Tíminn - 25.08.1963, Blaðsíða 1
EGGERT KRISTJANSSONaCO HF
180. tbl. — Sunnudagur 25. ágúst 1963 — 47. árg,
TVÖFALT
EINANGRUNAR -
OA. GLER
ZUara reynsla
hérlendís
SÍM111400
SJALFVIRKI SIMINN
FÆRIR ÚT KVÍARNAR
Leggur
síðustu
BÓ-Reykjavik, 24..ágúst.
UM NÆSTU mánaSamót
verSa allir símar í Hafnar-
firSi (1500 nr.) tengdir viS
nýju, sjálfvirku stöSina j>ar,
sjálfvirka stöSln í Kópavogi
(2000 nr.) mun verSa opnuS
í byrjun nóvember og mán-
uSi síSar verSur sjálfvirk
stöS opnuS ( Vestmannaeyj-
um (1400 nr.), seint í desem-
ber verSur Akranes komiS í
sjálfv*rka kerfiS (1400 nr.).
Þar með lýkur ímfangsmiklum
símaframkvæmdum þessa árs, en
á næsTa vori mun sjálfvirkt sam-
band opnað milli Reykjavíkur og
Akurejiar. Ólafsfjörður, Dalvík,
Hrísey Hjalteyri, Húsavík og
Raufarhöfn eiga ag komast í
sjálfvirkt samband á sama ári,
og gert er ráð fyrir Siglufirði, en
þar er ný stöð í byggingu. Kaup-
staðirnir á Vestfjörðum koma
inn í áætlunina 1966—1967, í
þða mmnsta verði efni og vélar
til þeirra stöðva komnar á þeim
tíma, sagði póst- og símamála-
stjóri ' við'tali við blaðið í dag.
Samkvæmt áætlun Alþingis er
gert ráð fyrir, að sjálfvirka kerf-
ig nái til flestra landsmanna ár-
ið 1968, er langur afgreiðslufrest
ur á vélum hefur tafig fram-
kvæmdir. Vélamar í Hafnarfjarð
arstöð'ina voru pantaðar 1959, en
komu fyr3t til landsins í fyrra og
á þessu án Póstur og sími stend
ur undir þessum framkvæmdum
að öilu leyti, en hraði þeirra er
einnig háður innflutningsleyfum.
Aðspurður hvort símgjöldin
mundu ekki hækka á næstunni
vegna þcssara framkvæmda, svar
aði pós.- og símamálastjóri því
neitandi, en kvaðst gera ráð fyrir
ag slíkt reyndist óhjákvæmilegt
vegna launahækkana.
Næsta daga fara fram breyt-
ingar á vélabúnaði símans í
Reykjavík, og má því á meðan
búast við nokkrum afgreiðslu-
truflunum á langlínusamtölum
til Reykjaví'kur. Símnotendur í
Hafnarfirði mega búast við trufl
unum, þegar sjálfvirka stöðin
Pramh. á 15. síðu.
Símamaður vlnnur við tengigrind
ina ( nýju stöðinnl í Hafnarfirði.
(Ljósm.: TÍMINN—GE)
"
, y A v :
;
■
, r i
. ■i-:'
Komnir að
Skeiðará
TOGURUNUM ERFIÐ
MB-Reykjavík, 24. ágúst.
Árin 1947 og 1948 voru fyrstu
nýsköpunartogaraisnir byggðir.
Er því komið að sextán ára
flokkunarviðgerð á þeim á
þessu o>g næsta ári. Þar sem,
fjárbagur togaraútgerðarlnnar
hefur löngum verið umræddur,
leitaði blaðið állts nokkurra
kunnugra manna á því, hvernig
útgerðum þessara togara
mynd'i ganga að kljúfa þann
kostnað, sem henni er samíara
og hvort þær myndu allar geta
það.
Okkur telst svo til, að nú séu
25 togarar, byggðir á þessum
tveim árum, á skipaskrá í eigu
íslendmga Langsamlega flestir
þessara togara eru að veiðum og
svo virðist, að það séu ekkert síð
ur yngri togarar, sem af einhverj
um ástæðum hefur verið lagt. —
Aðeins fimm þeirra liggja í reiði-
leysi og einum er verið að breyta
í fluiningaskip.
Samkvæmt kröfu Lloyds eru
togararnii teknir til gagngerðrar
skoðunar og viðgerða á fjögurra
ára fresti. Fyrstu tvö skiptin eru
tiltölulega auðveld viðfangs, enda
skipin þá nýleg og ekki talin
þörf á að yfirfara aila hluti. En
með tólf ára aldrinum þyngist
róðurinn ,og þá eru allir hlutar
skipsins fallnir undir skoðun og
þarf að yfirfara þá alla á fjögurra
ára fresti. Við 24 ára aldurinn
eykst þetta svo enn og þarf þá
að bora i byrðmginn, til þess að
fylgjast með tæringu í járninu.
Við hverja skoðun gerir Lloyds
lágmarkskröfur, sem verður að
Framh. á 15. síSu.
VV-Kirkjubæjarklaustri, 24. ágúst.
Ferð „DREKA“ gengur að óskum.
Um tvö-leytið í dag voru þeir félagar
komnir í skipbrotsmannaskýlið vest
an Skeiðarár og ætluðu að fara að
leggja upp austur yfir. Talsvert mik
ið mun nú vera í Skeiðará og verður
þar því sennilega erfiðust prófraun
ferðarinnar. Pétur Kristjónsson og
tveir aðrir munu halda afram á
„Dreka“ aila leið austur aö Jökulsá
á Breiðamerkursandi og reyna hann
þar i ósnum, en hinir verða senni-
lega eftir við gullskipið og munu
gera þar enn nýjar mælingar með
nákvæmari tækjum en áður hafa
verið notuð þar.
Þrlr íslenzkir togarar á miðum. RE tók myndina fyrfr stuttu úr togaranum Sigurði. Nú er viðbúiS, að einhverjir elztu nýsköpunartogar-
arnir heltist úr lestinni við klössunina, sem þeir eiga i vændum. x
16 ÁRA KLÖSSUNIN
h ý