Tíminn - 19.09.1963, Qupperneq 7

Tíminn - 19.09.1963, Qupperneq 7
Útgefc nc!i- F8AMSÓKNARFI-OKKURINN Framkvæmdast.ióri I'ómas Arnason — Kitstjórar: Þórarinn Þórarinsson <ábi Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson Frétta- stjóri: Jónás Kristjánsson Auglýsingastj.: Sigurjón Davíðsson Ritstjórnarskrifstofur í Eddu húsinu, símar 18300—18305 Skrif stofur Bankastr 7 Afgr.sími 12323 Augl.. sími 19523 Aðrar skrifstofur, sími 18300. Áskriftargjald kr. 80,00 á mán. innan- lands. t lausasölu kr 4.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h.f — 2,8 stig í stökki Þp.gar núverandi ríkisstjórn tók við völdum, var eitt helzta gylliloforð hennar að lækka beina skatta. Þessa skrautfjöður hefur Gunnar Thoroddsen, fjármálaráð- herra, oftast borið í hatti fyrir stjórnarinnar hönd, haft uppi mikla orðaleiki á Alþingi og í iagasetningu þar, og allt túlkað sem „stórkostlegar“ lækkanir á beinum skött- um!! Þegar ríkisstjórnin hefur verið gagnrýnd fyrir marg- faldaðar álögur á almenning, svo að ekki nemur aðeins hundruðum milljóna, heldur nokkuð á annan milljarð, þá hefur Gunnar og stjórnin svarað: Já, en góða fólk, á móti þessu kemur öll þessi stórkostlega beina skattalækkun, og var helzt að skilja, að stjórnin hafi að mestu fellt niður alla beina skatta. . En blákaldar hagstofutölur eru kynlega ósamhljóða stjórninni um þetta. Þegar þær tölur skýrðu frá því á s. 1. vetri, að beinir opinberir skattar hefðu ekki lækkað í kostnaði vísitölufjölskyldunnar heldur þvert á móti auk- izt um hátt á annað prósent, kom nokkurt fát á stjórnina, og ráðherrar hennar urðu óðamála langa hríð við að reyna að sanna, að samt hefðu beinu skattarnir lækkað!! Nú eru komnar nýjar hagstofutölur, eins og skýrt var frá hér í blaðinu í gær. Þær segja, að framfærsluvísitalan hafi í einum mánuði, ágúst, hækkað um 5 stig, en það er jafnmikil hækkun dýrtíðar á einum mánuði og orðið hefur á heilu ári að meðaltali í löndum V-Evrópu. En hver er meginþáttur þessarar hækkunar? Hag- stofan gefur um það skýr svör og segir í fréttatilkynn- ingu sinni: „Þar af eru 2,8 stig vegna hækkunar á þeim lið vísi- tölunnar, sem hefur að geyma gjöld til opinberra aðila, þ. e. útsvar, tekjuskatt, iðgjald til almannatrygginga o. fl." í einum áfanga hefur baggi visitölufjölskyldunnar af beinum sköttum þyngzt um nær þrjá af hundraði. Og þetta er nýjasta afrek stjórnarinnar í lækkun beinna skatta!! Þannig hafa laufin fallið af því tré, sem stjórnin taldi einna grænast 1 garði sínum Rekstrarform búskapar Fyrir alllöngu birtist hér í blaðrnu viðtal við ungan, þingeyskan bónda, Sigurð Jónsson í \ztafelli. Hann ræð- ir þar um vandamál íslenzks landhúnaðar og lætur m. a. falla eftirfarandi orð, sem full áslæða er að gefa góðan gaum: „Eg held, að þróunin verði sú, að einyrkjabúskapur sem slíkur leggist æ meira niður og menn fari að vinna að búskapnum á félagsgrundvelli Hvernig það form end- anlega verður, vil ég ekki spá um nú — hvort það verð- ur sameignar- eða hlutdeildarfyrirkomuiag. Eg held, að það væri rétt, að Landnám ríkisins tæki að styrkja til- raunir með nokkur rekstrarform i búskap.“ Hér er vikið að máli, sem heiidarsamtök bændastétt- arinnar hljóta að láta til sín taka á násstu árum og ræða ýtarlega, og eins er tímabært að athuga það gaumgæfi- lega, hvernig unnt sé af opinberri bálfu og með löggjöf að vinna þessu máli gagn, einkum að því er snertir rann- sókn og samanburð á hagkvæmni mismunandi rekstrar- forma í íslenzkum búskap. Val bænda í þessum efnum á að auðvelda með hlut- lægri rannsókn á hagkvæmni rekstrarforma. issstst en regn Umræður um sfefnuskrá norsku ?tjómannnar sfanúa yfir. Þegar Einar Gerhardsen, fyrrverandi forsætlsrátííherra Noregs, reis úr sæti sínu fyrir Lyng núverandi forsætisráð- herra fyrir réttum þremur vikum, blrti blaðið Verdens igang, teiknimynd af þeim, þar sem Lyng er setztur í stólinn, en Gerhardsen er að gamga út. Hann hefur þó gleymt regn- hlífinnl sinni við vegginn, og Lyng kallar á eftir honum: — — Þú gleymir regnhlífinni þinni, Einar. — Það gerir ekkert til, svar- aði Gerhardsen. — Það rignir ekki þessa stundina. Þessi teiknimynd túlkaði við horfið eins og það var við þessi sögulegu stjórnarskipti, og máti þá dagana beinlínis lesa það úr ræðum og skrifum for- ingja Verkamannafl'okksins, að þeir hygðust ekki veita þess- ari norsku hægri stjórn, sem köllug er, langa setu á friðstóli. Af ræðu þeirri, sem Ger- hardsen flutti á Young-torg- inu yfir tugþúsundum manna daginn áður en Lyng-stjórnin tók við, hafði hann um þetta allsterk orð og taldi hiklaust, að Verkamannaflokknum bæri að fella stjórnina sem allra fyrst, því að hvorki á þingi eða meðal kjósenda landsins væri meirihluti fyrir slíkri s*jórn, þó að svona undarlega hefði tii tekizt fyrir tilverknað tveggja þingmanna, sem þættust standa vinstra megin við Verkamanna. flokkinn. Spurning sú, sem forystu- menn Verkamannaflokksins vél'u fyrir sér. sagði Gerhard- sen, væri aðeins sú, hvort rétt væri að fella stjórnina þegar eftir valdateku, eða ekki fyrr en hún hefði lagt fram stefnu- skrá sína. SÍÐAN ERU LIÐNAR þrjár vikur. og þann tíma hefur stað- ið yfir hörð kosningabarátta í Noregi vegna bæjarstjórnar- kosninganna, sem fram eiga að fara eftir nokkra daga, og vita aliir, að þær kosningar munu fremur snúast um landsstjórn- mál en sveitarstjórnarmál að þessu sinni, enda talið víst, að þar muni koma fram nokkur vísbending um það, hvernig norska þjóðin lítur á þessi stjórnarskipti. Lyng forsætisráðherra boð aði þegar við valdatöku sína. að hann mundi leggja fram stefnuskrá stjórnar sinnar um miðjan mánuðinn, og umræð- ur um hana mundu fara fram í þinginu dagana 18. og 19 september. Gustavson formæi andi Sósíaliska þjóðflokksins tilkynnti, að hann mundi þó þegar bera fram vantrausts- tillögu á stjórnina, en krafa hans hefur verið sú, að Verka mannaflokkurinn færi áfram með stjórn, en miklar breyting ar yrðu gerðar á fyrrverandi ráðuneyti Gerhardsens, eða jafnvel skipt um forsætisráð- herra. Nú er vantrauststillaga Gustavssons komin fram, og umræðumar um stefnuskrá stjórnarinnar standa sem hæst. GERHARDSEN Er jafnvel búizt við atkvæða- greiðslu í kvöld eða morgun. Og nú spyrja menn; Sækir Ger- hardsen regnhlífina sína í dag? f gær var enn ekkert vitað nákvæmlega um fyrirætlanir forystumanna Verkamanna- flokksins í þessum efnum. Þeir eru eins og nú er komið. milli tveggja elda, eiga tvo kosti, og þykir hvorugur góð- ur. ANNAR KOSTURINN er sá, að leyfa stjórninni að sitja fram að næstu þingkosningum, eða nær tvö ár, en til þess yrði flokkurinn að veita henni hlut- leysi og sitja hjá við van- trauststillögur. Meg því héldi Verkamannaflokkurinn í raun og veru lífinu í stjórninni og bæri þar með nokkurn vott á- byrgðar á störfum hennar. Það er einnig undir hælinn lagt, hvaða áhrif slík stjórnarseta hefði á almenningsálitið og ekki talið víst, ag Verkamanna- flokkurinn hefði að lokum LYNG næstu kosningum bolmagn til að fella þessa stjórn eða mynda nýja, og hefði hann þá þar með sleppt úr hendi sér þeim tögl- um og högldum, sem hann hef- ur nú. Margir kjósendur líta svo á, að flokknum beri nú að neyta þess valds, sem þeir hafa veitt honum, en það feli ekki í sér umboð til þess ag halda hlífiskildi yfir hægri stjórn. En það ýtir undir Verka- mannílokkinn nú að leyfa stjórninni að sitja áfram, að Lyng hefur lagt fram allsjá- lega stefnuskrá, þar sem boð- uð eru ýmis nýmæli og miklu heitið, augsýnilega í því skyni, að gangi vel í augu kjósenda nú fyrir bæjarstjórnarkosning- arnar og geri Verkamanna- flokknum erfiðara fyrir um að fella stjórnina. Það þykir hins vegar sýnt, að stjórninni verði erfitt um vik að standa við öll þau loforð, sem þarna eru gef- in, þótt hún fengi ráðrúm til, og því muni verða gott að heyja kosningabaráttuna eftir tvö ár þegar þag sé komið í ljós. Verði stjórnin hins vegar felld nú. geti stjórnarflokkarnir við næstu kosningar bent á þessa stefnuskrá og sagt: Þetta ætl- uðum við að gera, en fengum ekki ráðrúm tii; Viljið þið ekki £ veita okkur fulltingi til að gera það núna? Hér á Verkamanna- flokkurinn því úr vöndu að ráða, þegar hann íhugar þessa leið HIN LEIÐIN ER SU AÐ greiða vantrauststjllögu tveggía þingmanna sósíaliska þjóð- flokksins atkvæði og fella stjórnina með 76 atkv. gegn 74 alveg eins og þegar Gerhard- sen féll. En þá er að íhuga s'jórnarm>ndunina. Verka- mannaflokkurinn hefur marg- lýst yfir, að hann vilji ekki breyta ráðuneyti Gerhardsens heldur setja það á lag£ir aftur óbreytt, en slikt fær ekki stuðn- ing Gustavsons, og mundi þá stjórnjn falla að nýju og sama sagan endurtaka sig. Slíkt er ekki sigurstranglegt fyrir Verkamannaflokkinn. Þá er að verða við kröfum Gustavsons um breytingar á ráðuneytinu og jafnvel taka hann í stjórn- ina. Slíkt yrði harla beiskur biti fyrir Verkamannáflokkinn og talinn verulegur álitshnekk- ir af ýmsum. Þannig standa málin. Verka- mannaflokkurinn hefur komizt í nokkra kreppu, og norsk stjórnmál emnig. Þess vegna spyrja menn með allmikilli for- vi*ni í dag: Sækir Gerhardsen nú regnhlífina sína, eða lætur hann hana standa nokkru leng- ur í forsætisráðuneytinu og hætrir á að taka þe*rri rigningu, sem í koll kemur? Svo kynlega heíur við brugðið, að mál það — námuslysin á Svalbarða — sem varð orsök stjórnarfallsins, hefur nær ekkert verið rætt síð ustu vikur. Það hefur alveg horfið í skuggann, enda al- mennt viðurkennt, að á því væri frá upphafi nokkur yfir- skinsblær. ak z TÍMINN, fimmtudaginn 19. september 1963

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.