Tíminn - 06.07.1963, Side 3
Njósiwhringur Araba / Israel afhjúpáður
NTB-Tel Aviv, 5. júli
LSgregluyfirvöld í Tel Aviv
skýrSu frá því í dag, að afhjúpað-
ur hafi verið víðtækur njósn'ahring
ur Araba, sem búa fsrael.
Lögreglunmi tókst að koma upp
1
um starfsemi njósnasamtakanna
eftir að handtekinn njósnari hafði
játað sekt sína við yfirheyrslu og
gefið lögreglunni upplýsingar, er
Jeiiddi’ hana á sporið.
Njósnari þessi, Hasan Abdul
Hamid, var liandtekinn fyrir
nekStru og fyrir skömmu var hann
dæmdur í 12 ára fangelsi fyrir
njósnir í þágu Egypta.
Þá sagði lögreglan, að margiir
Arabar hefðu þegar verið h'nd-
teknir sakaðir um njósnir í Israel,
en í heild stæði rannsókn málsins
enn yfir.
Er þetta sjötta njósnamálið, sem
upp kemst og fer í rannsókn, en
um hiin fyrri hefur ýtarlega ver-
:ð rætt í blöðum síðasta mánuðinn.
Virðist alger uppljóstrunaralda
ganga nú yfir heiminn. Þetta er
fyrsta njósnamálið, sem ekki fjall
ar um njósnir í þágu Sovétríkj-
a nna.
SAKFELLDIR
NJÓSNARAR
MYNDIRNNAR hér tU hlið
ar eru af þeim þrem mönnum,
sem hvað mest hafa komið við
sögu í heimsfréttunum upp á
síðkastið. Allir eru þeir bendl-
aðir við njósnamál, hvert öðru
alvarlegra, að því er talið er.
Eru þeir allir ákærðir fyrir
njósnir í þágu Sovétrikjanna,
e,n eins oig kunnugt er af fyrri
fréttum hafa fimm slík mál
komizt í hámæli á einum mán-
uði oig frá 6. má'linu er skýrt
frá hér á síðunni.
Lengst til vinstri er mynd
af Stig Wennerström, sænska
ofurstanum, sem sjálfur hefur
játað á sig njósnir I þágu Sovét
ríkjanna. Mál hans er talið al-
varlegasta njósnamál í sögu
Svíþjóðar, endia komið í Ijós,
að hann liefur starfað fyrir
Sovétríkin í 15 ár og var í að-
stöðu til að afla mikilvæigra
hermaðarleyndarmála. Mál hans
er mjög umfa,ngsmik,ið og rann
sókn aðeins á byrjuiSarstigi.
Við hliðina á honum er mynd
af sovézka fulltrúanum Ivanov,
sem raunverulega er orsökin
til hinmar ýtarlegu rannsóknar
Breta í hinu svonefnda Pro-
fumo-máli, sem nærri var búið
að fella brezku stjórnina og
ekki er enn séð fyrir endann
á. Það var eiiunitt samband
fyrrvenandi hermálaráðherra
Framhald á 15 síðu
FATT UM KVEDJUR VID
KOMU FRIDARNEFNDAR!
NTB-Moskvu, 5. júlí
• Kínverska sendinefndin,
sem mun eiga viðræSur við
fulltrúa sovézka kommún-
istaflokksins um hugsjóna-
ágreininginn, sem ríkir
milli þessara bróðurflokka
kom til Moskvu síðdegis í
dag.
® Á móti sendinefndinni
tóku um 200 kínverskir
sendiráðsmenn og stúdent-
ar, en hins vegar voru eng-
ir sovézkir blaðamenn á
flugvellinum og Tass-frétta
stofan skýrði ekki frá kom-
unni fvrr en 6 klst. síðar.
® í fréttatilkynningu Tass-
fréttastofunnar kom ekki
fram, hvenær fundir
myndu hefjast um ágrein-
ingsmál kommúnista-flokk
anna, en áður var talið, að
fundir hæfust strax í dag.
• Ráðstefna þessi er falin
mjög mikilvæg, en hins
vegar telja fréttamenn, að
svo mikið beri á milli, ao
litlar líkur séu til sátta.
Niðurstöður þessara við-
ræðna eru og taldar mik-
ilvægar í sambandi við
framtiðarafstöðu kommún-
istaríkjanna til Vesturveld-
anna.
Talið er, að sennilega verði að-
alumræðuefni ráðstefnunnar sú
spuming, i hve miklum mæli
stríði skuli beitt til að vinna komm
unismanum fylgi og yfirráðum.
Kínverskir kommúnistar hafa
haldið því fram, að ótti Sovét-
ríkjanna við kjarnorkustyrjöld
hafi staðið i vegi fyrir heimsbylt-
■ ngu. Sovétríkin hafa nefnilega
undirstrikað rækilega nauðsyn á
friðsamri sambúð og haldið því
rram, að kjarnorkustríð væri
hreint nriálæði.
Eins og kunnugt er af fyrri frétt
um jókst mjög ágreiningurinn
á milli kínverskra og sovézkra
kommúnista í sambandi við kröfu
Sovétstjórnarinnar um heimköllun
limm Kínverja frá Moskvu og hafa
kJögumálin gengið á víxl síðustu
daga.
Fréttamenn segja, að alltaf sé
betur og betur að koroa í ljós, að
kínverskir kommúnistar séu að ein
angrast og njóti ekki stuðnings
nema sárafárra kommúnistaflokka
í öðrum löndum.
Formaður kínversku sendinefnd-
urinnar er Teng Hsiao-Ping, fram
kvæmdastjóri kínverska kommún-
istaflokksins, en aðalfulltrúi Sovét
ríkjanna á ráðstefnunni er Mikail
Suslov. Talið er, að fundirnir
verði haldnir í Kreml, en engin til
kynning hefur verið gefin út um
íundarstað og yfirleitt hafa sovézk
yfirvöld eða blöð ekki minnst á
kpmu nefndarinnar að undan-
skyldri stuttri fréttatilkynningu
Tass.
Reiknað er með, að viðræður
hefjist ekki fyrr en á laugardag
að neinu ráði og er ekki búizt við
að fundir standi nema fáeina daga.
Það er samróma álit andkommún-
istískra sendimanna í Moskvu, að
ekki séu minnstu líkur fyrir því,
að viðræðurnar megni að jafna
binn djúpstæða ágreining, sem
upp er kominn milli þessara
tveggja stórvelda kommúnismans.
Af móttöku kínversku sendimann
rnna og framkomu sovézkra yfir-
\ alda í heild í sambandi við þenn
an fund, er ljóst, að ágreiningur-
inn hefur aldrei risið jafn hátt
og einmitt nú.
saklaus?
NTB-Lundúnum, 5. júlí
Verjandi ítalska kjarnorkufræð-
mgsins, Guiseppe Martelli, sem á-
kærður hefur verið fynir njósnir í
þágu Sovétríkjajina, sagði við rétt-
arhöldin > dag, að það væru mikil
roistök, ef Martelli yrði dæmdur
njósnari, sem unniið hefði gegn
Bretlandi.
Sagði verjandinn, að Martelli
nefð'i ekki haft nein pólitísk sam-
bfnd, sem hefðu getað gert hon-
um kleift að afla leynilegra upp-
iýsinga tii að láta Sovétríkjunum í
té.
Ákæran a hendur Martelli er í
.iiu liðum og hefur ákærður neit-
að sakargiftum alla tíð.
Ákæruvaldið heldur því fram,
-ð Martellj hafi starfað undir
stjórn Nikolaj Karpekóv, sem var
im tíma starfsmaður við sovézka
-'f-ndiráðið í Lundúnum.
Við réttarhöldin í dag, neitaði
Martelli ekki að hann þekkti
Karpekov og m. a. sagði hann frá
þvi að hann teldi, að fyrrnefndur
.-endiráðsmaður hafi gert tilraun
lil að byrla honum eitur í mið-
degisverðarboði, sem Karpekov
ffndi til í Genf árið 1955.
í lok réttarhaldanna í dag lagði
■™>eaea
STUTTAR
FRÉTTIR
• NTB?Berlín 5. júlí
Þrír vestur-þýzkir lögreglu
menn urðu fynir því óhappi >
dag að aka jeppabifreið sinni
niður i skurð á austur-þýzku
landsvæði við múrinn í Berlín
Brezk herlögregla kom á vett
vang skömmu síðar og dró jepp
ann upp. Enginn lögreglumann
anna slasaðist í óhappij þessu.
O _ NTB-Milano, 5. júlí
ítölskum flugmanni tókst i
dag að bjarga lífi sínu með þvi
að stökkva í fallhlíf úr flugvéi
sinni, eftir að hún hafði orðið
fyrÍT eldingu og sprakk hún
skömmu síðar. Atburður þessj
varð um 30 km suðaustur ai
Milanó.
o NTB-Georgetown, 6. júlí
Tveir negrar og tveir indíán
ar hafa rarizt og mörg hundruð
manns særzt í óeirðum, sem
orðið hafa upp á síðkastið >
Brezku Guiiana. Brezkir her
menn hafa verið sendir til ný
lcndunnai til þess a.ð reyna að
stilla til friðar.
• NTB-Algeirsborg, 5. júli
Ben Bella, forsætisráðherra
Alsír skýrði frá því í dag, a?
nýjar kosmingar færu fram
Alsír í haust og myndi ný
kjörin stjórn taka við völdum
í september eða október.
vtrjandinn, Hutchinson margar
snurningar fyrir skjólstæðing sinn.
Tiúið þér á hugsjónakerfi komm
unismans?
Nei, alls ekki.
Mynduð bér aðstoða Sovétríkin
i barátiu gegn vesturveldunum?
Alls ekki
NTB-Gent 5. júlí
• Er sendinefnd Portúgala á
fræðslumálaráðstefnunni i Genf
niættu á fundarstað í dag var þeirn
meinuð innganga, en eins og áður
befur verir skýrt frá, samþykkti
ráðstefnan að útiloka þátttöku
Portúgala störfum ráðstefnunn
ar vegna nýlendustefnu stjórnar
portúgal.
O NTB-K-höfn, 5. jtili
Hafnarverkamenn í Kaupmanna-
böfn neituðu, eins og búiizt var
við, að afferma sænska flutninga
•'kipið I-ommaren, er kom þar ti)
hafnar í morgun, hlaðið vörum frá
Suður-Afríku.
f í M I N N, laugardagurinn 6. júlí 1963.