Tíminn - 21.01.1964, Qupperneq 2
MÁNUDAGUR, 20. JANÚAR.
NTB-Dar-Es-Salaam. — Allt
bcndir til þcss, að uppreisnin,
sem nokkrir hermenn gerðu í
Tanganyika í morgun, sé liðin
undir lok. Allt var rólegt í Dar
es-Salaam í kvöld, en 14 manns
létu lífið í óeirðunum.
NTB-París. — Talið er, að
Frakkland muni viðurkenna
kínverska alþýðulýðveldið inn-
an fárra daga.
NTB-Djakarta. — Stjórnin í
Indónesíu hefur blandað sér
inn í deilu ýmissa róttækra
verkalýðssambanda og erlendra
fyrirtækja, en verkamennirnir
tóku öll völd í ýmsum brezkum
fyrirtækjum i landinu um síð-
ustu helgi. Mun fulltrúi stjórn-
arinnar ræða við deiluaðila á
morgun.
NTB-Manila. — Robert Kenn
edy, dómsmálaráðherra USA,
fer í kvöld til Kuala Lumpur,
höfuðborgar Malasíu, til við-
ræðna við æðstu menn lands-
ins.
NTB-Washington. — Harold
Stassen, fyrrum ríkisstjóri í
Minnesota, hefur gefið kost á
sér, sem næsta forsetaefni re-
públikana. Þetta er í fjórða
skiptið, sem hann gefur kost á
sér.
NTB-Helsingfors. — Viðræð-
ur fara nú fram á milli tveggja
finnskra stjórnmálaflokka, So-
síaldemókrataflokksins og
Bandalags sósíaldemókratiskra
verkamanna og bænda, um að
sameina flokkana-
NTB-New York. — Pakistan
hefur beðið Öryggisráð Samein
uðu þjóðanna að koma saman
til fundar sem fyrst, til þess
að koma í veg fyrir, að Indland
geri Kasmír að yfirráðasvæði
sínu. Öryggisráðið kemur lík-
lega saman í þessari viku.
,NTB-Tel Aviv. — Flugmaður
á egypzkri herflugvél lenti í
Israel í gær og bað um hæli
sem pólitískur flóttamaður. —
Hann er fyrsti egypzki liðsfor-
inginn, sem leitar hælis í Isra-
el síðan 1956.
NTB-DALLAS. — Sálfræðing
ur við Yale-háskólann, hélt því
frain í réttinum í dag, að Jack
Ruby sá sem myrti Lee H. Os-
wald, þjáist af heilaskaða.
NTB-OSLO — Fjórir af þekkt
ustu lögfræðingum Noregs hafa
undirritað áskorun til stjórnar
Suður-Afríku, um að koma aft-
ur á réttarfarsöryggi í land-
■inu.
NTB-Geneve. — Formenn
sendinefnda Bandaríkjanna og
^ovétríkjanna á 17-ríkja af-
vopnunarráðstcfnunni í Genf
þeir William C. Foster og Semj
on Tsarapkin, héldu í dag
tveggja tíma fund um ýmis dag
skráratriði, en ráðstefnan hef-
ur fundi sína á morgun.
NTB-Cotnou. — Sourou Mig
an Apithy var kjörinn forseti
Dahomey s.l. sunnudag.
NTB-Saigon. — Kólera geys-
ar nú í Saigon. Vitað er um
300 tilfelli, og 47 hafa látizt.
DEILT HART UM 491
Ríkisstjórn Svíþjóðar mun ákveða, hvort kvikmyndin skuli sýnd opinberlega!
Deilurrar um sænsku kvikmyndina „491" verða hávær-
ari með degi hverjum, og bráðlega mun ríkisstjórnin skera
úr um, hvort hún skuli sýnd opinberlega í Svíþjóð eða ekki.
Sænska kvikmyndarannnóknarráðið, sem er ráðgefandi
nefnd, skoraði í dag á stjórnina að leyfa sýningu myndar-
innar, og benti á, að það væri ekki verkefni kvikmyndaeftir-
litsins að reyna að fegra veruleikann.
Ríkisstjórnin hafði beðið ráðið
um að láta álit sitt í ljós, vegna
þess, að framleiðandi kvikmyndar
innar, Svensk filmindustri, áfrýj-
aði dómi kvikmyndaeftirlitsins um
að myndin skyldi bönnuð. Myndin,
sem er gerð af einum helzta nem-
anda Ingmar Bergmans, Vilgot
Sjöman, er um sex unga afbrota-
menn, sem notaðir eru sem til-
raunafangar undir eftirliti full-
trúa barnaverndarnefndarinnar.
Ung gleðikona slæst í hópinn, og
í myndinni er fjöldi samfara og
ljótra slagsmála, og auk þess at-
riði, þar sem stúlkan er mishöndl-
uð og neydd til að hafa kynferðis
leg mök við hund.
(Sænska kvikmyndaeftirlitið
bannaði myndina á þeim forsend-
um, að hún væri mjög hættuleg
ungu fólki, þar eð hún væri bæði
sadistísk og dýrsleg.
Kvikmyndarannsóknarráðið
sagði aftur á móti, að 491 væri
sterk, en hreinskilin og raunsæ
lýsing á lífi nokkurs hluta æsk-
unnar. Það mótmælti einnig, að
kvikmyndin væri skaðleg, og kvað
margt benda til þess, að kvik-
myndaeftirlitið hefði blandað sam
an eigin mótvilja gegn þeim að-
stæðum, sem myndin lýsir, og því
hvort þessi atriði ættu rétt á sér
í kvikmynd.
Einn af fulltrúum ráðsins, presi
urinn Gunnar Dahmen, taldi, af
kvikmyndin væri misheppnuð serr
listaverk, og því einungis fjöld'
sviðsmynda án samhengis, einr
kónar tilraun með frumstæðar ti’
finningar.
Sænska kvikmyndaeftirlitið hel
ur einungis þrisvar sinnum áðui
bannað kvikmynd, og er álitið hið
frjálslyndasta í heiminum. Bann
á 491 hefur vakið mótmæli svo
að segja allra blaða í Svíþjóð, og
einn af meðlimum eftirlitsins
skáldkonan Viveca Starfelt-Bart-
hel, hefur látið af störfum sínurc
þar vegna bannsins.
Hvað ætlar þú að gera?
MAGNÚS BJARNFREÐSSON,
ritstjórl — Kom þessar upplýs-
ingar ekkert á óvart, og mun
ekki hætta að reykja núna þrátt
fyrir þær. Það er svo annað mál
hvort ég hætti einhvern tíma að
reykja — en það er enginn
skrekkur í mér út af þessum
skýrslum og yfirlýsingum.
KARL O. RUNÓLFSSON, tón-
skáld — Ætla ekki að hætta að
reykja strax, en smám saman. —
Las I dönsku blaði gott ráð tll
að hætta: Ef maður reykir elna
sígarettu á hálftíma þá að reykja
eina á klukkutíma, og síðan
minnka það alltaf um helming.
GUNNAR STEINDÓRSSON,
auglýsingastjóri — Ætla að biða
cftlr upplýsingum frá Þýzkalandl
um olfustybbuna. Ef olíustybbarv
orsakar ekki krabbamein, fer ég
nú að hugsa mig um tvlsvar áður
en ég set næstu sígarettu upp í
mig. En ef þær eru á hinn veg-
inn, held ég sé sama hvort mað-
ur fær krabbana einu eða tveim
árum fyrr.
LÁRUS PÁLSSON, lelkari —
Hef ekki tekið neina ákvörðun
um að hætta að reykja. Stór-
hættulegt að láta fólk hætta að
reykja með því að taka inn amp-
hetamin.
Þátturinn „Á blaðamannafundi", undir stjórn dr. Gunnars
G. Schram, ritstjóra, vakti mikla athygli, Ræddu blaðamenn
þar við Niels Dungal, prófessor, um skaðsemi sígarettureyk-
inga, og hættuna af krabbameini í lungum af völdum þeirra.
Eftir að þættinum lauk, hringdi blaðið til nokkurra Reykvík-
inga, sem allir reykja sígarettur, og spurði þá, hvað þeir
hefðu um þær upplýsingar að segja, sem fram komu í við-
talinu við Niels Dungal, og hvort þeir hefðu í hyggju að
hætta að reykja. Svör þeirra fara hér á eftir:
VALDEMAR GUDMUNDSSON,
prentari — Ekkert. Ég hef reykt
í 56 ár og nú 30 sigarettur á dag.
Það drepur mig ekki úr þessu.
Annars er mltt álit, að það sé
alrangt, að hinir lærðu menn,
sem allt þykjast vita séu að reyna
að hræða fólk með krabbameini.
Framsóknarkonur
FÉLAG Framsóknarkenna heldur
fund fimmtudaginn 23. þ. m. kl. 8,30
í Tjarnargötu 26. Fundarefni: Björn
Guðmundsson borgarfuiltrúi talar
um ráðhúsbygginguna. Einnig verður
rætt um námskeið og fleirl félags-
mál. — Stjórnin.
JÖKULL JAKOBSSON, rithöf-
undur — Var þetta ekki alltaf
vitað? Nei, ég held ég sé ekk-
ert að hætta, það hlýtur að vera
orðið of seint fyrlr mig — hef
reykt frá 15 ára aldri. Annars
held ég bara að krabbinn í mér
sé dauður úr tóbakseitrun hafi
hann einhvern tíma verið til. —
Ég tók að vísu fram pípurnar
mínar núna um daginn, og mæli
með Lillehammer.
3 HAFA LÁTIZT
í BÍLSLYSUNUM
53 TONNA 3AT M UPP
HJ-Eyrarbakka, 20. jan.
Aðfaranótt sunnudagsins slitn-
aði vélbáturinn Kristján Guð-
mundsson upp, þar sem hann var
á legunni í höfninni á Eyrar-
bakka. Mikið hvassviðri var um
helgina við suðurströndina og af-
tökubrim.
Kristján Guðmundsson, sem er
53 Iestir, lá á legunni á Eyrar-
bakka, en á árdegisflæðinu á
sunnudagsmorgun milli kl. 8 og 9
slitnaði báturinn upp, og rak hann
upp í fjöru fyrir vestan kauptúnið,
um 150 metra fyrir vestan bryggj-
una Liggur hann þarna í sandi og
flýtur í kringum hann á háflæði,
virðist hann lítið skemmdur, en
framundan eru klappir.
Björgun hf í Reykjavík tók að
sér að reyna að ná bátnum úr
fjörunni, og var byrjað að moka
frá honum sandinum í dag, en
menn frá Björgun fóru austur í
morgun.
Kristján Guðmundsson var
keyptur til Eyrarbakka árið 1962.
Hann var smíðaður í Svíþjóð árið
1956, og er eigandi hans nú Ásþór
hf. Skipstjóri er Þorbjörn Finn-
bogason og vélstjóri Ásgeir Mark-
ússon.
KJ-Reykjavík, 20. janúar.
Þrír menn hafa nú látizt af
meiðslum, sem þeir hlutu í um-
ferðarslysum í síðustu viku. Menn
þessir eru Magnús Jakobsson, Sól-
eyjargötu 7, Karl Laxdal, Mává-
hlíð 2 og Þorlákur Guðmundsson,
Njálsgötu 80.
Ekið var á Magnús á föstudag-
inn, þar sem hann var við vinnu
sína á Suðurgötunni. Karl var á
leið yfir Snorrabraut, rétt við
Miklatorg er ekið var á hann, og
Þorlákur var á leið yfir Njálsgöt-
una á fimmtudagsmorguninn um
níu. Hafði Þorlákur hlotið inn-
vortis meiðsli, en Karl og Magnús,
höfuðhögg.
2
TÍMINN, þriSjudaginn 21. janúar 1964 —