Tíminn - 21.01.1964, Page 9

Tíminn - 21.01.1964, Page 9
BÆNDUR ERU LÆGS LAUNADA STETTIN Tíminn sneri sér til Gunnars Gutfbjartssonar, formanns Stétt arsambands bænda og spurði hann hvort hann hefði séð Al- þýðublaðið, þar sem birtar eiru framtaldar tekjur þjóðfðlags- stéttanna 1962. Gunnar kvaðst hafa séð grein Alþýðublaðsins, og þá spurðum við, hvemig honum litist á mismuninn milli bænda og annarra stétta. Gunn- ar svaraði: — Mér þykir hann mikill. En það kom mér ekki á óvart. Við bændurnir höfum vitað þetta í mörg ár, þótt við höfum ekki getað lagt fram svona tölur til að sanna þá skoðun okkar. Gefa þessar tölur Hagstof- unnar rétta mynd? Nei. Tekjur verkamanna, sjómanna annarra en yfirmanna og iðnaðarmanna eru að meðaltali skv. þessu kr 126.100, eftir upplýsingum hag- stofustjóra. Tekjur bænda eru taldar 99 þús., en það er ekki rétt til samanburðar við hitt, því ekki hafa verið dregin frá tekjum bænda nokkur gjöld vegna búrekstrarins, t.d. vextir af stofnlánum, sem eru að með- altali um 8 þús. á bónda, vextir af rekstrarlánum, sem eru um 7 þús. á bónda, viðhald útihúsa, öll tryggingagjöld bæði slysa- tryggingar starfsfólks, bruna- tryggingar húsa og ábyrgðar- og áhættutryggingar véla og bústofns. Væri þetta allt dregið frá, hygg ég að sambærilegar tekjur bænda væru ekki yfir 70 þús. kr. Þá vantar um 56 þús. til þess að þeir hafi sam- bærilegar tekjur þetta ár, mið- að við hinar stéttirnar. — Hvernig eru lagaákvæði um verðlagningu landbúnaðar- vara? — Framleiðslulögin segja, að fólk, sem vinnur að landbún- aði, skuli hafa sambærilegar tekjur við aðrar vinnandi stétt- ir, þ.e. þær stéttir, sem ég nefndi hér að framan. — Hvað hefðu landbúnaðar- vörur þurft að hækka í verði árið 1962 til að bændur fengju réttar tekjur? Þær hefðu þurft að seljast 20—25%hærra. Og það ein- kennilega skeður, að það er hér um bil nákvæmlega það, Gunnar Guðbjartsson sem fulltrúar bænda í sex- mannanefnd lögðu til þá. Það sýnir Dezt, hvað þeir eru rétt- sýnir í tillögum sínum. — Af hverju heldurðu, að bændur hafi ekki fengið þenn an rétt sinn? — Þetta er samvizkuspurning En sjálfsagt hafa fulltrúar neyt- enda í sexmannanefnd og yfir- nefnd undir forsæti hagstofu- stjóra, trúað því að bændur byggju við betri kjör, en þeir raunverulega gera, en fulltrúar bænda ekki haft nægjanlega sterk gögn til að sanna rétt- mæti tillagna sinna fyrr en nú Og ég vil sérstaklega vekja athygli á því að konum og börn- um bænda, innan 16 ára aldurs, hefur verið algjörlega synjað um kaup fyrir sína vinnu við búskapinn, sem er algert brot á Tögunum. — Hvað mundi verðlag ís- lenzkra landbúnaðarvara verða í samanburði við það, sem gerist erlendis ef bændur fengju rétt kaup? — Það hefur komið fram i blaðagreinum á undanförnum vikum, m.a. hjá Sveini Tryggva syni og Kristjáni Karlssyni, að verð þeirra margra er lægra hér í útsölu en hjá mörgum nágrannaþjóða okkar. Auk þess nýtur ísl. landbúnaður minni fyrirgreiðslu af hálfu þjóðfé- lagsins. t.d varðandi lánskjör og styrki, heldur en hjá flest- um öðrum Evrópuþjóðum. Væri aðstaða í þessu efni svipuð, geri ég ráð fyrir, að bændur gætu haft sambærileg kjör við aðrar stéttir, án þess að verðlag á vörunum yrði yfir- leitt hærra hér en í nágranna- löndunum. Þó má það teljast sérstaklega hagstætt, því varla getur fsland talizt jafn hag- stætt í öllu tilliti til búskapar eins og suðlægari lönd. En íslenzkir bændur vinna það upp með dugnaði sínum og með t.d. góðum tæknibún- aði miðað við það, sem almennt gerist hjá nágrannaþjóðum okkar. — Hvað er framundan? — Ég tel gott að þessar upp- lýsingar komu fram. Ég veit, að þeir, sem um þessi mál fjalla af hálfu neytenda og í yfir- nefnd, eru vafalaust allir dreng skaparmenn, og þeir vilja frá- leitt níðast á því, sem þeim er til trúað, og hljóta því að hjálpa til að bæta launakjör bænd- anna, svo þeir búi við jafnrétti í launamálum. Bregðisf vilji hjá þessum að- ilum, veit ég, að bændur eiga verndar að vænta hjá dómstól- um landsins eins og aðrir þjóð- félagsþegnar. Þjóðin getur ekki án land- búnaðarins verið. Þar eru ræt- ur þjóðmenningarinnar. Án tengsla við landið glatast sterk- asti hlekkurinn í þjóðmenning- unni. Ég tel því ástæðu til nokk- urrar bjartsýni um leiðréttingu á kjörum bændastéttarinnar á næstunni. FRIKIRKJU HAFNARFJARÐ- AR BERAST GÚÐAR GJAFIR í TILEFNI 50 ára afmælis Frí- kirkjunnar í Hafnarfirði 14. des. s. 1. bárust kirkjunni frá ýmsum velunnurum sínum miklar og góð- ar gjafir bæði mjög fagrir og vand aðir kirkjugripir og rausnarlegar peningagjafir, svo sem hér verður upptalið: 1) Kristján Dýrfjörð gaf forkunn arfagran hátíðaskrúða, hökul með ýmsu tilheyrandi, svo og fagran og mikinn róðukross áletraðan í minningu konu sinnar frú Sólveig ar Ólafsdóttur er andaðist á s. 1. sumri, og voru einnig gefendur þessara muna börn frú Sólveigar frá fyrra hjónabandi hennar. 2) Frú Guðrún Helgadóttir og systkini hennar gáfu kr. 7.000,00 og Kvenfélag safnaðarins kr. 10 þúsund til kaupa á fjóruim stólum mjög vönduðum, er notaðir verða við brúðkaup og fleiri athafnir í kirkjunni. 3. Frú Katrín Eiríksdóttir frá Sjónarhól í Hafnarfirði gaf mjög vandaðar oblátudósir úr silfri á- letraðar. 4- Hjónin frú María Albertsdótt- ir og Kristinn J. Magnússon gáfu mjög fagran og vandaðan hökul með ýmsu tilheyrandi, ætlaðan sem föstuhökul, Var þessi gjöf í tilefni þess að bæði hjónin urðu 70 ára á árinu. 5) Þá afhenti Kristinn J. Magn- ússon bréf þess efnis að systurn- ar María, Þórdís, Þorbjörg og Dag ný Albertsdætur gæfu kirkjunni tvo vandaða altarisstjaka í minn- ingu um foreldra sína frú Helgu Jónsdóttir og Alberts Júlíus Sig- urðsson og bræðra sinna þriggja er allir dóu í æsku. 6) Þá afhenti Kristinn einnig annað bréf frá börnum Gísla sál. Gunnarssonar kaupmanns þar sem tilkynnt er gjöf á öðrum tveim altarisstjökum, sem gefnir eru í minningu foreldra þeirra frú Guð- ríðar Ólafsdóttir og Gísla Gunnars- sonar. Allir stjakarnir eru enn að- eins ókomnir frá Kaupmanna- höfn. Fyrir alla þessa fögru og vönd- uðu kirkjugripi sem flestir voru afhentir presti og safnaðarstjórn í kirkjunni sjálfri, færðu prestur og formaður safnaðarstjórnar öll- um gefendum hjartanlegustu þakkir. Þá bárust Fríkirkjunni neðan- taldar peningagjafir: NN, er var sem lítill drengur við fyrstu messuna í Fríkirkjunni 1913 ásamt foreldrum sínum er þá bjuggu í Hafnarfirði, gefur í minn ingu foreldra sinna frú Guðrúnar Ólafsdóttur og Kristjáns Kristjáns- sonar kr. 5.000,00. Frú Pálína Páls dóttir gefur í minningu eigin- manns síns Ólafs R. Björnssonar bifreiðastjóra kr. 5.000,00. Sigurð ur Guðmundsson fyrrv. kaupm. f Hafnarfirði og frú gefa kr. 5.000, 00 Frú Bergsteina Bergsteinsdótt- ir gefur í minningu eiginmanns síns Vilhjálms Guðmundssonar kr- 1.500,00. Frú Guðrún Helgadóttir Hvg. 20 gefur í minningu eigin- manns síns Jóhanns K. Helgason- ar kr 1,000,00 Loftur Bjarnason forstj. og frú kr. 5.000,00. Guðlaug ur Þorsteinsson, Herjólfsg. og frú kr. 1-000,00. Jónas Sveinsson for- stjóri og frú kr. 1.056,00. Guðjón Magnússon og frú Ölduslóð kr. 1.740.00. Jóhannes Guðmundsson og frú Melbr. 7 kr. 1.000,00. Stef- án Stefánsson og frú Holtsg. 7 kr. 1.000,00. Einar Gíslason Garð- stíg 1 kr. 500,00. Vigfús Vigfússon Sólvangi kr. 500.00. Sigfús Jóhanns son og frú Austurg. 32 kr. 500,00. Guðm. Guðmss. og frú Holtsg 19 kr. 500,00. Hörður Guðmundsson s.st. kr. 500,00. Ólafur Guðmunds- son s. st. kr. 500.00. Kristinn Guð- jónsson og frú Tjarn. 17 kr. 500,00. Guðm. Ág. Jónsson og frú Linnets- stíg 3A kr. 500,00. Halldór Teits- son Hrafnistu kr. 500,00. Guðjón Jónsson og frú Austurg. 17 kr. 2 814.55 NN kr 500,00. Gamalíel Jónsson Selvogsg. 17 kr. 100,00. Jón Sigurgeirsson og frú kr. 200, 00 Ólafur Jónsson Kópavogi kr. 100,00. Ónefnd kona kr. 100.00. NN kr. 100,00. GS kr. 35.00. ÓÞ kr. 5,00 MÓ kr. 100.00 Adda Péturs- dóttir Garðstíg kr. 200,00. NN kr. 40,00. LE kr. 50,00. — Alls kr. 37.185,55. Fyrir allar þessar rausnarlegu gjafir og þann góðhug, sem kirkju okkar hefur verið sýndur nú og ávallt frá upphafi hennar, þökkum við hjartanlega. Guð gefi yður öll- um gleðilegt nýtt ár, og beztu bakk ir fyrir öll liðnu árin. Guð blessi yður öll. F h safnaðarstjórnarinnar. Jón Sigurgeirsson. (gjaldkeri). ALLT Á SAMA STAÐ Laugavegi 118, sími 22240 STÝRISENDAR SPINDILBOLTAR SPINDILKÚLUR SLITBOLTAR í flesta bíla Egill Vilhjálmsson h.f. Laugavegi 118, sími 22240 Verkamanna- félagið Dagsbrún Félagsfundur verður í Iðnó í kvöld, þriðjudag, kl. 8,30 Fundarefni: Kosningarnar. Dagsbrúnarmenn! Fjölmennið á fundinn og sýn- ið skírteini við innganginn. Stjórnin Útboð Veiðifélagið ,,Leirvogsá“ í Kjósarsýslu leitar hér með eftir tilboðum í rétt til stangaveiði á veiði- Leirvogsár sumarið 1964. Tilboðum ber að skila til formanns félagsins Guðmundar Magnússonar, svæði Leirvogstungu, fyrir 10. febr. 1964, og veitir hann upplýsingar um ána. Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er, eða hafna öllum. Stjórnin TÍMINN, þrlðjudaginn 21. janúar 1964 — ð

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.