Tíminn - 28.06.1963, Page 6
MINNING
Sveinn Árngrímsson
frá Hofstaöaseli
Þann 7. marz s.l. andaðist á
Sauðárkróki Sveinn Arngrímsson,
fyrrum bóndi í Hofsstaðaseli. Það
hefur dregizt hjá mér lengur en
skyldi, að minnast þessa gamla
sveitunga og mœta manns með
nokkrum orðum.
Sveinn Arngrímsson var fæddur
19. júlí 1885 að Bjarnargili í Fljót-
um. Voru toreiarar nans hjónin
Arngrímur Sveinsson og Ástríður
Sigurðardóttir, er síðar bjuggu
lengi að Gili í Fljótum, og er stór
ættbogi frá þeim kominn.
Sveinn mun hafa farið frá for-
eldrum sínum um fermingarald-
ur. Var hann á unglingsárunum
lengst af á Brúnastöðum í Fljót-
um hjá þeim hjónum Sigríði Pét-
ursdóttur og Jóni Jónssyni, er þar
bjuggu lengi. Á þeim árum var og
Sveinn við smíðanám á Sauðár-
króki og á Sigiufirði. Þótti hann
snemma duglegur og kappsamur.
23. júlí 1909 kvæntist Sveinn
eftirlifandi konu sinni Guðrúnu
Jónsdóttir frá Brúnastöðum.
Fékk hann þar góðan lífsförunaut,
er studdi hann jafnan með ráðum
og dáð. Er Guðrún bæði gáfuð
og frábær að dugnaði, svo sem
hún á kyn til.
Þau Sveinn og Guðrún reistu
bú á Brúnastöðum árið 1910 og
bjuggu þar myndarbúi óslitið í
18 ár. Var' Sveinn framfaramaður
í búskap eftir því sem þá gerðist.
Mun hann t.d. hafa komið með
fyrstu sláttuvél í Fljót, og ýmsar
aðrar nýjungar tók hann upp í
búskap sínum. Samhliða búskapn-
um stundaði Sveinn talsvert smíð-
ar.
Heimili þeirra Sveins og Guð-
rúnar á Brúnastöðum var oftast
mannmargt. Þar var og gest-
kvaemt mjög, enda bærinn í þjóð-
braut, og bæði hjónin samhent
um gestrisni. Flest búskaparár
þeirra á Brúnastöðum var barna-
skóli sveitarinnar þar til húsa.
Það var auðvitað heimangöngu-
skóli og oftast nær einnig kennt
annars staðar í sveitinni. Má
nærri geta, hvílíkur átroðningur
þa'fr þefþr'Iyeiíjí‘'^,^etmiljnu. ÞarJvg Vorið. 1947.-þrugðu -þav^ hjón
Anna Jónsdóttir og
Biörn Jónatansson
Fyrir 30 árum bar hingað til
Breiðafjarðar mann á sextugs-
aldri. Verið hafði hann sjómaður
megin hluta ævi sinnar hérlendis
og erlendis. Maður þessi hét Björn
og var Jónatansson, skagfirzkur
að ætt og uppruna. Nú hugði
hann af sjómennskunni og keypti
veitingahúsið í Stykkishólmi, sett
ist þar að og rak það á milli 10
og 20 ár. Menn höfðu hver af
öðrum rekið þetta hús og allir gef-
izt upp vegna taps á rekstrinum.
Björn Jónatansson tapaði aldrei
á neinu, sem hann hafði með
höndum. Hann hafði alizt'upp hjá
vandalausum og ungur lært að
fara hyggilega með þá aura, sem
honum áskotnuðust.
Nú eru tímar breyttir og fé yfir
leitt lausara í hendi en var um
aldamót. Enda virðist nú auð-
veldara að afla þess.
Kona Björns var Anna Jóns-
dóttir, húnvetnsk að uppruna. Þau
áttu ekki barn, en unglingar —
einkum frændlið hennar — dvöldu
lengur og skemur á heimilinu.
Slúlku eina ólu þau upp allt til
giftingar.
Þegar þeim gömlu hjónunum
hnignaði heilsa, hættu þau veit-
ingarekstri en ráku smásölubúð.
Anna lézt 23/6 ’62, þá um 79
ára, fædd 21/10 ’83. Lifðí síðustu
árin við örkuml af slæmu bein-
broti.
Björn var fæddur 15/9 '81; dó
23/2 ’63. Hafði þá um skeið verið
blindur og hættur störfum.
Jónas Jólvannsson,
Öxney.
gekk ég í minn barnaskóla. Á ég
margar góðar minningar frá þeim
árum, þó að skilyrði til skólahalds
væru óneitanlega að ýmsu leyti
frumstæð. En kennslan reyndist
samt furðu haldgóð. Þá má og
geta þess, að ungmennafélag sveit
arinnar átti um langt skeið at-
hvarf á heimili þeirra Sveins og
Guðrúnar á Brúnastöðum. Þar
hélt það fundi sína og samkomur.
Það stóðu því áreiðanlega margir
í þakkarskuld við heimili þerra
Sveins og Guðrúnar, og þá ekki
hvað sízt ungmenni sveitarinnar.
Þeirra hjóna var því áreiðanlega
saknað, er þau fluttu úr Fljótun-
um, en árið 1928 fluttu þau bú-
ferlum upp í Viðvíkursveit.
Bjuggu þau fyrst að Ásgeirs-
brekku en síðar að Hofsstaðaseli,
og voru síðan oft kennd við þann
bæ. Búskapur þeirra á báðmm
þessum jörðum mun hafa verið
með myndarskap, og komust þau
vel af efnalega, þó að fjölskyld-
an væri stór. Á búskaparárum
þeirra í Viðvíkursveit hafði ég
af þeim minni kynni en áður. En
það mun hafa verið um 1941, sem
ég heimsótti þau í Hofsstaðaseli.
Man ég vel, hve móttökurnar þar
voru hlýjar og hjartanlegar. Og
ekki spillti það til, er ég var sett-
ur upp á gæðing og Herjólfur
sonur þeirra fylgdi mér á hestum
alla leið út á Hofsós. En Sveinn
var hestamaður góður og átti jafn-
an góða hesta.
%
hÚL Tók Herjplfur ,sonur þeirra
þá við jörðinni, en þáu flúttu til
Sauðárkróks og áttu þar heima
síðan.
Sveinn og Guðrún eignuðust 9
börn. Dóu 3 þeirra í æsku en hin
6 eru á lífi, uppkomin og gift og
öll hin mannvænlegustu. Systur-
dóttur Sveins ólu þau upp að
mestu. Auk þess dvöldust fleiri
börn, bæði skyld og vandalaus,
hjá þeim um lengri eða skemmri
tíma.
Sveinn Arngrímsson var mynd-
arlegur maður og vel á sig kom-
inn. Hann var karlmenni og dugn-
aðarmaður hinn mesti, að hverju
sem hann gekk. Hann var skapstór
maður og örlyndur, og vildi ó-
gjarna láta hlut sinn við hverja
sem var að skipta. Hann hafði á-
kveðnar og fastmótaðar skoðanir,
og var algerlega laus við alla hálf-
velgju. Hann var örlátur og
manna fljótastur að rétta fram
hjálparhönd, þar sem þess þurfti
með. Hann var góður og fyrir-
hyggjusamur heimilisfaðir En
hann stóð heldur aldrej einn.
Hans góða kona var honum ómet-
anleg stoð allt til hinztu stundar.
Framhald á 15. síðu.
FARÞEGAFLUG-FLUGSKÓLI
1-8823
Atvinnurekendur:
Sparið tíma og peninga — lótiB okkur flytja
viBgerSarmenn ySor og varahluti, örugg
þjónusta.
FLUGSÝN
I. DEILD
Knattspyrnumót íslands
Laugardatsvöllur kl. 20,30.
KR — Akureyri
Dómari: Jörundur Þorsteinsson
Línuverðir: Karl Bergmann. Jón Friðsteinsson
Mótanefnd
LOKAÐ
VEGNA SUMARLEYFA
Vinnustofum vorum og skrifstofum verður iokað
vegna sumarleyfa frá 8.—27. júlí n.k.
Vinnuheimilið að Reykjalundi
Aðalsafnaðarfundur
Aðal-safnaðarfundur Kópavogssóknar verður hald-
inn eftir messu í Kópavogokirkju sunnudaginn 30.
júní kl. 2 e.h.
Safnaðarnefndin
UM FIOKKUN OG SOLU UILAR
Stuttu fyrir aðalfund SÍS á dög-
unum samþykkti stjórn Sambands
ins að fela framkvæmdastjóra bú-
vörudeildar að breyta þegar mati
á ull frá framleiðendum, þannig,
að óþarft væri að halda aðgreindri
ull frá hverjum einstökum inn-
leggjenda og yrði undinn bráður
bugur að því að kynna kaupfélög-
unum hinar nýju reglur, svo að
þær giltu við móttöku ullar á
þessu sumri.
Var þegar haít samráð við Stef-
án Aðalsleinsson yfirullarmats-
mann, sem mest var með í ráðuni
að útbúa flokkunarreglurnar, sem
gilt hafa fyrir ullarmóttökuna
1961 og 1962 og taldi hann ill-
framkvæmanlegt að semja nýjar
reglur fyrir ullarmóttökuna á yf-
irstandandi sumri, þar sem hún er
víða um það bil að hefjast.
Var því ákveðið að gera engar
breytingar á núgildandi mati að
sinni, en taka málið til gagngerðr
ar endurskoðunar með það fvrir
augum að koma á samræmdu, op-
inberu mati á óþveginni ull þegar
á næsta ári.
Heimsmarkaðsverð ullar hefur
verið hækkandi síðustu mánuðina
og er öll ull kaupfélaganna frá í
fyrra seld á hagstæðu verði, sern
gerir meira en skila bændum
grundvallarverði, og eru söluhorf-
ur góðar á nýju framleicslunni.
Agnar Tryggvason.
T I M I N N, föstudagurlnn 28. júní 1963.