Tíminn - 25.09.1964, Blaðsíða 3

Tíminn - 25.09.1964, Blaðsíða 3
í SPEGLITÍMANS Cassius Clay, heimsmeislari í þungavikt, hefui' fcugið styttu af sér í hinu heimsfræga vaxmyndasafni Madame Tuss- aud. A myndinni sjáum við Gay Warner Ieggja siðustu hönd á verkið. V--- Bretar eru löngum þekktir fyrir að veðja um allt mögu- Iegt, og það segir sig sjálft, að brezku þingkosningarnar eru engin undantekning. Veðmála- fyrirtœkið Ladroke hefur í allt tekið á móti um 8000 pundum frá þeim, sem veðja á Verka- mannaflokkinn, og um 5000 pundum á íhaldsflokkinn, en boðið er nú 2—1 fyrir Verka- mannaflokkinn og 6—4 fyrir íhaldsflokkinn. í allt hafa u*----------------- brezk veðmálafyrirtæki tekið á móti 180.000 pundum í sam- bandi við kosningarnar, eða tæplega 26 milljónum íslcnzkra króna! ★ Bandaríski kvikmyndaieikar- inn og söngvarinn Frank Sinat ra var dæmdur til að barga 25.000 pesetas, þ.e. 18.000 kr í sekt fyrir óró á almannaíæri og fyrir að sýna lögreglnnni ckki nægilcga kurteisi. Þetta gerðist í Malaga nýlega, og bandaríska sendiráðið þar segir, að Sinatra hafi setið á veitingahúsi einu £ borginni, þegar ung stúlka og spænskur Ijósmyndari komu inn og báðu hann um að stilla sér upp til myndatöku. Sinatra neitaði því og urðu nokkrar deilur milli þeirra þriggja, sem leidu til þess að konan fleygði whisky- glasi framan í Sinatra, sem af skiljanlegum ástæðum var ekki of hrifnn af slíku uppá- tæk t. Hér endur fyrir löngu þóttl það bezt, ef varaliturinn bar keim af blómailm. En þeir dag ar eru löngu liðnir, og í dag eru varalitir, sem bragðast eins og vissar tegundir ávaxta, vin sælastir, eða svo segir John Talbot hjá hinu stóra og þekkta varalitafyrirtæki CUTEX. Seg ir hann að rannsókn, sem fyr- irtækið hafi gert á því, hvaða bragð karlmenn vilji helzt hafa af varalitoum, sýini, að sístrónu-, epla-, van- illu, kaffi- og ölbraigð séu vin- sælust. Og jafnt konur sem karl ar virðast hafa mikið dálæti á varalitum, sem bragðast eins og cola, ananas, vínber og jarðarber. Það á ekki af sænska hern- um að ganga. Wennerström njósnaði í fimmtán ár og kom fjölmörgum hemaðarleyndar- málum í hendur annarra ríkja, og nú nýlega voru tvær ungar stúlkur í Mariestad í Svíþjóð dæmdar fyrir að hafa ógnað öryggi ríkisins, og fengu þær 15 dagssektir. Glæpur þeirra var þó frekar lítill miðað Við hinn mikla njósnara; þær höfðu nefnilcga læðzt inn í herbúðirnar og notið lífsins að inæturlagi ásamt tveim her- mönnum, en slíkt er talið ógna öryggi sænska ríkisins sam- kvæmt lögum frá 1940. Þessir herramenn geta ræp lega talizt fagrir útlits, enda er það ekki ætkmin. Þeir ru nefnilega þátttakendur : keppni um það, hver geti gert sig Ijótastan í andliti. íbúar bæjarins Egremont, Cumber- land, Norður-Englandi hafa allt frá því árið 1267 haldíð árlega „Krabbahátið“ og fast ur liður í þeirri hátíð er að karlmenn bæjarins keppa um það, hver getur afmyndað and lit sitt mest. Sigurvegarinn að þessu sinni er maðurinn í miðj unni, Taffy Thomas aS nafni, en hann er flmmtugur að aldri. Stúlkan á myndinni heitir Toya Mendoza og verður að öllum líkindum næsta stjarna kvikmyndaleikstjórans Roger Vadim. Toya er ein aðaldans- mærin í ballettinum ,.Les Ball ets Negro Africans“, og mun halda næstu daga ásamt ball- ettinmn til Parísar, þar sem hún mun skrifa undir samning við Vadim. Vadim sá Toya, sem á blökkukonu að móður j*i' ;1 I'■■ "im ■■ ■ • !.-!>■ ■ en Portúgala að föður, pegar ballettinn dansaði í „Alham- bra“ í París, en þangað kom hann á hverju kvöldi. H?nn varð strax mjög hrifi.in af henni, og bauð henni síðau aðalhlutverkið í kvikcuynd, sem bera á nafnið Walala“ eftir afríkanskri þjóðsögu, sem að mörgu leyti minnir c söguna um Tristan og Isolde hvað efni snertir. Toya, sem er 19 ára hefur dansað í 10 ár, og hnn fékk mjög góða danskennslu heima í Senegal. Hún hefur auk þess verið trúlofuð einum aðaidans aranum £ Africana-ballettin um, Italo Zambo, í ,æp þrjú ár. Þegar hún hefur skrifað undir samninginn við Vadim fer hún ásamt ballettinum til Tokio. Þar mun baliettinn koma fram í þrjá mánuði i einni stærstu tónlistarhöll heimsins, Mikado. LXÍMINN. föstudaainn 25. seDtember 1964 A VÍÐAVANGI „Viðreisnar"- sannleikur Leiðari Morgunblaðsins í gær fjallar um hinn mikla skilning „viðreisnar“-stjómarinnar á málum landbúnaðarins, og eru sumir kaflar þeirrar ritsmíðar svo merkilegir, að þeir verð- skulda endurprentun og gaum gæfilega skoðun. Til dæmis hljóðar einn kaflinn svo: „Framsóknarmenn liafa hald ið uppi stöðugum ádcilum á Viðreisnarstjórnina fyrir það að bændur væru settir hjá um afurðalán. Sannleikurinn í því máli er sá, að Viðreisnarstjórn in hefur beitt sér fyrir því, að afurðalán til bænda væm auk- in verulega og alltaf ætlazt til þess, að þeir sætu við sama borð í þessum efnum og útvegs menn. Nú hafa viðskiptabank amir fyrir fmmkvæði land- búnaðarráðhcrra gefið yfirlýs ingu um það, að aðstaða bænda til afurðalána skuli ekki vera óhagstæðari en sjávarútvegs- ins.“ Hvað segja bændur um þenn an fróðleik Mbl? Er þetta „sann Ieikurinn" í þeirra augum? hef ur „viðreisnarstjómin" hækk- að afurðalánin? Hvers vegna lét hún bændur ekki sitja við sama borð og útvegsmenn í þessu, fyrst hún „ætlaðist til þess“? Var henni það um megn. Og hvers vegna hafa bændur þá staðið í hörðu stríði við ríkisstjórnina um þessi af- urðalán, fyrst hún hækkaði þau og hafði þau jöfn lánum út- vegsins? Og síðast en ekki sízt: Hvers vegna stóðu Iangir hörku samningar um þetta núna, fyrst það var allt í Iagi áður, og hvers vegna var verið að taka skrifleg loforð um að lagfæra þetta, ef ekkert hefur verið að lagfæra? Þetta er sannkall aður „viðreisnar“-sannleikur. „Kjarni sannleiksins" Og svo kemur þessi gullvægi kafli í lok þessa merkilega leið ara Morgunblaðsins eins og rúsína í pylsuenda: „Kjarni málsins er sá, að núverandi ríkisstjórn hefur sýnt meiri stórliug í landbún- aðarmálunum en nokkur önn- ur ríkisstjórn hér á landi. Und ir forystu landbúnaðarráðherra hafa verið stigin mörg og stór skref til þess að bæta aðsiöðu bænda og efla íslcnzkan Iand búnað og byggja hann upp á marga vegu“. Segja má, að þarna sé kjarni „viðreisnarsannleiksins" ljós- lifandi. Við höfum sem sagt haft þessa stórhuga bænda- stjórn í Iandinu á sjötta ár, og samt eru bændur óánægðir. Þeir kunna ekki gott að meta. Stefnufesta „Viðreisnarstjórniu“ vann mörg fögur lieit við valdatöku sína. Eitt hið helgasta var það, að liún ætlaði alls ekki að skipta sér af vinnudeilum eða kjaramálum — það væri samn ingsmál íaunþega og vinnuveit enda einna. Einnig kvaðst hún með öllu leggja niður það sið leysi, sem uppbótarkerfi nefnd- ist, niðurgrciðsla á vörum eða uppbætur á útflutningsvörur. Nú sjá menn vel, hve þessi stjórnarheit hafa verið efnd. Stjórnin hefur fyrst allra stjórna gerzt svo beinn aðili að samningum um kaup og kjör að forsætisráðherrann sjálfur skrifaði þar undir samningana Framhald á síðu 13 3

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.