Tíminn - 10.05.1964, Síða 15
A FÖLSKU
(Framtiald aí 9. síðu.}
Og sá, sem á eftir kom,
Helgi Sigurðsson frá Melum,
var í læknisfræðinámi. En Þor-
stein frá Hlíð ætlaði að verða
atvinnumálari. En hans örlög
urðu þau, að hann gerðist fyrst
'húsamálari til að bjarga sér,
og féll svo meira að segja úr
þeim söðli og fór að mála kven-
söðla, og endaði þannig sína
Iistbraut. Af því má sjá, að
ekkj var upörvunin mikil eða
hinn þjóðfélagslegi bakhjarl.
Eins fór um Helga frá Melum
og Sigurð Guðmundsson, hann
lagði penslana frá sér á miðj-
um aldri, og er sorgarsaga hans
kunn. í þessari bók reyni ég
eftir viti og getu að sýna hin-
ar þjóðfélagslegu hræringar,
bókstaflega efnahagslegar, sem
standa á bak við það sem tekst
og það sem misheppnast. Ég
trúi því ekki, að það sé alltaf
í manninum sjálfum, heldur að
það séu þjóðfélagslegar að-
stæður, sem ýmist bjóða hon-
um, eigi hann hæfileika til
mikilla afreka eða algjörrar
uppgjafar. Svo koma aldamótin
síðustu, þessi yndistíð þegar
Iífið kviknar, stórhugurinn rís,
og við einir allra Norðurlanda-
þjóða, eignumst brautryðjend-
ur, sem eru alóskyldir hver
öðrum, Ásgrím, Kjarval, Jón
Stefánsson og Einar Jónsson;
þetta eru eins og menn, sem
standa hver í sínum heimi og
eru fulltrúar hver síns þáttar-
ins í íslenzku þjóðareðli. Hjá
öðrum þjóðum, eins og t.d.
Finnum, er listamönnum þjapp
að saman í sama mótið, sömu
stefnuna. En við fáum þessa
gríðarlegu breidd, þetta er eins
og herfylking, sem sækir fram,
hver með sína battaljón.
— Hvað veldur svo þessu?
— Það er- fyrst og fremst
ungmennafélagshreyfingin,
þessi nývakning, sem er ekki í
einu byggðarlagi, heldur eru
mennirnir kallaðir utan úr
sveitunum, Kjarval úr Meðal-
landi, síðar austan úr Borgar-
firði, Jón Stefánsson frá Sauð-
árkróki, Ásgrímur austan úr
Flóa og síðar frá Bíldudal, Ein-j
ar Jónsson úr Hreppunum, þeir j
eru kallaðir utan úr þjóðlífinu, j
en eru ekki allir uppvaxnir í|
einum og sama listskóla, þröngi
um listskóla í höfuðstaðnum, j
eins og gerðist í Finnlandi, svo j
annað land sé tekið sem dæmi,:
nú eða Danmörk. Þetta er það, j
sem gefur íslenzkri list svoj
merkilegan karakter, víðfeðmi |
hennar og það, hve menn eru
ólíkir innbyrðis, sem stafar|
bæði af þessu og svo hinu, aðj
menn verða að fara til útlanda i
til að menntast en ganga ekki|
allir inn urn einu og sömu j
heimasmíðuðu dyrnar. Erlend- j
ir starfsbræður mínir verða!
furðu lostnir, þegar þeir sjá ís-[
lenzk verk á sýningu. Raunar
hafa allar þessar myndir ein-
hver áreiðanleg íslenzk sér-
kenni. Þessir listamenn hafa í
grundvelli sínum eitthvað sam-[
eiginlegt, en þar sleppir því.
En flstæðan er aulðvitað sú,
eins og á miðöldum, að ef fs-
lendingur ætlaði að menntast,
varð hann að fara til útlanda,
og þeir halda í ýmsar áttir. Því
hafa legið hér um svo marg-
víslegir straumar, þeir koma
frá Norðurlöndum, Englandi,
Frakklandi, Ítalíu, alla leið frá
Afríku og Ameríku, þar sem i
íslenzkir listamenn hafa gengið j
í skóla, hver kemur svo heim i
með sitt lítið pund og bræðir i
það saman við sitt íslenzka blá-
grýti. Þess vegna er okkar list
svo fjölbreytt, — kannski fyrir
sagnritara óþægilega fjöl-
skrúðug.
Ekið með fram
Bláfjöllum
KJ-Reykjavík, 9. apríl.
í blaðinu í dag er sagt frá sex-
menningum, sem óku meðfram
Bláfjöllum á Upstiginngardag,
frá norðri til suðurs, og þurftu
að nota spil sér til aðstoðar. Nú
skal þess getið, þeim til hugar-
hægðar, sem eiga jeppa án spils,
en langar að fara þessa leið, að
hægt er að fara hana sunnan frá.
Hreinn Halldórsson fór á uppstign
ingardag á Willys-jeppa þessa leið
að sunnanverðu, og gekk ferðin
eins og í sögu. Hreinn og félagar
sögðu að uppi í Bollanum og þar
í kring, væri stórkostleg náttúru-
fegurð, og bættu því við í lokin,
eð þangað væri hægt að komast
spillaust á Willýs-jeppum, sunnan-
frá.
TANKBÍLL
Framhald af 16. síðu.
í flutningunum með tilliti til
þeirrar reynslu, sem fengin er
eftir þessa fyrstu daga. Á sama
máli var Lárus J. Fjeldsted,bifreið
arstjórinn, sem er ánægður með
að vera nú laus við alla brúsana
og erfiðið, sem þeim fylgdi. Kvað
hann undraverðan mun á þessum
tveimur aðferðum.
Gylfi Jóhannesson mjólkurfræð
ingur sagði, að nú væri öruggt, að
öll mjólk, sem kæmi til samlags-
ins á þennan hátt, væri hrein og
1. fl. mjólk, svo framarlega, sem
kýrnar væru sjálfar heilbrigðar.
Nú værj næsta skrefið, að bænd-
ur kæmu sér upp kæligeymum í
mjólkurhúsum sínum, sem hægt
væri að koma bílunum að og taka
mjólkina beint út í bílgeymana.
Heimsoknin á hina 40 bæi tók
um 7 klst., og er það að sögn Lár-
usar bílstjóra, svipaður tími og
þegar hann tók brúsana, því nú
þarf að lesa af mælum, taka pruf-
ur og færa á skýrslur, það mjólk-
urmagn, sem hver og einn fram-
leiðandi selur. Mesta mjólkur-
magnið virtist mér koma frá Hvít-
árbakka, líklegast nærri 300 lítr-
ar, og frá Skálpastöðum í Flóka-
dal og Geirshlíð.
Haft var tal af mörgum bænd-
um í þessari för, og luku þeir allir
upp einum munni um það, að sú
reynsla, sem þegar væri fengin,
lofaði góðu og reyndar framar
öllum vonum.
Ingimundur Ásgeirsson á Hvoli
í Flókadal taldi, að ca. 400 1 kæli-
geymir ásamt færanlegum útbún-
aði myndi kosta hingað kominn
með tollum og öllu tilheyrandi
um 10 þús. kr., samkvæmt verð-
Ýlista frá dönsku fyrirtæki. En
víða töldu bændur, að þörf væri
bættrar aðstöðu heima við bæina
til þess að stór bíll gæti þar at-
hafnað sig við mjólkurtöku, og
ekki kváðust þeir sjá eftir brúsa-
draslinu, — þótt það hyrfi fljót-
lega úr umferð.
10—12 ARA BÖRN
Framhaid at 1 síðu.
viðeigandi opinberra yfir-
valda í þessum mánuði til
þess að mega lengja skóla-
tíma 10, 11 og 12 ára barna
um einn mánuð. Einnig hef
ur verið talað um að lengja
skólatíma barna í gagn-
fræðaskólum, en það verður
líklega ekki gert í bráð. —
Rétt er að taka það fram,
að kennarar hafa kannað
vilja foreldranna í þessu
efni á foreldrafundum og
hafa langflestir verið því
fylgjandi.
Elínborg Jónasdóttir
Stykkishólmi
EUnbjörg Jónasdóttir í Stykk-
ishólmi er 75 ára í dag. Elinbjörg
er fædd 10. maí 1889 að Kletta-
koti á Skógarströnd, dóttir hjón-
anna Pálínu Þorsteinsdttur og
Jónasar Márussonar, sem bjuggu
allan sinn búskap á Úlfarsfelli og
Kárastöðum í Álftafirði.
Elinbjörg ólst upp hjá foreldr-
um sínum, og vandist snemma mik
illi vinnu sem þá var títt í sveit-
um landsins. Ung fluttist hún til
Stykkishólms hins fagra höfuð-
staðar Breiðafjarðar, og hefur þar
dvalið lengst af ævi sinnar, nema
um níu ára skeið, sem hún bjó
í Rifgirðingum ljómandi fallegum
eyjum, úti fyrir Hvammsfirði. —
Með manni sínum, Þorvarði Ein-
arssyni matsmanni í Stykkishólmi
og um skeið bónda í Rifgirðingum,
eignuðust þau fjögur mannvæn-
leg böm, sem eru Steinþór Viggó
bifreiðastjóri í Stykkishólmi,
Anna býr í Belgsholti, Melasveit,
Björg búsett í Kópavogi og Ein-
ar veggfóðrarameistari í Kópa-
vogi.
Eins og áður er að vikið, bjuggu
þau hjón rausnarbúi í Rifgirðing-
um um nokurra ára skeið, eða á
meðan bömin voru í æsku, og með
einstökum dugnaði og ráðdeildar-
semi tókst þeim hjónum á þeim
ámm að komast í allgóð efni, enda
voru þessi heiðurshjón samhent
og dugleg við búskapinn í Rif-
girðingum.
Þorvarður, maður Elinbjargar,
er nú látinn fyrir nokkrum árum,
og hefur ekkjan verið búsett í
Stykkishólmi síðan, eða á milli
þess sem hún hefur dvalið hjá
börnum sínum.
Stykishólmsbúar, og aðrir kunn-
Nýttskip til
Bolungarvíkur
KRJÚL-Bolungarvík, 9. maí.
HIÐ NÝJA skip, Hugrún ÍS-7,
kom hingað á miðvikudagskvölú
kl. liðlega 7. Skipið er stálskip
smíðað í Marstrand í Svíþjóð og
er 206 lestir. Aflvél er Nohab pol
ar 675 hestöfl, en Ijósavél er Bol-
inder 71 hestafla. Áðalspil, Nor-
ving, 11 tonn. Hugrún er búin öll-
um nýjustu siglingatækjum. — í
reynsluför reyndist ganghraði 10,5
til 11 sjómílur.
Eins og áður hefur verið getið í
blaðinu, kom Hugrún við í Færeyj
um og heim hreppti skipið frem-
ur slæmt veður og segir áhöfnin
að skipið hafi reynzt hið bezta sjó-
skip.
Skipstjóri á heimleið var Leifur
Jónsson, og er þetta 6. skipið, sem
hann siglir hingað til Bolungar-
víkur. Annars verður Hávarður
Olgeirsson skipstjóri á Hugrúnu
Stýrimaður er Jón M. Egilsson og
1. vélstjóri Benedikt Jakobsson. í
dag er unnið við að landa saltinu
og verður síðan hafizt handa að
útbúa skipið til síldveiða.
ingjar og vinir Elinbjargar, böm
hennar og venzlafólk, munu í dag
hugsa með velvild og þakklæti til
hennar á sjötíu og fimm ára af-
mælinu, og óska henni að ævi-
kvöldið verði bjart og heiðríkt.
Ég, sem þessi fáu orð rita, á-
samt konu minni, óskum henni
hjartanlega til hamingju með af-
mælið, og árs og friðar.
Frú Elinbjörg er nú stödd hjá
syni sínum Einari Þorvarðarsyni,
Bjarghólastíg 17 A, Kópavogi.
Gamall HóJmari.
KLÁFFERJAN
Framhald af 1. síðu.
og að þeim stað, þar sem kláfur-
inn verður nú settur.
Ekki er ólíklegt, að kláfferjan
anni ekki umferðinni yfir
Tunknaá þegar fram ,i sækir, og
hverjir sem eru geta farið akandi
yfir Sprengisand og norður í land.
Þá verður að setja brú á ána, ekki
sízt ef til stórvirkjana kemur í
Búrfelli, og lögð verður raflína
norður.
England og Uruguay léku!
landsleik í knattspyrnu á mið-
vikudaginn á Wembley-leik-
vanginum í Lundúnum. Leikar
fóru svo, að Englendngar sigr-
uðu með 2:1 í lélegum leik og
var það heldur lítið eftir gangi
leiksins. Miðherjinn, Byrne,
skoraði fyrra mark Englands
rétt fyrir hléið, og bætti öðru |
við strax í síðari hálfleik. —
Bjuggust áhorfendur þá við
stóru tapi Uruguaymanna, Eng
lendinguin tókst ekki að bæta
við fleiri mörkum, en Uruguay
lagfærði töluna í 2:1. Myndin
hér á síðunni er frá leiknum.
Markvörður Uruguay grípur
knöttinn eftir skalla Paine
(nr. 1), m Greaves bíður til-
búinn ef ‘iíthvað skyldi út af
bregða.
Teikninga- og
málverkasýning
GB-Reykjavík, 9. maí.
Sýningu á 87 teikningum og mál
verkum opnar Guðrún Jacobsen,
i Ásmundarsal við Freyjugötu í
dag, og verður sýningin opin dag-
íega kl. 14—22 til 18. maí.
M.a. sýnir Guðrún 14 skopteikn-
ingar við gamansöguna Alþýðu-
heimilið. sem kom út eftir hana
í fyrra, og enn fremur tíu teikn-
ingar, sem hún hefur gert við eig-
ið smásagnasafn, er væntanlega
verður gefið út í haust.
STÝRIMANNASKÓLI
Framhald af 16. síðu.
fiskimannaprófi frá skólanum
í jainúar og 13 brautskráðust
frá námskeiSI í Vestmannaeyj
um og 14 frá Eyrarbakka. —
Haestu einkunn vlS farmanna-
próf, 7,03 hlaut Pálmi HlöS-
versson og fékk hann verð-
launabikar Eimsklpafélags ís-
lands, sem nú var afhentur í
fyrsta sinn. Hæstu einkunn við
fiskimannapróf, 7,52 hlaut Pét
ur Guðmundsson og fékk hann
verðlaunabikar Öldunnar. —
Hæstu einkunn á minna fiskl-
mannaprófi hlaut Björn Jó-
hannsson, 7,17. Á öllum þess-
um prófum »r hæst gefið 8.
Eftir að skólastjóri hafði af-
hent skírte’mi ávarpaði hann
nemendur og þakkaði » jafn-
framt ýmsar gjafir, sem skói-
anum bárust.
Kleifarvatn er 96 m
djúpt
KJ-Reykjavík, 9. apríl
Sigurjón Rist vatnamælingamað-
ur hefur að undanförnu unnið að
dýptarmælingum nokkurra vatna
hér skammt utan við Reykjavík.
Er ekki ólíklegt að borgarbúum
mörgum hverjum þyki fróðlegt
að vita hvert er mesta dýpi vatn-
anna sem þeir aka svo oft að um
helgar og öðrum frídögum. Nið-
urstöður Sigurjóns eru þær að
Hafravatn í Mosfellssveit er 28
metra djúpt, Hlíðarvatn í Selvogi
fimm metrar og Kleifarvatn 96
metra djúpt.
T í M I N N . sunnudaoinn 10. maí 1964
15