Tíminn - 19.06.1964, Page 7

Tíminn - 19.06.1964, Page 7
Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN. Framkvæmdastjóri: Kristján Benediktsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði G. Þorsteinsson. Fulltrúi, ritstjómar: Tómas Karlsson. Frétta- stjóri: Jónas Kristjánsson. Auglýsingastj.: Sigurjón Davíðsson. Ritstjórnarskrifstofur í Eddu-húsinu, símar 18300—18305. Skrif- stofur Bankastr. 7. Afgr.sími 12323. Augl., sími 19523. Aðrar skrifstofur, sími 18300. Áskriftargjald kr. 90,00 á mán. innan- lands. — í lausasölu kr. 5,00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h.f. Mbl. og kommúnistar Um meira en þrjátíu ára skeið hafa forkólfar Sjálf- stæðisflokksins leikið þann leik að látast vera miklir andstæðingar kommúnista og borið öðrum á brýn und- irlægjuhátt og óeðlilegt samstarf við kommúnista á sama tíma og þeir hafa sjálfir haft hin margvíslegustu mök við þá. Það gerðist nýlega, að Mbl. reyndi að koma kommún- istastimpli á heilan hóp listamanna, sem hafði annað ráðhorf til hermannasjónvarpsins en eigendur Morgun- jlaðsins. í þessum hópi var hins vegar að finna ýmsa nenn, sem alltaf hafa fordæmt kommúnista, enda varð Mbl. að taka ummæli sín aftur næsta dag og kenna prentvillu um! Mbl. sneri svo máli sínu í það að vara Við samneyti við kommúnista. Þessu svaraði Þjóðvilj- inn svo á eftirfarandi hátt á þjóðhátíðardaginn eftir að hafa rakið umrædd skrif Mbl.: „Öll sýnir þessi flækja hversu brýnt það er orðið að rannsóknarréttur Morgunblaðsins felli um það úrskurð hvert samneyti megi hafa við kommúnista og hvert ekki. Alkunna er að margt er leyfilegt. Sjálfstæðisflokkurinn vann sem kunnugt er að stofnun lýðveldis fyrir réttum 20 árum í mjög innilegri samvinnu við kommúnista. Aðalleiðtogi Sjálfstæðisflokksins, Ólafur Thors, mynd- aði fyrstu stjórn lýðveldisins með kommúnistum og hef- ur jafnan talið þá samvinnu til einstakrar fyrirmyndar. Fjölmörg mál, stór og smá, hafa verið útkljáð á þingi með samvinnu Sjálfstæðisflokksins og kommúnista, og er þar skemmst að minnast kjördæmabreytingarinnar 1959. Síðan nýr maður tók við formennsku 1 Sjálfstæð- isflokknum hefur hann lagt sig í framkróka til þess að ná sem beztri samvinnu við kommúnista, eins og fram kom í samningunum í nóvember og desember í fyrra og í samkomulaginu við Alþýðusambandið fyrir skemmstu, en það taldi Morgunblaðið einhver mestu og beztu tíð- indi í tveggja áratuga sögu lýðveldisins. Og þannig mætti lengi telja.“ Reynslan sýjiir þannig vissulega, að það hefur aldrei staðið á forkólfum Sjálfstæðisflokksins að hafa hið nán- asta samslarf við kommúnista, ef þeir hafa talið sér minnsta hag í því. Öll fordæmingarskrif þeirra um komm únista eru þannig hrein látalæti. Því er erfitt að finna öllu augljósara dæmi um blygðunarlausa hræsni en þegar Mbl. er að fordæma kommúnista og samneyti við þá. Þjóðaratkvæði Á fullveldisdaginn birtist hér í blaðinu grein eftir Ólaf Jóhannesson, professor, um þátttöku íslands í alþjóða- samvinnu á Iýðveldisárunum. Þar var rakin hin vaxandi þátttaka íslands í slíkri samvinnu og sýnt fram á, að hún væri líkleg til að aukast enn meira á komandi ár- um. Jafnframt var bent á, að þjóðinni bæri þó að hafa á fulla gát í þessum efnum. Slíkri þátttöku fylgir oft nokkurt: afsal á valdi og fyrir litla þjóð getur það verið varhugaverðara en stóra þjóð. Ólafur Jóhannesson varp- aði því fram þeirri tillögu, að það ákvæði yrði sett í stjórnarskrána, að þjóðaratkvæðagreiðsla skyldi fara fram í hvert sinn, þegar um væri að ræða þátttöku i milliríkjastarfi, er gæti falið í sér einhverja valdskerð- ingu. Þannig væri það bezt tryggt, að slík þátttaka yrði ekki endanlega ákveðin, að þjóðinni forspurðri. Þessi tillaga er vissulega mjög athyglisverð. í stjórnar- skrám ýmissa nágrannalanda okkar mun að fi'.ma hlið- stæð ákvæði. Þörfin fyrir það er þó brýnni hér. Goldwater virðist vera öruggur Allt bendir til, að hann hafi tryggt sér meirihluta fulltrúa EINS og fram kemur í áður- greindu yfirliti, eru fulltrúar á flokksþing republikana kosnir með mjög mismunandi hætti í hinum ýmsu ríkjum. Sums staðar er kosið beint um for- setaefni og eru fulltrúarnir þá lagalega skuldbundnir til að fylgja því forsetaefninu, er sigrar í prófkjörinu. Sums stað ar hafa fulltrúarnir aðeins flokksleg fyrirmæli um, hvern- ig þeir skuli geiða atkvæði, eða hafa verið valdir sem fylgis- menn viss forsetaefnis. Þeir eru þá siðferðilega bundnir, en ekki lagalega. Loks eru fulltrú- ar valdir þannig í ýmsum ríkj- um, að þeir hafa óbundnar hendur. Eins og sést á framan- greindu yfirliti, er nær helm- ingur þeirra fulltrúa, sem lýst hafa stuðningi við Goldwater, kosnir með þeim hætti. Þeir geta því breytt afstöðu sinni. Það er um þessa fulltrúa, er baráttan mun standa fram að flokksþinginu. Goldwater við- urkennir, að hann geti misst einhverja af þeim, sem fylgja honum nú, en hann segist gera sér vonir um, að hann fái líka í staðinn einhverja þeirra, sem enn hafa ekki tekið opin- bera afstöðu eða telja sig nú fylgjandi öðrum. Fylgismenn menn hans eru enn bjartsýnni. FRJÁLSLYNDIR republik- anar skipa sér nú þéttar og þéttat um Scranton. Fylgis- menn Lodge hafa alveg snúizt á sveif með honum. Sama liefur Rockefeller gert og liðsmenn hans Fylgi Scrantons virðist sterkt í austurfylkjunum, en Goldwater heíur hins vegar sterka aðstöðu í miðríkjunum, suðurríkjunum og Klettafjalla- ríkjunum. Liðsmenn hans segja, að honum nægi að vinna þessi ríki og Kaliforníu. Aust- urríkin megi þá sigla sinn sjó. Augljóst er, að Goldwater hyggst að vinna sér fylgi þeirra, sem eru andstæðir rétt- indalöggjöfinni til handa svert- ingjum. Hann var því einn sex flokksbræðra sinna í öld- ungadeildinni. er greiddi atkv. gegn því að málþófinu gegn henni yrði hætt. Síðar segist hann, ef til vill greiða atkvæði með henni, en hann leggi hins vegar áherzlu á, að framkvæmd hennai verði sem mest í hönd- um hinn einstöku ríkja, en ekki í höndum sambandríkis- ins. Þetta er það, sem suður- ríkin leggja nú áherzlu á. Með þessari afstöðu sinni, hyggst Goldwater að geta náð langt inn í raðir demokrata og byggir það á því fylgi, er Wallace rík- isstjóri í Alabama hefur fengið í prófkjörum hjá demokrötum. AÐALÁRÓÐURINN gegn Goldwater er nú sá, að hann muni fá minnst fylgi allra for- setaefna republikana. Þetta hefur verið nokkuð almenn skoðun fram að þessu, en nú hallast fleiri og fleiri að því, að þetta gildi fyrst og fremst um austurríkin Annars staðar geti þetta reynzt öfugt. Að vísu muni Goldwater tapa ein- hverju af fylgi frjálslyndra re- publi rana, en hann muni fá staðinn íhaldssama demokrata. Enginn geti sagt með vissu um úrslitin, því að ekki hafi áður verið kosið hreint um hægri og vinstn stefnu. þ.e. íhaldsstefnu og framsóknarstefnu. Fyrir re- publikana sé a.m.k. ekki óráð- legt að kanna það Búizt er við, að baráttan muni verða hörð milli Gold- waters og Scrantons fram að flokksþinginu, og barizt verði með einum eða öðrum hætti um atkvæði svo að segja hvers fulltrúa, sem ekki er lagalega bundinn. Báðir aðilar hafa mik- il fjáiTáð, því að flestir auð- menn austurríkjanna standa með Scranton, en víðast annars staðar standa þeir með Gold- water. Ýmsir telja að Scranton hafi nokkuð veikt aðstöðu sina með því, að hann hefur lýst yfir því, að hann muni styðja Goldwater, ef hann sigrar á flokksþinginu. Af þeim ástæð- um, missi barátta hans gegn Goldwater nokkuð marks. Af flokkslegum ástæðum mun Scranton hafa talið sér nauð- synlegt að gefa þessa yfirlýs- íngu, þar sem eining flokksins hefði annars verið alveg rofin. Sumir foringjar republikana ræða um það sem lausn, að Goldwater verði forsetaefni flokksins, en Scranton vara- forsetaefni. Heldur þykir þetta ólíklegt, en þó ekki talið al- veg útilokað. ef flokksþingið S getur komið sér saman um 9 stefnuyfirlýsingu, ervbáðir geta B sætt sig við. Slík yfirlýsing 1 myndi þurfa að vera loðin. Þ-Þ- | „■ J ALLAR líkur virðast nú benda til þess, að Barry Gold- water verði valinn frambjóð- andi republikana í forsetakosn- ingunum í haust. Eitthvað ó- vænt verður að ske, ef and- stæðingum hans í flokknum á að takast að hindra það. Síðastliðinn þriðjudag stóðu þessi mál þannig, að búið var að kjósa fulltrúa á flokksþing republikana í öllum ríkjunum, nema í Texas og Montana. Sam- kvæmt yfirliti, sem þá birtist í ,.The New York Times-1 voru 118 fulltrúar lagalega bundnir til að fylgja Goldwater í gegn- um þykkt og þunnt á flokks- þinginu og gátu ekki breytt af- stöðu sinni, nema í samráði við hann. Þetta voru fulltrúarnir frá Kaliforníu og Indiana. 227 fulltrúar höfðu hins vegar flokksleg fyrirmæli um að kjósa Goldwater eða höfðu lýst sig fylgjendur hans áður en þeir voru kjörnir og töldu sig því skuldbundna til að fylgja hon- um. 273 fulltrúar, sem voru kosnir á þann veg, að þeir hafa óbundnar hendur, höfðu lýst sig fylgjandi Goldwater. Þann- ig hafði Goldwater á bak við sig 618 fulltrúa, en til þess að sigra í fyrstu atkvæðagreiðslu, þarf 655 atkv. Á kjörþinginu i Texas, sem kaus 56 fulltrúa á þriðjudaginn, hlaut Goldwater stuðning þeirra allra. Einnig er búizt við. að á kjörfundinum i Montana, sem haldinn verður á morgun, fái Goldwater alla full- trúana, 14 talsins. Samkvæmt því ætti hann að vera búinn að tryggja sér 678 atkvæði. Scranton þykir gó'ður dansmaður. Mynd þessi, sem hefur biirzt víða, var tekin nýlega af honum og konu hans. I I M I N N, föstudaginn 19. júní 1964 r

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.