Tíminn - 06.07.1963, Blaðsíða 2

Tíminn - 06.07.1963, Blaðsíða 2
70 stiga hiti — og fjöldi manns deyr af í sólinni völdum hennar Okkur hér á íslandi í'mnst að viS fáum aldrei nóga sól, og er kannáki engin furða, en hvað ætli við segðum, ef við byggjum í arabisku eyðimörkinni, þar sem hitinn er 40 gr. í skugganum og 70 í sólinni. Það mundi líklega vera heldur af mikið af því góða. f níBri eyðimörkinni er borgin Riyad, en hún er höfuðborg olíu- hringsiins Saudi-Arabiu. Aragrúi livítra ferkantaðra húsa og bæn- húsa brennur þarna í sjóðheitrii sól inni, og hvítklæddir íbúamir skjót ast út úr skugga í annan hús- skugga. Það er ekki nema ríka fólkið, sem leitað getur skjóls í loftkældum húsum, skrifstofum og bílum, og sólin er því svariinn óvin- ur allra fátæklinganna. Nú sem stendur eru nokkrir sér- fræðingar á vegum alþjóðaheil- brigðissamtakanna staddir í Riyad þar sem þeir rannsaka áhrif sól- arljóssins á starfsemi líkamans al- mennt. í nefndinni eru fulltrúar frá fimmtán löndum, og starf henn ar er að gera grein fyrir því heil- brigðisstarfi, sem starfrækt er í miðaustrinu. Þeir rannsökuðu þau vandamál, sem sólin og hitinn orsaka hjá íbú- um landsins, og einnig hjá þeim þúsundum sjómanna, sem koma þarna á olíuskipum. Það sigla hvorki meira né minna en fimm hundruð olíuskip inn persneska flóann á mánuði í brennandi sól og steikjandi hita. Við hérna heima njótum sólarglætunnar og hitans, sem mest við megum, en skipverjar olíuskipanna og oiir- verkamennirnir tærast upp og deyja af sólarhita. í sambandi við áhrif sólarljóss- ins á líkamann var hitaslag það sem læknar þurfa að' rannsaka, á þeirra máli nefnist veikin hyper- pyrexia, og hún lýsir sér með mátt-, leysi, krampaflogum, saltskorti, líffæraþurrki, og fyrir sjúklinginn liefur það í för meg sér höfuðverk, svima, verki í vöðvum, meðvitund- arleysi og dauða. Vi8 ræfur Arafats A þessu sólríka svæði, sem nær á milli Kuwait og Jemen, búa 15 milljómr manns, og á olíusvæð- unum vinna hálfnaktir verkamenn í 40 st. hita, og er þar átt við skuggann. Og þetta kemur einnig niður á pílagrímunum, sem árlega sækja Mekka. Hitinn er óþolandl og sól- in er þeim miskunnarlaus, en vegna tunglalmanaksins neyðast þeir til að ganga sína pílagríms- göngu á þessum tíma árs, og sólin neggur svo sannarlega skörð í rað- rr þeirra. Við rætur fjallsins Arafat, þar sem beðið er til Allah, er 48—52 stiga hiti, og hitaslög, dauðsföll og hitaæði eru daglegt brauð. Hitaspítalar Fjöldi dauðsfalla og sjúkdóms- Ulfella náði hámarki sínu á árun- um 1950—’60, vegna þess neydd- ust yfirvöldin í Saudi-Arabiu til ?ð gera eitthvað fyrir pílagrímana. Og nú hefur verið komið upp 18 rpítölum, hér og þar við þjóðveg- ma, sem annast um hitasjúklinga. Læknisaðgerðirnar eru einfald- ar, sjúklingarnir eru einfaldlega kældir með því, að dýfa þeim of- an í kalt vatn, og árangurinn er sá, að í ár hafa aðeins fjórir lát- ið lífið. í fyrra voru þeir 57, árið þar áður 197, og þar áður 377 og árið 1959 voru þeir 454. Fullkomin aðstaða til kælhigar á spítölunum hefur leitt til þess, að prósenttala dauðsfalla er aðeins 5.7 á móti 78% árið 1960, 49% árið 1961 og 17% árið 1962 Kælingaraðferðin Þeir Evrópubúar, sem koma Jijúgandi til Mekka, fá tiltölulega ‘leiri hitasjúkdóma, en þeir, sem fæddir og uppaldir eru í eyðimörk mni. Árið 1961 voru til dæmis 25 af hverjum 1000 tilfellum grísk- ir múhameðstrúarmenn. Kælingaraðferðin er annars mjög áhrifatík. Likamshiti sjúklings er lækkaður niðúr í 38,9 gr. á Celsius ur 42 gr., með því ag dýfa sjúk- iingnum í vatn, eða með því að buna köldu vatni á bak hans. Ef hægt er að lækka líkamshitann á e.num klukkutíma, þá eru miklar líkur til þess, að hann nái sér. Fyrir utan spítalana er nú verið að búa til sjálfsafgreiðslu- klefa, sem settir eru upp hér og þar, og þeir sem eru á ferðinm geta notið góðs af. Klefar þessir hafa þegar verið teknir notkun ;f Bahrein-olíufélaginu. Og hvað pílagrímunum viðkemur, þá hafa verið gerðir fyrir þá sjúkra- tílar, og nokkurs konar spítalar á hjólum, sem tína þá upp, sem missa meðvitund á leiðinni milli Mena og Arafat. Sú ferð tekur um ált? k’ukku>"tundir. 7 ^ jjt, i sólflnni Á hverjum mánuði koma 240 oiíuskip með um 15.000 manna á- hafnir til Mina-el Ahmadi í Ku- v/ait til að sækja olíu. Um mitt sum ar er hitinn þar í skugganum frá 35—40 gr. á Celsius og í sólinni verður hann 70 gr. á Celsius. Og rakahlutfallið í loftinu er 90%. Ahafnir olíuskipanna verða mjög illa úti í hitaslagi og öðrum lutasjúkdómum. Sérfræðingar Theódóra Þórðardóttir, sem varð númer tvö í fegurðarsamkeppninni í ár, er nú komin ti! Miami Beach í Florida, þar sem hún tekur þátt í „Miss Universe" fegurðarsamkeppninni. Henni hefur vegnað mjög vel, og gerir mikla lukku hjá Bandaríkjamönnum, sem gera ekki annað en að Ijósmynda hana í bak og fyrir. Á eindálka myndinni þarna er verið að mynda hana á þaki Belmont Plaza hótelsins, og liósmyndarinn, sem við því miður klipptum út af myndinni, hafði klifrað upp í stiga, til að hafa betri myndaraðsföðu. í texta við þessa mynd höfðu Bandaríkjamenn skrifað, að þarna sýndi Miss lceland það, hvers vegna hún væri í „Miss Universe" keppninni. Keppnin byrjar 11. júlí og á stóru myndinni sjást allir keppinautarnir. segja, ag bezta meðalið gegn hit- jnum, sé að dveljast nógu lengi í honum, svo að líkaminn hafi byggt upp varnarkerfi. En ' starfskraftar manns, sem dvalið hefur stuttan tima í svona hita, minnka fljótlega um 30%. Loftslagsbreytingin hef- ur það í för með sér, að fyrstu þrjá til fimm dagana skilar hann af sér einum lítra af svita á dag. 3000 kirtlar, sem breiddir eru yf- ir 3000 fermetra svæði skila af scr einum svitalítra á klukkutíma. Fyrir utan loftkælinguna, þá er aukin saltneyzla bezta ráðið gegn liitasjúkdómum, en því vilja sjó- mennirnir oft gleyma. í lok þessara hugleiðinga fer ekki hjá því, að maður þakki fyrir íslenzka loftslagið og blessaðan .-njóinn. TÓNLISTARSKÓLI HAFNARFJARÐAR Tónlistarskóla Hafnarfjarðar var sagt upp að loknum nemenda- tónleikum í Bæjarbíói, þann 4. maí s.l. Skólinn tók til' starfa 1. október s. 1., en var settur í Bæj- arbíói 16. nóvember með stuttum tónleikum kennaranna. Ný deild fyrir 5-—8 ára börn tók til starfa 1. nóvember; kennt var eftir aðferð- Carls Orff. Tón- listarnámskeið fyrir unglinga og fullorðna var haldið á hverju mánudagskvöldi allan veturinn. Að öðru leyti var kennsl'ufyrir- komulag með svipuðu sniði og undanfarin ár. 142 nemendur voru í skólanum þennan vetur. Kennarar, auk skólastjórans Páls Kr. Pálssonar, voru 5. Á nemendatónleikunum komu fram nær fimmtíu nemendur með einleik og samleik alls konar. Hús fyllir var og undirtektir á'heyrenda mjög góðar. Þetta var 13. starfsár skólans. 2 T í M I N N, laugardagurinn 6. júM 1963.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.