Tíminn - 02.02.1964, Blaðsíða 4
ÞÁTTUR KIRKJUNNAR
Þrenns konar þyrnar
í skýringu þeirri, sem gefin
er á dæmisögunni um sáð-
manninn í Lúkasar guðspjalii
eru nefndir þrenns konar
þyrnar, sem draga úr þroska
og tefja vöxt og bera því eng
an þroskaðan ávöxt.
Og að vissu leyti kemur
þessi skýring á óvart. Þar er
minnzt á það, sem flestir telja
helztu hnoss tilverunnar og
sækjast eftir. Sannarlega má
því segja, að hætturnar séu
margar og finrþst víða á veg-
um mannlegrar framsækni og
fullkomnunar.
En einmitt þetta gæti verið
sérstakt íhugunarefni fyrir
hin svonefndu velferðarríki
nútímans. En þar þykir sjálf-
sagt, að öll lífsþægindi og
unaðssemdir séu fyrir hönd-
um hverja stund.
Gæti það ekki einmitt orð-
ið til að hefta þroska manns-
ins og koma í veg fyrir við-
leitni hans á vegi að fullkomn
unartakmarki.
i.Gata grjóti nokkru stráð
gjörir fótvissan vegfara
ungan“,
sagði skáldið vitra forðum.
Hann er með þeim orðum
sannarlega í samræmi við
kenningar kristins dóms í sög
unni um vöxt og vaxtarskil-
yrði mannsandans á frama-
braut.
Örðugleikarnir eru áreiðan
lega nauðsynlegir og átökin,
glíman við ofjarla og alls kon
ar böl gætu verið meðal beztu
náðargjafa Guðs og örlag-
anna.
„Áhyggjur, auðæfi og un-
aðssemdir lífsins hefja gróð-
urinn í mannssálinni, svo hún
ber engan þroskaðan ávöxt“,
segir Kristur eða guðspjallið.
Þetta eru þá aðalhætturnar
á þroskaskeið mannkynsins
samkvæmt skoðun hans. Og
verst er ,aö ekki eru þessar
hætt.ur minni í hinum svo-
nefndu menningarþjóðfélög-
um en í hinum frumstæðu og
vanþróðuðu. Mætti raunar
segja, að þær aukist í hlut-
falli við velmegun og lífsþæg-
indi.
Margir virðast álita, að á-
hyggjur, það er að segja
kviði, ótti og angist séu fyrst
og fremst förunautar fátækt-
ar og örbirgðar, en svo er
ekki. Þótt þeirra verði þar
mjög vart að sjálfsögðu, þá
eru þær enn magnaðri hjá
þeim, sem baða i rósum hið
ytra, sem kallað er. Þar jaðra
þær oft við sálsýki og eru
einu nafni nefndar tauga-
veiklun nú á dögum, en hún
kemur fram í margs konar
myndum. Og taugaveiklun, er
svo algeng, að svo m'á heita,
að hún fari um eins og land-
farsótt, sem aldrei léttir
Þetta friðleysi áhyggnanna
lamar starfsþrótt, lífsgleði og
viljaþrek, og ástandið heitir
að vera „ein taugahrúga" á
máli okkar Reykvíkinga. Var
því lý§t í Hávamálum á þessa
ieið:
„Öng er sótt verri
hveim snotrum manni
en sér at engu una.“
Og satt að segja er þetta
ægileg vanlíðan og ógæfa, en
erfitt aðgerða, nema helzt að
taka sig alveg út úr ys og
glaumi hins daglega amsturs,
leita hvíldar og friðar utan
hinnar svokölluðu menning-
ar.
Við gætum í fljótu bragði
hugsað okkur að hinir tveir
þættirnir eða hætturnar á
framaleið og þroskabraut
mannsandans: Auðæfi og un
aðssemdir gætu bætt úr á-
hyggjunum. En það er nú
öðru nær. I mörgum tilfellum
eru peningar úr hófi og nautn
ir og skemmtanir unaðssemd
anna svokölluðu orsakir frið
leysis og lífsleiða.
Fólkið leitar gæfu og gleði
alveg í öfuga átt út á við í
stað inn á við.
Kristur á og gefur ráðið
við þessum hættum. Hann seg
ir:
„Leitið fyrst guðsríkis og
réttlætis þá mun allt hitt
veitast yður að auki.“
Og svo bætir hann við á
öðrum stað til skýringar:
Framhalc a ib siðu
Gefjunaráklæðin breytasi sífellt í litum
og munztrum, því ræður tízkan hverju
liiiHS
IíSÍIÍÍIIb
'
sinm.
Eitt breytist þó ekki, vöruvöndun verk-
smiðjunnar og gæði íslenzku ullarinnar.
Allt þetta hefur hjálpað til að gera Gefj-
unaráklæðið vinsælasta húsgagnaáklæð-
ið í landinu.
ÖLL ÁKLÆÐIN MÖLVARIN • NÝJUNG: ÖLL ÁKLÆÐIN MmÖLVARIN
Kefiavík - Suðurnes
Aðalfundur skrifstofu- og verzlunarmannafélags
Suðurnesja verður haldinn laugardaginn 8. febr.
kl. 3 e h. í Aðalveri, Keflavík.
Dagikrá: Venjulen aðalfundarstörf
Stjórnin
Tilboð
óskast í leigu á hluta af byggingu umferðarmið-
stöðvarinnar í Reykjavík til greiða- og veitinga-
sölureksturs.
Húsið verður væntanlega tekið í notkun á þessu
ári. — Tilboðum sé skilað fyrir 25. febrúar n.k. til
samgöngumálaráðuneytisins, sem gefur nánari
upplýsingar um málið.
SamgöngumálaráSuneytið
Hey til sölu
Til sölu 150 hestar af góðri töðu.
Einnig nýleg Westfalia mjaltavél og Dodge
Weapon bifreið, model ’42.
Upplýsingar í Árbæ í Ölfusi, Árnessýslu, sími um
Selfoss.
4
T f M I N N , sunnudaglnn 2. febrúar 1964 —