Tíminn - 20.06.1963, Blaðsíða 6
Uppeldismáíaþing samþykkti
ai auka starfræna kennslu
KHrEjeykjavík, 19. júní.
Á þrettánda uppeldismálaþing-
inu, sem haldið var í Melaskólan-
um 15. og 16. júní s.l., var m.a.
samþykkt, að auba bæri starfræna
kcnnslu í barna og Knglinigaskól-
um landsins. Sýning, í umsjá
Gunnars M. Maignúss, á starfræn-
um vinnubrögðum baraa í sögu,
landafræði og náttúrufræði, vakti
mikla athygii þinigmianna og gesta,
sem skoðuðu sýninguna 17. júní.
Þing þetta var eitt hið fjöl-
mennasta, sem haldið hefur verið,
en þátttakendur munu hafa verið
um 200. Voru cnargar og merki-
legar till'ögur ræddar og samþykkt
ar, og umræður miklar og fjör-
ugar. *
Skúli Þorsteinsson, formaður
S.Í.B. setti þingið kl. 10 á laugar-
dag. Ávarp flutti dr. Gylfi Þ. Gísla
son, menntamálaráðherra, og síð-
an flutti dr. Broddi Jóhannesson,
skólastjóri, fyrirlestur um uppeldi
og fræðslu.
Helztu mál, sem rædd voru á
þinginu, voru starfræn kennsla,
sem Marinó Stefánsson, kennari,
hafði framsögu um, Magnús Gísla-
son, námsstjóri, ræddi um leng-
ingu á starfstíma skólanna, Árni
Þórðarson, skólastjóri, stjórnaði
umræðufundi sex skótamanna
um félagsstarf í skólum,1 en auk
þess voru frjálsar umræður um
efnið.
Af samþykktum, sem gerðar
voru á þinginu, má nefna, að sam
þykkt var að leggja sérstaka á-
herzlu á hinn uppeldislega þátt
skólanna, og í því sambandi var
samþykkt að auka starfræna
kennslu, sem talin er hafa mjög
mikið gildi, bæði fræðslulegt og
uppeldislegt. Einnig var samþykkt
að auka félagsstarfsemi barna,
bæði í námi og leik. Þá voru og
gerðar tillögur um handbók fyrir
kennara tornæmra barna.
í sambandi við þingið var sýn-
ing á starfrænum vinnubrögðum
nemenda í gagnfræða- og barna-
skólum í Reykjavík og Akureyri
í sögu, landafræði og náttúru-
fræði. Gunnar M. Magnúss ann-
aðist val verkanna og uppsetn-
ingu sýningarinnar. Vakti hún
mikla athygli allra, sem skoðuðu
hana.
Þinginu var slitið kl. 20 16. júní
af Friðbirni Benónýssyni, for-
manni L.S.F.K.
Myndirriar: Á stærri myndinni
sér yfir salinn í Melaskólanum,
þegar þingið var sett. Á myndinni
hér til hliðar sést eitt verkefnið á
sýningunni: „Fjaran er auðug af
gersemum“, úr fjöruferð 12 ára
barna. (Ljósm. Tíminn GE).
Vígöur vísibiskup Færeyja
Aðils-Kaupmannahöfn, 18. júní I ur vfsibiskup Færeyja, Jacob J0n-
Sunnudaginn 16. júni var vígð-1 sen, f dómkirkjunni í Kaupmanna-
JÚNÍBÓK AB
Um opnun drag-
nótaveiðisvæða
Út er komin bók hjá AB fyrir
júnímánuð, INDLAND eftir Joe
David Brown í þýðingu Gísla Ól-
afssonar. Er þetta 6. bók félagsins
i bókaflokknum „Lönd og þjóðir“.
Gefst hér kostur á yfirliti um
land og þjóg og er lögð áherzla
á stöðu Indlands í dag og hina öru
þróun sem þar hefur orðið eftir
frelsistöku landsins, og eru sér
stakir kaflar helgaðir leiðtogum
Indverja á þessari öld, Gandhí og
Nehrú. í öðrum köflum er m. a.
rætt um hina fornu menningu
Indverja og andlega arfleifð, trú
heimspeki og listir.
Höfundurinn, Joe David Brown
starfaði um árabil sem fréttamað-
ur Time og Life i Nýju Delhí og
kynntist þá landi og þjóð. Frásögn
hans fylgja á annan hundrað val-
inna níynda.
höfn. Meðal viðstaddra var bisk-
upinn yflir íslandi, herra Sigur-
björa Einarsson.
Fyrir siðaskiptin höfðu Færey-
ir.gar sinn eigin biskup, og eru
þekkt nöfn alls 30 biskupa, sem þar
sátu. Eftir siðaskiptin fengu Fær-
eyingar sinn fyrsta lútherska bisk
up, eða vísibiskup, Jens Riber, en
u. þ. b. fjórar aldir upp frá því
hafa Færeyingar engan biskup
haft. Færeyski vísibiskupinn, Jac-
ob Jþnsen, sem einnig er prófastur
Færeyja, hefur samtals ellefu
prestaköll .' sinni umsjá með alls
35 þúsund sóknarbömum.
Herra Sigurbjörn Einarsson var
emnig viðstaddur hátíðasamkomu
íslendingafélagsins í Höfn í gær.
Þar flutti hann hátíðaræðu.
Ráðuneytið hefur samkvæmt
lögum nr. 40/1960 um takmark-
aðar dragnótaveiðar undir visinda
legu eftirliti, leitað álits aðilá, sem
hlut eiga að máli um opnun drag-
nótarveiðisvæða. Að fengnum um-
sögnum hefur ráðuneytið ákveðið
opnun veiðisvæða sem hér segir:
1. Svæðið út af Seyðisfirði.
2. Svæðið frá Norðfjararnípu, suð-
ur fyrir Fáskrúðsfjörð.
3. Frá Papey vestur fyrir Þorláks-
höfn.
4. Frá hólmanum Einbúa í Ósum,
sunnan Sandgerðis, norður fyrir
Arnarfjörð.
Dragnótaveiðar munu þó bann-
aðar innfjarða samkvæmt nánari
ákvæðum í leyfisbréfi.
í Faxaflóa takmarkast veiði-
svæðið þannig:
1. Úr Garðskagavita um punktinn
64° 8’n.br. 22° 42’v.l. í Gerðis-
tangavita.
2. Úr Hólmsbergsvita um bauju
nr. 6 í Faxaflóa f Kirkjuhólsvita.
Veiðarnar munu geta hafizt 18.
þ.m.
Sjávarútvegsmálaráðuneytið,
14. júní 1963.
6
T í M I N N, fimmtudagurinn 20. júní 1963.