Tíminn - 21.08.1963, Blaðsíða 3
NU VERÐUR ENDANLEGA GERT
ÚT UM MÁL DICKS HELANDER
NTB-Stokkhólmi, 20. ágúst.
í dag hófust að nýju réttarhöld
í hlnu umdeilda og fræga máli
Dick Helanders, fyrrverandi bisk
ups, sem dæmdur var frá kjóli
og kalli árið 1954, sakaður um að
hafa samið og dreift níðbréfum
um kepptnaut sinn í biskupskosn
ingunum f Strængnes árið 1952.
— Eftir að dómur féil í máii
blskupsins hefur hann æ síðan
reynt að fá mál sitt tekið fyrir
að nýju, enda haldið stöðugt fram
sakieysi sínu. Það var ekki fyrr
en fyrir tveim árum, að hæsti-
réftur ákvað endurupptöku máls
ins og í dag hófust fyrsfu réttar-
höldin.
Hel'ander, sem nú er 67 ára
gamall og hefur verið sjúkur
síðustu árin, var mjög alvarlegur
á svip og áberandi taugaóstyrk-
ur, er hann kom til réttarsalar-
ins í dag, ásamt lögfræðingum
sínum tveim), stundarfjórðungi
áður, en réttur var settur. —
Talið er, að nú verði endanlega
gert út um þetta mál, en sökum
þess hve umfamgsmlkið það er
orðið, er ekki biiizt við, að dómur
falli fyrr en eftir áramótin.
Málsaðilar gerðu fyrst stutta
grein fyrir málavöxtum og kröf-
um sínum, en fljótlega lentu sak
sóknari og verjandi bidcups í hár
saman. Verjandinn spurði sak-
sóknara, hvort hann áliti um-
mælin I hinum umdeildu bréfum
rétt eða ekki.
Saksóknari svaraði því til, að
það atriði hefði ekki verið rann-
sakað, enda þyrfti það ekki rann
sóknar við.
Verjandinn benti hins vegar á,
að hér væri einmitt um mjög
mikilvægt atriði að ræða, því
að á þessu byggðist það, hvort
málsókn út af ærumeiðingum
væri raunverulega tæk. Vildi
verjandinn halda því fram, að
ef svo reyndist, að ummælin í
bréfunum væru rétt, ætti ákær-
an á hendur Helander að falla
niður.
Er hór var komið, var gert mat-
arhlé, en að því loknu hóf verj-
mdinn hina raunverulegu varnar
ræðu sína við þessa fyrstu um-
lerð og að hennl loklnnl var rétt
arhöldunum frestað.
Á þessum fyrsta degi kom þvi
fátt fram í málinu, sem ekfci var
áður vitað, en málsaðilar fóru
heldur ekki náið út í málavexti
að svo komnu máli.
Ekki kom neitt til kasta hins
ákærða í dag, en verjandi lagði
áherzlu á, að Helander neitaði að
hafa skrifað hin umdeildu bréf
og vissi ekfci, hver hefði gert það.
Af ræðum beggja aðila kom í
ljós, að þeir leggja mikið upp úr
niðurstöðum hinna færustu sér-
fræðinga, sem rannsakað hafa
öll gögn, sem að haldi mættu
koma til að hið sanna kæmi í Ijós.
Milli 40 og 50 blaðamenn og ljós
myndarar voru viðstaddir réttar-
höldin í dag, þannig, að ekki var
sæti fyrir nema 8—10 áheyrendur
aðra.
Réttur verður settur að nýju
á fimmtudagsmorgun og mun
verjandinn þá halda áfram ræðu
sinni og gera nákvæma grein fyr
ir atvikum öllum í sambandi við
biskupskjörið £ Strængnes árið
1952.
Allar líkur á falli
norsku stjórnarinnar
FIRÉTTIIR
NTB—Jerúsalem, 20. ágúst. —
Stjórn ísrael ákvað á sérstökum
fundi í dag, að krefjast þess, að
öryggisráð S.þ., yrði þegar I stað
kallað saman til að ræða árásar-
aðgerðir Sýrlendinga á fsrael.
NTB-Belgrad, 20. ágúst. — Krust
joff, kona hans og sonur, eru inú
komin f opinbera heimsókrt til
Júgóslavíu og var fagnað af ýms
um fyrirmönnum, þar á meðal
Tító forseta, við komuna í dag.
NTB-Havana, 20. ágúst. — í yfir-
lýsingu kúbönsku stjórnarinnar,
sem birt var í dag segir, að flokk
ur aindbyltingarsinna hefðu kom-
ið sjóleiðis til Santa Lucia á norð
urströnd Kúbu í gær, vopnaðir
vélbyssum og handsprengjum og
hefði hópurinin gert tilraun til að
sprengja brennisteinsverksmiðju
eina í loft upp.
NTB-Washington, 20. ágúst. —
Á blaðamannafundi í kvöid sagði
Kennedy Bandaríkjaforseti, að
miklar likur væru á, að hann
myndi hitta Krustjoff, forsætis-
ráðherra Sovétríkjanna og Mac
millan forsætisráðherra Breta,
við setningu aiisherjarþings S.þ.
f næsta mánuði.
NTB-Oslo, 20. ágúst.
TELJA má nú öruggt, að
norska stjórnin sé fallin, — í
kvöld lýsti Finn Gustavsen,
annar þingmanna sósíalistíska
þjóðarflokksins því yfir, að
hann myndi greiða atkvæði
með stjórnarandstöðunni í
hinu svonefnda Kings Bay
máli. Stjórnin hefur 74 þing-
menn á móti^74 þingmönnum
borgaraflokkanna, en sósíalist
íski þjóðarflokkurinn hefur
2 þingmcnn, sem þannig geta
ráðið úrslitum málsins.
Finn Gustavsen, sem var síðast-
ur ræðumanna I Stórþinginu í
kvöld, lýsti því -yfir, að hann teldi
norsku stjórnina hafa brugðizt
skyldum sínum við þingið í þessu
máli, og m. a. þess vegna gæti
hann nú ekki stutt hana. Víst
má telja, að afstaða hins þing-
manns sósíalistíska þjóðarflokks-
Ins verði hin aama og Gustavsen
Gustavsen Iýsti því ennfremur
yfir, að hann te'ldi rétt að ný rík-
isstjóm byggðist á þingmannaliði
verkaniannaflokksins áfram.
Ef það hefur nokkurn tíma verið
á færi hinna fimm stjórnarand-
stöðuflokka að fella stjórnina, þá
geta þeir það nú, en það kemur
daigur eftir þennan dag, sagði Ein-
ar Gerhardsen, forsætisráðherra
Framh. á 15. síðu.
MESTA GJALDÞROTAMAL I
SÖGU BELGÍU UPPVlST!
NTB-Courtrai, Belgíu, 20. ág.
MESTA gjaldþrot, sem
nokkru sinni hefur orðig í Belg
íu varð uppvíst í dag. — í ljós
kom, að vefnaðarvörufyrirtæki
í bænum Waeraghem, skammt
frá Courtrai, átli i útistandandi
skuldum sem svarar 330 millj-
ónum íslenzkra króna.
Skuldir þessar dreifðust á
um 160 lánardrottna, bæði er-
lendis og í Belgíu, og virðist
forstjóri fyrirtækisins Pauwels,
eiga lier einn sök að máli.
Pauwels þessi var handtek-
inn fyrir rúmum mánuði í Nice
í Frakkiandi, þar sem hann bjó
á einu dýrasta og glæsilegasta
hóteli borgarinnar, ásamt
franskri blómarós.
Fianska lögreglan hefur enn
ekki framselt hann, en búizt er
við, að hún geri það einhvrn
Framhald a 15. siðn.
DREGIÐ FRÁ!
MYNDIN hér til hliðar er
tekin fyrir nokkrum dögum, er
járntjaldinu svonefndia var
svipt frá eitt augnablik til þess
að lögreglumenn frá V-Berl-
ín og Austur-Þýzkalandi gætu
skipzt á farartækjum, sem not-
uð hafa verið til flótta milli
borigarhlutanna í Bertín.
Til vinstri sést austur-þýzkur
herbfll á beltum, sem a-þýzk.
ur hermaður notaði til flótta
frá Austur-Berlín fyrir
skömmu. Hægra megin er hins
vegar herflutningabíll frá vest
ur-þýzka hemum, sem notaður
var í sama tilgangi, en þá var
það vestur-þýzkur vörður, sem
flýði austur fyrir.
Á myndinni sjást einnig her-
menn beggja aðfla, sem fylgjast
mejj bessum aðgerðum.
TÍMINN, miðvikudaginn 21. ágúst 1963
3