Mosfellsblaðið - 01.08.1999, Blaðsíða 9
breiðan veg og þar er allt pakk-
að af bílum. Hraðinn á bflunum
er svo hægur að sumir fara út úr
rútunni og ganga einhvem hluta
leiðarinnar. Allt gengur þetta þó
vel og um kl. 07:30 emm við
komnir á Silverstone. Þegar við
lítum í kringum okkur trúum
við varla okkar eigin augum,
svona keppni er svo gríðarlega
umfangsmikil.
Bflafjöldinn og mannfjöldinn
er ótrúlegur, klukkan er ekki
nema átta og það em fimm tím-
ar í sjálfan kappaksturinn. Við
göngum inn og fömm að kanna
svæðið, við emm fyrir aftan
stúkumar en þar era sjoppur,
matsölustaðir, minjagripaverl-
anir, gokart braut og fleira og
fleira. Við kíkjum á nokkra staði
en einn áhugaverðasti staður er sýningarhús Ferrari,
þegar við komum þar einn er tónlistin á fullu og
stúlkur að dansa, fjórir Ferrari formúlubflar em til
sýnis ásamt vélinni bara sér í glerkassa.
Klukkan 08:30 er æfing á brautinni að hefjast för-
um við þá í sætin okkar í stúkunni en þar em nokkrir
íslendingar fyrir. Eftir æfinguna förum við að fá okk-
ur að borða og kíkjum aðeins betur á svæðið. Förum
við þá aftur í stúkuna því að nú er komið að því að
keppendum verði ekið heiðurshring á opnum eld-
gömlum Rolls Royce bifreiðum. Þar sem við emm
með miða við ráslínuna þá sjáum við alla keppendur
mjög vel þegar þeir fara í bflana og leggja af stað. Nú
em um þrír tímar í keppnina og við erum frekar ró-
legir í sætum okkar, mótorhjólasýning er á Silversto-
ne-brautinni og á eftir henni er rosaleg flugsýning.
Kl. 12 byrja liðin að stilla bflunum upp á ráslínu og
fyllist rásmarkið af aðstoðarmönnum liðanna.
Spennan magnast og hitinn hækkar, stúkan er að fyll-
ast hjá okkur og hitinn kominn yfir 30° gráður. Nú er
klukkan að verða eitt og heyrist með reglulegu bili í
flautum sem láta vita hvenær aðstoðarmenn eiga að
fara til hliðar fyrir æfingarhringinn. Allt gengur vel
og bflamir fara af stað.
Allt er klárt, 200 þúsund manns bíða spenntir eftir
startinu og þeir em famir af stað. Það sést strax að
okkar maður Michael Schumacher missir annað sæt-
ið sitt og er orðin fjórði í fyrstu beygjunni, einn bfl er
stopp í startinu og er því keppn-
in stoppuð. Þá gerist það að
Schumacher missir bfl sinn út af
á 200 km hraða beint á vegg og
bflinn fer í rúst, það slær þögn á
mannskapinn. Fólk verður mjög
áhyggjufólk er Schumacher
kemst ekki út úr bflnum og má
sjá að bróðir hans Ralf sem
keppir fyrir Williams er mjög
áhyggjufullur, hann fer m.a.
beint inn í pyttinn hjá Ferrari til
að fá upplýsingar um stöðu
mála.
Eftir að bfll Schumachers er
færður í burtu er ræst á ný og
nær þá Mika Hakkinen fljótlega
góðri forystu en Coulthard og Ir-
vine er aldrei langt undan. Ber-
ast okkur fréttir þess að
Schumacher sé fótbrotinn á
tveimur stöðum og eigi eftir að verða frá í langan
tíma. Staðan er að mestu óbreytt framan af keppni og
ekki rriikið um framúrakstur, en kaflaskipti verða
þegar Hakkinen missir annað afturhjólið af bflnum
sínurh þegar hann er með forystu í kappakstrinum.
Coulthard fær þvf fyrsta sætið upp í hendumar og og
Irvine er rétt á eftir honum í öðm og Ralf
Schumacher endar í þriðja.
Verðlaunaafhendingin er nánast um leið og sjáum
við hana mjög vel þar sem hún er beint á móti okkur.
Að henni lokinni röltum við aðeins um svæðið áður
en farið er í rúturnar og haldið heim á hótelið.
Pétur Berg Matthíasson.
IBSl
Kraftmesta vólin ... 76 hestöf/
IMIosfcIIsblaðið Q