Tíminn - 23.08.1964, Qupperneq 13
m GF.TA ALLIR LÆRT Á mm
Þér útfyllið mlðann hér að neðan, fálð send
8 kennslubréf með viku miilibili. í hverju bréfi
eru 3 kennslustundir Alls fáið þér þvi 24
kennslustundir, fyrir aðeins 450,00 kr.. sem
þér greiðið við móttöku 1. bréfsins. Kenndur
er undirleikur eftir þekktum aðferðum, þann-
ig að námið verður tiltölulega mjög auðvelt.
NÝTT: BEATLES-
LÖGIN fylgja síð
asta bréfinu. Kenm
ari er Óiafur Gauk-
ur. simi 10752.
Þarsemher
marsmn
Fyrir meir en 30 árum fór ung
norsk hjúkrunarkona, sem kristni-
boði til Swazilands í Suður-Afríku.
Þar hefur hún starfað síðan með
wenjulegri fórnarlund og þol-
gæði. Þrátt fyrir tíð veikindi —
hún hefur gengið undir átta upp-
skurði — hefur hún sjaldnar tek-
ið sér tíma til að fara heim til
Noregs, til hvíldar, en margir
aðrir kristniboðar, sem gengið
hafa heilir til skógar. Nú hefur
hún starfað án nokkurs uppihalds
eða hvíldar í 8 ár, síðan hún kom
síðast heim.
Kristniboði þessi er Gunda Li-
EYFIRÐINGA
RYNÞÁTTAJAFNRÉTTI
Framhaid ai 7 síðu
einn, sem þannig hugs-
um, að staldra við, þegar of-
beldisverk eru framin, og
spyrja sjálfan sig, hvort ekki
sé til nein önnur leið til þess
að koma á friði í landinu. En
það er ekki um neina aðra
leið að ræða.
Unnt er að auka áhrifamátt
laga og reglna, þeir, sem fara
með framkvæmdavald og
stjórnvald, geta beitt þeim bet-
ur, löggjöfin getur orðið til-
litssamari og menningar- og
Siðgæðisleiðtogar orðið ákveðn
ari og einbeittari en áður. En
þegar Bandaríkjamenn eiga
skipti við samlanda sfeia, er
ekki um neitt annað að ræða
til koma á friði en réttlæti og
miskunnsemi.
SKRIFAÐ OG SKRAFAÐ
Framhald af 6. síðu.
hann flutti á síðasta þingi
ásamt 5 öðrum þingmönnum
Framsóknarflokksins um mark
aðsrannsóknir og sölustarfsemi
í þágu útflutningsatvinnuveg-
anna en tillaga þessi kvað á
um að athugun yrði látin fara
fram á því á hvern hátt megi
efla markaðsrannsóknir og
sölustarfssemi í þágu útflutn-
ingsatvinnuveganna svo og
að bæta gæðaeftirlit, þann-
ig að sem beztum árangri
verði náð með minnst-
um tilkostnaði. Þessi tillaga
náði ekki fram að ganga eins
og nær allar tillögur Fram-
sóknarmanna, • en víst er að
þetta nauðsynjamál verður end
urflutt þar til það nær fram
að ganga.
Hráefnaútflytjendur
land. Á fyrstn árum hennar í
Swazi-landi batzt kynning og vin-
átta milli hennar og Hvítasunnu-
fólks á íslandi. Kynning þessi hef-
ur orðið meiri og sterkari eftir
því, sem tíminn hefur liðið. Árið
1955, þegar hún var síðast heima
í Noregi sér til hvildar og lækn-
inga, kom hún til íslands í fyrsta
sinn, og ferðaðist þá nokkuð um
hér. Fyrir sérlega aðlaðandi fram-
komu, kærleika og hógværð, á-
vann hún sér marga vini með
þessari komu sinni. Ósk okkar
allra er, að hún fái tækifæri til
þess að koma hingað aftur.
Um 30 ára skeið hafa Hvíta-
sunnumenn styrkt stárf hennar í
Swazilandi. Hin síðari ár hefur
Kristín Sæmunds verið gjaldkeri
hennar. í nýkomnum bréfum skrif
ar Gunda Liland um ýmis vanda-
mál í starfinu. Eins og allir vita,
er mikil ókyrrð í Suður-Afríku nú.
Ókyrrð sú orkar á allt og alla, og
ekki minnst á kristniboðana og
starf þeirra. „Hergöngur eru tíð-
ar“, segir hún í bréfi, „og her-
göngumarsinn hljómar". — Tákn
endalokanna — eða hvað? En því
meir, sem hún finnur til þess að
tíminn er stuttur, þeim mun þakk-
látari er hún fyrir alla hjálp, sem
vinir á íslandi hafa veitt henni.
„Takið á móti þúsundföldu þakk-
læti mínu fVrir bænir ykkar og
fórnir vegna starfsins í Swazi-
landi“, segir hún í einu bréfi.
Vegna vissra, uppáfallandi
þarfa Gundu Lilands, sem hún
getur um í nýkomnu bréfi, verður
almenn samkoma haldin í Fíla-
delfíu, Hátúni 2, Reykjavík,
sunnudaginn 23. þ.m. Á þeirri
samkomu verður fórn tekin vegna
þessara sérstöku þarfa hennar,
sem nánar verður sagt frá á sam-
komunni.
• Ásmundur Eiríksson.
BJOÐUM YÐUR
vörur fil bygginga * miösiöövarlagna *
raflagna * skipasmíöa.
og alls konar smíöaáhöld.
Fyrirspurnum svaraö um hæl og
afgreiðslu hraöaö.
Sími 1700 — Símnefni KEA
Kaupfélag Eyfirðinga
AKUREYRl
GASCOIGNES
Þessai iandskunnu mjalía
vélar eigum við oftast fyr-
irliggjandi eða útvegum
með stuttum tyrir vara.
Sérstök áherzla er lögð s
góða varhlutaþjónustu.
RNI GESTSSON
Vatnsstíg 3 — Sími 11555
Auglýsið í limanum
GITARSKOLINN
PÓSTHÓLF 806.
Vinsamlegast sendið mér GÍTARSKÓLANN, 4 kennslustundir
bréfum, sem ég greiði með kr. 450,00 við móttöku 1. bréfslns.
í 8
NAFN
HEIMILl
’Snittmaster
ViS megum ekki halda leng-
ur að okkur höndum og láta
þessi markaðsmál okkar hjakka
í sama fari. Við verðum að
finna hvar hið opinbera þurfi
helzt að hlaupa undir bagga
með einstaklingum eða félags
samtökum og gera síðan skyn-
samlegar áætlanir um stuðning
við nýjungar og tilraunir, því
óhugsandi er að einstaklingar
geti í þetta ráðizt nema til
komi stuðningur við erfiðustu
sporin, fyrstu átökin við mark-
aðsöflunina. Við verðum að
vinna okkur fótfestu á hinum
frjálsu neytendamörkuðum fyr
ir fullunnar neyzluvörur. Með-
an við erum að verulegú leyti
hráefnaútflytjendur verður okk
ur skipað á bekk með vanþróuð
um ríkjum.
GiSLI JÓNSSON&CO.HF.
SKÚLAGÖTU 26 S'lMI 11740
„SNITTMASTER" er handhægt tæki við allan matvæla-
iðnað - sérstaklega í matvöruverzlunum. Tekur lítið pláss, er
einfalt í notkun — og ódýrt. Þar sem efnið til pökkunar er í
rúllum, en ekki örkum, fæst betri nýting á efninu, sem er
CRYOVAC-filma.
Pökkunum er lokað við iágan hita með TEFLON-klæddri
hitaplötu.
Við höfum alltaf á lager í rúllum, hinar velþekktu
CRYOVAC-filmur í ýmsum gerðum og breiddum. Sérstak-
lega viljum við benda á XL-fiImuna, sem framleidd er fyrir
alls konar grænmeti, ávexti og ferskt kjöt.
Einnig S-filmuna,
sem aðallega er ætluð fyrir ost, ýmsar unnar og óunnar kjöt-
vörur og fitumikil matvæli svo sem, reykta síld, reyktan
lax og hákarl. S-fiIman er einnig tilvalin utan um hvers
konar bökunarvörur. LEÍTIÐ UPPLÝSINGA -
ia
T í MI N N , sunnudaginn 23. ágúst 1964 —