Tíminn - 13.02.1963, Qupperneq 15
Njáls saga
Frarnhald af 16. síðu.
— Á næsta leikári ætlum við
að flytja Eirík Xiv. eftir Strind-
berg, og ég hef sjálfur þýtt leik-
ritið. Og á næstunni verður fmm-
sýning hér í Sviþjóð á „Gógó“,
sem er stytting á nafnj aðalsögu-
hetjunnar, Guðríður, í kvikmynd-
ínni, sem er gerg eftir skáldsögu
Indriða G. Þorsteinssonar „79 af
stöðinni“.
— Jú, það er rétt, ég er formað-
ur Eddafilm, en það er bara tóm-
stundavinna með'fram þjóðleikhús-
sljórastarfinu. Nú gerum við okk-
ur vonir um að gera kvikmynd
eftir Njálssögu, sem er eitt merk-
asta verk heimsbókmenntanna og
var ritað á 12. öld. En hvenær
við leggjum út í það, þori ég ekki
að segja að svo stöddu.
— Já við höfum ballettskóla í
sambandi við' Þjóðleikhúsig í
Reykjavik með 200 nemendur og
kennara frá sjálfu Royal Aca-
demy í London. Skólinn okkar er
sniðinn eftir brezka kerfinu og
reynist vel.
Nú hraðar Rósinkranz þjóðleik-
hússtjóri göngu sinni í áttina til
Gamla stan (elzti borgarhlutinn).
— Að koma til Stokkhólms, það
er eins og að koma heim, segir
hann og kinkar kolli til Kansli-
hússins. Þar, hjá Mynttorginu,
stóð einu sinni Socialpolitiska
institutet, þar sem hann stundaði
nám.
— Eg skipulagði gestaleiki og
liátíðasýningar sem framkvæmda-
stjóri og ritari Norræna félagsins,
t.d. þegar ísland varð lýðveldi
1944. Síðan varð ég þjóðleikhús-
stjóri, þegar það tók í fyrsta sinn
til starfa 1950. Það er dásamlegt
starf. Við ætlum að setja „Trú-
badúrinn“ á sviðið í vor. Máske
fæ ég trúbadúr með mér frá
Stokkhólmi."
Þannig lýkur spjallinu, eins og
það birtist i Dagens Nyheter. Þar
sem framarlega er nefnt „Stoppa
JuarldenV-^ senx Guðlaugur Rósin-
kranz ■virðist hafa áhuga á handa
Þjóðleikhúsinu, er átt við söng-
leikinn „Stopp the World — I
want to get off“, eftir Anthony
Newlie 'og Leslie Bricusse. Hann
hefur verið sýndur í vetur í New
'Tork og London og hlotið feiki-
iega aðsókn, svo að flest bendir
til þess, að hann fari í kjölfarið á
My Fair Lady. Þriðja landið, sem
tók hann til sýningar var Svíþjóð,
hann var frumsýndur í Stokkhólmi
9. janúar, og það er daglega bið-
röð við miðasöluna á Scala-leik-
húsinu. Einn af leikdómurum
Slokkhólmsblaðanna tekur svo til
orða: „En sensation pá Scala,
nágot at det intressantaste och
mest spánnande i modern teatei'".
Stefanska
Framhald af 16. síðu.
um og gengizt fyrir yfir 600 hljóm
leikum hér í Reykjavík, fyrir utan
fjöjda tónleika úti á Landi.
í byrjun voru styrktarmeðlimir
félagsins um 800, en nú eru þeirj
1600 og mun það vera einsdæmi,
að 75.000 manna borg eigi svo
stóran hóp af unnendum sígildr-
ar tónlistar.
Þrjátíu ára afmælisins var að
vísu minnzt með veglegum tón-
leikum, en ekkj sem skyldi,
þar sem kaup félagsins á full-
komnum konsertflygli töfðust
vegna húsbyggingar yfir starfsemi
tónlistarskólans og kvikmyndasýn
ingarnar. En nú hefur verið keypt.
ur flygill frá Bösendorfer í Vín, j
og verður hann sá stærsti, sem
til er á landinu.
Á næstu tónleikum félagsins
spilar hinn frægi pólski píanóleik
ari, Halina Czerny-Stefanska, sem
hingað kom í gærkveldi, og verða
fyrri tónleikarnir annað kvöld í
Austurbæjarbíói. Czerny-Stef-
anska hefur hlotið mikla viður-1
kenningu, bæði heima fyrir og
erlendis, einkum fyrir túlkun sína
á verkum Fr. Chopins.
Hún er fædd [ Krakow, þar sem
faðir hennar, Stanislaw Czerny, er
kennari við tónlistarháskóla, og
byrjaði hún fimm ára gömul að
læra á píanó að eigin ósk. Þegar
hún var tíu ára, hlaut hún verð
laun, sem heimiluðu henni að
stunda nám í Paris, og eftir heim-
komuna hélt hún áfram tónlistar-
uámi í Krakow. Árið 1949 hlaut
hún fyrstu verðlaun í fjórðu al-
þjóðlegu Chopin-keppninni, og
sama árið hélt hún fyrstu opin-
beru tónleika sína erlendis.
Þeir hljómleikar urðu upphaf
fjölda hljómleika í öllum höfuð-
borg'um Evrópu og úti um allan
heim.
Hingað kemur Czerny-Stefanska
frá Danmörku og mun hún dvelja
hér til sextánda þessa mánaðar.
Næsti ákvörðunarstaður verður
svo Amsterdam og þar á eftir
ýmsar borgir í Þýzkalandi.
Skoðar eldfjöll
Framhald af 16. síðu.
paradís fyrir jarðfræðinga, enda
er þar mikið eldfjallaland. Hins
vegar verður hann þar snemma
vors, og landið víðáttumikið, ein
og hált milljón ferkílómetra, en
ætlunin er að gera nokkuð víðreist
þar í flugvélum. Ekki er langt
síðan dr. Sigurður var á Hawaii-
eyjum við rannsóknir, og getur
jafnvel svo farið, að fari eitthvað
forvitnilegt að gerast á Hawaii
hvað jarðfræðina snertir, að hann
endi för sína þar. Dr. Sigurður
fer á sunnudaginn og áætlað er
að hann verði þrjá mánuði í för-
inni.
Noröurlandaráð
Framhald at i siðu.
Haldig næsta fund Norðurlanda
ráðs á Grænlandi. Setjið málið um
samnorræna Grænlandsuppbygg-
ingu á dagskrána og leyfig stjóm-
rnálamönnunum að kynnast öllum
aðstæðum á staðum. Þá held ég
ag erfiðleikárnir við að finna sam-
norræna lausn verði ekki stórvægi
legir. Kannski getur þetta gerzt
fyrir hluta þess fjár, sem annars
færi til annarra vanþróaðra landa,
hinum megin á hnettinum, en
skiptir það nokkru máli?
Höfudur þessarar tillögu í Aktu-
elt nefnist Erik Stubtoft og er
framámaður í sósíaldemókrata-
flokknum.
Félagsmál
Framhald af 16 síðu.
í sveinafélagi pípulagninga-
manna varð stjórnin sjálfkjörin,
þar eð' aðeins einn listi kom fram.
Formaður er Bjarni Guðbrands-
son.
Sjálfkjörið varð einnig í Sjó-
mannafélagi Hafnarfjarðar. For-
rnaður þess félags er nú Ólafur
ólafsson.
Fiskafurðir
Krar> nmri ' i síðu.
hafa verið seldar fyrir yfir 350
milljónir króna. Sumt af þessu
var umframsöltun, en öll þessi
síld er þegar seld og segir Er-
lendur m. a. um það: „Að svo
vel tókst um sölu á þessari um-
framsöltun má eflaust þakka
því, að keppinautar vorir gátu
ekki afgreitt nema hluta af því
magni, sem þeir höfðu selt og
svo hinu, að gæði síldarinnar
voru óvenju góð“. Erlendur seg
ir, að síldin hafi yfirleitt verið
mjög stór og felt, og að með-
ferð síldarinnar um borð í
skipunum og við söltun virðist
fara batnandi.
Erlendur segir, ag vetrarsíld
veiðin i fyrravetur hafi numið
nærri 110 þúsund tunnum að
verðmæti nærri 90 milljón kr.
Á síldarvertíðinni núna í vet-
ur hefur, er greinin var rituð,
verið saltað í tæpar 125 þús-
und tunnur, og vantaði þá enn
ríflega 25 þúsund tunnur til að
uppfylla gerða samninga.
rel mig ekki sakamann
Framhaíd at 1 siðu
stjórnar. f ljós hefur komið,
að fleiri bátar hafii verið að
veiðum á umræddu svæðj, þeg
ar Sævaldur og Frjgg voru tek
in, en þeir sluppu undan varð-
skipinu út í náttmyrkrið. Var
a'ð minnsta kostii einn bátanna
að veiðum fyrir innan Sævald.
Blaðið átti í kvöld tial við
Kristján Gústafsson skipstjóra
á Sævaldi. — f tvö síðustu skipt
in, sem ég var tekinn í
landhelgi, hef ég taiið miig vera
utan hennar, sagð't Kristján.
— Ég hef ekki radar tiil að
miða með, aðeins kompás og
dýptarmæli og stend því rök-
þrota gegn nadarmælingum
varðskipanna. Þegar við vor-
um teknir núna, voru aðrir bát
ar að toiga á sömu slóðum og
þejr voru með radar. Ég hélt
því, að öllu væni óhætt. Þegar
varðskipið lýsti á okkur, lýstu
þeir einnig á annan, sem var
að toga fyrir innan okkur. En
þeim virtiist nægja að sjá okk-
ar bát og hinn slapp frá þeim.
— Varst þú ekki skipstjóri á
bát.num?
— Éig var lasinn í gær og
bróðir minn, sem er stýiámað-
ur hjá mér, var með bát'inn á
toginu. En það breytir því ekki
að ég tek á mig allia sök á þess-
um atburði.
— Var eitthvað í ólagi með
skjöliin hjá þér?
— Já. Og ég get sagt þér
hvers vegna. Á alþingi skönunu
fyrir jói, voru samþykkt löig,
sem fyrirskipuðu að hafa tvo
gúmbáta á bátunum. En þeir
athuguðu það ekki, þeir góðu
meiiin, að einn svonia bátur kost
ar þrjátíu þúsund krónur og
cg t. d. hef ekki haft cfnii á að
fá mér hann. Þess vegna hef
ég ekki getað fengið skoðun á
bátinn og þar af leiðandi ekki
fengið áhöfn skráða á ha,nn.
itÉ í>að'Wi ekki nóg að fyrirskápa
okkur á bátunum að gera hitt
og þettia, það verður líka að
gera okkur kleift að geta hlýtt
lögunum. Ég vil að það komi
fram, úr því að þú ert að spyrja
mig, að það verður að leyfa
okkur á trollbátunum að fiska
í landhelgi, að öðrum kosti
verðum váð að fara í land. Og
það þýðir ekki að segja okkur
að fara á Iínu, því að við fáum
cngan mannskap til þess.
Eg hef aldrej verið dæmdur
fyrir neitt í la.ndi. Og vegna
þess, sem ég hef að framan
sagt, tel ég rn'ig engan saka-
mann, þrátt fyriir þá dóma,
sem ég hef ferngið og kann að
fá fyrir þessi 'landhelgisbrot.
Ég er það ekki { mínum eigin
augum.
Blaðið spurði einniig Frey-
móð Þorstcinsson, fulltrúa
bæjarfógeta í Vestmannaeyj-
um, að því, hvort skipsskjölin
hefðu verið í lagi, þegar Sæ-
vialdur var tekinn í hin tvö
shiptin. Freymóður taldi að
það hefði ekki verið athugað.
Aftur góð
síld eystra
MB-Reykjavík, 12. febrúar.
Þejr eru aftur farnir að veiða
! síld fyrir austan. Einn bátur, Gull
faxi, fékk 1200 tunnur í fyrrinótt
og í nótt sem leið fengu 13 bátar
rúmlega 12 þúsund tunnur. Síld:
in er á líku svæði og áður, um
tuttugu mílur út af Ingólfshöfða,
í Skeiðarárdjúpi. Síldin, sem bát-
arnir fengu í nótt, var nokkuð
misjöfn, eitthvað af kræðu, en
einnig talsvert af ágætri síld. Fóru
flestir bátarnir inn til Vestmanna
eyja, en þar tóku togarar síld til
útflutnings.
Aflahæstur í nótt var Höfrung-
ur II frá Akranesi, hann fékk 2200
tunnur. í öðru sæti varð Víðir II
frá Garði með 1400, Gullborg frá
Vestmannaeyjum fékk 1200, Marz
FUNDURI F.U.F.
ALMENNUR félagsfundur verð-
ur haldinn í FUF í Reykjavík
föstudaginn 15. febniar, klukkan
8,30 í Tjamargötu 26. Fundarefni:
Kosning fulltrúa á flokksþingið. —
Einar Ágústsson, borgarfulHrúi,
flytur ræSu um væntanlegar kosn-
ingar í Reykjavík. — Stjómin.
REYKJAVÍK
FRAMSÓKNARFÉLAG Reykja-
víkur heldur fund í Framsóknar-
liúsinu miðvikudaginn 13. þ. m.
kl. 8,30. Fundarefni: Einar Ágústs
son sparisjóðsstjóri og Kristján
Thorlacius deildarstjóri flytja ræð-
ur- Kosuingar til flokksþings. J'jöl-
mennið'. — Stjómin.
fékk 1000, Hringver og Meta
fengu 900, Leó og Þráinn fengu
800, Ágúst 700, Reynir 650 og Víð
ir SU, Halkion og Káii fengu 600.
Sennilega verða ekki margir
bátar á miðunum í nótt, því að
löndun verður ekki lokið nógu
snemma úr þessum bátum. Þó
munu einir sex bátar, þrír frá
Keflavík og þrír frá Vestmanna-
eyjum verða á miðunum og e. t. v.
Gullfaxi. Reykjavíkurbátar lögðu
einhverjir af stað í kvöld en kom
ast ekki á miðin fyrr en annað
kvöld.
Hásetinn fór til
Keflavíkur
BÓ—Reykjavík, 12. febr.
Hásetinn sem strauk af danska
fiutningaskipinu Erik Siv, gaf sig
fram í Keflavík á mánudaginn.
Hann kvað sér ókunnugt um þjófn
aðinn á skipinu, og hefur ekkert
komið fram, sem bendir frekar til,
að maðurinn sé við hann riðinn.
ÁRSHÁTÍÐ
Aramgurslaus
sáttafundur
IGÞ-Reykjavík, 12. febr.
í dag hélt sáttasemjari
fund með fulltrúum ríkis-
stjórnarinnar og B.S.R.B. Á
fundinum náðist ekkert sam
komulag Annar fundur hef-
ur verið boðaður á morgun
kl. 5 síðdegis.
Launamálanefnd B.S.R.B.
kom saman til fundar í
kvöld til að ræða viðhorfin
nú, þegar ríkisstj. hefur birt
till. sínar. Nefndin hefur
,,kki komið saman til fundar
dðan þær voru b'rtar.
FRAMSÓKNARFELOGIN í
Reykjavík halda árshátíð sína
föstudaginn 22. febrúar næstkom-
andi. — Ársliátíðin verður hald-
in í Glaumbæ. Til hennar verður
vandað sem bczt og verði stillt
í hóf. Munið: Árshátíðin verð’ur
22. febráar.
Framsóknarkonur
FÉLAG FRAMSÓKNARKVENNA
heldur skemmtlfund fimmtudag-
inn 14. febrúar kl. 8,30 í Tjarnar-
götu 26. Spiluð verður Framsókn-
arvist og fleirl skemmtiatriði
verða. Konur, fjölmennið og tak-
ið með' ykkur gesti. Upplýsingar
eru gefnar í símum 1 55 64 og
1 29 42. — Skemintinefndin.
REYKJANES
AUKAKJÖRDÆMISÞING Fram-
sóknarmanna í Reykjaneskjör-
dæmi verður lialdið sunnudaginn
17. febrúar n. k. kl. 14 að Tjarnar-
götu 26 í Reykjavík. Dagskrá: 1)
Jón Skaftason alþingismaður flyt-
ur ræðu um stjórnmálaviðhorfið.
2) Ákveð'lð framboð við alþingis-
kosnlngarnar 1963. 3) Önnur mál.
— Rétt til setu á þinginu hafa
þeir sömu, er sátu kjördæmisþing-
ið í október síðastliðnum.
Dólgurinn enn
BÓ—Reykjavík, 12. febr.
S.l. mánudagskvöld var ráðizt á
konu í Norðurmýri. Árásarmaður-
mn þreif til bennar og hljóp síð-
an brott. Lögreglan leitaði hans
í nágrenninu lengi frameftir, en
árangurslaust. Talið er, að þar hafi
margnefndur dólgur verið á ferð
og horfið jafn gjörsamlega og fyrr,
undarlegur fjandi.
Allir vongóöir
(Framhald ai 3 síðu)
afnám tilraunanna. En hann kvað
Vesturveldin vera óróleg vegna
þeirrar afstöðu Sovétríkjanna að
vilja ekki samþykkja nema þrjár
eftirlitsferðir árlega, auk þriggja
ómannaðra eftirlitSstöðVa. Hann
sagði, að ógerlegt yrði að ná sam-
komulagi um eftirlitið, nema það
lægi Ijóst fyrir, hvernig eftirlit-
inu skyldi háttað, úr hvaða lönd-
um eftirlitsmennirnir ættu að
vera, og hvar og hvenær eftirlit
skyldi fara fram. Hann kvað all-
ar tillögur Bandaríkjanna um
þetta efni liggja fyrir og hafa
verið birtar Sovétstjórninni, en
hingað til hafi hún neitað að ræða
þær.
Frá Washington segir NTB, að
Kennedy forseti hafi f dag sagt,
að útlitið fyrir að samkomulag
geti náðst um bann við kjarnorku
tilraunum sé nú betra en áður,
jafnvel þótt enn séu mörg vanda-
mál óleyst í því sambandi. Kenn-
edy sagðist því binda miklar von-
ir við það starf, sem fulltrúai
landanna 17 hefðu hafið að nýju
í Genf í dag. Hann sagði, að erfið
leikana á að ná samkomulagi
mætti yfirvinna, ef allir aðilar
sýndu sannan vilja til samkomu-
lags og samninga. Útlitið kvað
hann hafa batnað mikið við, að
Sovétríkin féllust á eftirlit f des-
embermánuði síðast liðnum.
Innilega þakka ég öllum vinum og vandamönnum,
nær og fjær, sem heiðruSu mig á sjötugsafmæli mínu
23. janúar s.l., með heimsóknum, gjöfum og heillaskeyt-
um.
Guðsblessun fylgi ykkur öllum.
Emil Jóhann Árnason,
Blöndugerði.
T í M I N N, miðvikudagur 13. febrúar 1963.
15