Tíminn - 28.06.1963, Síða 9
Gjörbylting í byggingarstíl
höfuðborga um allan heim
HöfuSborgir um allan hefan eru
nú a3 brjótast undan okii íhalds-
seminnar í byggingarlist og skipu-
lagi miffborga sinna. Einhver fræg-
asti arkitekt nútímans, Frakkinn
Le Corbusier, á vafalaust mestan
þátt í þvi. Hann skipulagffi Candi-
garh, höfuffborg Punjab á Indlandi
á mjög sérstæffan og nýtízkulegan
hátt, sem vakti gífurlega athygli,
og varff þaff upphafiff aff þessarú
byltingu, sem nú breiffist út um
alian heimínn,
Víða eru þó hin gamalkunnu
stjómarráðshús með hvolfþakinu
látin halda sér, en í hverfum um-
hverfis þau rísa aðrar byggingar
•I tengslum við sjálft stjórnarráðið,
og byggingarstíll þeirra á að verða
í fyllsta samræmi við nútímann.
Þó er ekki þess að vænta, að þess-
um miklu byggingaráformum verði
lokið á næstu árum, heldur munu
líða allt að fimmtíu árum, þangað
lil sum þeirra koma í gagnið. —
Sums staðar eru byggingarfram-
kvæmdir þessar þegar hafnar, en
aðrar bíða síns tíma, þegar fjár-
ftamlög og allar aðrar aðstæður
leyfa. En öllum á að vera það sam
figinlegt, að í framtíðinni haldist
í hendur, hvað þetta snertir, stjóm
mál og listir, sem beri sem sterk-
astan svip af samtíðinni.
Hér birtast myndir af slíkum á-
formuðum ríkisbygaingahvarfum
'.veggja höfuðborga í Bandaríkj
unum, Trenton í New Jersey
(efri myndin) og Albany í New
York-ríki (neðri mynd).
New Jersey-ríki hefur ákveðið
að verja þrjátíu milljónum dollara
.til nýrra opinberfa bygginga í höf-
uðborginni Trenton. Þótt þær
verði í sama hverfi, verður hér
ekki einungis um að ræða stjórn-
arskrifstofubyggingar, heldur vís-
inda- og menntahallir. T. d. sjást
hér á efri myndinni líkön af þrem
siíkum nýtízku stórhýsum. Þar
eiga aff vera til húsa, talið frá v.:
Þjóðminjasafn ríkisins, þá bóka-
safn og stjörnuskoðunarhús yzt til
hægri. Byrjað var á þessari bygg-
ingaþrenningu s.l. haust og á að
verða lokið á næsta ári.
Það leynir sér ekki, eftir neðri
myndinni aff dæma, að höfuðborg-
in Albany í New York-ríki á að
fá nýjan svip áður en 20. öldinni
lýkur. Á 98 hektara svæði eiga að
rísa þessar tólf nýtízku stjórnar-
ráðs- og menntahallir. En því verð-
ur ekki lokið alveg á næstunni,
heldur eru 22 ár til stefnu, verk-
inu á að ljúka fyrir 1985, og áætl-
aður byggingarkostnaður er 250
milljónir dollara.
T í M I N N, föstudagurinn 28. júní 1963. —
9
-í“‘
J ; ;. .i i
V.
v *