Tíminn - 19.06.1964, Side 8
16. JUNÍ. — I dag á Akranes
100 ára afmæli sem verzlunarstað-
ur. Að þvi tilefm var búðum og
sikrifstofum lokað kl. 3 og almenn
vinna lögð niður kl. 5. — Fánar
blöktu hvarvetna og gluggar ver.'l
ana voru skemnitilega skreyttir,
m. a. með ýmsum fornucn munum
úr byggðasafni itaðarins að Görð-
um.
Kl. 6 hófst hátíoafundur bæjai-
stjórnar Akraness, er haldinn var
í Bíóhöilinni. Fjóimenntu bæjar-
búar -þangað í f ögru veðri og sói
skinsskapi. Áður en fundur hófst,
svo og í lok fundarins, lék Lúðra-
sveit Akraness undir Btjóm Jóns
Sigurðssonar nokkur lög, þar á
meðal byggðarsöng Akraness eft-
ir Geirlaug Ámason, við Ijóð Ragn
ars Jóhannessonar, er hefst svo:
Nú er bjart um Skipaskaga.
Jón Ámason, alþingismaður,
forseti bæjarstjórnar setti fundinn
— lýsti tilefni fundarins og bauð
bæjarfulltrúa og áheyrendur ve'-
komna. Þá gaf hann Björgvin Sæ-
mundssyni bæjarstjóra orðið, en
hann las upp nokkur heillaskeyti,
er borizt höfðu að þessu tilefni,
þar á meðal frá félagsmálaráðu-
neytinu og þingmönnum kjördæm-
isins.
Því næst flutti forseti ræðu þar
sem hann rakti sögu íslenzkra
verzlunarmála frá upphafi íslands
byggðar, lýsti tildrögum þess, að
konungi var send bænaskrá utn
löggildingu verzlunarstaðar hér á
Akranesi, og minntist þeirra
manna, er þar höfðu haft for-
göngu, Amljóts Ólafssonar, þing-
m. Borgfirðinga og BenedLcts
Sveinssonar, konungkjörins vara-
þingmanns.
Ráðagerðir um löggildingu verzl
unarstaðarins hcfðu mætt allmik-
illi andstöðu, er rekja mátti til
reykvískra kaupmanna, er sáa
fram á, að við það misstu þeir
spón úr sínum aski. — Formæl-
andi þess sjónartniðs var Halldór
Kr. Friðr'iksson, þingmaður Reyk-
víkinga, en þessv,- þrír þingmenn
skipuðu nefnd þá, er um má!:ð
fjallaði á Alþingi. Að lokum lýsti
ræðumaður þeim miklu þýðingu,
er þessi ákvörður hefði haft fynr
Akranes, sérstaklega er fram ltðu
stundir, og hve mikið almenning-
ur ætti undir því, að verzlun væri
frjáls og sú þjónusta vel af hendi
leyst.
Þá bar bæjarstjóri fram tvær
tillögur að þessj tilefni, þá fyr-i
um að láta semja og gefa út fram-
hald af sögu Akraness, er hinri
kunni gáfu- og fræðimaður Ólaf-
urB. Björnsson nóf útgáfu á 1957.
og hafði samið tvö bindi, er hann
lézt árið 1959.
Fór ræðumaður maklegum við-
urkenningarorðuni um ritstörf
Ólafs, bæði með áðurgreindri
sögu Akraness og útgáfu tímarits-
ins Akranes, en í þessum ritu:n
væri af mikilli kostgæfni rituð
saga staðarins og íbúa hans, ekk
bara höfðingja og forystumanna,
heldur einnig og ekki síður al-
þýðu manna, er byggt hefðu bæ-
inn og gert harn það sem hann
nú er. .... __
Frá aldarafmælishátfCahöldunum.
Seinni tillagan var um að gera
afsteypu úr eir af höggmyndinni
„Sjómaðuæ“, eftir Martein Guð-
mundsson, og koma henni fyrir á
hentugum stað í bænum. Um þá
framkvæmd yrði höfð samvinna
við nefnd, er starfar að því að
koma hér upp minnismerki sjó-
manna. Báðir þessar tillögur vor i
samþykktar einróma, og fundi þar
með slitið og ’okið hátíðarnaldi
til minningar um 100 ára verzlur,-
arafmæli Akraness. — G. B.
17. JÚNÍ
17. júní hátíðahöldin á Akra-
nesi hófust með guðsþjónustu í
Akraneskirkju, prestur séra Jón
M. Guðjónsson. Kl. 1,15 hófst
skrúðganga neðan úr miðbæ inn
á fþróttavöll, þar sem aðal-hátíða-
höldin fóru fram í fegursta veðri.
Mikið fjölmenni var þar saman
komið, svo eigi munu í annan
tíma fleiri bæjarbúar hafa ver-
ið þar saman komnir. —
Formaður hátíðarnefndnr, Jó-
hannes Ingibjartsson, setti hátíð-
ina. Aðalhátíðarræðun flutti sókn-,
arpresturinn, séra J. M. Guðjóns-
son. Frú Bjarnfríður Leósdóttir
flutti ávarp Fjallkonunnar, búin
fögrum skautbúningi. Þá flutti
Þortvaldur Þorvaldsson, kennari,
einn af foringjum Skátafélagsins,
einkar fróðlegt erindi um sögu HátiSahölo á Akratorgl 17. |ónL
Akraness síðastliðin 100 ár, en i
skátar aðstoðuðu og báru fsl. fánaj
og stór spjöld, er á táknrænan
hátt sýndu það, er mest hafði ein-
kennt hvem áratug. Var með
þetta efni farið af einkar mikilli
smekkvísi — af hálfu skátanna. —
Karlakórinn Svanir söng nokkur
lög undir stjórn Geirlaugs Áraa-
sonar og Hauks Guðlaugssonar.
Þá sýndi flokkur ungs fólks úr
Reykjavík, þjóðdansa. Að lokum
var skemmtiþáttur: Kaupmenn í
sendiferð, þar sem „kaupmenn“
þreyttu nokkurs konar boðhlaup,
akandi hjólbörum eftir mjóum,
hallandi plönkum, sem tovelt
var að halda jafnvægi á. Lúðra-
sveit Akraness, undir stjóra Jóns
Sigurðssonar lék fyrir skráðgöng-
unni, svo og milli skemmtiatriða.
Kl. 5 hófst svo bamaskemmtun
á Akratorgi. Var þar saman kom-
inn mikill fjöldi barna og fullorð-
inna. Skemmtikraftar komu með
flugvél frá Reykjavík, og lenti
hún á Langasandi og beið þar í
2 klst. meðan skemmtunin fór
fram. Var flokkur þessi skipaður
kunnu listafólki, 4 körlum og 4
konum og þótti leysa sín hlut-
verk með miklum ágætum, enda
óspart idappað lof í lófa. Að lok-
um spilaði Dumbo-sextettinn dans-
lög um skeið, en bömin dönsuðu
af hjartans lyst
Kl. 9 var hátíðahöldunum fram
haldið á Akratorgi. Björgvin Sæ-
mundsson bæjarstjóri, flutti ræðu,
Skrúðganga Inn á íþróttavöllinn.
Karlakónnn Svanir söng, auk ým-
issa skemmtiþátta. Lúðrasveitin
lék milli atriða.
Að lokum var stiginn dans,
fyrst á Akratorgi, og svo í tveim-
ur samkomuhúsum bæjarins, þar
til kl. 2. —
Þessi tveggja daga hátíðahöld
á Akranesi, voru hin ánægjuleg-
ustu, og fóru í alla staði fram
svo sem bezt varð á kosið —
G.B.
Tvöföld
hátíðahöld
á Akranesí
)
\
)
)
\
)
i
i
8
TlMINN, föstudaglnn 19 iúni 1964