Tíminn - 20.06.1963, Blaðsíða 5
RITSTJÓRI HALLUR SIMONARSON
Efsta og neðsta liðið í 1. deild
— Fram og KR — mætast í
fyrri umferðinni í íslandsmót-
inu í kvöld. Leikurinn fer fram
á Laugardalsvellinum og hefst
kl. 20,30.
Ef að líkum lætur ætti leik-
arinn í kvöld að verða baráttu-
lei'kur. KR-ingar hafa örugglega
fullan hug á að krækja í sin
fyrstu stig í mótinu, en tapi
þeir leiknum í kvöld, minnka
líkurnar óneitanlega fyrir því,
að KR eigi möguleika á efsta
sætinu. — Ekki er vitað hvern
ig KR-liðið verður skipað í
kvöld, en allar líkur eru á, að
Garðar Árnason leiki með lið-
inu og verður það þá fyrsti
meistaraflokksleikur hans á
þessu ári — og óefað verður
hann mikill styrkur eins og
endranær fyrir KR.
Það er líka mikið í húfi fyr-
ir Fram í kvöld. Fram hefur
tekið öiugga forustu í mótinu
og hlotið sex stig úr þremur
leikjum - og vinni Fram í
kvöld eru stigin orðin átta —
og þá er staða Fram í mótinu
orðin mjög sterk, en þess má
geta, að í fyrra vannst mótið á
13 stigum.
Lið Fram verður óbreytt frá
síðasta leik.
Spádómur Classi-
usar Clay rættist
Sigraði Henry Cooper i fimmtu lotu á Wembley
í fyrrakvöid eins og hann spáði fyrir leikinn.
Hin mjög svo umtalaða
hnefaleikakeppni milli banda
ríska Negrans Classiusar Clay
og Englendingsins Henry
Cooper fór fram á Wembley-
leikvanginum í Lundúnum í
fyrrakvöld að viðstöddum 35
þúsund áhorfendum, sem er
mesti fjöldi, sem horft hefur
á hnefaleikakeppni á Bret-
landseyjum í 30 ár. Spádóm-
ur Clay rættist, en hann hafði
sagt fyrir keppnina, að hann
myndi sigra í fimmtu lotu, en
dómarinn stöðvaði leikinn þá
vegna svöðusárs, sem Cooper
hafði hlotið yfir aðra auga-
brúnina, en blóðstraumurinn
lak niður um hann allan. —
Strax eftir leikinn bauð fram
kvæmdastjóri Sonny Liston
hinum unga Clay leik við List-
on um heimsmeistaratitilinn í
þungavigt, og tók Clay því
boði þó með því skilyrði, að
honum yrðu tryggðir miklir
peningar fyrir hann.
Leikur Cooper og Clay var allt
öðru vísi, en búizt var við fyrir-
íram. Englendingurinn byrjaði
með leiftursókn — alveg öfugt við
það, sem hann er vanur, en hann
er mjög varkár hnefaleikamaður,
sem virtist setja Clay úr jafnvægi
og átti hann í vök að verjast alla
iotuna, og einnig í annarri lotu.
í þriðju lotu náði hann sér hins
vegar talsvert á strik, en það var
þó lítið upp í þau mörgu stig, sem
Cooper hafði skorað framan af.
Clay heppnaðist þó að koma þungu
Framhald á 15 slðu.
6533
Dregið hefur verið hjá Borgar-
fógeta í bílhappdrætti skíðadeild-
ar ÍR, og upp kom nr. 6533.
Handhafi vinningsnúmersins
fær vinninginn, sem er bifreið,
Renault R8, afhentan hjá formanni
hkíðadeildai ÍR Þóri Lárussyni,
Grenimel 31.
FIBA er eitt fjölmennasta
íþróttasamband heims
Á 17. júní-mótinu á Laugar-
dalsvellinum á mánudaginn, af-
hentu þeir Gísli Halldórsson,
forseti ÍSÍ, og Jens Guðbjörns-
son, fyrstu íþróttamerki ÍSÍ.
— Og það var unglingalands-
liðið í körfuknattleik, sem fyrst
vann tii merkjanna, en það
æfir um þessar mundir fyrir
Evrópukeppni unglinga í körfu
knattleik, sem fram fer í París
í september n.k. Til þess að
öðlast íþróttamerki ÍSÍ þarf að
j vinna iágmarksafrek í ýmsum
J íþróttagreinum — taka þátt í
i kappl'eik — og fleira, t.d. getur
í' einn liðurinn verið að synda
200 metrana. — Ættu íþrótta-
flokkar og einstaklingar, að
taka hina ungu körfuknattleiks
menn tU fyrirmyndar og vinna
til merkjanna.
Myndina að ofan tók Sveinn
Þormóðsson og er hún frá af-
hendingunni. Talið frá vinstri:
Gísli Halldórsson, forseti ÍSÍ,
Jens Guðbjörnsson, form.
merkjan. ÍSÍ, Kristján Steins-
son, Kolbeinn Pálsson, Jón
Jónasson, Gunnar Gunnarsson,
Tómas Zoega, Þorsteinn Ólafs-
son. Donald Ráder, Hjörtur
Hansson, Anton Bjarnason.
Agnar Friðriksson, Kristinn
Stefánsson og Sigurður Ing-
ólfsson.
Fundur miöstjórnar Alþjóða
körfuknattleikssambandsins,
FIBA, var haldinn í Rio de
Janeiro dagana 16.—18. maí
s.l. Samkvæmt skýrslu aðal-
ritarans Mr. Williams Jones,
voru meðlimir FIBA á þinginu
í Róm árið 1960, samtals 86,
en eru nú orðnir samtals 109.
Mun FIBA því orðið eitthvert
fjölmennasta íþróttasamband
i í heiminum í dag.
Samþykkt vai: á þinginu að
Körfuknattleikissamband Filipps-
eyja, greiði 2000 dollara í sekt,
vegna þess að nokkrum keppend-
um í heimsmeistarakeppni í körfu
knattleik, sem átti að fara fram í
Manilla, vai neitað um vegahréfs-
áritun. Flytja varð mótið til Rio
de Janeiro
Þátttökurétt í körfuknattleik á
Jlympíuleikunum í Tokyo hafa eft
írtalin körfuknattleikssambönd.
Bandaríkin, Sovétríkin, Brazilía.
Ítalía, Tékkóslóvakía. Júgóslavía,
Pólland og Uruguay. Enn fremur
I Japan, sem heldur leikina.
I Þátttökurétt með sérstakri keppni
fá eftirtalin lið: Úr Pan-American-
leikjunum 1963 — Puerto Rico og
Peru — tvö efstu liðin úr keppni
Evrópuliða, sem haldin verður
snemma á árinu 1964 og sigurveg-
ari úr II. meistarakeppni Afríku,
Framhald á IS. síSu.
Námskeiö
dómara og
þjálfara
Tilkynning hefir borizt frá Körfu
knattleikssambandi Svíþjóðar, um
tvö námskeið, sem körfuknattleiks
menn frá íslandi hafa aðgang að.
1. Námskeið fyrir dómara, 1. fl.,
dagana 18.—22. ágúst n.k.
2. Námskeið fyrir þjálfara, 1. fl.,
dagana 18.—24. ágúst n.k.
Bæði námskeiðin verða haldin
pð íþróttaskólanum Bosön, Liding-
c skammt frá Stokkhólmi.
í samræmi við samþykkt Körfu
knattleiksráði Norðurlanda, þá er
einum þátttakanda frá íslandi boð
•ð frítt uppihald á hvort námskeið.
Umsóknir skulu sendar til stjórn
ai KKÍ, sem fyrst og ekki síðar
t-n fyrir n.k. mánaðamót.
Fram sigraði
Val M.fl.
í fyrrakvöld fór fram fyrsti
leikurinn í miðsumarsmóti 1.
flokks í knattspyrnu og mætt-
ust Fram og Valur. — Fram
bar sigur úr býtum, skoraði 3
mörk gegn engu Valsmanna
og voru öll mörkin skoruð í
fyrri hálfleik.
Frá lelk Vestmannaeyinga og Akurneslnga s.l. mánudag. Vestmannaey-
ingar komu á óvart og sigruðu með 4:1, — og verður það að teljast all
góð byrjun hjá 2. deildar liði. (Ljósm.: H. E.)
T í M I N N, fimmtudagurinn 20. júní 1963.
5