verið rakið,
enda virðast mér skrif hans satt
að segja ekki benda á lærisveins
anda beinlínis, en hér skal þó
staðar numið.
Víst má segja, að eins og nú er
málum háttað, sé það nokkurrar
virðingar vert, að hugsað sé og
rætt um kristindóm, eins og Hall-
dór undirstrikar, að hann geri —
en eins og ég hafði áður sagt, þá
dugir það eitt þó skammt til þess
að við megum eignast þá trú á
Jesúm Krist, að hann sé vegur-
inn, — eini vegurinn til móts við
hið eilífa líf, eins og Biblíán boð-
ar.
Castro
Framhairi -f 7 síðu
hverra úrkosta átti Castro völ?
Hann þurfti á rússneskri mat-
vöru að halda til þess að hafa
að éta, og hann þurfti rússnesk
vopn til þess að verjast óvinum
sínum."
Ég var fréttaritari New
York Times á Punta del Este-j
ráðstefnunni og hafði það hlut-
verk, að „skyggja" Che Guev-
ara. Þá var það klukkan þrjú
eina mikla ræðunótt, að kúb- \
anski ráðherrann lét þessi orð
falla: „Hver einasti Kúbubúi
veit, að á okkur verður ráðizt.
Við verðum að venja okkur við
þá staðreynd, að flestir okkar
,munu deyja. En við munum
' Ihljóta ^KoÍTan dauða og ef til
vill auðnast að senda Washing
*on eitt skot áður en við deyj-
um.“
Vegna þessarar innrásar gat
enginn Suður-Ameríkumaður
treyst orðum Bandaríkjanna
einum. í augum þeirra, sem
ég hef talað við, voru Banda-
ríkin árásaraðilinn og Kúba
fórnarlambið. Ríkisstjóri Rio
Grande do Sul, Leonel Brizola,
er kaþólskur andkommúnisti
og hann er braziliskur þjóðern-
issinni. Hann harmaði það op-
inberlega, að Kúba skyldi' hafa
verið gerð að árásarbækistöð
Sovétríkjanna, en samt sagði
hann við mig: „Ég vildi og
gera sáttmála við hvern sem
væri til að verja land mitt,
jafnvel sjálfan fjandann."
SÉ GERT RÁÐ fyrir að
ijómi kúbönsku byltingarinn-
ar sé að fölna í Suður-Ame-
ríku, þá er það sama og að
gera ráð fyrir að Þjóðernis-
sinnunum þyki ekki réttlæt-
anlegt af Castro að reyna að
verja Kúbu. Þeir vita, að
Castro óskaði ekki eftir her-
stöðvunum til þess að gera
árás, heldur til þess að gera
gagnárásir, ef og þegar á Kúbu j
yrði ráðizt. Þjóðernissinnarnir;
hörmuðu nauðsyn þessara
stöðva, en Ijómi byltingarinn
ar var jafn bjartur eftir sem
áður. í raun og veru fer fylgið
við Castroismann ekki svo sér-
lega mikið eftir því, hvað |
Castro gerir eða lætur ógert.
heldur fyrst og fremst eftír
hinu, hvað Bandaríkjamenn |
gera. Og það er aðeins tvennt
sem Bandaríkjamenn geta gerr
til þess að draga úr aðdráttar
afli Castroismans í álfunni
Það fyrra er. að leyfa Kúbtt
að verzla hvar sem hún vill og j
hvenær sem hún vill, kaupa till
Jóhannes Jakobsson
Finnmörk
Hinn 29. nóvember s.l. andaðist
a Sjúkrahústnu á Akureyri, Jóhann
es Jakobsson fyrrum bóndi á Finn
mörk í Miðfirði. Jóhannes var
fæddur á Fremri-Fitjum 9. okt. ;
1875. Foreldrar hans voru hjónin
Jakob Finnsson og Þóra Árnadótt-
ír.
Ungur missti Jóhannes móður
sína, aðeins 6 ára gamall og föður
sinn 12 ára, og ólst hann því upp
a ýmsum stöðum. Hann fór ungur
suður til sjóróðra, eins og algengt
var um unga menn á þeim árum,
enda var hann snemma vilja og
dugnaðar maður, dyggur og traust-
ur í starfi, orðlagður sláttumaður
var hann, svu talig var að að hann
ætti fáa sína líka. Vorið 1898 hóf!
Jóhannes búskap í Nýpukoti í Víði |
cial og bjó þar í fjögur ár, ásamt
Konu sinni Petru Guðnýju Gísla-
dóttur. Ijósmóður, mætri konu,
sem reyndist manni sínum stoð og
stytta í margþættu og erfiðu starfi.
Árið 1902 keypti Jóhannes jörð-
ína Finnmörk í Miðfirði, og bjó
þar í eitt ár, en hætti þá búskap,
og eru þau næstu þrjú árin í
lausamennsku og stundaði Jó-
hannes þá mikið sjóinn, var í þil-
skipum og fór víða.
En svo kom, að Jóhannes fór
að þrá gömiu átthagana aftur. Því
römm er sú taug. sem rekka dreg-
ur föður túna til.
Vorið 1906 fluttust þau hjónin
dfíur að Finnmörk og bjuggu þar
siðan, eða þar til að Petra kona
nans lézt árið 1934. Börn Jóhann-
esar voru fjögur, son misstu þau
kornungan. Þóra Guðný lézt árið
1960 hún var gift Guðvini Gunn-
laugssyni kennara, Sæmundur og
Gyða, baeði gift og búsptt | Akur-
eyri.
Eftir að lóhannes fór frá Finn-
mörk árið 1937 var hann á ýms-
um stöðum, mikið nokkuð í Reykja
vík, þar til hann fór til Gyðu dótt-
ur sinnar og var hjá henni til
dánardægurs. Það sagði hann mér
eitt sinn, að það gæti hvergi farið
betur um sig, en hjá henni.
í sjón var Jóhannes vel meðal-
maður á hæð, sterkbyggður og
þéttur á velli. Allur var maðurinn
hinn höfðinglegasti á að líta. Er
gervi hans vel minnistætt þeim,
er honum kynntust.
Jóhannes var hressilegur í tali,
•'æðinn og skemmtinn í frásögum.
Þótti afar gaman. af söng, enda
hafði hann mikla rödd sjálfur. Jó-
hannes var í anda og sannleika
dæmis kjöt frá Argentínu og
korn frá Kansas fyrir sykur og
tóbak. Það síðara er, að gera
það fullljóst, að „lýðræði" er
ekki aðeins annað orð yfir
„frjálst framtak".
í augum allra þjóðernis-
sinna er kúbanska byltingin
því miður eina áþreifanlega
dæmi þeirrar endurreisnar,
sem Suður-Ameríka þarfnast.
— Þetta á einnig við um þær
50 þúsundir suður-amerískra
tæknifræðinga, sem fóru til
Kúbu 1959 til þess að hjálpa
til, og hurfu aftur 1961. þegar
kommúni'Staleiðtoginn Charles
Rafael Rodriguez tók við
stjórn efnahagsmálanna. —
Tæknifræðingur frá Chile,
sem hafði unnið { 18 mánuði
á Kúbu, komst þannig að orði:
Castro kann að hafa brugðizt
okkur, og ég fyrir mitt leyti
'ar mjög bitur þegar ég fór
Irá Kúbu. En bylting hans eaf j
okkur aftur réttinn til sjálfs- j
virðingar. Nú •'ifpiu: víð eftir
að vinna til henuar, og við ger-1
um það.“
samgróinn néraði sínu og störfum
bóndans.
Eftir að hann fluttist til Akur-
tyrar fór hann heim í átthagana
hvert sumar meðan heilsan leyfði
og dvaldist þar, lengur eða skem-
ur oftast meginpart sumarsins,
svo rikum vinsældum átti hann
þar að' fagna, að á hverjum bæ, var
það talið með höppum dagsins,
þegar hann bar að garði, og hvergi
þótti dvöl hans nógu löng. Þetta,
meðal annars, sem kunnugt er um
Johannes frá öllum tímabilum ævi
hans, staðfestir svo ekki orkar tví-
mælis, að með honum er til mold-
ar genginn sá mannkostamaður,
sem lengi mun minnzt verða.
Eg þakka Jóhannesi samfylgdina
og þökk sé honum fyrir tryggð og
sæmd er hann ávann sér og hér-
aði sínu með lífi sínu og starfi.
Jóh. Árnason
Auglýsið í Tímanum
16 mm filmuleiga
Kvikmyndavélaviðgerðir
Skuggamyndavélar
Fle.star gerðir sýningarlatnpa
Ódýr sýningartjöld
Fiímulím og fl.
Ljósmyndavörur
Filrnur
FramkölJnn c-g kcpering
(Trr^Ástor)
FILMUX OG VSI.AR
Freyjugotu 15
Sirri í:o935
13