Tíminn - 28.01.1964, Qupperneq 6

Tíminn - 28.01.1964, Qupperneq 6
« TÓMAS KARLSSON RITAR ÞINGFRÉTTIR ■aaEa | lifflil! ÞINGFF Nauðsynlegt að endurskoða lagaákvæði um atvinnurekstrar rétti n di útlendinga I»EIR Hermann Jónasson, Ólafur Jóhannesson, Xarl Kristjánsson og Björn Fr. Björnsson flytja tillögu lil þingsályktunar um endurskoð- un laga um eignarrétt og afnota- rétt fasteigna svo og lagaákvæði um atvinnurekstrarréttindi útlend- inga hér á landi. Skal 5 manna nefnd, sem Alþingi kýs, annast end urskoðunina og skila tiliögum fyr- ir næsta reglulegt Alþingi. í grein argerð með tillögunnl segir: Þáltill. þessi var flutt á siðasta þingi, og fylgdi henni þá svofelld greinargerð: Lög nr. 63 frá 28. nóv- 1919 eru oyggð á þeirri grundvallarreglu, að einungis hér heimilisfastir aðil- ar geti án sérstaks leyfis öðlazt eignarrétt og afnotarétt fasteigna hér á landi. Hins vegar eru hvorki gerðar kröfur um þegnrétt né bú- setu um tiltekið tímabil. Ef ein- stakur maður er, þá er nægilegt, að hann sé heimilisfastur hér og virðist hann því geta öðlazt eigna rétt og afnotarétt að fast- eign hér á landi — þegar eftir að hann hefur setzt hér að, hvort sem hann er íslenzkur eða útlendur. Ef um félag er að ræða, þar sem suenir félagsmanna bera íulla, en aðrir takmarkaða ábyrgð á skuldum félagsins, þá skulu þeir, er fulla ábyrgð bera, allir vera hér heimilisfastir, enda skal félagið hafa heimili og varnarþing og stjórnendur allir vera hér heimil- ísfastir. Ef um er að tefla hlutafé- lög eða stofnanir, þá skal félagið eða stofnunin eiga hér heimilis- tang og varnarþing og stjórnendur ollir vera hér heimilisfastir. — Önnur skilyrði eru eigi sett fyrir því, að hlutafélög og stofnanir geti eignazt hér fasteignir eða öðlazt af not þeirra. Eru því engar sérstak- ar kröfur gerðar til hlutafjár- eignar íslenzkra ríkisborgara eða bér búsettra rnanna. Hlutafélög, þar sem mikill meiri hluti hluta-, fjár er í höndum útlendinga, virð ast því samkvæmt lögunum frá 1919 geta eignazt hér fasteignir og fengið afriot þeirra án nójckurs leyfis af hálfu íslenzkra stjómar- valda. Nú fullnægir aðili ekki skil yrðum laganna frá 1919 til þess að öðlast hér eignarrétt og afnotarétt að íasteignum, og get- ur þá ráðuneytið samt veitt honum ityfi til þess, ef ástæða þykir til, Samkvæmt þvi virðast ráðuneyt- mu í rauninni engin takmörk sett um leyfisveitingar. Lögin benda ekki á neinar tilteknar ástæður, er réttlæti veitingu leyfis. Ráðherra eru þær raunverulega í sjálfsvald settar. Sérstaks leyfis ráðherra þarf meira að segja ekki til leigu á fasteign eða réttinda yfir henni um 3 ára tímabil, eða ef uppsögn er áskilin með eigi lengri en árs íyrirvara. Enn fremur segir, að ráðherra geti undanþegið námu- réttindi ákvæðucn laganna. Ljóst er af því, sem hér hefur verið stuttlega rakið, að langt er ftá því, að ákvxði laganna frá 1919 veiti nægilega vörn gegn því, að eignarréttur eða afnotaréttur fast- eigna hér á landi færist raunveru- j lega yfir á hendur útlendra ríkis- borgara. Það er því full ástæða til að taka löggjöfina um það til ræki íegrar endurskoðunar. Það þarf að semja ný lög, er setja traustari skorður við hugsanlegri ásælni út- lendinga til fasteignaréttinda hér á landi. En þau lög má sjálfsagt byggja á grundvelli laga nr. 63/ 1919, og þess vegna er þessi þings- ályktunartilla.ga um endurskoðun þeirra laga. Sérstök þörf er á að setja í þessu sambandi skýrari á- kvæði um hlutafélög, áskilja t. d. að þau hlutafélög ein. sem íslenzk- ir ríkisborgarar ættu tiltekinn auk inn meiri hluta hlutafjár í, gætu ciðlazt hér fasteignaréttindi án sér staks leyfis. Er enn ríkari ástæða til þess af þehri sök, að íslenzk hlutafélög eru að ýmsu leyti úr- elt og ófullkomin, m. a. að því er varðar skilgre'mingu á innlendum og útlendum hlutafélögum. Það sýnist og eðlilegt, að heimild ráð- herra til leyfisveitinga sé bundin tilteknum skilyrðum í lögum. í löggjöf nágrannaþjóðanna munu yfirleitt sett strangari skil- yrði en hér fyrir því, að útlending- ar geti öðlazt eignarrétt eða afnota rétt af fasteignum. Er vafalaust rétt fyrir okkur að fylgja fordæmi þeirra í því efni og ganga a. m. k. ekki skemmra. Um leið og endurskoðuð eru lagafyrirmæli um eignarrétt og afnotarétt fasteigna, er rétt að tek in séu einnig til athugunar ákvæði löggjafarinnar utn atvinnurekstr- arréttindi útlendinga hér á landi, einkanlega hlutafélaga og annarra félaga með takmarkaðri ábyrgð. Þó að lög bindi nú atvinnurekstrar- réttindi útlendinga tilteknum skil 5'rðum, er vafasamt, að þar sé nógu tryggilega um búið a. m. k. að því er varðar hlutafélög, sem útlendingar kunna að eiga mikið í og raunverulega eru starfrækt af þeim. Þarf að rannsaka ákvæði iaganna um þessi efni og gera þau skýrari og fyllri, þar sem þörf krefur. Er nauðsynlegt, að rrijög ströng skilyrði séu sett fyrir at- vinnurekstrarréttindum útlendra aðila. Það má e. t. v. segja, að þess hafi ekki gætt sérlega mikið á und- anförnum árum, að útlendingar sæktust eftir að eiga fasteignir eða stofnsetja atvinnufyrirtæki hér á landi. En ýmsar breyttar ytri að- stæður hafa í för með sér aukna hættu í þessum efnum. Land okk- ar er ekki svo einangrað sem áð- ur var. Það er óneitanlega lítt num íð enn að vissu leyti. Það er því ekki óeðlilegt, að það kunni að íreista þeirra útlendinga, og þá einkum útlendra auðfélaga, sem eru hvarvetna í leit að landsgæð- um og aðstöðu. Samkvæmt núgild andi löggjöf gætu slík félög senni- lega stofnað eins konar dótturfé- lög hér á landi, er gætu keypt eða leigt hér fasteignir og átt atvinnu- fyrirtæki. En ef útlendingar eign- uðust hér fasteignaréttindi í stór- utn stíl, hefðu íslendingar blátt áfram glatað frumburðarrétti sín- um. Okkur ber því að vera hér vel á verði. Það er of seint að byrgja brunninn, er barnið er dott- ið ofan í hann. Endurskoðun þess- ari þarf því að hraða. Þessi mál öll, um fasteignarétt- indi útlendra aðila, um atvinnu- í ekstrarréttindi þeirra og réttar- st.öðu þeirra í því sambandi, þarf að taka til skilmerkilegrar skoð- unar við þessa lagaendurskoðun. Það er því eðlilegt, að sú endur- skoðun sé í höndum þingkjörinnar nefndar. Innritun er hafin í námsflokk nr. 6. FJÖLSKYLDAN OG HJÓNABANDIÐ Gangið við í Bókabúð KRON og tryggið ykkur þátttökuskírteini meðan til eru. Kosta kr. 200.00 fyrir einhleypa, en kr. 300.00 fyrir hjón. Kennsla fer fram í fyrirlestrum, með kvikmyndasýningum og í samtölum sunnudagseftirmiðdaga í febrúar/marz 1964, kl. 4—6 e.h. Fyrirlesarar: Pétur H. J. Jakobsson, yfirlæknir og Hannes Jónsson félagsfræðingur. 9/2 Erindi: Fjölskyldan og meginhlutverk hennar, Hannes Jónsson Kvikmynd: Erfðir og umhverfisáhrif. Myndin er gerð í samráði við dr. A. R. Lauer, félagssáífræði- prófessor við ríkisháskólann í Iova. Erindi: Kynfærin, erfðir og frjóvgun, Pétur H. J. Jakbsson. Sýndar verða litskuggamyndir með indinu. 16/2 Erindi: Erindi: Kvikmsmd: 23/2 Erindi: Fósturþróunin og barneignir, Pétur H. J. Jakobsson. Sýndar verða litskuggamyndir með erindinu. Ástin og makavalið, Hannes Jónsson. Makavalið. Myndin er gerð í samráði við dr. Reuben Hill, félagsfræðiprófessor við ríkis- háskólann í Norður-Karolina. Fjölskylduáætlanir og frjóvgunarvarnir, Pétur H. J. Jakobsson. Með erindinu verða sýndar skuggamyndir. Erindi: Hjónabandjð, kynlífið og siðfræði þess, Hannes Jónsson Kvikmynd: Hjónabandið er gagnkvæmur félagsskapur. Myndin er gerð í samráði við dr. Lemo D. Rockwood, félagsfræðiprófessor við Cornell- háskóla 1/3 Erindi: Vandamál hjúskaparslita og hjónaskilnaða, Hannes Jónsson. Kvikmynd: Giftingarhæfnin. Myndin er gerð í samráði við dr. Reuben Hill. félagsfræðiprófessor við - -áskólann í Norður-Karolína. 8/3 Erindi: Hamingjan og hjóna- og fjölskyldulífið Hannes Jónsson. Kvikmyrid: Bertrand Russell ræðir hamingjuna. Einnig kvikmyndin: Frá kynslóð tii kynslóðar í henni eru m. a. sýndar og útskýrðar erfðir mannsins og einnig er sýnd barneign í mynd- inni. ¥ UiJiíi/nw ui Pósthólf 31.— Reykjavík — Simi 40624 Á ÞINGPALLI •jc Á FUNDi neSrl delldar i gær kvaddi Lúðvfk Jósepsson sér hljóSs og belndl þeirri fyrirspurn til rfklsstiórnarlnnar, hvort hún hygði ekki á að beita sér fyrir lefðréttlngu á fiskverðinu f sambandi við frum- varp það um aðgerðir fyrlr sjávarútveginn, sem nú eru til afgreiðslu í þinginu. BJARNI BENEDIKTSSON sagði að stjórnin væri nú að athuga þessi mál jafnhliða frumvarpfnu. Verkstjórastarf Okkur vantar nú strax eða síðar bifvélavirkja eða vélvirkja, til að veita forstöðu verkstæði okkar að Rauðalæk. Fjárhagsleg aðstoð við byggingu íbúðarhúss kemur til greina strax, eða íbúðarhúsnæði síðar. Umsóknir um starfið, ásamt upplýsingum um ald- ur, menntun og fyrri störf. sendist til kaupfélags- stjórans fyrir 1. febrúar n.k. er einnig veitir nán- ari upplýsingar. Kaupfélag Rangæinga Aðalfundur Kvenstúdentafélags íslands verður haldinn i Þjóð- leikhúskjallaranum (hliðarsal til hægri) miðviku- daginn 29- jan. 1964, og hefst kl. 9 e.h. Dagskráí 1. Venjuleg aðalfundarstörf 2. Lagabreytingar Aðaifundur Háskólakvenna verður haldinn í Þjóðleikhúskjall- aranum sama dag kl. 8 e.h. Stjórnin TÍMINN, 'þriSjudagur 28. janúar 1964 — 6

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.