Tíminn - 02.07.1963, Qupperneq 6
KÖLLUÐU HANA SÖLKU
(Framhald ai 9 síflu.i
þetta nauðsynlegt fyrir fiski-
fræðinga. En þetta er mjög
skemmtilegt og væri gaman,
ef slíkur klúbbur væri starf-
andi. hér.
— Hvaða rannsóknarefni
tókstu til prófs?
— Það var ormur, sem l'fir
á sandbotni í sjónum og nefn-
ist Lippobranchius jeffreseyii.
Þetta er nú ekki meira en
svona fjögurra sentimetra
dýr, en samt vann ég að rann-
sóknum á honum og ritgerð um
hann mestallan s. 1. vetur.
— Svo varst þú eitthvað til
sjós hér heima í sumarleyfum.
— Ég hef unnið á vegum
Fiskideildar hér og fór með
þeim í árlegan leiðangur kring-
um landið í fyrra á Maríu
Júlíu. Það var reglulega
skemmtileg ferð og þó að sum
ir séu ekki trúaðir á að hafa
kvenfólk með til sjós, voru
skipverjar mér ósköp góðir og
þökkuðu mér góða veðrið, sem
við fengum í ferðinni.
— Hvað gerðist skemmtileg-
ast í ferðinni?
— Mér þótti mjög spennandi
það verkefni, sem ég fékk, að
taka blóðsýnishorn úr þorski,
en það var gert að beiðni
dansks erfðafræðings, sem
fæst við rannsóknir á blóðflokk
um fiska, en það eru rannsókn
ir, sem fáir fást við. Þetta var
ekki alltaf svo fljótgert, þorsk-
urinn brauzt um á meðan ég
var að skera að hjartanu í hon-
um, og þaðan tók ég blóðið
með „pípettu“. Líka varð all-
mikill spenningur hjá okkur,
þegar við vorum einu sinni
stödd inni á Eyjafirði og troll-
ið festist í botninum, og þegar
það náðist upp, voru í því heit-
ir hverasteinar, sem benti til
þess, að þarna væri hver á botn
inum. Ég veit nú ekki enn,
hvað rannsóknir á því hafa leitt
í ljós.
— Hefurðu í hyggju að
halda áfram námi eða rann-
sóknum erlendis eða byrja
starf hér heima?
— Það er ekki ákveðið enn.
Meðan ég var úti, barst mér
boð um ókeypis skólavist í
bandarískum háskóla í Massa-
chusetts, ef ég kærði mig um
að halda þar áfram til doktors-
prófs og samhliða starf í rann
sóknastofu þar, en því boði
hef ég ekki enn tekið. Ég hefði
fremur kosið að komast strax
í starf hér heima. En það er
ekki enn komið svar við því.
BÁTUR BRENNUR
Framhald af 2 síðu.
lega og tveir þeirra komu um líkt
leyti til okkar, Ingólfur og Týr.
Við fórum fyrst allir yfir í Tý,
en síðan var afráðið að Ingólfur
reyndi að draga Dux til hafnar.
Helgi Kristófersson skipstjóri og
ég brutumst þá aftur yfir í Dux
til að höggva trollið frá, og ein-
mitt meðan við vorum að því
sprungu tveir tankar. Sprenging-
in var minni en við höfðum vænzt,
líklega af því, hve fullir tankarn-
ir voru. Síðan fórum við aftur yf-
ir í Ingólf, sem hélt með Dux
áleiðis til Sandgerðis. Klukkan
um hálf ellefu kom Sæbjörg svo
til aðstoðar og hóf þegar að dæla
sjó á bátinn, en ekki var þá viðlit
að fara um þorð. Var báturinn
þá þegar orðinn mjög siginn og
brunninn neðan þilja. Er við vor-
um komnir upp undir innsigling-
una í Sandgerði laust upp úr mið-
nætti sökk báturinn.
Dux, KE 38 var 54 tonna eikar-
bátur, smiðaður í Svíþjóð 1943.
Eigandi hans var Jóhann Guð-
jónsson í Keflavík, eri Einar Gísla
son í Sandgerði gerði hann út frá
miðjum nóvember s. L Skipstjórt
var Helgi Kristófersson í Sand-
gerði. Áhöfnin var sex manns.
KR—KEFLAVÍK
Framhald af 6. síðu.
gaf vel fyrir til Hólmberts, sem
spyrnti viðstöðulauist, en rétt yfir.
14. mín. Kjartan, markvörður
ÍBK, varði vel eftir gott færi Gunn
ars Felixsonar til að skora.
15. mín Mikil hætta við mark
Keflavíkur og úr þvögu hrekkur
knötturinn út fyrir endamörk.
18. mín Heimir, KR, bjargar
vel með góðu úthlaupi.
24. min. Geysileg hætta við KR-
markið, sem var gjargað á 11.
síundu.
25. mín. Karl Hermannsson,
ÍBK, skallar glæsilega að marki,
en rétt yfir pverslá. Þar skall hurð
aærri hælum.
30. mín. Dæmd aukaspyrna á
Keflavík við hægra vítateigshorn-
ið. Gunnar Guðmannsson spyrnti
vel fyrir til Ellerts, sem skallaði
óverjandi í mark. 1:0 fyrir KR.
32. mín Sigurþór útherji KR
iék skemmtilega fram hjá tveim-
ur Keflvíkingum og gaf vel fyrir
t'I Ellerts, sem spyrnti knettin-
um beint í fang markvarðar. Þarna
gat auðveldlega orðið mark.
35. mín. Kjartan markvöiður
hirðir knöttinn af tám Gunnars
F elixsonar
37. mín. Jón Ólafur á gott skot,
cn fram hjá.
40. mín Dæmt á meinta hendi
á markvörð Keflavíkur. Sigurþór
spymti vel fyrir til Sveins Jónsson
ar, sem skallaði í mark. Mér fannst
þetta strangur dómur, en leikur
inn vannst einmitt á þessu atriði.
2:0 fyrir KR.
Siðari hálfleikur var nær stanz
irus sókn af\hálfu Keflvíkinga að
undanteknum nokkmm snöggum
upphlaupum KR og í einu þessara
upphlaupa á 11. mín. gaf Garðar
vel inn fyrir til Ellerts, sem stöðv-
áði knöttinn á brjóstinu ög‘spymti
s>ðan föstu skoti, en ,knötturinn
small í þverslá. Þetta var eitt af
fáum skipíum, sem lánið lék við
Keflvíkinga í ieiknum. Á 30. mín.
meiddist Kari Hermannsson, inn-
herji ÍBK, og var borinn af velli,
-*n kom inn á aftur fimm mínút-
urn fyrir leikslok.
Á 32. mín. opnaði svo Hólmberc
vörn KR og gaf til Högna, sem
rtrax sendi til Jóns, hægri útherja
sem skoraði laglegt mark 2:1 fyr
ir KR. KR-ingar drógu nú innherj
ana aftur og vörðust hraustlega
og héldu bsðum stigunum, þvi
fJeiri urðu mörkin ekki.
Hjá KR voru beztir Heimir í
markinu, sem átti sinn bezta leik
* sumar, Garðar, sem var mjög
góður meðan úthaldið entist og
i framlínunni Ellert ásamt báðum
útherjunum. Sigurþóri og Theódór.
Hjá Keflaiík voru framverðirnir
þeztir með Sigurvin sem frískasta
rr.ann. f framlínunni var Högni
heztur og Karl sem innherji komst
vel frá leiknum. Dómari var Hann-
es Sigurðsson og áhorfendur marg-
:i. -
AKUREYRI—VALUR
Framhald af 6 síðu
liði á öðrum kantinum komst einn
inn fyrir Valsvörnina, en hitti ekki
knöttinn í opnu færi. Og lauk
hálfleiknum án þess að mark
væri skorað.
En það voru aðeins liðnar örfá-
ar mínútur af síðari hálfleik, þeg
ar fyrsta markið var skorað.
Haukur Jakobsson, sem nú lék
vinstri útherja, gaf vel fyrir mark
ið til Skúla Ágústssonar, sem þeg
ar skoraði með snöggri, hnitmið-
aðri spyrnu. Þegar líða tók á hálf
leikinn var sókn Vals þyngri, sem
stafaði nokkuð af því, að Kári
varð að yfirgefa völlinn um tíma
vegna meiðsla, en hann kom þó
fljótt inn á aftur.
En Valsmenn náðu að jafna,
Trúlotunarhringar
F'ljóT afgreiðsla
GUÐM ÞORSTfrlNSSON
gullsmiSur
Bankastræti 12
Sími 14007
þegar 30 mín. voru af hálfleikn-
um. Hinn ungi útherji Vals, Her-
mann Gunnarsson, fékk knöttinn
við vítateiginn, lék mjög skemmti
lega á tvo varnarleikmenn og
skoraði með föstu skoti óverjandi
fyrir Einar.
Markið hleypti hörku í Akur-
eyringa, sem ekki voru á því að
gefa stig á heimavelli og tvívegis
tókst varnarleikmönnum Vals að
bjarga á síðustu stundu, eftir að
miðjutríóið hafði leikið skemmti-
lega saman. En hins vegar réði
vörnin ekki við góða fyrirgjöf frá
Hauki til Kára, sem skallaði knött
inn mjög skemmtilega í mark.
Fleiri urðu mörkin ekki, en Val
ur fékk þó eitt bezta tækifærið
til að j;.fna rétt fyrir leikslokin.
Steingrímur og Bergsteinn kom-
ust báðir inn fyrir vörn Akureyr-
inga og var Einar einn til varnar,
en knötturinn vafðist eitthvað
fyrir Valsmönnunum og tókst
Einari að kasta sér og ná honum.
Gott hjá Einari, en hins vegar
mikill klaufaskapur hjá þeim
Bþrgsteini og, Steingrími að geta
ekki le&ið á' markmanhinn í sam
eíriingu. Dómari I leiknum var
Carl Bergmann, Fram.
íhróttir
Agnar Levl, í, 15:22,4
ísland 3 — Danmörk 8.
Langstökk:
Úlfar Teitsson, í, 6,97
Jens Petersen, D, 6,90
Einar Frknannsson, í, 6,81
Ulrih Friborg, D, 6,55
fsland 7 — Danmörk 4
Rringlukast:
Kay Andersen, D, 46.60
Hallgrímur Jónsson í 45.58
Þorsteinn Löve, fs. 44.80
Jörgen M Plum, D 44,30
ísland 5 — Danmörk 6
Stangarstökk:
Valbjörn Þorláksson, í, 4,00
Jórgen Jensen, D 3,90
R Larsen, D 3.30
Páll Eiríksson, í 3,60
ísland 6 — Danmörk 5
4x100 m. boðhlaup:
1 Danmörk 42,2
2. ísland 44.0
ísland 2 — Danmörk 5.
FRAM—AKRANES
Framhald al 6 síéu
ur er sagt frá, dró máttinn úr
Skagamönnum og síðustu mínút-
ur leiksins höfðu Framarar yfir-
höndina.
Samspil var mjög í molum hjá
báðum liðum, en bezti samleiks-
kaflinn var í byrjun seinni hálf-
leiks, er Akurnesingar sýndu sína
réttu hlið. Mjög áberandi var hjá
báðum Hðum, hve allt rann út I
sandinn, er að vítateig var komið
og var eins og enginn fengi sig
til þess að s-kjóta. Raunar er þetta
ekki ný bóla hjá íslenzkurn liðum,
ROYAL
T - 700
Árs ábyrgð á allra
bifreiðinni.
en hlutur, sem verður að lagast.
Það er ekki nóg að geta spilað úti
á miðjum velli, ef allt fer svo í
handaskolum upp við markið.
Eins og í fyrri leik liðanna, var
það Skúli Hákonars., sem bar af i
framlínu Akurnesinga og Bogi Sig
urðsson í vörninni, en báðir hafa
þessir ungu roenn átt mjög lýta-
litla leiki, það sem af er keppn-
istímabilinu. Helgi sýndi öryggi i
markinu, eins og áður, en óþarfi
er að fyrtast, þótt sótt sé að mark-
manni f úthlaupi, það er hlutur.
sem alls staðar er tíðkaður og
ekkert er við að segja.
Þá sýndu Sveinn Teitsson ög
Jón Leós sæmilegan-leik. Ríkharð
ur var eitthvað miður sín og lít-
ið fór fyrir Ingvari.
ir Ódýr
ir Sparneytinn
'k Hár á vegi
ic Verð aðeins
kr. 114.000,00
★ Varahlutir
fyrirliggjandi.
Jón Ingi lof'ar góðu, er fljótur
og lipur, en skortir keppnisreynslu.
Beztur í liði Fram var Baldvin
miðherji, sem er mjög fljótur,
harður og fylginn sér, eins og mið-
herji á að vera. Þá átti Baldur
Scheving betri leik, en oftast áður.
í vörninni var Halldór Lúðvíksson
traustur, en Hrannar lék skemmti
lega og prúðmannlega, eins og
hans er vandi. Ásgeir Lúðvíksson
sýndi oft góð tilþrif, en virðist
„bail“ þegar inn fyrir vítateig
andstæðingsins er komið.
Dómari var Magnús Pétursson
og dæmdi með miklum tilþrifum,
eins og oftast, en gerir alltof mik
ið að því að stöðva leik, enda þótt
sá aðilinn, sem broUð er gegn,
haldi boltanuim og sé í sókn áfram.
KROM & STAL
Bolholti 6 — Sími 11381
Heildverzlun
í fullum gangi, með mjög góð viðskiptasambönd,
vill gera samning við fjársterkan aðila um hlut-
deild í fyrirtækinu gegn venjulegu fjárframlagi.
Tilboð sendist afgreiðslu Tímans fyrir 10. júlí,
merkt: „Umboðs og heildverzlun".
Tilboð
óskast í nokkrar fólks- og sendiferðabifreiðir, sem
verða til sýnis í porti Landssimans við Sölfhóls-
götu 11, miðvikudaginn 3. júlí n.k. kl. 13—15.
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu vorri, Ránar-
götu 18, kl. 16 sama dag.
Innkaupastofnun ríkisins
Til sölu
er íbúð í nýju húsi á Sauðárkróki, 4 herb. og eld-
hús á efri hæð, 110 ferm.
Nánari upplýsingar veitir Fríðrik Margeirsson,
Hólavegi 4, Sauðárkróki, simi 119.
6
T í M I N N , þriðjudaginn 2. júlí 1963