Tíminn - 02.07.1963, Blaðsíða 2
DUX BRANN OG SOKK ÍHAFID
.' j íÆSSa/mt,iÉaM
MB-Reykjavík, 1. júlí.
Er skipverjar á Dux, KE 38,
sem var 54 rúmlesfia eikarbátur,
voru að taka inn trollið um 10
mílur NA af Eldey um hálf átta-
leytið á laugardagskvöldið, urðu
þeir skyindiilega varir við mikinn
eld í vélarrúmi bátsinis.
Eldurinn varð strax svo magnað-
ur, að ekki varð við neitt ráðið
og ekki var unnt að senda út hjálp
arbeiðni. Skipverjar reyndu að
ljúka við að 'hífa trollið, en er
lítið var ef'tir, urðu þeir einnig
að hætta við það og síðan yfir-
gefa bátinn. Þeim var fljótlega
bjargað um borð í aðra báta, sem
voru á veiðum á svipuðum slóðum
og Dux tekinn í tog inn til Sand-
gerðis. Þá kom Sæbjörg einnig
á vettvang og reyndu skipverjar
þar að slökkva eldinn, en árang-
urslaust. Er búið var að draga
bátinn inn undir innsiglinguna í
Sandgerði sökk hann þar á 11
faðma dýpi.
Við náðum tal af Guðmundi
Stéfánssyni, vélstjóra. Honum
sagðist svo frá: — Við vorum all-
ir Uppi, þegar við urðum varir
við mikinn eld í vélarrúmi báts-
ins. Við reyndum strax að slökkva
eldinn. Við höfðum þrjú hand-
slökkvitæki um borð, en reykur-
inn var orðinn svo mikill, að ekki
var viðlit að komast niður. Við
gátum ekki sent út hjálparbeiðni,
því að öryggi fyrir talstöðina var
í töflu niður í vélarrúmi og mun
hafa brunnið strax yfir. Við
reyndum að halda áfram að hífa,
en þegar við vorum komnir með
trollið á síðuna, brann reimin yf-
ir og við urðum að hætta. Eitt-
hvað þremur stundarfjórðungum
eftir að við urðum eldsins varir,
fórum við í gúmbátinn. Bæði var,
að ill'verandi var orðið í bátnum
fyrir eldi og reyk, og svo vorum
við með alla olíutanka fulla og
vorum hræddir við sprengingu.
Nærstaddir bátar sáu okkur fljót
Framhaid á 6. síðu.
MYNDIRNAR: Efst: Þa8 logar glaft
í stýrishúsi Duxins og reyk leggur
upp. Glöggt má sjá, hversu siginn
báturinn er orðinn. Næstefst: Ing.
ólfur kominn með Dux í tog og
heldur inn tii SandgerSis. Næst-
neSst: Sæbjörg er að koma á vett.
vang og siglir fulia ferð, með við-
búinn mannskap. Neðst: Sæbjörg
komin að hllð Duxins og farin að
dæb sjó á eldinn.
TÍMINN, þriðjudaginn 2. júlí 1963