Tíminn - 25.09.1964, Side 16
Föstudagur 25. september 1964.
218. tbl.
48. árg.
Enginn kjörbúöar-
bíll kemur á Nesið
FB-Reykjavík, 24. september.
í dag var tekin fyrir á fundi
hreppsnefndar Seltjarnarnes-
hrepps, lunsókn frá KRON um að
fá að rekS kjörbúðarbíl í svo-
nefndu Lambastaðahverfi. Um-
sókninni var vísað frá á þeim
grundvelli, að bfllinn fyllti ekki
þau skilyrði, sem sett eru í heil-
brigðissamþykkt Seltjarnarnes-
hrepps.
KRON hefur nú fest kaup • á
öðrum kjörbúðarvagni og hyggst
því auka umsvif sín á þessu sviði
verzlunar, og í þeim tilgangi vár
sótt um leyfi til Seltjamarnes-
hrepps um að fá að hafa vagninn
í Lambastaðahverfi. Hverfið er
um 500—700 metra frá næstu
verzlun, eins og stendur, en verzl-
un var nýverið lögð niður í hverf-
inu, og hefur enn ekíki yerið á-
Framhald á 15 síðu
/y
TOPPSALA "HJÁ JÚPÍTER
/ ÞÝZKALANDI / GÆRDAG
182 TONN Á184 ÞÍISUND MÖRK
KJ-Reykjavík 24. sept.
Togarimi Júpiter seldi í gær
182 tonn fyrir 184 þúsund mörk
í Bremerhaven, og er þetta
mjög góð sala hjá skipinu. Júpi
ter hefur tvisvar áður í sum-
ar selt mjög vel og þá í Hull.
Um mánaðamótin júní — júlí
tðk Markús Guðmundsson við
skipstjórn á Júpiter, og hefur
síðan farið í þrjár söluferðir
og landað einu sinni hér heitna
Fyrst seldi Júpiter í Hull 13.
júlí 167 tonn fyrir 14.872 sterl
ingspund, þá seldi hann 7.
ágúst og aftur í Hull 169 tonn
fyrir 15.131 sterlingspund, og
svo núna- í gær seldi hann í
Bremerhaven 182 tonn fyrir 184
þúsund mörk. Allt eru þetta
„topp“ sölur eins og sagt er
þegar togararnir selja vel á
erlendum markaði. Uppistaðan
í aflanum sem hann seldi síð
ast var karfi, fenginn á heima
miðum. Markús Guðmundsson
var lengi með Marzinn, þegar
togararnir voru upp á sitt
bezta. Var hann þá löngum
aflahæsti eða nieð aflahæstu
skipstjórunum, og virðist ekki
af baki dottinn.
Markús Guðmundsson |
Mikil hey fyrir
austan
KJ-Reykjavík, 24. sept.
Bændur á Austurlandi heyjuðu
vel í sumar, og eru því vel undir
veturinn búnir hvað hey snertir.
Þar eystra stendur slátrun nú
yfir af fullum krafti og verður _ ____
slátrað 37—40 þúsund fjár. Er það j myndina „Úr dagbók lífsins“ til
heldur meira en í fyrra, en þó fjáröflunar fyrir sjóðinn. Lætur
ekki vegna lélegra heyja, því að. Magnús vel af ferðinni, viðtökur
bændur á Austurlandi heyjuðu ó- Voru hvarvetna með fádæmum góð
venju vel á liðnu sumri. ' ar og verða þeir peningar
Rúmlega 300 þús. komin
í Hjálparsjóð æskufólks
HF-Reykjavík, 24. september.
í sumár hafa safnazt 125 þús-
und krónur í Hjálparsjóð æsku-
fólks, Magnús Sigurðsson, skóla-
stjóri Hlíðaskólans, er nú kominn
heim úr ferðalagi í kringum land
ið, þar sem hann sýndi kvik
sem
söfnuðust, bráðlega afhentar Bisk
upsskrifstofunni.
Áður höfðu safnazt saman 200,
000 krónur, svo alls eru komnar
325,000 krónur í sjóð þann, sem
nota á til styrktar munaðarlaus-
um börnum og vanræktum ung-
lingum. Magnús Sigurðsson hefur
sjálfur unnið að því mörg undan
farin ár, að koma saman áður
nefndri kvikmynd, en hún bregð
ur upp mynd af unglingum á
glapstigum í Reykjavík. Pening
arnír, sem safnazt hafa í sjóðinn,
eru ágóðinn af sýningum þessarar
myndar og svo gjafir og fleira,
sem Magnúsi hafa borizt.
Listi hefur verið sendur til síld-
veiðiskipanna og geta þau þar
skráð framlög sín. Ekki munu öll
hafa sent svar ennþá, en þau, sem
þegar hafa sinnt þessu, eru mjög
stórtæk. Ekki er vitað, fyrr en
öll skipin hafa sent svar, hve mik-
ið kemur inn þar. Þegar hefur
verið skipuð nefnd, sem sjá mun inga, en það væri ekki nóg. Það
um peningaráðstafanir úr sjóðn- væru fleiri staðir á landinu en
úiii. Magnús Sigurðsson, skóla- Reykjavík og ekki víst að borgin
stjóri, sagði blaðinu í dag, að kæmist yfir að sinna öllum, sem
Reykjavíkurborg ynni nú að því á þyrftu að halda. Það væru því
að koma upp alls konar heimiium næg verkefni fyrir sjóðinn, þó
og skólum fyrir vanrækta ungl- fleiri aðilar ynnu að sama málefni.
ASÍ-FULLTRIlAR
EJ-Reýkjavík, 24 september.
Fleliri og fleiri félög kjósa nú
fulltrúa sína á Alþýðusanibands-
þing. Þessi félög hafa bætzt við
Iistann, sem birtur var í biaðinu
í dag:
Verkalýðsfélagið Brynja, Þing-
eyri, en þar hlaut Guðmundur
Friðgeir Magnússon kosningu.
Prenbmyndasmiðafélag ís ands.
Þar var Geir Þórðarson kjörinn
aðalmaður, en Jens HaRdórsson
varamaður.;
Félag bifvélavirkja hélt fund
Tiýlega og aðalmenn voru kjörnír
Árni Jóhannesson og Sigurgestur
Guðjónsson, en varamenn Kol-
beinn Guðjónsson og Svavar Júlí-
usson.
Verkalýðsfélagið Súgandi, Suð-
ureyri, kaus Bjarna Friðriksson
sem aðalfulltrúa, en Guðna Ólafs-
son sem varamann.
JON KJARTANSSON ENN
KOMINN í EFSTA SÆTI
EJ-Reykjavík, 24. september.
Jón Kjartansson frá Eskifirði sló
öll fyrri síldveiðimet í nótt með
geysistóru kasti, fékk 2000 mál
og tunnur og er nú efstur. Er bát-
urinn nú kominn með um 38.000
mál og tunnur, að því er Þor-
steinn Gíslason, skipstjóri, tjáði
blaðinu í dag. Þorsteinn fer að
kenna við Stýrimannaskólann um
mánaðarmótin, og verður því að-
eins í fimm daga enn þá á bátnum,
sem þó mun halda áfram sfldveið-
um í næsta mánuði.
Þrjú skip hafa skipzt á um að
hafa forystuna á síldveiðunum í
sumar. í byrjun vertíðarinnar var
Snæfellið frá Akureyri efst, en 17.
júlí tók Jón Kjartansson, Eski-
firði, forystuna og var þá fyrsta
skipið, sem fór yfír 20.000 mál
J og tunnur á þessari vertíð. Hann
I naut þess þó ekki lengi, því að
29. júlí fékk Jörundur III, Reykja
j vík. 3000 mála kast og náði for-
| vstunni. En í nótt fékk Jón Kjart
; ansson stórt kast, 2000 mál og
tunnur og er nú efsfur með um
38.00 mál og tunnur. Jörundur III,
sem er annar, er með 36.278 mál
og tunnur og hættur síídveiðum.
Við náðum í dag í Þorstein
Gíslason, skipstjóra á Jóni Kjart
anssyni, sem var staddur á Eski-
firði, en hann hefur undanfarin
ár verið með þeim efstu á síld
veiðunum og varð aflakóngur ár-
ið 1960.
— Hvar fékkstu þessa síld í
nótt, Þorsteinn?
— Við fengum hana út af Reyðar
fjarðardýpi, um 40 mílur frá
Þorsteinn við stýriC á Guðrúnu Þorkelsdóttur
Gerpi. Þar var ágætis veiðiveður
í nótt og við köstuðum þama á
millí Rússanna.
— Tefja þeir veiðarnar hjá
ykkur?
— Já, þeir leggja netin alltaf
í beztu lóðningamar. En við get-
um þó alltaf fundið bletti inn á
milli til að kasta í.
— Var þetta góð. síld?
— Já, hún saltaðist ágætlega og
það var mlkið af stórsíld inn-
anum. Þag hefur töluvert saltazt
af þeim afla, sem við höfum feng
ið í sumar, líklega um helming-
ur.
— Þetta er fyrsta sumarið þitt
á Jóni Kjartanssyni?
— Já, hann kom hingað til lands
á þorláksmessu í fyrra. Ég var
fyrst á gamla Jóni Kjartanssyni
og síðustu fjögur sumur hef ég ver
Framh. á 15. síðu
* •