Tíminn - 02.02.1964, Page 9

Tíminn - 02.02.1964, Page 9
 Konan hlið mikil- mennisins FramhalcLssögunni um upp- haf „Þriðja ríkisins" og aðdrag- anda heimsstyrjaldarinnar síð- ari er nú að ljúka hér í blað- inu. Framhaldssaga þessi hefur notið mikilla vinsælda hér í blaðinu hjá þeim, sem láta sig söguna einhverju skipta. Höf- undur hennar, bandaríski blaða- maðurinn, William L. Shirer, hefur skrifað sögu þessa af þekkingu sjónarvottar og yfir- sýn mikiLhæfs blaðamanns. Hann varð kunnur fyrir Ber- línardagbók sína frá síðustu dögum sínum í Berlín í stríðs- byrjun. Við höfum valið þann kostinn að Ijúka sögunni, þar sem fýst er yfir að heimsstyrj- öldin síðari sé hafin, þótt verk Shirers sé miklu lengra og segi frá gangi heimsstyrjaldarinnar. Kemur einkum til, að áður hafði blaðið birt dagbækur Al- anbrooke lávarðar, sem var herstjóri Breta í heimsstyröld- inni. Útkoma þessara tveggja bóka og fjölda annarra líkrar greinar frá árunum fyrir síðari heimsstyrjöldina og styrjaldar- árunum, hafa þótt tíðindum sæta. Er það ekki nema eðli- legt, því þótt gott sé að geta gleymt hörmunum, eiga vítin að vera okkur til varnaðar þekking á nýrri tíma staðreynd- um er því ekki síður gagnleg en þekkingin á sögunni yfir- leitt. Þeir Shirer og Alanbrooke hafa nú um nokkurn tíma flett blöðum þessarar nýju sögu fyrir lesendur Tímans, með að- stoð ágætra þýðenda. Og það er einmitt sérstaklega ánægjulegt hvað þessi nýja teg- und framhaldssagna hefur hlot- ið marga meðmælendur eftir að þær tóku að birtast hér í blað- inu. Árlega koma út mörg mik- il verk og merk á tungum, sem landsfólki hér eru almennt ekki tiltækar, og mörg þessara verka eru þannig, bæði hvað stærð snertir og efnismeðferð, að lítt er hugsanlgt að þær verði gefn- ar út hér í bókarformi. En á hinn bóginn er skaði að þau skuli ekki mörg hver koma fyr- ir augu lesenda. Tíminn hefur reynt að svara þessari þörf með þýðingunum á fyrri hluta Þriðja ríkis Shirers og Dag- bókum Alanbrooke, og mun eflaust halda áfram að birta framhaldssögúr, sem valdar eru með sömu sjónarmið í huga. í beinu framhaldi af fyrr- greindum framhaldssögum, byrjar blaðið að flytja ævisögu Clementine, eiginkonu sir Win- ston Churchill, núna á þriðju- daginn. Þýðinguna gerir Jón E. Jakobsson, en höfundur sög- unnar er kunnur, brezkur blaða ÞESSI MYND er teldn af Winston Churchill, Clemen tine og Dlönu dóttur þelrra, er Churchill var á framboðsferð í Epplng-kjördæml árlð 1931. Þá grunaði engan hverju hlutverki þau hjón áttu eftlr að gegna i sögu lardslns. maður að nafni Jack Fishman. Sir Winston Churchill er fræg- asti stjórnmálamaður vorra tíma. Velflest atriði úr lífi hans, sem einhverju máli skipta, eru vel kunn og, hann hefur verið frægður í fjölda bóka. Það hafa jafnvel verið gefnar út bækur, sem hafa ein- ungis að geyma fleygar setn- ingar úr ‘ræðum hans, eins og kaflinn um „blóð, svita og tár“. Hitt mun ekki eins kunnugt al- menningi hér eða annars stað- ar, að Churchill er vel kvænt- ur maður, og hefur það óefað ráðið miklu um giftu hans í ævistarfinu. Um Clementine konu hans hefur alla tíma ver- ið heldur hljótt. En nú hefur ■i -m „JHr .........,__________________..................Wwzt CLEMENTINE í lelkhlél í leikhúsinu í London. Sá, sem bauð henni, situr á tali við hana. Hann er 'onginn annar en Montgomery marskálkur, sem hlaut frægð sfna og eldskírn vlð El Alametn. verið skrifuð bók um hana, sem ber nafnið: „My darling Clem- entine“, og segir höfundurinn eftirfarandi í formála fyrir þessu verki, sem Tíminn byrjar að birta á þriðjudaginn: Upphaf bókar þessarar, sem rituð er í heiðurs- og viður- kenningarskyni við Clementine, má rekja til 1940, er ég sá for- Sætisráðherrann standa í húsa- rústum í East-End ásamt konu sinni, en þá fylgdist ég með þeim hjónum sem blaðamaður á könnunarferð ráðherrans um þau svæði Lundúnaborgar, er höfðu orðið fyrir sprengjuárás- um. Fólk, sem lifað hafði af nótt- ina, hyllti mann þennan og leit í honum von sína um styrka forystu. En það var konan, sem stóð við hlið hans — eða a.m.k. aðeins einu skrefi aftar — sem athygli mín beindist að. Hvernig var sú kona, sem hlot- ið hafði það hlutskipti að verða lífsförunautur hans, sú kona, sem gat verið eiginkona þessa manns? Það leið á löngu, áður en ég fengi spurningu minni svarað. Ég virti hana oft fyrir mér, þar sem hún sat á áheyr- endapöllum Neðri-deildarinn- ar og hlýddi á mann sinn halda þingræður. Enn fremur fylgdist ég með henni á könnunarferð- um um sprengjusvæðin ásamt frú Eleanor Roosevelt. Árum saman bætti ég stöðugt við upplýsingum og frásögnum á lista þann, er ég hafði heima og kallaði „Clementine". Ég safnaði frásögnum hvarvetna — hjá fólki, sem ég hitti á leið minni, fólki, sem starfaði með henni og fyrir hana, ráðherrum og eiginkonum þeirra, þing- mönnum ættingjum, vinum — bókstaflega mörgum hundruð- um manna — þekktum og ó- þekktum, sem höfðu orðið á hennar leið. Ég kom að máli við marga, sem höfðu þegar ritað um Winston Churchill, og bað þá að taka til athugunar ýmsa atburði úr frásögnum sínum — og nú með tilliti tii eiginkonu hans. Frá því á þessum fyrstu dög- um stríðsins, hefur mig langað til þess að annaðhvort fá hana til að rita ævisögu sína, ellegar rita sjálfur um hana bók. Það hefur verið ritað meira um eig- inmann hennar en nokkurn ann an núlífandi mann, en þetta er fyrsta bókin, sem skrifuð hefur verið um hana og hlutverk hennar í ævintýrinu um Win- ston Churchill, og stafar það að miklu leyti af hennar eigin hóg værð og hlédrægni. Bók þessari er ekki ætlað að vera ævisaga hennar, enda mundi sú saga fylla næstum jafnmörg bindi og maður henn- ar hefur ritað um sína eigin ótrúlegu ævi. Ef til vill segir hún aldrei sögu sína Fyrir nokkrum ár- um átti ég upptökin að tilboði er boðið var í sjálfsævisögu hennar í fyrstu velti hún fyrir sér hugmyndinni og virtist henni ekki mjög mótfallin, en ákvað síðan að láta þá eigin- mann sinn og son, Randolph eina um skriftirnar í fjölskyld- unni. En þetta gerði ég þá af hálfu blaðsms Kemsley Newspaper, en ég var í ritstjórn blaðsins. Ég lagði jafnvel fram tillögur í stórum dráttum um, hvernig verkinu gæti verið hagað, og byggði þar á þeim frásögnum og upplýsingum, sem ég hafði viðað að mér um árabil. Þar sem ævisaga hennar öll mundi of viðamikið verk, lagði ég til að hún skýrði frá þeim sjónarmiðum, er hún hefði haft við ýmsa vissa atburði, er gerzt hefðu í lífi þeirra. Þar sem ævi hennar er svo mjög tengd hans, vildi ég geta séð með hennar augum ýmsa sögulega atburði. er gerzt höfðu — og fá vit- neskju um, hvern þátt hún hefði átt i þeim. Ég glataði aldrei voninni um, að hún einn góðan veðurdag mundi fást til að skrifa sögu Churchills séða af sínum sjón- arhóli, og ég hélt áfram að viða að mér efni víðs vegar að úr heiminum. Að lokum ákvað ég að rita Framhald á 15. síSu. ma T í M I N N , sunnudaginn 2. febrúar 1964 — 9

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.