Tíminn - 25.08.1963, Síða 7
— ðinníim —
Útgef; FRAMSOKN4»f! OKKURINN
Frarakvæmdastjóri I'ómas Arnason — Kitstjórar: Þórarinn
Þórarinsson (ábi, Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði
G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjómar: Tómas Karlsson. Frétta-
stjóri: Jónas Kristjánsson. Auglýsingastj.: Sigurjón Davíðsson.
Ritstjórnarskrifstofur i Eddu húsinu, símar 18300—18305. Skrif
stofur Bankastr 7 Afgr.sími 12323. Augl., sími 19523 Aðrar
skrifstofur, sími 18300. Askriftargjald kr. 65.00 á mán. innan-
lands. t lausasölu kr. 4.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h.f. —
Stjómarskiptin í Noregi
UNDANFARNA daga hafa staðið yfir langir og
strangir fundir í norska stórþinginu um tillögu, sem
borgaralegu flokkarnir báru fram um vantraust á ríkis-
stjórn Alþýðuflokksins, sem búin er að fara með völd
samfleytt síðan síðari heimsstyrjöldinni lauk. Látið var
heita svo, að tilefni vantraustsins væri slys, sem varð í
námum ríkisins á Svalbarða síðastl haust, en meðferð
stjórnarinnar á því máli hefur verið seinheppileg, þótt
alrangt væri að kenna henni um slysið. Þetta tilefni var
hins vegar notað til að reyna að sýna, að hinn langi valda-
ferill Alþýðuflokksins væri búinn að gera stjórnarkerfið
slappt og athafnalítið og því væri nauðsynlegt að gefa
frískari kröftum tækifæri til að reyna sig.
í Stórþinginu er staðan þannig, að Alþýðuflokkur-
inn hefur 74 þingmenn, borgaralegu flokkarnir fjórir
hafa einnig 74 þingmenn og loks hefur Sósíaliski þjóð-
flokkurinn 2 þingmenn. Það var því á atkvæðum þeirra,
sem úrslitin ultu. Þeir létu lengi bíða eftir afstöðu sinni,
en að lokum varð hún sú, að þeir ákváðu að fylgja van-
traustinu, en leggja jafnhliða fram tillögu um að Alþýðu-
flokkurirtn myndaði nýja stjórn, þar sem teflt væri fram
nýjum, róttækari forustumönnum.
Úrslitin urðu þau, að vantrauststillagan var samþykkt
og stjórnin þannig felld. Vitað er, að tillaga Sosíaliska
þjóðflokksins verður einnig felld, og að mynduð verður
því ný ríkisstjórn borgaralegu ilokkanna. Hitt er óvíst,
hvort hún verður lengur við völd en fram yfir bæjarstjórn
arkosningarnar, sem fara fram í næsta mánuði.
Hvort, sem þessi nýja stjórn silur lengur eða skemur,
er tilkoma hennar eigi að síður sögulegur atburður, sem
er líklegur til að hafa mikil áhrif.
Borgaralegu flokkarriir í Noregi hafa lengi verið
mjög ósammála og því talið útilokað, að þeir gætu mynd-
að stjórn samana. Nú hefur þeim tekizt að sigrast á þessu
ósamkomulagi og takist þeim vel stjórnarsamvinnan, get-
ur það ráðið miklu um stjórnmálaþróunina í Noregi á
komandi árum. Samvinna þeirra gæti þá orðið
upphaf eins konar tveggja flokka kerfis í Noregi, þar
sem borgaralegu flokkarnir stæðu annars vegar og Al-
þýðuflokkurinn hins vegar.
Fyrir Alþýðuflokkinn er það áreiðanalega hollt að
komast í stjórnarandstöðu, jafnvei þótt hún verði ekki
löng. Sumir eldri foringjar flokksins eru orðnir ráðríkir
og íhaldssamir vegna langrar setu í ríkisstjórn og frjáls-
lyndari og róttækari öfl því átt örðugt uppdráttar í
flokknum. Ráðríki þeirra leiddi m. a. til þess, að Sosial-
iski þjóðflokkurinn var stofnaður. Hinir gömlu leiðtogar
flokksins eins og Gerhardsen, Lange og Langhelle, þoldu
ekki að nokkrir menn í flokknura hefðu sérstöðu í utan-
ríkismálum og létu því reka þá úr flokknum. Þessir brott-
viknu menn stofnuðu Sosialiska þjóðflokkinn.
Ef stjórnarskiptin leiða til þess, að Alþýðuflokkurinn
þokast heldur til vinstri, er ekki ósennilegt, að dagar Soci-
aliska þjóðflokksins séu brátt taldir. í átökum milli rót-
tæks Alþýðuflokks annars vegar og borgaralegu flokk-
anna hins vegar, verður Socialiski þjóðflokkurinn ekki
^nnað en sprengiflokkur, sem hlýtur að líða undir lok.
þrátt fyrir það kann hann að hafa gegnt vissu hlutverki
um skeið.
Vegna stjórnárskiptanna, mun úrslitum bæjar- og
sveitarstjórnarkosninganna, sem fara fram í Noreei í
næsta mánuði, veitt miklu meiri athygli en ella.
SEYM0UR T0PP1M®! '
llm lifnaðarhætti Krustjoffs
Fréttamaður, sem er
ALLUR heimurinn þekkir hinn
„opinbera“ Nikita Krustjoff
meðlim æðsta ráðsins, sérfræð
ing í landbúnaðarmálum, spak-
mælahöfund, ferðamann, stjórn
vitring, vin vanþróaðra þjóða,
talsmann friðsamlegrar tilveru
vijy hiið auðvaldsríkjanna, eld-
flaugaskakandann og forustu-
mann þeirra í Sovét í nákvæm-
um rökdeilum við kínversku
kommúnistanna um skilning
fræðanna. En almennt er ekki
margt kunnugt um vinnutilhög-
un Krustjoffs eða einkalíf hans.
Hér á eftir verður nokkuð rætt
um það efni.
ÞESS sjást ag vísu merki, að
Krustjoff eigi viðað stríða per-
sónuleg vandamál manns, sem
orðinn er 69 ára að aldri, en
hann býr enn yfir feikna mik-
illi orku og óhemju miklum
dugnaði til vinnu. Hinn anna-
sami starfsdagur hans ber vott
um þetta og maraþonræðurnar,
sem venjulega standa yfir í
tvær til þrjár klukkustundir.
Síðustu tvö árin eða svo hefur
andlit hans þó oftar borið vott
um þreytu en áður gerðist. —
Hann gætir meira hófs en áður
og er varfærnari með heilsu
sína. Sagt er, ag hann hafi
þjáðst af of háum blóðþrýstingi
og nýrnasjúkdómi og verði af
þeim sökum að búa við sérstakt
mataræði, til þess að fitna ekki
meira en orðig er.
Starfsdagur Krustjoffs hefst
venjulega á því, að aðstoðar-
maður les fyrir hann fréttir og
opinberar skýr^lur meðan hann
borðar morgunverg á heimili
sínu f Moskvu. Hann undirbýr
síðan dassverkið í bílnum, með
an verið er að aka með hann
til Kreml.
Krustjoff notar sömu skrif-
stofu og Stalin. Þetta er langt
og mjótt herbergi og fremur
fábrotig í sniðum. Gluggatjöld-
in er:i gul að lit og mvndir
af Lenin og Karli Marx hanga
á veggjunum. Langt fundar-
borð, klætt grænum ullardúki,
fyllir mestan hluta herbergis-
ins, en lítig borð og tveir hæg-
indastóiar standa fyrir framan
stórt skrifborð. Á vinstri hönd
forsælisráðherranum standa
tvö símatæki, græn og gul. '
ÞEGAR Krustjoff kemur inn
liggja á borði hans bréfabindi
meg ýmsum skýrslum og upp-
lýsingum. Þrjú mikilvægustu
bindin snerta miðstjórn flokks-,
ins, ríkisstjórnina og stjórnar-'
skrifstofu rússneska lýðveldis-
ins. Auk stjórnmála- og leyni-
þjónustuskýrslnanna í rikis-
stjórnarbindinu er sérstakur
fréttaútdráttur frá Tass, rússn
esku fréttastofunni. Fréttaritar
ar Tass erlendis senda löng
fréttaskeyti á hverjum degi, þar
sem fjallað er um > frásagnir
erlendra blaða og tímarita,
helztu ræður, umræður í lög-
gjafarþingum og allar fréttir,
sem varða Sovétríkin og leið-
toga þeirra. .
Sumt af þessum skeytum er
búið undir birtingu í blöðum
Sovétríkjanna, en meginið af
þessu er dregig í sundur í mis
munandi skýrslur, sem dreift
er sem „nauðsynlegum upplýs-
ingum" meðal stjórnarembættis
manna, ritstjóra, vísindamanna,
forustumanna hermálanna og
annarra þeirra, sem verða að
fylgjast með atburðum erlend-
kimnugur í Moskvu, Ivsír
KRUSTJOFF
is. Krustjoff eru’afhent öll þau
fréttaskeyti Tass, sem hafa að
geyma einhver eftirtektarverð
atriði, sem aðstoðarmenn hans
hafa merkt við. Honum eru
einnig afhentar þýðingar er-
lendra bóka, þar sem merkt er
við viðeigandi kafla.
FORSÆTISRÁÐHERRANN
kýs heldur að verja fyrri hluta
dagsins í að „ryðja“ skrifborð-
ið en veita viðtöl síðdegis. Hann
fagnar tækifærum til ag ræða
vig ágæta útlendinga, einkum
þá imenn .frá auðvaldsríkjttnum',
sem hann .getur deilt (Viðjgjwi
hugsjónaleg við'fangsefni. -L
Venjulega eyðir hann tveimur
eða þremur klukkustundum í
ag ræða við slíka menn eða
sendilierra búsetta í Moskvu,
en þeir koma í heimsókn við
og við
Þeir, sero í heimsókn koma,
taka sæti við fundarborð'ið
ásamt túlki. Oftast komast þeir
að raun um, að Krustjoff er vel
undir heimsóknina búinn. Hann
er oft búinn að kynna sér stutt
an skýrsluútdrátt sem aðstoðar
menn hans hafa fyrir fram tek
ið saman um þau viðfangsefni.
sem líklegt er. að á góma beri
í samræðunum.
Stundum notar hinn sovézki
leiðtogi þessar samræður við
útlendinga til þess að láta vita
um framferði. sem hann vill
síður ha?tta á að viðhaft verði
gagnvart honum í blöðum eða
í samskiptum við erlendar ríkis
stjórnir.
KRUSTJOFF kannar sýnis-
horn rússnesks efnahagslífs
meg því að heimsækja bú, verk
smiðjur eða byggingarstað'i, þeg
ar aðrnr annir veita tóm til. Hin
þolinmóða eiginkona hans.
Nina Petrova, hefur sagt frá
því, að forsætisráðherrann dríff
meðlimi fjölskyldunnar stund-
um mað sér upp í sveit á sunnu
dögum, tíl þess að skoða nýjar
framkvæmdir í landbúnaði. —
Hann virðist ánægður þegar
hann virðir fyrir sér sýnileg
tákn um efnalega grósku í þjóð-
lífinu, blandar geði við þjóð
sína og kannar siðferðislegt við
horf hennar.
Venjulegur Rússi fagnar því,
hve leiðtogi hans er „mennsk-
ur“. Þegar verkamenn og bænd
ur hópast að Krustjoff, prédik-
einkalífi Krustjoffs
ar hann yfir þeim um skaðsemi
drykkjuskapar í þorpunum,
galla abstraktlistar, yfirburði
sovézkra eldflauga og bættar að
ferðir vig að mjólka kýr.
„Ég man eftir afa mínum",
sagði hanrr vfð' þorpsbúana í
heimaþorpi sínu, Kalinovka.
„Hann átti einnig kú, en hún
mjólkaði nálega ekkert. Mjólk-
in nægði aðeins til þess að
skyggja svo súpuna, að maður
gat ekki séð, hvort kartöflur
voru í henni eð'a ekki. Þá hugs-
aði ekki einu sinni neinn um
kjöt“
Þúaundir sovézkra borgara
skrifa Krustjoff umkvartanir
sínar og ráðleggingar. Forsætis-
ráðherranum þykja þessi bréf
gagnleg til eftirlits með fram-
ferði embaettismanna og hann
lætur sérstaka skrifstofu fást
við vandamálin.
ÞEGAR Krustjoff ferðast um
Sovétríkin eða til nálægra
landa fer hann að jafnaði í
gamaidags svefnvagni, grænum
að lit. Símavagn er með í lest-
inni, ti! þess að hann geti stað
ig í sambandi vig Moskvu.
Frá opinberum athöfnum
Krusrjoffs er sagt í Pravda,
venjulega á forsíðu. En einka-
líf hans er lokuð bók fyrir
venjulegan sovétborgara, en
hann hefur ekkert við það að'
athugn þó að hann viti ekkert
um cinkalíf forsætisráð'herra
síns, eða hvar hann dvelur.
Þegar svartur Chaika-bíll
Krusíjoffs, með tjöldum fyrir
skothektum gluggunum, rennur
af stað frá Kreml út um Boro-
vitskvhlið'ið. bíða' engir forvitn
ir áhurfendur eftir honum. —
Krustjoff er ekki fastheldinn
á formsatriði og situr oft
frammí hjá bílstjóranum, en
tveir lífverð'ir sitia í makindum
í aftursætinu. Veniulega fylgja
einn eða tveir bílar með leyni-
lögreglumönnum og þeim er
fljótt greidd gatan í umferð-
inni, en göturnar eru ekki lok-
aðar eða sírenur þeyttar, eins
og gert var þegar Stalín var á
ferð'inni
KRUSTJOFF á stóra íbúð vig
Arabatstræti í Mnskvu 02 henn
ar er vel gætt En fjölskyldan
kýs fremur að dvelia í öðru
hvoru hinna tveaeia sve:tahúsa
sem hún hefur til umráða utan
við borgina Uppáhaldsbústaður
hennar er í þnrn’nu IJsovo, við
Moskvuána. hálfrar stundar
akstur frá Moskvu. Þetta er
tveggja hæða hús. rjómagult
að lit, vel búig og skýlt birki-
og furuskógi. Þegar Nixon vara
forseii Bandaríkjanna var þar
í heimsókn í júlí 1959. gizkuðu
aðstoðarmenn hans á að það
væri á stærð við Hvita húsið, að
undantekinni skrifstofuálm-
unni.
Krustjoff vill helzt liafa börn I
sín 03 barnabörn í kring um
sig. Tveir ungir synir Rödu,
hinnar Ijóshærðu dóttur hans
(konu Aleksei Adzhubei, rit-
stjóra Izvestia), ólátast við ána
eða meðal blómabeðanna og
gosbrunnanna í garðinum. Og
svo er lítig sumarhús vig ána.
Yngsta dóttir Krustjoffs,
Yelena, sem er 24 ára að aldri.
sonur hans Sergei, 28 ára gam- H
all verkfræðingur, og kona H
hans, voru einnig tíðir gestir @
á heimilinu. Krustjoff átti einn |
Framhaltí 1 13 síðu J?
T í M I N N, sunnudagurinn 25. ágúst 1963.
z