Tíminn - 05.03.1964, Side 6

Tíminn - 05.03.1964, Side 6
f TÓMAS KARLSSON RITAR 1 íiiiiii RETTIR HUSNÆÐISVANDANUM EKKI SKJÓTA Á FREST Framhald fyrri umræðu um tU- 9ögu Framsóknarmanna um lán- veitingar til íbúðabygginga var framhaldið í sameinuðu þingi í gær, en málið var tekið til um- ræðu fyrir 3 eða 4 vikum og var þá frestað eftir ræður framsögu- manns Einars Ágústssonar og Þoir. valdar Garðar Kristjánssonar. Einar Ágústsson kvaddi sér hljóðs í gær, og kvaðst ekki kom- ast hjá að svara nokkrum atriðum í ræðu Þorvaldar Garðars. Þor- valdur ætti sæti í húsnæðismála- stjórn og ræða hans hefði valdið sér miklum vonbrigðum. Það væri dæmt, þegar þeir„ sem þessum málum ráða hamra í sífellu á því að allt sé í lagi í húsnæðismálun- um á sama tíma og ástandið í þeim er óbærilegt. Slíkur mál- flutningur leysir engan vanda, og það verður enginn minni við það að viðurkenna staðreyndir. Þá minnti hann á þau ummæli Þ.G K., að ástandið í húsnæðismálun- um væri nú betra en í tíð vinstri stjórnarinnar. Séu tekin tvö tíma- bil annars vegar árabilið 1955 til 1958 og hins vegar jafnlangt tíma- bil 1959—1960, þá kemur í ljós, að það var byrjað á 2406 færri íbúðum á síðara tímabilinu og nemur samdrátturinn 34%. Þor- valdur Garðar hafði talið þennan samdrátt eðlilegan, vegna þess hve mikið hefði verið byggt áður, en það er fráleitt að halda slíku fram, þvi ástandið í húsnæðis- málunum í Reykjavík og víðar, er óviðunandi. Meðan slíkt vand- ræðaástand og það brask sem því fylgir er ríkjandi, er ekki unnt að halda því fram, að ekki þurfi að byggja meira. Þá hafði Þorvaldur haldið því fram, að notagildi lánanna væri meira nú en í tíð vinstri stjórnar- innar. 1958 var hámarkslán frá húsnæðismálastjóm 100 þús., nú er það 150 þús. Meðalíbúð 375 rúmmetrar kostaði í okt. 1958 skv. útreikningum Hagstofunnar kr. 461 þús. en í okt s.l., kostaði slík íbúð kr. 688 þús. eða hafði hækk- að um 227 þús. eða 49%. Eigið framlag manna til að byggja slíka íbúð, þ.e. kostnaðarverð að frá- dregnu ríkisláni, þurfti að vera 361 þús. 1958 en nú 538 þús. verð- hækkunin nemur miklu meiru en öllu l'áninu. Hagur húsbyggjenda hefur því stórlega versnað og hrein fjarstæða að halda því fram að notagildi lánanna hafi batnað. Þá taldi Einar, að tölur þær og samanburður, sem Þorvaldur hafði gert um hækkun byggingar- kostnaðar í tíð vinstri stjórnar- innar, væri rangur og villandi, og færði hann að því rök, jafnframt sem hann benti á, að enn eru ekki komnar inn f byggingarvísitöluna allar þær hækkanir. sem orðið hafa á byggingarkostnaðinum síð- Ingólfur Jónsson raforkumála- I ráðherra svaraði í gær í samein- uðu þingi, fyrirspurn frá Ingvari Gíslasyni, vairðandi Norðurlðnds- j borinn, sem nú er í Vestmanna- eyjum. Sagði ráðherrann, að bor- inn yrði fluttur norður og hafnar boranir á Akureyrarsvæðinu að borunum loknum í Vestmannaeyj- um, en áætllða eir að þær muni taka um 3 til 4 mánuði. . Ingvar Gíslason fylgdi fyrir- spurn sinni úr hlaði, en hún var í þrem liðum: 1. Hvaða verkefni eru Norðurlandsbornum ætluð að lokinni borun í Vestmannaeyjum? 2. Hvað er áætlað að borunin í Vestmannaeyjum taki langan tíma? 3. Hvaða áætlanir liggja fyrir um jarðhitaleit á Norður- landi nú og í næstu framtíð? Ingvar rifjaði upp aðdragand- ann að kaupum Norðurlandsbors- j ins og þau verkefni, sem unnið. hefur verið að með bornum norð- anlands. Sagði hann,: að almenn- ingur norðanlands liti svo'"á, að borinn hafi verið keyptur sér- staklega og einvörðungu til bor- ana á jarðhitasvæðum norðan- lands en jarðhita er að finna í öllum sýslum Norðurlandsfjórð- ungs. Væri mikill áhugi ríkjandi á að fá vitneskju um hverra framkvæmda megi vænta á sviði jarðhitaleitar norðanlands í næstu framtíð og um afdrif Norðurlands borsins. Ingólfur Jónsson sagði, að ætl- unin væri að flytja borinn norður aftur að loknum borunum í Vest- mannaeyjum og hefja boranir á Akureyrarsvæðinu, en borunin í Eyjum er áætluð að muni taka 3—4 mánuði Margar áætlanir liggja fyrir um jarðhitaleit og boranir norðanlands. Frekari rannsóknir þurfa að fara fram á Húsavík áður en borunum verður haldið þar áfram og unnið er að rannsóknum á fleiri stöðum. Ekk- ert af þessum verkefnum vár tíl búið til borunar og því var bor- inn fluttur til Vestmannaeyja, en hann var talinn mjög heppilegur við þær boranir. Las ráðherrann síðan úr skýrslu Gunnars Böðv- arssonar um jarðhitarannsóknirn- ar norðanlands Kom m.a. fram, að þó árangur hefði ekki orðið sem beztur við tilraunaboranirnar á Húsavík, þá væri sjálfsagt að halda borunum þar áfram. Lík- legt þætti að finna mætti jarð- hita í námunda Akureyrar, sem nægja myndi til hitaveitu, en ekk- ert væri unnt um þetta að full- yrða, þar sem enn er ekki full- vitað um Eyjafjarðarsvæðið. Ingvar Gíslason taldi, engin gild rök því til stuðnings að flytja borinn frá Norðurlandi til ann- arra verkefna þar sem borinn var sérstaklega keyptur til jarðborð- ana norðanlands og verkefni þar næg. an 1. okt. 1963. Séu tekin 4 ára tímabilin frá okt. 1955 til okt. 1959 og okt. 59 til 63, kemur í ljós, að á fyrra tímabilinu hefur bygg- ingarvísitalan hækkað um 32 stig, en á hinu síðara um hvorki meira né minna en 65 stig. Það heldur því enginn fram, að byggingarmálin hafi verið al- fullkomin í tíð vinstri stjórnar- innar, en vinstri stjórnin tók stórt skref í rétta átt og setti löggjöf um byggingarmálin Þessi löggjöf hefur reyndar ekki leyst þessi mál til frambúðar, og ástandið í húsnæðismálunum er óbærilegt orðið, og því er þessi tillaga nú flutt. Þá ræddi Einar um þá mót- báru, sem fram hefur komið gegn tillögunni, að tillagan væri óþörf vegna þess að félagsmálaráðherra hefði beðið húsnæðismálastjórn að endurskoða húsnæðismálin. Auðvitað á húsnæðismálastjórn sí- fellt að hafa húsnæðismálin til endurskoðunar og leita nýrra úr- ræða. Langt er nú liðið síðan skýrsla Hofmanns bankastjóra norska Husbankans barst, en enn er.„ekk;erjt farið að heyrast frá húsnæí5ismálastjórn um skýrsluna og sógjá má óeðliíé'gt að húsnæðis málastjórn fjalli um tillögur norska bankastjórans, þar sem hann leggur meðal annars til breytingar á yfirstjórn húsnæðis- mál'anna. Eðlilegra væri að sér- stök nefnd athugaði þessi mál öll og gerði tillögur. Vitnaði Einar til ályktana, sem aðalfundur Sam- bands ungra Sjálfstæðismanna gerði um húsnæðismálin nú fyrir nokkrum dögum, en ályktunin er nærri samhljóða tiliögu Fram- sóknarmanna. Húsnæðismálinu verður ekki lengur á frest skotið. Þetta er eitt stærsta vandamálið, sem þjóðin á við að glíma og hús- næðiskostnaðurinn stærsti liður í útgjöldum fjölskyldunnar og eng- inn liður annar ræður meir um afkomu manna. Eggert G. Þorsteinsson sagði að talnasamanburðui væri aðeins til að blekkja fólk, sem ætti um sárt að binda vegna þess að ekki hef- ur tekizt að leysa þessi mál, sem eru mestu hagsmunamál launþega og þjóðarinnar allrar. Eggert sagði hins vegar að slík nefnd, sem tillaga Framsóknarmanna gerði ráð fyrir, myndi engan vanda leysa Vandamálið, sem við er að etja, er að fá aukið fjár- magn inn í íbúðalá.nakerfið. Þorvaldur Garðar Krlstjánsson sagðist aldrei hafa sagt, að allt væri í lagi í húsnæðismálunum. Nauðsynlegt að gera endurbætur, sérstaklega að bæta lánskjörin og Framhald á 15. siSu. RETTINDI UTLENDRA Hermann Jónasson hafði í gær framsögu fyrir tillögu er hann flytur ásamt beim Ólafi Jóhannessyni, Karli Kristjáns syni og Birni Fr. Björnssyni um endurskoðun laga um eignarrétt og afnotarétt fast- eigna. Tillaga þessi og ýtar- leg greinargerð, er henni Skipting brezka lánsins Gunnar Thoroddsen, fjármála- ráðherra, svaraði í gær fyrirspurn frá Halldóri E. Sigurðssyni um skiptingu 240 milljón króna fram- kvæmdalánsins, sem ríkisstjórnin tók í Bretlandi, svo og lánskjör á endurlánum. Rakti Halldór efni bréfs ríkisstjórnarinnar til fjár- veitinganefndar, þar sem getið var um skiptingu lásins í stórum dráttum, en meirihluti nefndar- innar samþykkti þá skiptingu þann 20. apríl 1963. Gunnar Thoroddsen sagði, að skipting lánsins hefði verið sem hér segir í stærstu dráttum: Til raforkuframkvæmda vegna fram- kvæmda fyrir árslok 1962 40 millj- ónir og á árinu 1963 44 milljónir. Til virkjunarrannsókna 6 milljón- ir, til byrjunarframkvæmda við virkjanir 20 milljónir, hafnar- gerða í heild 50 milljónir. Þar af til Landshafnar í Rifi 17 milljónir og landshafnar í Keflavík 5 millj- ónir, 16,2 milljónum af hafnar- gerðafé er enn óskipt en veitt hefur verið tii þessara hafna: Ár-| skógsstrandarhreppur 1 milljón, Bolungarvík 7.3, Reyðarfjörður 1.5, Dalvík 1.2, Eyrarbakki 0.5, Grundarvík 0.5, Haganesvík 0.8, Hrísey 1.0, Neskaupstaður 0.5, Ól- afsfjörður 0.5. Sandgerði 0.5, Suð- árkrókur 1.0, Skagaströnd 0.5, Suð ureyri 1.0, Tálknafjörður 1.0, Vestmannaeyjar i.O, Þórshöfn 0,5. Til fiskiðnaðar voru veittar 50 milljónir. Þar af 41.3 milljónir í síldarverksmiðjur og þar af 8.5 milljón til Síldarverksmiðja rík- isins. Taldi ráðherrann síðan upp hinar síldarverksmiðjurnar. Til fiskvinnslustöðva var veitt 8.7 milljónum og auk þess 12.3 milljónum af öðru fé eða samtals 21 milljón. Taldi ráðherrann fisk- vinnslustöðvarnar ekki upp. Til iðnaðar var veitt 10 milljón um til h.f. Iðngarða í Reykjavík. Skuldabréf eru öll í sterlingspund um, vextir 7%% og lántökugjald 1%% Hafnarlánin eru til 20 ára, fiskiðnaðarlánin til 10 ára, raf- orkulánin afborgunarlaus þar til 1. maí 1967 og greiðast á á 20 árum. Halldór E. Sigurðsson fann að því, að ráðherrann skyldi ekki gefa sundurliðaða skýrslu um það til hvaða fiskvinnslustöðva lánum hefði verið veitt. fylgir var birt þegar tillaga bessi var lögð fram fyrir ára- mótin en tillaga bessi var einn ig flutt á síðasta bingi- Hermann Jónasson sagði, að flestar þjóðir hefðu löggjöf um hvaða skilyrðum menn þyrftu að fullnægja til þess að ,fá atvinnu- rekstrarréttindi í ríkinu. Okkar skilyrði eru í lögum frá 1919, og er í þeim mjög lítill hemill á það, að útlendingar geti eignazt hér eignir og rekið atvinnurekst- ur. Eru okkar skilyrði mun minni og linari en hjá flestum þjóðum öðrum. Vegna fámennis þjóðarinn ar ættum við þó a.m.k. að hafa eins ströng ákvæði hér að lút- andi og aðrar mun stærri þjóðir. — Hingað hefur ekki verið mikil ásókn útlendinga, en tímarnir eru gjörbreyttir. Við vorum afskekkt- ir og einangraðir, en nú erum við komnir í þjóðbraut og atvinnu- rekstraraðstaðan er nú allt önnur, og vitað. að útlendingar líta hing- að hýru auga Mörg lönd eru nú fullsetin og það ct leitað eftir hverjum auðum bietti. og við meg um gera ráð fyrir að leitað verði hingað Því þurfum við að ákveða, hvaða réttindi við viljum veita út- lendingum hér á landi. T í M i N N, fimmtudaginn 5. marz 1964 — 6

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.