Tíminn - 25.08.1963, Qupperneq 15
15. LANDSÞING
KVENFtLAGASAM
BANDS ISLANDS
15. LANDSÞING Kvenfélagasam
bands íslands var haldið í Reykja-
vík dagana 24.—27. júní s. 1., og
sátu það 42 fulltrúar frá öllum
héraðssamböndum, auk stjómar-
kvenna, sem ekki voru fulltrúar og
aðalritstjóra „Húsfreyjunnar", —
blaðs sambandsins.
Þingið var haldið í Iðnó, uppi.
Viðstödd setningu þingsins var
forsetafrú, Dóra Þórhallsdóttir. —
Frédikun flutti sr. Óskar J. Þor-
láksson og forseti sambandsins,
Rannveig Þorsteinsdóttir, hrl.,
fiutti ávarp og setti þingið.
Þingforsetar voru kjömir þær
Rannveig Þorsteinsdóttir og Að-
albjörg Sigurðardóttir.
Helztu mál þingsins voru:
1. Starfsemi Kvenfélagasam-
bands fslands, ráðunautamál og
blað sambandsins, „Húsfreyjan“.
Rannveig Þorsteinsdóttir gaf
skýrslu um störf sambandsins á
siðastliðnum tveim ánim. Félags-
konur innan sambandsins voru
hinn 1. janúar 1961 14.183, en hinn
1. janúar 1963 voru þær 14.265 og
hafði því aðeins fjölgað í sam-
bandinu. Héraðssamböndin eru 18
og voru félög innan þeirra hinn
1. janúar 1961 216, en hinn 1. janú
ar 1963 218, Höfðu 4 félög hætt
starfsemi sinni á tímabilinu, en 6
r,ý komið í staðinn, þannig að fé-
lagsdeildunum fjölgaði um tvær.
Árið 1961—1962 hafði Kvenfé-
lagasamband íslands engan ráðu-
naut í þjónustu sinni vegna þess að
enga konu var hægt að fá til starf-
ans. Beitti sambandið sér þá fyrir
því að fá sérmenntaðar konur til
þess að flytja erindi hjá kvenfélög-
um í Reykjavík og nágrenni og
urðu það allmargir fyrirlestrar.
Starfsárið 1962—1963 hafði kven-
félagasambandið saumakennara,
sem kenndi fatasaum og lét hún
nemendur sína sníða sjálfar og
laga fötin til, Saumakennarinn,
Ólína Jónsoóttir, kenndi allmikið
hjá fjórum héraðssamböndum.
Það er mikið áhugamál kvenfé-
laganna, að jafnframt því, sem
kvenfélagasambandið sjálft hafi
færum ráðunautum á að skipa til
þess að senda út til félaganna, þá
fái félögin einnig aðstoð til nám-
skeiðahalds og fræðslustarfsemi
heima fyrir Þess vegna var það
mikið' fagnaðarefni, að' hv. Alþingi
veitti á fjárlögum ársins 1963 kr.
100.000.00 til héraðsráðunauta-
starfs meðal héraðssambanda kven
lélaganna. Er ákveðið, að þessu fé
verði skipt niður á samböndin í
hlutfalli við fræðslustarf þeirra.
Blað sambandsins, „Húsfreyj-
sn“, kemur út ársfjórðungslega og
er nú byrjaður 14. árg. þess. Rit-
ið er með svipuðu sniði og næstu
ár á uudan, en þó með nokkrum
nýjungum. Allur útgáfukostnaður
hefur hækkað stórkostlega, og
varð ekki hjá því komiES, að
hækka áskriftagjald ritsins nú ný-
verið. Fulltúar voru sammála um
það, að „Húsfreyjan" væri af-
bragðsrit, og mjög margt í henni,
sem heimilin og húsmæður varðar.
2. Skýrsla starfsnefndar K. í.
Á formannafundi 1. júní 1962
var samþykkt að kjósa nefnd til
þess að gera áætlanir um fram-
íiðarstarf Kvenfélagasambands ís-
lands. í nefndinni áttu sæti: Aðal-
björg Sigurðardóttir Reykjavík, er
var formaður nefndarinnar, Hall-
uóra Guðmundsdóttir, Miðnesi,
Grímsnesi; Helga Magnúsdóttir,
Blikastöðum, Mosfellssveit; Stein-
unn Ingimundardóttir, skólastjóri
Húsmæðraskólans að Varmalandi,
skólastjóri Húsmæðrakennaraskóla
Islands, Reykjavík.
Nefndin lagði fram eftirfarandi
tillögu, er þingið samþykkti ó-
breyttar:
1. Skrifstofa K.í. skal, jafnframt
því, að annast almenn skrifstofu-
störf, hafa á hendi fræðslu- og
upplýsingastarfsemi fyrir húsmæð
ur.
2. Stjórn K. í. ráði-í því augna-
miði fastan starfsmann, er ann-
ist, ásamt skrifstofustörfum, upp-
lysingaþjónustu og fræðslustarf. —
Leitað sé tii sérfræðinga um hin
ýmsu málefni heimilanna, eftir því,
sem með þarf og efnahagur leyfir.
3. Aflað verði sérfræðibóka, tíma
rita og blaða til notkunar og úr-
vinnslu fyrrr starfsmenn K.Í., svo
að jafnan séu fyrir hendi nýjustu
niðurstöður rannsókna og athug-
ana, sem unnar eru í þágu heimil-
anna á erlendum stofnunum og
heima fyrir.
4. Unnið sé að því að koma þeirri
þekkingu og annarri tímabærri til
almennings í gegnum blað K. í.
„Húsfreyjuna", útvarp, almenna
upplýsingaþjónustu útgáfu smárita
og bæklinga eða handbóka fyrir
husmæður eftir því, sem mögu-
legt er, og með því að útvega
sambandsfélögunum þá kennara
og fyrirlesara, sem þau óska eftir
og tök eru á að fá, enda beri þá
kvenfélögin sjálf kostnað af þess-
ar> starfsemi.
5. Rannsóknarmiðstöð fyrir mál
efnj heimilanna er nauðsynleg. —
Sýnist eðlilegast að setja hana í
samband við rannsóknastofnun rík
isíns i þágu atvinnuveganna. Þing-
ið leggur því til að fela stjórn K.í.
að vinna að þvi að bætt sé inn í
frumvarpið um rannsóknir í þágu
atvinnuveganna frá síðasta alþingi,
og ekki vai afgreitt á því þingi,
NORSKA STJÓRNIN
Framhala af 16. síð'u.
um í Noregi samsteypustjórn borg
araflokkanna fjögurra, og er þá
lokið 28 ára stjórnarferli jafnað-
armanna, en það er almenn skoð-
un, að hin nýja stjórn verði ekki
langlíf.
Foringi Sósíalistts'ka þjóðar-
flokksins, sem á tvo menn á þingi,
hefur lýst því yfir, að vantraust
verði borið fram gegn nýju stjórn
inni þegar í stað, en ekki er vitað,
hvort jafnaðarmenn styðja slíka
tdlögu, þar sem þeir hafa lýst því
yfir, að hinni nýju stjóm verði að
gefa heiðarlegt tækifæri.
í hinni nýju borgaralegu stjórn,
sem verður útnefnd á þriðjudag-
inn, eiga sæti fimm ráðherrar úr
Hægriflokknum, fjórir úr Mið-
flokknum, þrír frá Kristilega þjóð
arflokknum og þrir frá Vinstri-
fl'okknum.
John Lyng, sem verður forsætis-
ráðherra hinnar nýju borgaralegu
stjórnar, er 58 ára að aldri. Hann
varð stúdent árið 1923, lauk laga-
prófi 1927 og gerðist málflutnings
maður sama ár. Hann stundaði
dómstörf árin 1928—1930, en las
árið eftir ríkisrétt í Kaupmanna-
höfn og Hei'delberg. Hann rak
sjálfstæða lögfræðiskrifstofu árin
1932—1942.
Frá 1950 hefur hann verið með-
limur miðstjórnar Hægriflokksins
og árið 1958 varð hann formaður
þingflokksins. Hann tók fyrst
sæti á þingi árið 1954.
TGGARAR
Framhald af l. síðu.
uppfy'Ja. Oft á tíðum láta útgerð
ir gera meira, en uppfylla þessar
kröfur, og vill það þá oft koma
þeim til góða, þegar næsta skoð-
un fer fram. Þeir, sem láta sér
nægja algert lágmark, geta hins-
vegar búizt við því, að næsta
skoðun geti orðið þeim býsna
þung i skauti.
pannig má búast við því, að
sextán ára flokkunarvlðgerðin
verði ýmsum útgerðarmönnum
þung , skauti. Búast má við því,
að verst verði þeir úti, sem hafa
látið skip sín liggja undanfarið,,
þar eð < þeim er vitanlega ýmis-
legt úr lagi gengið, sem hefði
verið haldið við, ef skipin hefðu
verið að veiðum. Þó bar mönnum
saman um að ekkí myndu útgerð
armenn leggja skipum sinum
hennar vegna, þótt einstaka und
antekningar kunni þar að verða.
Vitanlega hefur útgerð þessara
skipa gengið upp og ofan, Þess
má geta, að tveir fyrstu nýsköp-
unartogararnir voru Ingólfur
Arnarson og Kaldbakur. í reikn
ingum Bæjarútgerðar Reykjavik.
ur kemur í ljós, að útgerð Ingólfs
hefur gengið langbezt af öllum
togurum hennar og Kaldbakur
hefur alla tíð verið og er enn
mikið afla. og happaskip
akvæði um rannsóknarstofnun
heimilanna
6. Starfsemi ráðunautanna skal
tengja þessu starfi. Skrifstofa K.I.
verður þá miðstöð ráðunautaþjón
ustunnar ráðunautarnir hafa þar
aðgang að fræðiritum, skipuleggja
störf sín, halda fundi og námskeið,
sem komið er á fyrir milligöngu
skrifstotunnar.
SEINNI HLUTI BIRTIST
Á ÞRIDJUDAG
úrðsending frá H.Þ.L.
Húsmæðrnskóli Þingeyinga að Laugum verður seftur sunnudaginn 22
september. Nemendur mæti daginn áður. Enn aeta nokkrir nemendur
fengið skólavist. — Símstöð: Breiðamýri.
Halldóra Sigurjónsdóttir, skólastjóri.
LANGANES
Framhald af 16. síðu.
Þar til stórvirk framleiðslutæki
k.omu til sögunnar var nýrækt á
Langanesi erfiðleikum háð, segir
Sigurður, en með tilkomu skurð-
grafanna hefur viðhorfið breytzt,
og segir Sigurður Pálma land-
græðslustjóra telja þar nægt land
til framræslu.
Tvennt er það einkum, sem
brjáð hefur Langnesinga í seinni
tíð, að sögn Sigurðar. Það eru
vorharðindin 1954 og garnaveiki,
sem herjar mjög illilega á bænd-
ur á fyrstu árum sjötta áratugs
aldarinnar. Telur Sigurður bænd
ur ekki enn hafa náð sér eftir
þau áföll.
Bændur á Langanesi eru sauð-
fjárbændur, en nú er verið að
byggja mjólkurstög á Þórshöfn. —
Til þess að unnt sé ag hefja veru-
lega mjólkurframleiðslu, til við-
bótar sauðfjárbúskapnum, þarf að
auka mjög ræktun og er m. a.
í athuguu hjá Landnámi ríkisins
oð stofna nýbýli í grennd vig þjóð-
veginn á miðnesinu og innanverðu
nesinu, að sögn Sigurðar.
JOHNSON
Framhald af 16. síðu
Keflavíkurflugvelli og fylgja þeim
til Bessastaða í heimsókn td for-
seta íslands, herra Ásgeirs Ás-
geirssonar. Síðan heimsækir vara-
forsetinn ríkisstjórnina í Stjórn-
arráðshúsið
Varaforsetinn og fylgdarlið hans
mun skoða Reykjavík fyrir hádegi,
en um ei'tirmaðdaginn fer hann til
Þingvalla. Kl. 17,15 heldur vara-
forsetinn ræðu í Háskólabíó.
Forseti íslands heldur hádegis-
rerð í Hótei Sögu til heiðurs vara
fcrseta Bandaríkjanna og forsæt-
isráðherra Ólafui Thors kvöldverð
arboð að -Hótel Borg.
Varaforsetinn og fylgdarlig hans
mun gista á Hótel Sögu og fara
frá Reykjavík að morgni þrið'ju-
dags 17 .september.
Heimsókn Lyndon B. Johnsons,
varaforseia Bandaríkjanna, er lið
ur í opinberri heimsókn til Norð-
urlanda, en hingað kemur hann
frá Danmórku.
SÍMINN
Framhald af 1. síðu.
verður tekin í notkun 31. ágúst.
Stækkun Reykjavífeurstöðvar-
innar verður lokið um leig og
sjálfvirkastöðin í Kópavogi verð
ur opnuð. Sfmar í Kópavogi hafa
til þessa verið tengdir Reykja-
víkurstöðinni, en við breyting-
una losna um 1000 númer í
Kópavogi, sem koma til afnota
í Reykjavík. Samtals bætast þá
við í Reykjavík um 2000 númer,
en stöðin í Kópavogi verður með
jafnmörg númer: Rýmir alls 5000
númer. 12—13 hundruð númer
verða tekin inn strax, og 100—
200 í viðbót fyrir áramót, en þau
eru nú á biðlista. Þegar fram-
kvæmdunum í Hafnarfirði, Kópa
vogi og Reykjavík er lokið, verð
ur fljótl'ega hægt að afgreiða
fyrirliggjandi umsóknir um síma
á þessum stöðum. Nýja símaskrá-
in kemur út í lok októ'bermán-
aðar.
LEIÐABÆKUR
Framhaló aí 16. síðu.
broti og þægilegir í vöfum. í
þeim eru stuttorðar lýsingar á
því helzta, sem fyrir augu ber,
og eru nöfn helztu kennileita
ritug feitu letri út á spássíuna,
Björn Þorsteinsson sagn-
fræðiingur hefur samið þessar
leiðalýsingar fyrir Ferðaskrif-
stofuna, en enska þýðingin er
gerg af Peter Kidson, sem dval-
izt hefur lengi hérlendis og er
vel að sér í báðum þessum
tungumálum. Fleiri hafa lagt
hönd að verki.
Bæklingurinn, sem næst kem
ur út, er lýsmg á leiðinni Ak-
ureyri — Goðafoss — Mývatn
— Dettifoss — Ásbyrgi — Tjör
nes — Húsavík — Akureyri.
• Hann kemur væntanl'ega út í
byrjun næsta árs. Næsta verk-
efni er Reykjanes, Krýsuvík
og Hveragerði, og að því loknu
er gert ráð fyrir að gera lýs-
ingu á leiðinni austur á Síðu.
Verður reynt að koma þeim
bæklingum út á næsta ári.
Bæklingarnir kosta frá 25 og
upp í 50 kr. eftir stærð.
Jarðarför konunnar minnar og móður
Gyðu Daníelsdóttur
fer fram miðvikudaginn 28. ágúst kl. 1,30 frá Fossvogskirkju.
Þorsteinn Ásgeirsson
Nanna Þorsteinsdóttir
innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
mannsins míns, föður og tengdaföður,
Margríms Gíslasonar
fyrrv. lögregluþjóns.
Guðlaug Guðmundsdóttir,
Guðrún Margrimsdóttir,
Haraldur Þ. Jóhannesson.
Útför "
Magnúsar Björnssonar,
ríkisbókara
verður g|örð frá Dómkirkjunnl, þrlðjudaglnn 27. ágúst kl. 10,30. —
Athöfninni verður útvarpað.
Elin Björnsdóttir,
Vilborg Biörnsdóttir.
Innilegar þákkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
Ástu Gunnarsdóttur
Gunnarshúsi, Eyrarbakka.
Vandamenn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnds asmúð við fráfalf og útför
mannslns míns
Einars GuSbrandssonar,
Hliðardal.
Fyrir mína hönd, dóttur okkar og annarra aðstandenda.
Sigríður Halldórsdóttir
Hugheilar þakkir til allra fjær og nær, sem sýndu o1'1'-- hiálp
og vináttu við andlát og jarðarför
Guðmundar Þórðarsonar
frá Rauðnefsstöðum.
Jósefína Njálsdóttlr,
börn og tengdabörn
T í M t N N, sunnudagurinn 2S. ágúst 1963.
15