Tíminn - 21.01.1964, Side 6
Ovæntustu úrslitin voru sigur
ións Kristinss. gegn Guðmundi
Á FÖSTUDAGSKVÖLDIÐ voru
tefldar biðskákir úr þremur fyrstu
umferðunum. Fjórar skákir af sjö
voru til lykta leiddar og munu úr-
slitin í þeim ekki.hafa kornið nein
um á óvart.
Wade—Gligoric 0:1.
Johannesen—Freysteinn 1:0.
Nona—Trausti 1:0.
Jón—Wade VnVi.
Trausti—Jón biðsk.
Ingi—Guðmundur biðsk.
Gligoric—Guðmundur biðsk.
Wade-GIigoric. — Gligoric var
fljótur að vinna úr yfirburðum
sínum, enda mun biðstaðan hafa
verið algjörlega vonlaus fyrir
Wade.
Johannesen-Freysteinn. — Frey-
steinn gafst upp eftir að hafa séð
biðleik Norðmannsins.
Nona-Trausti. — Nona sigraði
en varla af eins miklu öryggi og
búizt hafði verið við. f hita bardag
ans gaf hún Trausta færi á takt-
iskri vendingu, sem hefði fyllilega
jafnað taflið fyrir hann, en til
allrar hamingju fyrir hana, sást
honum yfir þetta.
Jón-Wade. — Wade tókst aldrei
að sigrast á traustri vörn Jóns,
enda þótt hann ynni peð í áfram-
haldinu.
Ingi-Guðmundur. — Þessi skák
átti að teflast í 1. umferð, en var
írestað vegna veikinda Guðmund-
ar. Ingi beitti Réti-byrjun, sem
Guðmundur svaraði með hinni
traustu New York uppbyggingu,
þ e. 1. Rf3, d5 2. c4, c6. 3. b3, Rf6.
4. g3, Bf5 o. s. frv- Skákin varð
snemma flókin og eyddu teflend-
ur miklum tíma í að sjá fram úr
flækjunum, Ingi þó sérstaklega.
Þegar leiknir höfðu verið um 20
leikir, var Ingi farinn að leika
hraðskák, en Guðmundur hreifst
með um 15 leikjum síðar. í hinu
æðisgengna tímahraki tókst Inga
að næla sér í peð og stendur hann
nú mun betur að vígi í biðstöð-
unni.
Jón, sem átti hagstæða stöðu í
skák sinni við Trausta, tókst ekki
að leiða þá skák til lykta, og Gli-
goric og Guðmundur gátu að skilj-
anlegum ástæðum ekki tekið til
við sína skák.
4. UMFERÐ.
Tal-Gligoric 1:0.
Friðrik-Ingvar 1:0.
Freysteinn-Ingi 0:1.
Guðmundur-Jón 0:1.
Trausti-Wade %:%.
Arinbjörn-Magnús %: V2.
Nona-Johannesen biðsk.
Tal-Gligoric. — Eins og vænta
niátti, var mikill fjöldi áhorfenda
saman kominn til að fylgjast með
viðureign þessara frægu skák-
kappa. Tal opnaði taflið með 1. e4,
og Gligoric svaraði með —, e5. —
Skákin þræddi frá upphafi hinn
hefðbundna farveg Spánska leiks-
ins, en í 14. leik bryddaði Tal upp
á nýjung, sem fyrst leit dagsins
ljós i Havanaskákmótinu 1963. —
Gligoric hefur sennilega ekki kann
azt við leikinn, því að hann braut
heilann lengi um svarið og virtist
ekki finna viðunandi lausn. Hann
tók það ráð að losa um spennuna
á miðborðinu, en við það urðu
menn Tals svo virkir, að svörtu
kóngsstöðunni var hreinn háski
búinn. í 28. leik afréð Gligoric að
láta af hendi skiptamun til að
stemma stigu við áreitni hvítu
mannanna, en þetta virtist ekki
koma að neinu haldi. Tal hélt sóhn
sinni til streitu og hagur Gligoric
versnaði í sífellu. í 39. leik lék
hann af sér manni í tímaþröng og
kaus þá að gefast upp.
1. e4, e5. 2. Rf3, Rc6. 3. Bb5,
a6. 4. Ba4, Rf6. 5. 0-0, Be7. 6.
Hel, b5. 7. Bb3, d6. 8. c3, 0-0.
9. h3, Ra5. 10. Bc2, c5. 11.
d4, Dc7. 12. Rbd2, Bd7. 13.
Rfl, He8. 14. b3, —
(Þessi leikur kom fyrst fram í
skákunum Geller-Ivkov og Tal-
Matanovic í Havana 1963 og reynd-
ist hann í báðum tilfellum vel).
með 10. —, Db6. Hvítur leikur þá
bezt 11. dxe5 og hefur frjálsari
stöðu eftir —, Rxe5. 12. Rxe5,
Bxe5. 13. Bh6 o. s. frv. Drepi
svartur fyrst peðið á b2 á hvítur
völ á ýmsum taktiskum vending-
um, sem gera peðsránið í hæsta
máta varhugavert: 11. —, Dxb2.
12. Hcl, Rxe5. 13. Rxe5, Bxe5. 14.
Be7, He8 (Ef 14. —, Bxc3 þá 15.
Hc2 og svartur tapar skiptamun).
15. Bc5 og nú á svarta drottningin
ekki undankomu auðið).
10. — De8? 11. d5, Rb6. 12.
Bb3, c5.
(Svarti gezt ekki að því, hversu
staðan verður opin eftir 12. —,
cxd5. 13. exd5, en sennilega var
þetta þó skásta úrræðið).
13. a4, Bd7.
(Eða 13. —, c4. 14. a5).
14. a5, Rc8. 15. Be3, —
14. —, cxd4.
(Ivkov kaus að halda miðborðinu
lokuðu og er það vafalaust skárri
kosturinn).
15. cxd4, Rc6. 16. Bb2, Rxd4.
17 Rxd4, exd4. 18 Hcl, —
(Hótar 19. e5 ásamt 20. Bxh7t).
18. —, Dd8. 19. Dxd4, Bf8. 20.
Hcdl, Hc8. 21. Bbl, Bc6. 22.
Rg3, — -ör
(Hvítur er nú farinn að færa sig
allmjög upp á skaftið).
22. —, d5.
(Gligoric sér réttilega, að einhliða
vörn muni ekki nægja og leitar
því mótaðgerða á miðborðinu).
23. De3, Rd7. 24. Rf5, f6. 25.
Dg3, Dc7. 26. Dg4, Re5.
(Svartur afræður að fórna skipta-
mun, enda virðist hann ekki eiga
annars úrkosti. 26. —, dxe4 mundi
stranda á 27, Rxg7, og eftir 26.
—, Kh8. 27. exd5, Bxd5. 28. Hxe8.
Hxe8. 29. Rxg7, Bxg7. 3Ö. Dh5 er
svartur glataður. Eða 26. —, Kh8.
27. exd5, Hxelf 28. Hxel, Bxd5.
29. Re7 og vinnur).
27. Bxe5, Hxe5.
(Að sjálfsögðu ekki 27. —, Dxe5
vegna 28. Rh6t ásamt 29. Rf7t.
Með 27. —, fxe5 gæti svartur hald-
ið skiptamuninum til haga, en eftir
28. exd5 er svartur ekki öfunds-
verður af stöðu sinni).
28. Rh6t, Kh8. 29. Rf7+ Dxf7.
30- Dxc8, Bb7.
(Að sjálfsögðu er vinningurinn í
þessari stöðu aðeins tæknilegt atr-
iði fyrir Tal).
31. Dc3, b4. 32. Dcl, dxe4.
(Svartur hefur nú fengið peð upp
í skiptamuninn, n ekki getur það
talizt sárabót).
33. Hd8, g5. 34. Dd2, Bc6. 35.
Dd6, Be8. 36. Db8, Kg7. 37.
Hxe4, Hb5. 38. Da8, Bd7. 39.
Bd3, Hd5. 40. Hxf8. (Svartur
gafst upp).
(Nú kemst svartur ekki hjá peðs-
tapi. T. d. 15. — De7. 16. d6 og
taki svartur peðið, tapar hann
minnst skiptamuni. 15. —, Ra6
strandar á 16. Bc4 og nú gagnar —
De7 heldur ekki vegna 17. d6).
15. —, c4.
^órnar P.e^i til ..tó .J+Wpjddar-
anum 1 gagnið meo rT^ikviriningi^.
«; Mftifr I
(Svartur er veikastur fvrir á
drottningarvængnum og þess
vegna rökrétt að hvítur stefni liði
sínu þangað. Leikurinn miðar auk
þess að framrás f-peðsins hvíta).
17. —, Rxc4. 18. Rxc4, Ra6. 19.
Db3, Db8. 20. Hacl, —
(Áður en hvítur hefst handa á f-
línunni, vill hann lokka svarta
hrókinn á brott frá svarta kóngn-
um. Þetta tekst).
20. — Hc8. 21. f4, Rc5. 22.
Bxc5, Hxc5. 23. Rxe5, Bxe5.
24. fxe5, Hxa5. 25. e6, —
(Svartur gafst upp, þar eð staða
hans hrynur í örfáum leikjum).
Freysteinn-Ingi. — Freysteinn
beitti svonefndri fjögurra peða ár-
ás gegn Kóngs-indverskri vörn
Inga: 1. d4, Rf6. 2. c4, g6. 3. Rc3,
Bg7. 4. e4, 0-0. 5. f4, og náði betra
tafli eftir að Ingi hafði gert mis-
heppnaða tilraun með nýjung í
byrjuninni. Framhaldið tefldi
hann hins vegar ekki sem bezt og
gaf Inga óþarfa færi á kóngsvængn
um. Sókn Inga reyndist svo hættu-
leg, að Freysteinn varð að hætta
við aðgerðir sínar á drottningar-
vængnum og leggjast í algjöra
vörn. Þrátt fyrir mikið tímahrak
seig Ingi þó sífellt á og Freysteinn
missti hvert peðið á fætur öðru.
Þegar leiknir höfðu verið 39 leik-
ir sá Freysteinn fram á vonleysi
aðstöðu sinnar og gafst upp, enda
þá kominn með tvö peð undir.
Friðrik-Ingvar. - Teflt var Tich-
gorin afbrigði Slafnesku varnarinn
ar:
1. d4, d5. 2. c4, c6. 3. Rc3,
Rf6. 4. e3, g6. 5. Rf3, Bg7. 6.
Be2, o-o. 7. 0-0.
Ingvar kaus að losa um spenn-
una á miðborðinu og leita fram-
rásar á e-línunni, en þetta gafst
honuim ekki vel:
7. —, dxc4. 8. Bxc4, Rfd7. 9.
e4, e5. 10. Bg5!?
(Nokkuð djarfur leikur, sem svart
ur kynni að geta fært sér í nyt
Guðmundur-Jón. — Guðmundur
beitti Samisch-uppbyggingunni
gegn Kóngs-indverskri vörn Jóns:
1. d4, Rf6. 2. c4, g6. 3. Rc3, Bg7.
4. e4, d6. 5. f3. Hann hrókeraði
langt i framhaldinu og hóf síðan
sókn á hægri armi, gegn kóngi
svarts. Jón reyndi hins vegar mót-
aðgerðir á drottningarvængnum.
Þegar komið var fram í rniðtafl,
var orðið ljóst, að sókn Guðmund-
ar hafði orðið ofan á og uppgjöf
Jóns virtist aðeins tímaspursmál
Þá skeði ógæfan. Guðmundur gaf
Jóni færi á snjallri drottningar-
fórn, sem fyllilega jafnaði taflið
fyrir Jón, ef ekki meira. Guðmund
ur gerði örvæntingarfulla vinn-
ingstilraun undir lokin, en hún
reyndist illa og Guðmundur stóð
eftir með tapað tafl. Gafst hann
þá upp. — Þessi úrslit eru vafa-
laust þau óvæntustu í mótinu hing
að til, a. m. k. ef miðað er við
gang skákarinnar.
Trausti-Wade. — Hér var tefld
Tarrasch-vörn í drottningarbragði:
1. d4, d5. 2. c4, e6. 3. Rc3, c5. 4.
cxd5, exd5. 5. Rf3. Mikil uppskipti
urðu í miðtaflinu og tókst Trausta
að ná upp nokkuð hagstæðara
endatafli með því að gefa Wade
tvípeð á f-línunni. Ekkktókst hon-
um þó að færa sér stöðuyfirburði
sína í nyt og bauð hann jafntefli
eftir að hafa gert nokkrar árang-
urslausar vinningstilraunir.
Arinbjörn-Magnús. — Magnús
beitti Nimzo-indverskri vörn gegn
drottningarpeðsbyrjun Arinbjarn-
ar: 1. d4, Rf6. 2. c4, e6. 3. Rc3,
Bb4. Staðan upp úr byrjuninni
var nokkuð svipuð, en í framhald
inu gerði Arinbjörn hæpna tilraun
til að vinna peð á miðborðinu. Að
--------‘ —;—
TÓMAS KARLSSON ritar
réttu lagi hefði þetta átt að leiða
til skiptamunstaps fyrir hann, en
Magnúsi yfirsást þetta lika og
féll þá allt í Ijúfa löð. Arinbjörn
gerði nokkrar vinningstilraunir síð
ar í skákinni, en sætti sig svo við
jafntefli.
Nona-Johannesen. — Johanne-
sen mætti Kóngspeðsbyrjun Nonu
með Sikileyjarvörn. Staðan virtist
nokkuð jöfn upp úr byrjuninni,
en framhaldið tefldi Nona fremur
slaklega og náði Johannesen þá
írumkvæðinu. Nonu tókst þó að
halda í horfinu, en rétt fyrir bið
varð henni á að leika af sér peði.
Þrátt fyrir þetta ætti hún þó að
geta haldið jafntefli í biðskákinni.
5. UMFERÐ.
Jón-Tal 0:1.
GIigoric-Arinbjörn 1:0.
Magnús-Freysteinn 1:0.
Wade-Guðmundur V2: Vi.
Ingi-Nona V2: V2.
Ingvar-Trausti biðsk.
Johannesen-Friðrik biðsk.
Um 5. umferð verður skrifað
í blaðið á morgun.
★ FUNDIR voru stuttir í báðum deildum Alþingis í gær.
★ í EFRI DEILD hafði Gunnar Thoroddsen framsögu fyrir frum-
varpi um afnám laga um verðlagsskrá. Málinu var umræðulaust
vísað til 2. umr. og fjárhagsnefndar.
★ FRUMVARP um sölu Litlagerðis í Grýtubakkahreppi var til 2. umr.
Bjartmar Guðmundsson hafði framsögu fyrir áliti landbúnaðar-
nefndar. Frumvarpið var samþykkt til 3. umr.
★ í NEÐRI DEILD hafði Emil Jónsson, félagsmálaráðherra, fram-
sögu fyrir frumvarpi ríkisstjórnarinnar um 15% hækkun á bótum
almannatrygginga, annarra en fjölskyldubóta. Sagði ráðherrann
frumvarpið flutt í samræmi við fyrri fyrirheit, þ. e. að bætur al-
mannatrygginga myndu hækka jafnmikið og um semdist í hinum
almennu kaupgjaldssamningum í desembermámuði s. 1. Frum-
varpinu var samhljóða vísað til 2. umr. og heilbrigðis- og félags-
málanefndar-
★ ÞÁ VAR frumvarp um meðferð ölvaðra manna og drykkjusjúkra
afgreitt til efri deildar.
+ ALMENNT er búizt við, að skammt sé að bíða frumvarpa frá rík-
isstjórninni um aðgerðir í efnahagsmálum.
Kona óskast
Kona óskast í eldhús Kópavogshælis í 4 tíma á dag.
Upplýsingar gefur matráðskonan í síma 41502.
Reykjavík, 20. janúar 1964
Skrifstofa síkisspítalanna
ÚTBOÐ
Tilboð óskast í sölu á 8000 kg. af flísalími og fyll-
ingaefni í raufar milli flísa.
Útboðsskilmála skal vitja í skrifstofu vora, Vonar-
stræti 8.
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar
6
TÍMINN, þriSjudaglnn 21. ianúar 1964