Tíminn - 11.04.1963, Qupperneq 24

Tíminn - 11.04.1963, Qupperneq 24
Fimmtudagur 11. apríl 1963 86. tbl. 47. árg. GÆJAR, PÆJUR, KÓK OG GÚM JARPGAS I FLJÓTSDAL ES-Egilsstöðum, 10. apríl. Ljóst er nú, að jarðgas finnst víðai' hér fyrir auistan en úti í Lag arfljóti sjálfu og hefur það nú fundizt uppi í Fljótsdal á allmörg um stöðum. Telja kunnugir ekki ósennilegt, að það finnist upp eft ir öi'lum Fljótsd'al. Kunnugt er nú um, að það er að finna á svokölluðum Gilsáreyr- um, sem eru skammt utan við Hrafnkelsstaði, á árbökkum Jökuls ár undan Hrafnkelsstöðum og á Bessastaðanesi við Bessastaðaá. Alls staðar eru þarna pollar, sem loftbólur stíga upp í og fyrir skömmu söfnuðu menn sliku gasi í flösku á Bessastaðanesinu og höfðu heim með sér. . AKRANES FRAMSÓKNARFÉLAG Akraness heldur skemmtisamkomu í félags- heimili sínu, Sunnubraut 21, annan páskadag, kl. 8,30. Spiluð verður Framsóknarvist og sýndar kvik- myndir. ASgöngumiðasala við Inn- ganglnn. Öllum heimill aðgangur. AKRANES AÐALFUNDUR Framsóknarfélags Akraness verður haldinn í félags- heimili Framsóknarmanna að Sunnu braut 21 þriðjudaglnn 16. aprfl kl. 8,30. Á dagskrá eru venjuleg aðal- fundarstörf og ýmis áríðandi flokks málefnl. Settu þeir mjóa pípu í stút flösk unnar og báru eld að. Logaði þá á pípunni í einar þrjár mínútur. Leikur því enginn vafi á því, að þarna er um eldfimt gas að ræða. FLOKKSÞING 13. FLOKKSÞING Framsóknar- manna hefst í Reykjavík, sunnu- j daginn 21. apríl n. k. kl. 1,30 e.h. Allir fundir flokksþingsitis verða haldnir í súlnasalnum í Bændahöllinni. Formenn félaganna eru áminnt- ir að tilkynna eigii síðar en n. k. þriðjudag hverjlr mæti sem full- trúar frá viðkomandi félagi. Aðgöngumiðar fyrir gesti verða afhentiir á skrifstofu flokksins, Tiamargötu 26, þriðjudag, miðviku dag og fiinmtudag eftir páska. FRUMSYNINGUM fer að fækka hér í borg á þessu leikárl. Sú næsta verður um aðra helgi. Þá flýtur Grfma þrjá einþáttunga eftir Odd'Björnsson, svo sem frá var sagt hér f blaölnu á dögun- um. G. E Ijósmyndari Tfmans skrapp á æfingu í gærkvöldi og tók þessa mynd af atriðl elns þáttarins Sá nefnist „Partf" og gerlst á 17. hæð f skýjakljúf hér í borg. Pæjan fremst á mynd- innt er lelkin af Ásthlldi Gfsla- dóttur, og Gæjann, sem situr of- an á henni, leikur Sigurður Skúlason. Hlufverk í par+fi eru annars ellefu, og leikstjóri er Glsli Alfreðsson. Helgl Skúlason stjórnar hinum tveim leikþáttun- um, sem helta Kóngulóin og Við lestur framhaldssögunnar. Brann til kaldra kola GG-Hjarðarfelli, 10. apríl. íbúðarhúsið á Sviarfhóli í Mikla holtshrcppi brann tll kaldra kola í mongun. Svarfhóll er næst aust- asti bær hreppsins «g austaisti bær inn við fjallgarðinn. Þar búa hjón in Krlstinn Sigurvinsson og Guð- I björg Magnúsdóttir. Voru þau tvö heima, en börn þeirra eru þrjú. Var hi'ð yngsta þeirra í skóla, en tvö hi,n eldri í vinnu. Þau hjónin voru í morgun úti 65 ára á morgun 65 ára verður á morgun, 12. apríl, elzti starfsmaður Tímans, Valdimar Guðmundsson, prent- ari. í þessum mánuði eru lið- in 43 ár síðan Valdimar hóf störf við Tímann og enn stend- ur hann við umbrotsborðið og lætur engan bilbug á sér finna. Valdiinar er fæddur á Hnit- björgum í Jökulsárhlíð 1898. Hann lærði prentiðn á Seyðis- firði en kom að námi loknu hingað . suður til Reykjavíkur og hefur átt hér heima síðan. Kvæntur er Valdimar Vilborgu Þórðardóttur, hinni ágætustu konu, og eiga þau tvo syni, Þórð, bjóðréttarfræðing, og Sverri, prentsmiðjueiganda í Hafnarfirði. Tíminn sendir Valdimar hugheilustu kveðjur og árnaðar óskir á þessum 'tímamótum. VALDIMAR GUÐMUNDSSON við morgunverk. Er þau komu heim, var eldur laus í kjallara hússins, sem er steinsteyptur. Þá var kíukkan nálægt ellefu í morg un. Þau hringdu þegar á næstu bæi og dreif að fólk á örskammri stundu en ekki varð við neitt ráð- ið. Húsið var timburhús, ein hæð og ris, fyrir utan kjalLarann, er fyrr er nefndur. Hvassviðri var á og því erfitt um slökkvistarf. Húsið stendur á allháum hól og því einnig erfitt með vatn og ofan á allt annað bættist svo mikið frost, að vatn fraus í leiðslum. Verja tókst fjós og hlöðu, er voru áföst við íbúðarhúsið, veðurmegin. Nokkru tókst einnig að bjarga af innbúí, þar á meðal voru mörg listaverk eftir Tryggva heitinn Magnússon, listmálara, en Guðbjörg var syst- ir hans. Munu þau flest hafa bjargazt, en um skemmdir á þeim er mér ekki kunnugt. Húsið var tryggt, en innbú mun hafa verið lágt vátryggt. HRAKNINGAR UM NOTT í SIGLUFJARÐARSKARÐ/ HRT-Haganesvík, 10. apríl Sex menn héðan úr Fljótum bvutust upp í Siglufjarðarskarð í nótt í foraðsveðri til að bjarga þaðan hjóuum og tveimur ung- börnum, er voru þar föst í bO sín- um. Tókst ferðin giftusamlega, þrátt fyrir fannkomu, frost og veð- uiofsa, svo að tæplega sá út úr augum. Rétt fyrir hádegið í gær gerði hér slydduél og gekk síðan í norð- an foraðshríð um hádegið. Siglu- fjarðarskarð lokaðist um hádegið. Ilafði það þá verið opið í nokkrar klukkustundir eftir snjómokstur- inn. Tveir bílar fóru héðan úr Fljótunum til Siglufjarðar fyrir húdegið með fólk, er ætlaði að horfa á íslandsmótið á skíðum. Annar bíllinn brauzt til baka, en hinn tepptist á Siglufirði. Síðasti billinn, er reyndi að brjótast suð- ur. var jeppi frá Siglufirði. í bíl þessum var Gunnlaugur Haralds- son frá Siglufirði ásamt konu sinni og tveimur börnum þeirra 3 og 4 ára, og var með þeim annar karlmaður. Er jeppinn var kominn yfirj skarðið, að svonefndum Skarðs-! hól, varð ekki lengra komizt j vegna snjókomu og illveðurs, og | fór því maðurinn, er með Gunn-1 laugi var, af stað fótgangandi yfir Skarðið, en þeir félagar vissu af 2 mönnum frá vegagerðinni, sem bomnir voru upp í dalbotn, Siglu- fjarðarmegin, og ætluðu að sækja þangað tvær jarðýtur og flytja þær til Siglufjarðar. Ekki var unnt að koma ýtunum yfir Skarðið til hjálpar bílnum, vegna snjóblindu og fannkomu. Var talið ófært að reyna að koma fclkinu til hjálpar Siglufjarðar- megin og var haft samband við Gisla Felixson, yfirverkstjóra hjá Vegagerðinni, en hann var stadd- ui hér í Fljótunum, og var reynt að brjótast á stórum bíl með drifi á öllum hjólum upp hérna megin frá. En vegna ófærðarinn- ar varð þessi bíll frá að hverfa. Lögðu þá þrír vaskir menn af stað gangandi héðan, þeir Alfreð Hallgrímsson Lambanes-Reykj- um, Ríkharður Jónsson, Brúna- stöðum og Stefán Steingrímsson, Stórholti. Var klukkan þá hálf níu í gærkvöldi. Má það teljast þrek- virki, að leggja út í slíkan veður- efsa, þar eð tæplega sá út úr aug- um. En þeir brutust áfram og komust að bílnum um miðnætti. Leið fólkinu í bílnum þá eftir at- vikum vel. Hafði það getað látið bilinn ganga allan daginn og haft nokkurn hita Klukkan hálf tólf í nótt lögðu svo aðrir þrtr menn upp héðan til Ljálpar. Voru það þeir Jón Sig- 'trðsson, Minna-Holti, Ormar Jóns- son, Helgustöðum og Þór Jónsson, Saurbæ. Þerr fórust á mis við fyrri leiðangurinn. Munu hinir seinni hafa þrætt veginn en hinir eitt- hvað stytt sér leið með fólkið á leið til byggða. Fyrri hópurinn kom til byggða um klukkan hálf fjögur í nótt og líður þeim ágætlega nú. Síðari hópurinn kom nokkru síðar, enda munu þeir hafa farið alla leið að Wlnum, en snúið við, er þeir sáu, að fyrri hópurinn var kominn baneað as farinn.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.